Morgunblaðið - 08.04.1995, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 08.04.1995, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Sig. Jóns. Miklll fjöldi fólks mætti á fundinn á Hvolsvelli, sem haldinn var af búnaðarfélögunum í Rangárvallasýslu. Þorsteinn Pálsson á bændafundi á Hvolsvelli Grundvallarágreiningur milli stj órnar flokkanna Sagði Alþýðuflokkinn fjærst Sjálf- stæðisflokknum af öllum flokkum Selfossi. Morgunblaðið. ÞORSTEINN Pálsson ráðherra sagði á fundi- á Hvolsvelli á mið- vikudagskvöld að grundvallará- greiningur væri milli Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks í landbún- aðarmálum og að formaður Al- þýðuflokksins hefði unnið óheiðar- lega að málum við gerð GATT samningsins. Hann gagnrýndi einnig stefnu Alþýðuflokksins í Evrópumálum og sagði flokkinn fara með blekkingar í þeim málum. Alþýðuflokkurinn væri fjærst Sjálfstæðisflokknum af öllum flokkum sem í framboði væru. Fundurinn var haldinn af búnað- arfélögunum í Rangárvallasýslu til þess að varpa ljósi á stefnu flokk- anna í landbúnaðarmálum. “Við sem búum hér eigum allt undir því að landbúnaðurinn þrífist," sagði Kristján Ágústsson sem setti fund- inn. Frambjóðendur lögðu allir áherslu á að leysa þyrfti úr málefn- um bænda og þá sérstaklega sauðfjárbænda sem ættu í veruleg- um erfiðleikum. Eggert Haukdal á Suðurlandslista sagði nauðsynlegt að taka upp gamla kerfið, útflutn- ingsuppbætur, varðandi stuðning við landbúnaðinn og sauðfjár- bændur og segja þyrfti upp garð- yrkuhluta EES samningsins. Örlagaríkar kosningar Guðni Ágústsson Framsóknar- flokki sagði örlagaríkustu kosning- ar aldarinnar fara í hönd. Hann gagnrýndi frelsi til innflutnings samkvæmt GATT samningnum og sagði stærsta málið að leggja hæstu mögulega tolla á innflutning landbúnaðarvara. Tollana ætti síð- an að nota til að styðja landbúnað- inn innanlands og til sóknar á er- lenda markaði. Drífa Kristjánsdóttir kvenna- lista sagði að bregðast þyrfti við vanda landbúnaðarins með sókn á erlenda markaði, uppsetningu kjöt- markaða innanlands og finna þyrfti leiðir til að draga úr fram- leiðslukostnaði. Styðja þyrfti hlið- argreinar í landbúnaði, ferðaþjón- ustu, skógrækt og landgræðslu. Hún gagnrýndi innflutning land- búnaðarvara og sagði hann auka atvinnuleysi. Stjórnmálamenn þyrftu að standa við hlið bænda. Þorsteinn Hjartarson Þjóðvaka sagði lífræna ræktun í stórum stíl geta breytt ímynd landbúnaðarins. Hann sagði að beita þyrfti greiðsluaðlögun eftir úttekt á stöðu sauðfjárbænda. Framtak bænda þyrfti að fá að njóta sín og skipu- leggja þyrfti stoðkerfi bænda og fækka milliliðum. Hagsmunir bænda og neytenda færu saman og þeir ættu að taka ákvarðanir í málefnum bænda en ekki stjórn- málamenn. Breyta verður búvörusamningi Þorsteinn Pálsson ráðherra sem talaði fyrir Sjálfstæðisflokk sagði enga þjóð reka landbúnað án ríkis- styrkja. Hann sagði framlag bænda drýgsta skerfinn að árangri ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál- um. Tekjumissir bænda væri nú orðinn það mikill að ekki yrði við það búið. Einsýnt væri að taka þyrfti upp gildandi búvörusamning og finna lausnir fyrir sauðfjár- bændur og