Morgunblaðið - 08.04.1995, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 15
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sverrir
Þjóðvaki
fundar í
baðhúsi
KVENFRAMBJÓÐENDUR
Þjóðvaka héldu spjallfund í
Baðhúsi Lindu Pétursdóttur í
Armúla í fyrradag. Kvenleg
umræðuefni voru í fyrirrúmi
og gátu gestir baðhússins nálg-
ast stjórnmálin á óhefðbundinn
hátt á þessum óvenjulega fund-
arstað.
Fylgst með kosningum
í útvarpi og sjónvarpi
KOSNINGAÚTVARP hefst á Rás
1 og Rás 2 Ríkisútvarpsins kl. 21
í kvöld. Fréttamenn Útvarps munu
greina frá úrslitum og verða á taln-
ingarstöðum í öllum kjördæmum.
Auk þess að segja frá tölum um
leið og þær berast verður talað við
frambjóðendur sem verða á stöðun-
um.
Kosningasjónvarp hefst á báðum
sjónvarpsstöðvunum kl. 21.30.
Sjónvarpið verður í beinu sam-
bandi við talningarstaði í öllum
kjördæmum landsins fram eftir
nóttu og verða tölur birtar jafnóðum
og þær liggja fyrir. Stjórnmála-
menn og fleiri gestir koma i heim-
sókn í sjónvarpssal og fylgst verður
með viðbrögðum við tölum, m.a. á
kosningahátíðúm flokkanna. Milli
talna og umræðna verður fjölbreytt
skemmtidagskrá.
Kosningaúrslitum verða gerð ít-
arleg skil í morgunfréttum Ríkisút-
varpsins kl. 8, 9 og 10 á sunnudags-
morgun. Frá kl. 10-12 verður
greint frá niðurstöðum Alþingis-
kosninganna á Rás 2.
Fyrstu talna að vænta
um tíuleytið
Kosningavaka Stöðvar 2 og
Bylgjunnar hefst kl. 21.30 en fyrstu
Morgunblaðið/Halldór
Bogomil Font, Bubbi Morthens og Egill Ólafsson verða meðal
þeirra sem koma fram í sjónvarpinu í kvöld og nótt.
talna er að vænta um tíuleytið.
Fréttamenn Stöðvar 2 og Bylgjunn-
ar fylgjast náið með talningu at-
kvæða um allt land og skýra stöð-
una jafnóðum á. myndrænan hátt
með hjálp fullkomins tölvubúnaðar.
Inn á milli verður rætt við fram-
bjóðendur um gengi þeirra og kosn-
ingavökur flokkanna í höfuðborg-
inni heimsóttar. Formenn flokk-
anna hittast í sjónvarpssal til að
ræða málin þegar fyrstu tölur liggja
fyrir og aftur þegar línurnar eru
farnar að skýrast verulega.
Morgunblaðið/Kristinn
Ilmbjarkir í Sunnuhlíð
ÓLAFUR Ragnar Grímsson,
efsti maður á lista Alþýðubanda-
lagsins og óháðra í Reykjanes-
kjördæmi, og Kristín A. Guð-
mundsdóttir, sem skipar 3. sæti
listans, heimsóttu siðastliðinn
fimmtudag Sunnuhlíð, hjúkrun-
arheimili aldraðra í Kópavogi,
og heilsuðu þar upp á vistmenn,
starfsfólk og gestkomandi og
færðu hverjum um sig íslenska
ilmbjörk. Höfðu frambjóðend-
urnir á orði að ilmbjörkin væri
tákn um „vinstra vorið“ og þann
gróanda sem framundan væri í
íslensku þjóðlífi. Frambjóðend-
ur Alþýðubandalagsins og
óháðra afhenda kjósendum í
nánast öllum kjördæmum lands-
ins ilmbjarkir og í Reykjanes-
kjördæmi hafa verið afhentar
um 15 þúsund plöntur.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Á „herráðsfundi“
MIKLAR annir hafa verið á skrif-
stofum stjórnmálaflokkanna nú
síðustu daga fyrir kosningarnar.
