Morgunblaðið - 08.04.1995, Blaðsíða 66
66 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
(IG VIlHÍ
AKI Hnw
NELL
f. ,1
HÁSKOLABÍÓ
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
NAKIN I NEW YORK
Martin Scorsese Presents
RjifH ""ta to«a»
ifp "r
' - ' r\íl 'r
Naked i|
Frábær gamanmynd úr smiðju Martins Scorsese um tau-
gaveiklað ungskáld (Eric Stoltz), feimna kærustu, upp-
skúfaðan ástmann hennar (Timothy Dalton) og útbrunna
sápuleikkonu (Kathleen Turner) sem hittast öll á meðal
hraðskreiðs þotuliðsins í stóra eplinu New York og missa
andlitið og svolítið af fötum!
Ath. Ekki íslenskur texti.
Sýndkl. 3,5, 7, 9og11.
„fyndin og kraftmikil mynd...
dálítið djörf...
heit og slimug eins og nýfætt ,k
barn" Ó.H.^T. Rás 2. Æ
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Verð kr. 750.
*** Mbl.
* Dagsljós
* Morgun1
líka
Idborg
HlGUllk
\K( RKAItl
Sýnd kl. 3 og 5
6 OSKARSVERDLAUN
Tom
Hanks er
FORREST 0
GUMP« h _
Sýnd kl. 6.30 og 9.15
SKUGGALENDUR
ZONE
Sýnd kl. 9 og 11.
B.i. 16.
Höfum tekið hina frábæru barnamynd Lassie aftur til sýningar!
Tónleikar
Drum Club á íslandi
HLJÓMSVEITIN Drum Club kom
hingað til lands í fyrrakvöld og
mun halda ferna tónleika hér á
landi. Þetta er ein af vinsælli dans-
sveitum Bretlands. Til marks um
það má nefna að myndband með
sveitinni var valið vinsælast á MTV
árið 1993. Auk þess var Drum
Club nýlega á ferð um Japan með
Underworld og í maí mun sveitin
ferðast um Svíþjóð og Brasilíu með
Prodigy.
Tónleikamir hér á landi verða
líklega festir á filmu og notaðir í
tónlistarmyndband. í för með
sveitinni verða síðan breskir blaða-
menn frá popptímaritum á borð
við Melody Maker og munu þeir
gera ferðinni skil. Bubbleflies með
Svölu Björgvinsdóttur munu hita
upp fyrir Drum Club á tónleikun-
um.
Plata með tónleikunum
Ekki er nóg með að tónleikunum
verði gerð góð skil í fjölmiðlum
erlendis, heldur verða þeir teknir
upp og gefnir út á plötu undir yfir-
skriftinni „Drum Club, Live in Ice-
land“.
„Við töldum það alveg tilvalið
að gefa út plötu með tónleikum á
íslandi,“ segir Lol Hammond í
samtali við Morgunblaðið, en Drum
Club samanstendur af honum og
Charlie Hall. „Við höfum áður
gefið út plötur frá tónleikum i
París, Amsterdam og London,
þannig að þetta er ágætis ný-
breytni.“
Hvað kom til að þið ákváðuð
að halda tónleika á íslandi?
„Okkur hefur lengi langað til
þess. Við þekktum til bresku rokk-
sveitarinnar Killing Joke sem sett-
ist að á íslandi á sínum tíma. Auk
þess vissum við að Prodigy hélt
tónleika á íslandi í fyrra og Inner-
sphere fyrir skömmu. Við erum
mjög spenntir fyrir þessu ferða-
lagi, sem verður vafalaust ögn frá-
brugðið því að ferðast til meg-
inlandsins."
Virkjar huga, líkama og sál
Hefurðu heyrt einhverra ís-
lenskra tónlistarmanna getið utan
Bjarkar?
„Ég man eftir pönksveitinni
Purrki Pillnikk og síðan hef ég
heyrt til sveitarinnar T-World, það
sem hún gaf út undir merki Und-
erwater. Síðan eru Sykurmolarnir
auðvitað í miklu uppáhaldi hjá
mér, sérstaklega það fyrsta sem
þeir sendu frá sér.“
/ stuttu máli fyrir þá sem þekkja
ekki vel til danstónlistar. Hvað ein-
kennir danstónlist?
