Morgunblaðið - 08.04.1995, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 08.04.1995, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sjómenn á gráu svæði Ákvæði kosningalaga um óleyfilegan kosn- ingaáróður og kosningaspjöll styðjast við sjónarmið um leynilegar kosningar, sjálf- stæði kjósenda og friðhelgi kjördagsins, seg- -------------------------------------3»------- ir í umfjöllun Páls Þórhallssonar. Aður en undirskriftasöfnunin á Vestfjörðum er lýst ólögmæt verður þó að huga að nútíðarvið- horfum um tjáningarfrelsi Morgunblaðið/Helgi Ólafsson DREGIÐ hefur verið í efa að undir- skriftasöfnun sjómanna 4 Vest- fjörðum til stuðnings tillögum sjálf- stæðismanna í sjávarútvegsmálum sé lögleg. Yfirlýsing nafngreindra manna um stuðning við Sjálfstæðis- flokkinn vegna afstöðu frambjóð- enda flokksins í kjördæminu til físk- veiðistjórnunar hefur birst í blöðum á yestfjörðum og víðar. Í XVII kafla kosningalaganna eru óleyfílegur kosningaáróður og kosningaspjöll bönnuð í 8 tölusett- um liðum. Þar á meðal er sett þak á fjölda undirskrifta til stuðnings framboðum, bannað er að bera á mann fé eða fríðindi til að hafa áhrif á hvort eða hvernig hann greiðir atkvæði, áróður á kjörstað er bannaður og loks það sem nú hefur borið á góma, ákvæði 2. tölu- liðar um að bannað er „að safna undirskriftum um stuðning eða and- stöðu við ákveðin málefni, sem heyra eða heyrt geta undir valdsvið Alþingis, eftir að almennar alþingis- kosningar hafa verið ákveðnar". Tilgangur laganna Tilgangur ákvæða þessara hlýtur að vera að standa vörð um leynileg- ar kosningar, sem mælt er fyrir um í stjómarskránni, sjálfstæði kjós- enda, þannig að þeir taki ekki ákvarðanir í kjörklefanum af annar- legum ástæðum, og friðhelgi kjör- dagsins og kosninganna, sem undir- stöðu lýðfijáls þjóðfélags. Þakið á fjölda meðmælenda má skýra með því að ella kynnu flokkarnir að heyja kosningabaráttu með því að safna sem flestum undirskriftum og kosningar yrðu þá ekki lengur að sama skapi leynilegar og ella. Ákvæði þessi hafa verið að mestu óbreytt í íslenskum lögum svo ára- tugum skiptir. Um sumt hefur lengi verið deilt eins og nærveru flokk- anna á kjörstað og skráningu þeirra á því hvort menn mæti til kosning- ar. Minna hefur reynt á aðra þætti eins og undirskriftasafnanir. Það er vert að hafa sögulegan bakgrunn þessara ákvæða í huga. Þau eru sett þegar kjósendur voru ósjálfstæðari en nú er, að því er ætla má, og áhrifagjamari. Það kann því að vera minni ástæða nútildags en áður fyrr að fylgja þeim fast fram. Á hinn bóginn er mikilvægt að standa vörð um ákveðnar formreglur í kringum jafnmikilvæga athöfn og kosningar. Sett á aukaþinginu 1959 Ákvæði það sem nefnt hefur ver- ið í þessu sambandi, 2. tl. 125. gr. kosningalaga, kom fyrst inn í lög á aukaþingi Alþingis' 1959. Á því sama þingi voru samþykktar kjör- dæmabreytingar og var lagt fram stjórnarframvarp til nýrra kosn- ingalaga. Ákvæði þetta var þó ekki í upphaflega framvarpinu heldur gerðu þrír þingmenn neðri deildar, Einar Olgeirsson Sósíalistaflokki, Steindór Steindórsson Alþýðuflokki og Jóhann Hafstein Sjálfstæðis- flokki breytingartillögu að þessu leyti sem samþykkt var án þess að hún vekti mikla athygli í saman- burði við aðrar breytingar á kosn- ingalögunum og kjördæmaskipan. Einar Olgeirsson var sá eini þeirra sem vék að rökum fyrir breytingunni í ræðu sinni: „í stjóm- arskrá og kosningalögum eru gerð- ar mjög miklar ráðstafanir til þess að reyna að hindra, að á þeim tím- um, sem alþingiskosningar fara fram, sé verið að grennslast eftir skoðunum kjósenda eða reyna að binda kjósendur með undirskriftum, sem