Á skrifstofu Framsóknarflokks-
ins í Reykjavík hafa starfsmenn
og trúnaðarmenn flokksins hald-
ið daglega fundi með Halldóri
Ásgrímssyni formanni flokksins
og farið yfir kosningamálin.
Myndin er af einum slikum fundi
en þar eru, auk Halldórs, Egill
Heiðar Gíslason framkvæmda-
sljóri, Jón Sveinsson formaður
kosninganefndar og Anna Krist-
jánsdóttir og Sigurður Eyþórs-
son starfsmenn flokksins.
Frambjóðendur allra stj órnmálaflokkanna á fundi hjá Marel um atvinnumál
Ágreiningur um
áhættulánasi óð
FULLTRÚAR stjórnarflokkanna
gagnrýndu á almennum fundi
starfsfólks hjá Marel hf. hugmyndir
stjórnarandstöðuflokkanna um
stofnun áhættulánasjóða tii að efla
atvinnulífið. Fulltrúar stjórnarand-
stöðunnar lögðu áherslu á þörf á
auknu áhættufé og gildi þess að
efla og styrkja menntakerfið, sem
þeir sögðu að ríkisstjórnin hefði
dregið mátt úr á kjörtímabilinu.
„Það hafa verið uppi tvenns kon-
ar sjónarmið hjá stjórnmálamönn-
um á Islandi um atvinnustefnu,"
sagði Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins. „Annars
vegar er ríkjandi hugsunarháttur
framsóknarmanna allra flokka, sem
er eitthvað á þessa leið: „Tökum
lán, setjum upp sjóð, úthlutum pen-
ingum og búum þannig með póli-
tískum ákvörðunum til eitthvað sem
heitir störf." Minnisvarðar um þessa
stefnu eru upp á 60 milljarða í fjár-
festingamistökum. Þið eruð að
borga fyrir þessi mistök bæði í of
háum vöxtum og í störfum.
Hin stefnan er þessi: „Við sköp-
um atvinnulífinu samkeppnishæf
skilyrði". Atvinnustefna núverandi
ríkisstjórnar hefur verið keyrð í
gegn í fjögur ár og hver er árangur-
inn? Það getum við metið á einfald-
an kvarða. Það hefur tekist að
lækka verðbólgu. Gengið er nokk-
urn veginn rétt skráð og tiltölulega
traust. Það er stöðugleiki í verð-
iagi. Samkeppnisstaða íslensks iðn-
aðar og íslenskra þjónustugreina,
hvort heldur er á heimamarkaði eða
í útlöndum, hefur ekki í annan tíma
verið betri,“ sagði Jón Baldvin.
Efla þarf menntakerfið
„Við þurfum að fjárfesta^ í
menntakerfinu og þar standa Is-
lendingar afskaplega illa að vígi.
Jón Baldvin nefndi minnisvarða.
Hann gengur nú senn frá minnis-
varða um menntakerfi sem hefur
verið skorið niður. Það er mennta-
kerfi sem hefur ríkt alger stöðnun
í. Við sjáum ekki atvinnulíf íslend-
inga í þessu menntakerfi. Þrátt fyr-
ir að OECD hafi bent íslendingum
á að ef við ætluðum að drífa okkur
upp úr því fari sem við höfum verið
í um áratugaskeið þá verðum við
að fjárfesta í menntun. Það hefur
ekki verið gert heldur þvert á móti
hefur verið skorið niður,“ sagði
Hjálmar Árnason, frambjóðandi
Framsóknarflokks á Reykjanesi.
Hjálmar sagði að Islendingar
stæðu að vissu leyti á tímamótum
í atvinnumálum. Þjóðin stæði
frammi fyrir því að vera breytast
úr veiðimannaþjóð I tæknivædda
þjóð. Veiðimannahugsunarháttur-
inn væri enn sterkur. Hann sagði
að við gætum lært mikið af Dönum
sem hefðu verið mjög duglegir við
að tengja saman auðlindir og hug-
vit.
