Morgunblaðið - 08.04.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 23
FRETTIR: EVROPA
Pólveijar þrýsta á um ESB-aðild
Vilja breytingar á
landbúnaðarstefnu
Varsjá, Brussel. Reuter.
JOZEF Oleksy, forsætisráðherra Pól-
lands, þrýsti á fimmtudag á forystu-
menn Evrópusambandsins að hefja
aðildarviðræður við Pólland sem
fyrst. Hann fékk hins vegar þau svör
hjá Jacques Santer, forseta fram-
kvæmdastjórnar ESB, að viðræður
gætu ekki hafizt fyrr en eftir ríkjar-
áðstefnu sambandsins, sem hefst á
næsta ári. Oleksy hafði eftir forset-
anum að Pólland gæti fengið aðild á
árabilinu 1999-2001. „Við kjósum
augljóslega fyrsta árið,“ sagði for-
sætisráðherrann á blaðamannafund-
ið.
Oleksy þrýsti jafnframt á um að
Pólveijar fengju með einhveijum
hætti að taka þátt í ríkjaráðstefn-
unni, sem ákveða á framtíðarskipu-
lag ESB. Santer svaraði því hins
vegar til að ráðstefnan væri fyrir
aðildarríki, en náið samráð yrði haft
við væntanleg aðildarríki.
Óþolandi
viðskiptahalli
A sama tíma og Pólveijar vilja
skjóta aðild að ESB, halda þeir því
hins vegar fram að landbúnaðar-
stefna ESB standi í vegi fyrir því
að efnahagslíf þeirra geti aðlagazt
Evrópusambandinu. Á ráðstefnu um
matvælaiðnað, sem haldin er í Var-
sjá, sagði Roman Jagielinski, land-
búnaðarráðherra Póllands, að ESB
yrði að opna markað sinn fyrir land-
búnaðarvörur fyrir pólskum útflutn-
ingi til að lagfæra óþolandi viðskipta-
halla.
Hann benti á að pólskur útflutn-
ingur til ESB hefði tvöfaldazt á und-
anfömum fjórum ámm, en innflutn-
ingur frá ESB hefði hins vegar þre-
faldazt. Jagielinski sagði að fijáls
viðskipti væru forsenda þess að Pól-
land gæti aðlagað efnahagslíf sitt
kröfum Evrópusambandsins. Núver-
andi viðskiptasamningar liðu hins
vegar fyrir ofvemdaðan matvæla-
markað ESB.
Póiveijar hyggjast hins vegar hag-
ræða í eigin landbúnaði; fækka
bóndabýlum um helming þannig að
þau verði u.þ.b. ein milljón og einka-
væða þann fjórðung ræktarlands,
sem enn er í eigu ríkisins.
Aðalfundur Evrópubankans
Fara fram á meira
fé til uppbyggingar
London. Reuter.
AÐALFUNDUR Evrópubankans
(EBRD) hefst í London í dag. Stjóm-
endur bankans hafa undanfarin ár
verið önnum kafnir að endurreisa
ímynd hans eftir hneykslið sem varð
er aðalbankastjórinn franski Jacqu-
es Attali, flaug um Evrópu þvera
og endilanga á einkaþotum og eyddi
milljónum í glæsileg húsakynni
bankans í London.
Nú telur nýi bankastjórin, Jacqu-
es de Larosiere, að bankinn hafí
endurheimt traust meðal eigenda
sinna, sem eru 59 ríki og aiþjóða-
stofnanir. Hlutverk bankans, sem
var stofnaður eftir hrun kommúnis-
mans í Evrópu, er að styrkja einka-
geirann í Austur-Evrópu og hjálpa
fyrrverandi kommúnistaríkjum til
sjálfshjálpar. Því hlutverki telur de
Larosiere að bankinn geti ekki sinnt
án þess að eigið fé hans verði aukið
verulega.
Eiginfjáraukningin verður vænt-
anlega helzta málið á aðalfundinum,
sem 370 embættismenn og 2.600
bankamenn munu sækja. Eigið fé
bankans er 10 milljarðar ECU, eða
836 milljarðar íslenzkra króna og
eru nú um 60% þess bundin í útlán-
um.
Erfitt að sannfæra eigendur
Búizt er við að erfítt verði fyrir
de Larosiere að sannfæra stóra hlut-
hafa í bankanum, til dæmis Banda-
ríkin, Bretland og Þýzkaland um
ÚR marmaralögðum höfuð-
stöðvum Evrópubankans í
London.
að auka hlutafjárframlagið. „Ég get
ekki ímyndað mér að Bandaríkin
samþykki eiginfjáraukningu eins og
ekkert sé,“ segir Heinar Luschin,
fulltrúi Austurríkis í bankastjórn-
inni.