vitanlegt er að menn taka mjög hátíðlega, eins og vera ber. Og í samræmi við það era mjög ákveðin fyrirmæli í lögum um, að ekki megi sáfna nema ákveðinni tölu undir- skrifta til meðmæla með mönnum og ekki megi skora t.d. á menn á slíkum tímum eða annað slíkt. Þetta er allt saman gert með það fyrir augum, að það sé ekki hægt að fá menn til þess að binda sig þannig eða komast eftir skoðunum manna þannig með því að spyija, hvort þeir vilji skrifa undir þetta og þetta. Nú er hægt oft að gera þetta sama, þegar kannske eitt mál er höfuðmál í einum kosningum, og hefur jafn- vel sýnt sig, að slíkt hefur verið gert í allríkum mæli og stundum kannske allir kjósendur í heilum hreppi verið látnir skrifa undir slíka áskoran, sem jafngilti raunvera- lega, að þeir segðu, hvernig þeir ætluðu að kjósa. Það er þess vegna ekki nema í samræmi við alla þá stefnu, sem í stjórnarskránni er, að það skuli dregið úr og bannað að safna slíkum undirskriftum þennan tíma, sem sjálfar alþingis- kosningarnar standa yfir, allur und- irbúningur undir þær, þ.e. upp und- ir tveggja mánaða tíma, og er þetta til samræmis við þær aðrar ákvarð- anir, sem era í kosningalögum og eiga að stuðla að því, að menn séu ekki bundnir með undirskriftum meira en allra nauðsynlegast gerist vegna framboðs eða að ekki sé ver- ið að knýja menn til þess að láta í ljós eða neita sínum skoðunum eða binda sig með þær, þegar búið er að ákveða kosningar." Forn réttur gagnvart Dönum Ekki minntust aðrir ræðumenn á þessa breytingartillögu fyrr en Þór- arinn Þórarinsson sté í ræðustól og andmælti henni með því að visa í gamlan rétt íslendinga: „Það er nú kunnugt þeim, sem þekkja til okkar sögu, að á þeim tíma, er Danir fóru hér með vald, var það eini réttur kjósenda eða landsmanna að mega senda skjöl til stjómarvaldanna með undirskriftum, þar sem þeir létu afstöðu sína koma í ljós. Þetta var sá eini réttur, sem landsmenn höfðu þá. Þrátt fyrir þdð, þótt þessi réttur væri ekki meiri en þetta, mun reynslan samt hafa orðið sú, að hann hafí borið verulegan árangur og orðið til þess að þoka ýmsu áleið- is í okkar sjálfstæðisbaráttu. Þess vegna held ég, þó að réttur og frelsi landsmanna sé nú orðið að ýmsu leyti meira en áður var, að það sé mjög vafasamt að ráðast verulega á þennan rétt og helst afnema hann með öllu, eins og mér virðist hér vera stefnt að, því að enn getur það verið þannig, að það sé heppilegt fyrir kjósendur að hafa afstöðu til þess, þegar aðrar leiðir kunna að vera lokaðar, að láta sitt álit uppi við valdhafana á þennan hátt.“ Eins og fram kemur í umræðun- um er ákvæðið sett til að tryggja leynilegar kosningar og sjálfstæði kjósenda. Sigurður Líndal prófessor hefur einnig bent á það ákvæðinu til stuðnings að undirskriftasafnan- ir rétt fyrir kosningar kunni að binda hendur þingmanna með óhæfílegum hætti, en þeir eiga ein- göngu að vera bundnir af samvisku sinni þegar á þing er komið en ekki loforðum fyrirfram. Sigður Líndal segist ekki vilja leggja dóm á lögmæti undirskrifta- söfnunarinnar heldur hafí hann svarað spurningum fjölmiðla á þann veg að hún virtist stríða gegn bók- staf kosningalaganna. Að minnsta kosti mætti segja að hún væri á gráu svæði. Nútímaviðhorf um tjáningarfrelsi Þórarinn Þórarinsson Framsókn- arflokki sem andæfði, án árangurs, á þingi þegar tillagan kom fram vísaði til þess með sögulegum rök- um hve það væra mikilvæg réttindi almennings að geta komið vilja sín- um á framfæri gagnvart valdhöf- um. Nútíðarsjónarmið um tjáning- arfrelsi hníga í sömu átt. Undir tjáningarfrelsi fellur stjómmála- starfsemi af öllu tagi, þ. á m. söfn- un undirskrifta