Morgunblaðið - 08.04.1995, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
L
Morgunblaðið/Kristinn
HERTHA Þorsteinsdóttir, innkaupastjóri í 10-11 í Glæsibæ,
með Mónu egg nr. 8, sem hafði lækkað um meira en 170
krónur og kostaði 746 krónur í gær.
Móna nr. 8 selst best
„MÓNU páskaegg hafa alltaf ver-
ið ódýrari en önnur páskaegg og
ódýrari gerðir seljast ávallt mjög
vel. Fyrir þessa páska leggjum
við kapp á að bjóða páskaegg á
lægsta verði og í dag höfum við
lækkað verðið nokkrum sinnum,
enda í verðstríði. Það er mjög fjör-
ugt og ánægjulegt, því viðskipta-
vinir njóta góðs af,“ sagði Hertha
Þorsteinsdóttir, innkaupastjóri
10-11 í Glæsibæ, þegar rætt var
við hana síðdegis í gær. Hún sagði
að verð á páskaeggjum frá Mónu
og Nóa Síríusi hefði lækkað tals-
vert meira en egg frá Góu.
„Aðal sölutími páskaeggja er
enn ekki runninn upp en samt
mokseljum við ódýrari gerðir af
eggjum.
Mónu egg nr. 6, sem vegur 250
g, kostaði 738 kr. þegar við lokuð-
um verslun okkar í gærkvöldi, en
kostar 568 krónur þessa stundina.
Strumpaegg frá Nóa, sem vegur
300 g kostaði 928 kr. í gær, en
er nú komið í 778 krónur,“ sagði
Hertha spurð um dæmi um verð-
lækkun.
- Er eitthvað egg sem selst
betur en önnur?
„Salan er nokku jöfn, en mér
sýnist Mónu egg nr. 8 seljast
mest eins og er. Það vegur 330
g og kostar nú 746 krónur, en
kostaði í gærkvöldi 918 krónur.“
Safna barmmerkjum
Hún sagði að margir væru
vanafastir og keyptu sams konar
páskaegg á hveiju ári.„Börn eru
tilbúnari að prófa aðrar tegundir.
Þó veit ég um mörg vanaföst
börn sem vilja bara Mónu egg,
kannski aðallega af því í þeim eru
barmmerki sem þau safna.“
Hertha sagðist gera ráð fyrir
að fólk keypti stærri páskaegg í
ár en í fyrra, vegna verðlækkun-
ar. „Nú er hægt að fá mjög mynd-
arleg páskaegg sem kosta álíka
mikið og mun minni egg kostuðu
í fyrra. Að öðru leyti kemur í ljós,
hvort frekari verðbreytingar
verða.“
OPIÐ ALLAR HELGAR
FOI.D
FASTEIGNASALA
SIMI 21400 Félag fasteignasala
Opið hús — Gullengi 17 — 3ja hæð
Þessi stórglæsilega ca 127 fm íb. á 3. hæð er til sölu. 3 rúmg. herb., björt
stofa og borðstofa. Tvennar suðursv. með miklu útsýni. Bóen sérvalið
eikarparket á gólfum. Lútaður hlynur í eldhúsinnréttingu. Baðherbergi
flísalagt í hólf og gólf. Geymsla og þvottaherb. innan íb. Snyrtileg sameign.
Sameiginlegt geymsluloft. Frágengin lóð. Ca 40 fm tvöfaldur bílskúr.
Áhv. 4,5 millj. Verð 11,8 millj. Haraldur sölumaður hjá Fold verður á staðnum
í dag, laugardag, kl. 14—16.
- kjarni málsins!