Meðal þess, sem stjórnendur
bankans hafa lagt á sig til að sann-
færa eigendurna um að bankinn
eigi ný fjárframlög skilin, er að
skera allan kostnað rækilega niður.
Orðrómur er jafnvel á kreiki um að
bankinn muni flytja úr marmara-
höll Attalis, en hluti hennar hefur
þegar verið leigður út til japansks
banka.
Spring vill veija smáríkin
• DICK Spring, utanríkisráð-
herra Irlands, segir að Irar muni
með öllum ráðum verja áhrif og
réttindi smáríkja á ríkjaráðstefnu
ESB, sem hefst á næsta ári.
• LÖGFRÆÐILEGUR ráðgjafi
Evrópudómstólsins hefur sent
dómstólnum álit, þar sem hann
telur að Grikkir hafi haft lagaleg-
an grundvöll til að leggja við-
skiptabann á Makedóníu, þar sem
líta hafi mátt á deilu ríkjanna (um
fána, stjórnarskrá og nafngift
Makedóníuríkis) sem grískt ör-
yggismál. Álitið er ekki bindandi.
Utanríkisráðuneyti Makedóniu
hefur lýst yfir vonbrigðum og
hneykslan.
• EVRÓPUÞINGIÐ hefur sam-
þykkt ályktun, þar sem fjölda-
morðin í Búrúndí eru fordæmd
og ESB og önnur vestræn samtök
hvött til að gera þegar í stað neyð
aráætlanir, sem hrundið verði i
framkvæmd ef ástandið í landinu
fer úr böndunum. Meðal annars
verði gert ráð fyrir hernaðarí-
hlutun á vegum SÞ og myndun
griðasvæða fyrir flóttamenn.
• SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERR-
AR ESB hafa samþykkt að sam-
bandið leigi skip til að hafa eftir-
lit með reknetaveiðum á Miðjarð-
arhafi, sem liafa spillt fyrir fisk-
vernd.
Kjósum gœðin
Uiydai sófum og stólum fró Wjj &
Rúmteppi og púSar fró (^vps^)
Gjgfgvgra fró
Opib í dag frá kl. 11-16
Mörkinni 3, sími 588 0640
Umsóknir um sumardvöl í
orlofshúsum og tjaldvögnum V.R.
Auglýst er eftir umsóknum um dvöl í orlofshúsum og tjaldvögnum V.R. sumariö
1995.Umsóknir á þar til gerðum eyðublööum sem fást á skrifstofu félagsins þurfa
að berast skrifstofunni, Húsi verslunarinnar, 8. hæð, í síðasta lagi föstudaqinn
28. apríl 1995.
Orlofshúsin eru á eftirtöldum stöðum:
Einarsstöðum á Völlum S-Múl.
Flúðum Hrunamannahreppi
Akureyri
Húsafelli í Borgarfirði
Ölfusborgum við Hveragerði
lllugastöðum í Fnjóskadal
Miðhúsaskógi í Biskupstungum
Stykkishólmi
Kirkjubæjarklaustri
Auk húsanna eru 10 tjaldvagnar leigðir til félagsmanna.
Húsin og vagnarnir eru laus til umsóknar tímabilið 26. maí til 15. september.
Úthlutunarreglur:
Við þessa úthlutun byggist réttur til úthlutunar á félagsaldri í V.R. að frádregnum
fyrri úthlutunum orlofshúsa. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur fást á
skrifstofu V.R. og er reglunum dreift með umsóknareyðublaðinu.
Leigugjald: kr. 9.000,00 - 10.500,00 á viku í orlofshúsi
kr. 7.000,00 - í tjaldvagni í 6 daga
kr. 14.000,00 - í tjaldvagni í 13 daga
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir þurfa að berast skrifstofu V.R. í
síðasta lagi 28. apríl n.k.
Upplýsingar um hverjir hafa fengið úthlutað orlofshúsi/tjaldvagni munu liggja
fyrir 8. maí n.k.
Umsóknareyðublöð ásamt reglum um úthlutun eru afhent á skrifstofu V.R., Húsi
verslunarinnar 8. hæð. Ekki verður tekið á móti umsóknum símleiðis, en senda
má útfyllt umsóknareyðublöð í myndrita nr: 588 8356.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
J
Eitt blab
fyrir alla!
kjarni málsins!