inni í því ætti að vera form fyrir beingreiðslur. Styðja þyrfti öfluga markaðssókn inn á dýra markaði fyrir kindakjöt. Þorsteinn sagði að Sjálfstæðis- flokkurinn myndi standa vörð um að farið yrði eftir GATT samningn- um um jöfnunartolla og að það væri komið á hreint að landbúnað- arráðherra hefði með innflutnings- mál á landbúnaðarvörum að gera. Það hefði tekist að koma í veg fyrir skemmdarstarfsemi Alþýðu- flokksins í þeim efnum. Guðmundur Lárusson Alþýðu- bandalagi sagði að búvörusamn- ingurinn hefði varið bændur fyrir árásum Alþýðuflokksins. Hann sagði að beingreiðslur til bænda yrðu að tengjast framleiðslu þeirra Lífræn og vistvæn framleiðsla væru engar töfralausnir fyrir land- búnaðinn heldur áhugaverð viðbót. Guðmundur sagði búvörusamning- inn ekki hafa gengið eftir, í honum væru til dæmis bókanir um fé til skógræktar sem ekki hefði skilað sér. Sókn inn á nýja markaði væri nauðsynleg og hann benti á að fyrstu skrefin í þá átt hefðu verið stigin. Skipulögð fátækt Hrafn Jökulsson Alþýðuflokki lagði áherslu á að EES samningur- innhefði verið vítamínsprauta fyrir íslenskt atvinnulíf. Hann sagði menn ráðast um of á Alþýðuflokk- inn í landbúnaðarmálum því flokk- urinn hefði aldrei farið með þann málaflokk í ríkisstjórn. Hann sagði flokkinn vilja afnmema ríkisstyrki til landbúnaðar og að kvótakerfið þyrfti að hverfa. Það væri alvar- legt að ungt fólk gæti ekki hafið búskap við núverandi aðstæður. Kvótakerfið væri skipulögð fátækt fyrir sauðfjárbændur. Alþýðu- flokkurinn vildi gefa bændum kost á að hætta búskap með reisn. Fjöldi fyrirspurna kom fram á fundinum sem var vel sóttur af bændum í Rangárvallasýslu. Berg- ur Pálsson í Hólmahjáleigu sagði frá því að Landsbanki íslands tæki 12%-í afföll af skuldbreytingalán- um. Búnaðarbankinn hefði hins vegar ákveðið að skuldabréf vegna þessara lána skiluðu sér að fullu til bænda. Hann sagði þetta óþol- andi mismunun og að þess væru dæmi að bændur hættu við að taka slík skuldbreytingalán vegna þessa. Frambjóðendur tóku undir gagnrýnihans á þetta verklag Landsbankans. Bergur spurði frambjóðendur um afstöðu til tolla á innnfluttar landbúnaðarvörur. Allir frambjóðendur sögðust vilja hafa tolla sem hæsta samkvæmt GATT samningnum nema fulltrúi Alþúðuflokks sem vildi hafa þá eftir aðstæðum. Þorkell Steinar Ellertsson spurði um álit frambjóðenda á framlögum samkvæmt jarðræktarlögum og sagði ríkissjóð skulda stórar upp- hæðir til bænda samkvæmt þeim. Frambjóðendur tóku undir gagn- rýni hans. Þorsteinn Pálsson benti á að jarðræktarlögin væru úrelt lög og þeim þyrfti að breyta. Nú þyrfti að styðja bændur á annan hátt menn mættu ekki vera of íhaldss- amir í þeim éfnum. Fundurinn sem stóð fram á nótt var hinn líflegasti á köflum. í loka- orðum sínum ítrekuðu frambjóð- endur áherslur flokka sinna og þá biðlaði Eggert Haukdal til þeirra atkvæða sem hinir flokkarnir ættu afgangs. Varð eftirfarandi vísa þá tíl hjá einum fundarmanna: Ýmislegt um atkvæðin eru menn að þrefa. Eggert bað um afganginn ef einhver vildi gefa. Jóhanna Sigurðardóttir á fundi á Landspítalanum Þjóðvaki stundar engin yfirboð JÖHANNA Sigurðardóttir, for- maður Þjóðvaka, sótti