Morgunblaðið - 08.04.1995, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 08.04.1995, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ 4- i FRÉTTIR Ný bifreiða- skoðun opnuð NY bifreiðskoðun fyrir allar gerðir ökutækja, Athugun hf. skoðunarstofa, var opnuð í gær. Fyrsti bíllinn sem skoðað- ur var í hinu nýja fyrirtæki var bíll Davíðs Oddssonar forsætis- ráðherra sem jafnframt opnaði stöðina formlega. Fyrirtækið er til húsa í Klettagörðum 11 í Reykjavík. Stærstu hluthafar hins nýja fyrirtækis eru innlend trygg- inga- og olíufélög. Athugun hf. er þriðja bifreiðskoðunar- stöðin sem tekur til starfa hér á landi. Jóhannes Jóhannesson framkvæmdastjóri segir að verðskrá Athugunar hf. verði 10% lægri en verðskrá sem samgönguráðuneytið gefur út. Aðalskoðun fólksbila mun þannig kosta 2.232 kr. i stað 2.480 kr. Auk þess verður veittur 5% afsláttur af álagi sem leggst á aðalskoðanir bíla sem komnir eru þrjá mánuði eða lengur yfir tilskilinn skoð- unartíma. Jóhannes segir að fyrirtæk- Morgunblaðið/Þorkell ið geri sér vonir um að ná 18-22% allra skoðana á höfuð- borgarsvæðinu en heildaraf- kastageta stöðvarinnar er 32%. Atta starfsmenn vinna við skoðunina á tveimur braut- um. Athugun hf. hefur fengið úthlutað lóð við hlið núverandi húsnæðis að Klettagörðum. Samkeppnisútboð Mannvirkiasjóðs Atlantshafsbandalagsins Búist við stærri verk- efnum síðar á árinu VMSI höfðar mál fyrir Félagsdómi Deilt um út- reikning hækk- ana í samningi UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hef- ur auglýst eftir fyrirtækjum, sem áhuga hafa á að taka þátt í út- boði á vegum Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins. Einka- réttur íslenskra aðalverktaka til framkvæmda fyrir vamarliðið var afnuminn 1. apríl síðastliðinn og er þetta í fyrsta sinn sem boðið er út verk hér innanlands sem fjár- magnað er af Mannvirkjasjóðnum. Um er að ræða lítið reynslu- verkefni í fyrstu sem felst í við- haldi á ratsjárstöðinni á Stokks- nesi og er kostnaðaráætlun verks- ins á bilinu 6,5-16,2 milljónir króna. Verktaka fijáls frá 1. apríl Framkvæmdir á vegum Mann- virkjasjóðs NATO á Islandi voru lengi til endurskoðunar innan bandalagsins vegna krafna um að verk yrðu boðin út í samræmi við reglur sjóðsins. íslenskir aðalverk- takar sf. var stofnað árið 1954 til að annast allar framkvæmdir fyrir vamarliðið og tók fyrirtækið við þessum verkefnum af bandaríska verktakafyrirtækinu Hamilton. Hafa Aðalverktakar því haft einkarétt á' verktöku fyrir varn- arliðið síðastliðin 40 ár. Ýmsar aðildarþjóðir höfðu gagnrýnt það fyrirkomulag sem hér ríkti og á árinu 1992 samþykkti fjárveit- inganefnd Mannvirkjasjóðsins að veita fé til framkvæmda á íslandi, gegn því að einkaréttur Aðalverk- taka yrði afnuminn og verk yrðu boðin út í samræmi við reglur sjóðsins. Ríkisstjómin ákvað í febrúar 1992 að verktaka fyrir Mann- virkjasjóð Atlantshafsbandalags- ins yrði opnuð fyrir samkeppni fyrir lok kjörtímabilsins og náðist samkomulag við Mannvirkjasjóðs- nefnd NATO í júní sama ár um að breytingin tæki gildi 1. apríl árið 1995 eftir ákveðinn aðlögun- artíma en Aðalverktökum var gert að bjóða út á innanlandsmarkaði þau verk, sem áður voru _falin undirverktökum. Eftir viðræður við bandarísk stjórnvöld í nóvember á síðasta ári samþykkti ríkisstjómin svo að verktaka vegna framkvæmda