Hlutafé frekar en lánsfé
Pétur Blöndal, frambjóðandi
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik,
sagði lausnina ekki liggja í því að
búa til nýja og nýja sjóði. Hann
benti á að fyrirtæki og einstakling-
ar ættu miklu meiri möguleika nú
en áður að fá lánsfé á hagstæðum
kjörum. Þökk væri breytingum á
fjármagnsmarkaði sem ríkisstjórnin
hefði stuðlað að.
„Bankakerfið sem við höfum í
dag er staðnað, stein-gelt og því
þarf að breyta því. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur haft það á stefnuskrá
sinni að einkavæða bankana og það
verður eitt af veigamestu verkefn-
um næstu ríkisstjórnar ef Sjálf-
stæðisflokkurinn fær að ráða. Menn
eiga hins vegar ekki að einblína á
lánsféð og þessa áhættusjóði sem
búnir hafa verið til eins og Atvinnu-
tryggingarsjóður og Hlutafjársjóð-
ur, sem Framsóknarflokkurinn
stofnaði í tíð síðustu ríkisstjórnar
og við þurfum nú að borga 18 millj-
arða til. Nei, það þarf að auka vilja
einstaklinga og fyrirtækja til að
fjárfesta í fýrirtækjum vegna þess
að þau græði.“
Ágúst Einarsson, frambjóðandi
Þjóðvaka á Reykjanesi, sagði að það
væri holur tónn í orðum Péturs um
að Sjálfstæðisflokkurinn vildi end-
urskipuleggja bankakerfið. Ekkert
hefði gerst í þessu á síðasta kjör-
tímabili.
„Þegar Ólafur Ragnar talar um
útflutningsleið er það ótrúverðugt.
Þetta er maðurinn sem greiddi at-
kvæði gegn EES-samningnum.
Þetta er maður einangrunarhyggj-
unnar í viðskiptum," sagði Ágúst.
Ágúst sagði að hlutverk ríkis-
valdsins væri að skapa almenn skil-
yrði til að auka hér hagvöxt. Þetta
bæri að gera með lágri verðbólgu
og stöðugleika í gengismálum.
Hann sagði að Þjóðvaki vildi að
sjávarútvegsráðuneytið og iðnaðar-
ráðuneytið yrðu sameinuð í eitt
ráðuneyti. Núverandi hólfaskipting
virkaði sem dragbítur á iðnaðinn.
Skortir skilning
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, sagði
að efnahagsstefna ríkisstjórnar
Davíðs Oddssonar hefði skilað
óskaplega litlum árangri í atvinnu-
málum. Þess vegna boðaði Alþýðu-
bandalagið nýja stefnu, útflutnings-
leiðina, þar sem byggt væri á nýjum
hugmyndum. Þar væri árangurs-
leysi í atvinnumálum ekki afsakað
með því að vísa í þorsk og loðnu.
Stefnan byggði á því að virkja hug-
vit með svipuðum hætti og Marel
hefði gert með svo góðum árangri.
Ummæli Ólafs Ragnars um veiði-
leyfagjald vöktu athygli. „Við erum
tilbúnir til að skoða veiðileyfagjald
í samhengi við breytingar á fisk-
veiðistjórnkerfinu. Veiðileyfagjald
sem einfaldur skattur finnst okkur
ekki vera skynsamlegt, en það má
hins vegar gera það í samhengi við
víðtækar breytingar á kvótakerf-
inu.“
Kristín Ástgeirsdóttir, frambjóð-
andi Kvennalistans í Reykjavík,
lagði áherslu á að það þyrfti að
marka hér skýra stefnu í atvinnu-
málum. Það lægi ekki fyrir á hverju
íslendingar ætluðu að byggja, nú
þegar fiskstofnanir væru í lægð.
Hún sagði að fólk sem væri með
nýjar hugmyndir um atvinnusköpun
mætti alls staðar skilningsleysi, Það
þyrfti að vera til staðar sjóður sem
lánaði ungu athafnasömu fólki sem
væri með góðar hugmyndir. Kristín
nefndi sem dæmi um skilningsleys-
ið að ung kona hefði nýlega leitað
eftir stuðningi við útflutning á fatn-
aði, sem var hannaður eftir nýrri
og snjallri hugmynd. Henni hefði
vinsamlega verið bent á að á ís-
landi væru föt flutt inn en ekki út.