starfsmenn Landsspítalans heim í hádeginu í fyrradag, ásamt Guðrúnu Arna- dóttur, sem skipar 4. sæti á lista flokksins í Reykjavík og Páli Hall- dórssyni, sem er í 8. sæti. Jóhanna hélt stutta tölu í mat- sal sjúkrahússins og lagði mikla áherslu á nauðsyn þess að félags- hyggjufólk sameinaðist, enda hefði það verið tilgangurinn með stofnun Þjóðvaka. Taka þyrfti á launamisrétti og tryggja jafnari lífeyrisréttindi. Jóhanna sagði að Þjóðvaki stundaði engin yfirboið í kosningabaráttunni, heldur kynnti aðeins þau baráttumál sem flokk- urinn treysti sér til að hrinda í framkjvæmd. Flokkurinn hefði boðað aukin útgjöld upp á 5 milljarða, en jafn- framt bent á hvernig auka mætti tekjur um 5'A milljarð. Þetta væri mögulegt með breyttum vinnu- brögðum, en ekki handahófs- kenndum aðgerðum, eins og niður- skurður á sjúkrahúsum væri dæmi um. Jóhanna sagði nauðsynlegt að koma á fjármagnstekjuskatti. „Viðkvæðið hefur verið að slíkur skattur sé flókinn og erfiður í framkvæmd, en það hefur alltaf verið nógu auðvelt að auka skatt- byrði láglaunafólks,“ sagði Jó- hanna Sigurðardóttir á hádegis- verðarfundi með starfsfólki Land- spítalans. , , Morgunblaðið/Sverrir KRISTIN Ástgeirsdóttir gerir grein fyrir helstu stefnumálum Kvennalistans á fundi með bílstjórum hjá Þrótti. Kristín Ástgeirsdóttir, oddviti Kvenna- lista, á fundi með vörubílstjórum Sameina þarf lífeyris- sjóði og fækka þeim KRISTIN Ástgeirsdóttir, sem skipar 1. sæti á framboðslista Samtaka um kvennalista í Reykja- vík, heimsótti' starfsmenn Vöru- bílastöðvarinnar Þróttar í fyrradag og kynnti fyrir þeim helstu stefnu- mál Kvennalistans í kosningabar- áttunni. Þar væri áherslan lögð á launamál, atvinnumál, mennta- mál, heilbrigðismál og varnir gegn ofbeldi í samfélaginu. Bílstjórum hjá Þrótti lék forvitni á að vita afstöðu Kristínar til líf- eyrissjóðakerfisins sem þeir sögðu stuðla að misræmi og misrétti. Kristín sagði að fyrsta skrefið væri að reyna að sameina sjóðina og fækka þeim að minnsta kosti um helming, þannig að þeir yrðu öflugri og gætu jafnað lífeyris- greiðslur. Aðspurð um hvort hún teldi æskilegt að einn lífeyrissjóður væri fyrir alla valdsmenn dró hún það í efa þar sem óæskilegt væri að safna svo miklu valdi á hendur slíks sjóðs sem gæti ráðið svo miklu varðandi allar fjárfestingar. „Þetta er hins vegar mál sem verður að taka á og þá ekki síst hjá ríkinu þar sem þetta er tifandi tímasprengja,“ sagði Kristín. Þegar Kristín var spurð um af- stöðu Kvennalistans til Evrópu- sambandsins sagði hún að stefna samtakanna væri sú að ísland ætti að standa utan Evrópusam- bandsins en reyndar væru skiptar skoðanir í þeirra röðum um það. „Hins vegar höfum við sem til- heyrum meirihlutanum bent á hve skipulag, hugmyndafræði og stefna Evrópusambandsins, og hvernig það er upp byggt, er langt frá fólkinu og erfitt að hafa áhrif á ákvarðanir. Síðan er það þetta stóra atriði með eignarhaldið á fiskimiðunum sem yrðu sameigin- leg auðlínd Evrópusambandsins," sagði Kristín, sem sagðist telja að ef Island gerðist aðili að ESB yrðu íslendingar ekki lengur ráðandi um þróun eigin samfélags.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.