og birting undirrit- aðra yfírlýsinga. íslendingar hafa lögtekið Mann- réttindasáttmála Evrópu þar sem í 10. gr. er mælt fyrir um vemdun tjáningarfrelsis. Stenst ofangreint ákvæði um bann við undirskrifta- söfnunum andspænis mannrétt- indasáttmálanum? Svar við því ræðst af því hvort sú undantekning sem veitt er í 10. gr. sáttmálans mundi teljast eiga við. Þar segir að takmarka megi tjáningarfrelsi til að afstýra glundroða og ef nauð- syn þykir í lýðræðisþjóðfélagi. Það virðist álitamál hvort bannið við undirskriftasöfnunum megi heim- færa undir þessar undantekningar. Loks má spyija hvort undir- skriftasöfnunin á Vestfjörðum falli endilega undir 2. tl. 125. gr. kosn- ingalaga en ekki 1. tl. í 2. tl. er lagt bann við söfnun undirskrifta til stuðnings ákveðnu málefni, en í 1. tl. kemur fram að ekki megi safna undirskriftum undir loforð um kjörfylgi umfram þann fjölda meðmælenda sem ráð er fyrir gert í kosningalögunum. Semsagt, menn mega upp að vissu marki safna stuðningsyfírlýsingum við tiltekna flokka, auk þess sem alvanalegt er að slíkar yfirlýsingar birtist í fjöl- miðlum. Af þessu sést að þótt undir- skriftasöfnunin fyrir vestan virðist fljótt á litið orka tvímælis í ljósi lagabókstafsins, þarf að hyggja að fjölmörgum sjónarmiðum áður en nokkur dómur verður upp kveðinn. Yfirlýsing AÐ GEFNU tilefni vill kosningamið- stöð Þjóðvaka taka fram að nú á lokaspretti kosningabáráttunnar hafa komið fram í fréttum villandi upplýsingar um meint fráhvarf fólks frá Þjóðvaka. í öllum þessunj tilvik- um hefur verið um að ræða gamlar fréttir, umrædd upphlaup urðu tilefni margvíslegra frétta fyrir einum til tveimur mánuðum. Hér er því um það að ræða að verið er að setja gamlar fréttir í nýjan búning og það segir sig sjálft að hér er einungis verið að reyna að koma höggi á Þjóð- vaka á ögurstundu, þegar of skamm- ur tími er til að útskýra málavöxtu enn á ný í smáatriðum. 1 gær og í dag hafa verið stans- lausar hringingar á skrifstofu Þjóð- vaka frá fólki sem ákveðið hefur að kjósa J-listann meðal annars til þess að mótmæla þessari aðför að óvenju jákvæðri og heiðarlegri kosningabar- áttu sem Þjóðvaki hefur rekið. Þjóð- vaki varar við þeirri herferð andstæð- inga Þjóðvaka sem lýsir sér með of- angreindum hætti og skorar á kjós- endur að halda sér á jákvæðum nót- um og kjósa J-listann. Hrannar B. Arnarsson, kosningastjóri Þjóðvaka. Morgunblaoið/Knstinn HANNA Birna Kristjánsdóttir og Halldóra Vífilsdóttir rétta vegfarendum upplýsingar um baráttumál Sjálfstæðra kvenna. ASDÍS Halla Bragadóttir, framkvæmdasljóri þingflokks Sjálf stæðisflokksins og ein Sjálfstæðra kvenna, kynnir stefnumálii í Kringlunni. Sjálfstæðar konur kynna málstað sinn „Þ AÐ er greinilegt að fólk hefur tekið eftir baráttu Sjálfstæðra kvenna og málflutning- ur okkar á góðan hljómgrunn meðal kvenna á öllum aldri,“ sagði Jóhanna María Eyjólfs- dóttir, sem starfar með Sjálfstæðum konum, hópi kvenna innan Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðar konur hafa kynnt báráttumál sín í auglýsingum og með dreifingu bækl- inga. Jóhanna María sagði að þrátt fyrir að konur hafi unnið gott starf innan Sjálf- stæðisflokksins hingað til, þá hefðu Sjálf- stæðar konur gert ýmsar áherslubreyting- ar, sem væru rökrétt framhald af málefna- starfi hóps ungra kvenna innan flokksins. „Konur á öllum aldri hafa haft samband við okkur og lýst áhuga á að taka þátt í starfi okkar. Þær hafa meðal annars nefnt það sem ástæðu, að þær vildu leggja kvennabaráttu lið, en fyndu ekki samhljóm í boðskap Kvennalistans, “ sagði Jóhanna María.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.