á vegum Mannvirkjasjóðs NATO verði frjáls frá og með 1. apríl 1995 og einkaréttur íslenskra að- alverktaka til framkvæmda fyrir vamarliðið þar með afnuminn. Bandaríkin hafa umsjón með framkvæmdum á vegum Mann- virkjasjóðsins hér á landi, en ís- land á ekki aðild að sjóðnum. Hér eftir verða öll verk, sem kostuð em af Mannvirkjasjóðnum, aug- lýst opinberlega og öllum verktök- um gefinn kostur á að taka þátt í forvali. Samkvæmt upplýsingum utan- ríkisráðuneytisins standa vonir til að góður árangur af þessu fyrsta samkeppnisútboði verði til þess að Mannvirkjasjóðurinn heimili frekari framkvæmdir, sem nauð- synlegar eru fyrir varnir landsins, á næstu árum. Samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins eru taldar líkur á að boðin verði út ýmis stærri verkefni síðar á þessu ári. Fyrirtækin sem taka þátt í út- boðinu þurfa að skila viljayfirlýs- ingu fyrir 14. apríl og hyggst ráðuneytið ljúka útboðinu fyrir 1. maí. VERKAMANNASAMBAND ís- lands hefur stefnt Vinnuveitenda- sambandi íslands fýrir Félagsdómi vegna ágreinings um túlkun á 2. grein kjarasamnings VMSÍ og VSÍ, sem gerður var í febrúar sl., þar sem fram hefur komið mismunandi skilningur aðila á útreikningsreglu greinarinnar um launahækkanir. Ástráður Har- aldsson lögmaður flytur málið fyrir VMSÍ og í dóm- kröfu stefnanda er _þess krafist að umrædd grein kja- rasamningsins verði skilin svo að umsamdar launa- hækkanir skuli reiknast á grund- velli launataxta án námskeiðsálaga og að engin breyting hafi orðið á um- sömdu námskeið- sálagi fiskvinnslu- fólks og starfsfólks í mötuneytum. í kjarasamning- um ASÍ og við- semjenda var samið um sérstakar krónutöluhækkanir launa sem færu stighækkandi á laun undir 84 þús. kr. á mánuði. Urðu samningsaðilar sammála um að útbúa reiknireglu sem nota átti á allar launatöflur en ágreiningur hefur verið um hvort hækkanirnar eiga að reiknast ofan á taxta eingöngu eða hvort ýmsar álags- og yfírgreiðslur legðust við launataxtana áður en launa- hækkunin er reiknuð sem hefði í för með sér að þessar greiðslur yrðu lægra hlutfall en áður. I stefnu Verkamannasambands- ins segir að með reiknireglunni og krónutöluhækkun hafí ætlunin ver- ið sú að umsamin starfsaldursbil riðluðust í þeim launatöflum sem samningurinn náði til og bil milli launataxta ætti að minnka. „Engin ákvæði samningsins fjalla hins vegar um skerðingu á álögum eða beina lækkun sérstakra álaga enda eru slík álög ekki hluti launataxta. Engin slík álög áttu að lækka að krónutölu þó að reikni- reglan feli að sjálfsögðu í sér hlut- fallslega lækkun slíkra álaga í sam- anburði við heildarlaun þar sem slík álög eru ákveðin sem krónutala. Dæmi um þetta eru ákvæði aðalkj- arasamnings um orlofsuppbót. Ágreiningurinn í þessu máli er aðeins um útreikning launatöflu skv. kjarasamn- ingi. Af hálfu stefnanda er full- yrt og á því byggt að með mánaðar- launatöxtum hefur aldrei verið átt við neitt annað en blá- berar launatöfl- urnar. Hefði hugur samningsaðila staðið til þess að lækka sérstaklega umsamin nám- skeiðsálög skv. að- alkjarasamningi hefði átt að orða það skýrt og greinilega. Það var ekki gert, enda stóð aldrei til að þau lækkuðu. Námskeiðsálögin eru föst krónutala og kjarasamningur aðila gengur útfrá að sú krónutála sé óbreytt," segir í stefnu VMSÍ. Vinnuveitendur fagna úrlausn