„Það er tónlist sem virkjar huga,
líkama og sál. Hún hefur áhrif á
líkamann að sama skapi og hug-
ann. Áhrifin koma því úr báðum
áttum. Danstónlist fær þig til að
fara á hreyfingu og er andleg upp-
lyfting. Þú verður jákvæðari í fasi.
Áuk þess er hún alþjóðiegt tungu-
mál og fólk frá öílum þjóðlöndum
getur sameinast undir hennar
hatti. Það sést best á því að síðast
í fyrra vorum við í Japan og nú
erum við á leið til íslands.11
Rokkið skilið eftir
Hvað er svona sérstakt við dans-
tónlist?
„Ég held að hún sé af hinu góðu.
Þar er meiri framþróun en í rokk-
inu og það er alltaf verið að reyna
eitthvað nýtt. Leitast er við að búa
til ný hljóð og setja þau saman á
nýjan hátt. Rokkið byggist alltaf
upp á sömu hljóðfærum og hljóm-
um. Að mínu mati var Jimi Hendr-
ix bestur á gítar og það segir sína
sögu að það var á sjöunda áratugn-
um.
Primal Scream er mjög góð
hljómsveit, en hún hljómar alveg
eins og Rolling Stones. Danstónlist
er nauðsynleg fyrir framþróun í
tónlistarheiminum. Það sem er líka
gott við danstónlist er að hún helst
í hendur við tæknikunnáttu. Það
má því segja að tæknin sé sam-
ferða danstónlistinni á meðan
rokkið sé skilið eftir.“
... en hvað er svona sérstakt við
Drum Club?
„Við höfum eigin stíl, sem er
mjög mikilvægt fyrir allar hljóm-
sveitir. Við erum ekki annars
flokks útgáfa af Simple Minds eða
U2. Við leitum stöðugt að nýjum
hljómum og beitum tækni og tölv-
um til að hjálpa okkur. Umfram
allt reynum við að vera skapandi.“
Haldið ykkur fast
Hafðirþú komið eitthvað nálægt
tónlist áður?
„Ég var í hljómsveitinni Heaven
Seventeen og í pönksveit þar áður,
þannig að ég er enginn nýgræðing-
ur í tónlistarheiminum. Ég nýti
mér síðan þá þekkingu í danstón-
listinni. Ég er tónlistarmaðurinn
og Charlie er plötusnúðurinn. Þetta
myndi ég kalla dæmigert samstarf
fyrir okkar kynslóð.“
Hvaið olli því að þú fórst út í
danstónlist?
„Ég hef alla tíð hlustað á tónlist
og verið að segja má alæta á því
sviði. Sem dæmi má nefna að ég
hélt mikið upp á Stevie Wonder,
Brian Eno og Talking Heads. Mér
líkaði reyndar aldrei „soul“-tónlist.
Mér fannst aldrei vera nógu mikið
„soul“ í henni. „House“-tónlist
kom fram á sjónarsviðið árið 1988
og ég fann strax að hún var að
mínu skapi.“
Nú leggur Drum Club mikið upp
úr framþróun og þú segir að það
sé aðal danstónlistar. Verður ykkar
tónlist þá ekki fljótt úrelt?
„Ég held að við höfum náð að
koma okkur nægilega vel á fram-
færi til að svo sé ekki. Þú mátt
ekki gleyma því að danstónlist
verður sífellt vinsælli og áhrif
hennar á poppið eru alltaf að auk-
ast. Danssveitir fá núna mun fleiri
útgáfusamninga en áður og sveitir
eins og Orbital ná upp í efstu
sæti vinsældalista. Danstónlist á
sér þegar fjölmarga fylgjendur um
allan heim og ég held að óhætt
sé að segja að hún breiðist út eins
og eldur í sinu.“
Við hverju mega íslenskir tón-
listarunnendur búast af ykkur?
„Mjög áhrifamikilli og djúp-
stæðri dansreynslu. Haldið ykkur
fast.“
Að lokum má geta þess að tón-
leikar hljómsveitarinnar Drum
Club voru haldnir á skemmtistaðn-
um 1929 á Akureyri í gærkvöldi,
verða í Villta Tryllta Villa í kvöld,
Tónabæ á þriðjudagskvöld og loks
í Tunglinu á miðvikudagskvöld.