deilunnar fyrir dómstólum Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, segist vera ánægður með að þetta mál komi til úrlausnar Félagsdóms því mikil- vægt sé að fá niðurstöðu í þessum ágreiningi sem hann segir að snúist ekki um stórar fjárhæðir heldur grundvallaratriði. „Þetta snýst um túlkun á samningunum, þannig að niðurstaða málsins getur haft tals- vert fordæmisgildi um túlkun gagn- vart hærra launuðum hópum. Það snýst um á hvaða stærð kauphækk- unin sem samið var um, á að koma, endanlegt kaup eða afmarkaðan hluta launanna," sagði hann. Vinnuveitendur munu leggja fram sína greinargerð og gögn í málinu fyrir Félagsdóm eftir páska. ÁSTRÁÐUR Haraldsson lögmaður lætur þingfesta stefnu VMSÍ. Síðustu skoðanakannanir birtar í gær Sjálfstæðisflokkur með 31,6% hjá DV en 36,8% hjá Gallup MIKILL munur var á fylgi flokk- anna í síðustu skoðanakönnunum, sem gerðar hafa verið á veguni fjölmiðla og birtar voru í gær. í kosningaspá, sem gerð er eftir könnun DV, sem birt var í fyrra- kvöld, fær Sjálfstæðisflokkurinn til dæmis 31,6%, en í könnun Gall- ups fýrir Ríkisútvarpið, sem gerð var 5.-6. apríl, fær flokkurinn 36,8% fylgi. Ríkisútvarpið birti í gær könnun ÍM Gallups, sem byggð var á 1.600 manna tilviljunarúrtaki úr þjóð- skrá. Svarhlutfall var 73%, en af þeim sem svöruðu, neituðu 15,5% að gefa upp afstöðu sína eða voru óákveðnir. Samkvæmt könnun Gallups fær Alþýðuflokkur 11,5%, Fram- sóknarflokkur 24,1%, Sálfstæðis- flokkur 36,8%, Alþýðubandalag 12,3%, Þjóðvaki 8,2% óg Kvenna- listinn 5,3%. DV gerir kosningaspá í könnun DV var hringt í 1.200 manns eftir símaskránni. Af þeim tóku alls 34,1% ekki afstöðu eða neituðu að svara. Af þeim, sem afstöðu tóku, sögðust 11% styðja Alþýðuflokk, 23,3% Framsóknar- flokk, 37,7% Sjálfstæðisflokk, 14,8% Alþýðubandalag, 4,6% Kvennalista og 7,2% Þjóðvaka. DV umreiknar þessar niðurstöð- Síðustu skoðanakannanir fjölmiðlanna Heildarhlutfall atkvæða íkosningunum 1991 og í síðustu könnunum nú Kosningar 1991 M.bl., Fél.vís.st., 2.-4. apríl RÚV, Gallup, 5.-6. apríl Stöð 2 og Bylgjan, 5.-6. apríl DV, kosningaspá, 6. apríl Alþýðuflokkur Framsóknarfl. Sjálfstæðisfl. Alþýðubandalag Þjóðvaki Kvennalisti ur, samkvæmt reikniformúlu er byggir á fyrri skekkju í könnunum blaðsins miðað við kosningaúrslit. Þannig verður til kosningaspá, en í henni er Alþýðuflokki spáð 11,8%, Framsóknarflokki 25,5%, Sjálf- stæðisflokki 31,6%, Alþýðubanda- lagi 17,7%, Kvennalista 4,9% og Þjóðvaka 7,1%. Stöð 2 birti síðustu könnun sína á fylgi flokkanna í fyrrakvöld og Morgunblaðið birti seinustu könn- un Félagsvísindastofnunar Háskól- ans á miðvikudag. í þeim báðum er fylgi Sjálfstæðisflokksins á svip- uðu reiki og í könnun Gallups, eða á milli 36 og 37%. Mestu munar á milli þeirra kannana á fylgi Al- þýðubandalags, sem mælist nokk- uð hærra hjá Stöð 2, og Þjóðvaka, sem hefur meira fylgi samvæmt könnun Félagsvísindastofnunar. Vilja Sjálfstæðisflokk í stjórn í gærkvöldi birti Stöð 2 niður- stöður könnunar, þar sem spurt var hvort menn vildu heldur ríkis- stjóm með þátttöku Sjálfstæðis- flokks eða án aðildar flokksins. Alls sögðust 52% svarendanna vilja stjómaraðild sjálfstæðismanna, 33% sögðust ekki vilja flokkinn í stjórn og 14% voru óákveðnir. fi i i i > i i i i i i i & i i i i - i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.