Morgunblaðið - 08.04.1995, Page 18

Morgunblaðið - 08.04.1995, Page 18
18 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ NÝI tækjabíllinn ásamt bifvélavirkjum sem annast munu útköll. Skagamenn fá sér- útbúinn björgunarbíl Akranesi - Akranesdeild Rauða kross íslands hefur fest kaup á sérútbúnum tækjabíl ásamt vök- vaklippum og öðrum búnaði til björgunar á fólki úr bílflökum eftir umferðarslys og er mikið öryggi af slíku ekki síst á jafn fjölförnu svæði sem þjónustu- svæði deildarinnar er. Gísli Björnsson, formaður Akranesdeildar RKÍ, segir að lögregla og sjúkraflutninga- menn hafi oft óskað eftir því við deildina að hún hlutaðist til um kaup á slíkum búnaði, enda hafa á síðustu árum komið upp nokk- ur tilfelli þar sem nauðsynlega hefur þurft á slikum tækjum að halda. Keyptur hefur verið sérstak- ur tækjabíll, fullbúin tækjum til að sinna umferðarslysum og öðrum óhöppum. Aætlaður heildarkostnaður vegna þessa verkefnis er um 2,7 milljónir króna. Sérþjálfaður mannafli Þá hefur mannafli sem sinna mun slíkum útköllum verið þjálfaður og eru það sex bifvéla- virlqar frá bifreiðaverkstæðum á Akranesi sem tekið hafa að sér að annast bifreiðina og vera i kallfæri ef áþarf að halda. Þeir munu skipta með sér bak- vöktum. Gísli Björnsson segir að hann sé ánægður með hversu vel þessum málum er komið. „Við höfum fjárfest í fullkomn- asta búnaði sem völ er á og höfum yfir að ráða sérmenntuð- um og vel þjálfuðum hópi mann sem kalla má út ef á þarf að halda,“ segir Gísli. Merking sögnstaða rædd á ferðamálaráðstefnu Kirkjubæjarklaustri - Ferðamála- ráðstefna, sem var á vegum Ferða- málasambands Suðurlands og at- vinnu- og ferðamálanefndar Skaft- árhrepps, var haldin fyrir skömmu. Ferðamálafujltrúi Suðurlands, Valgeir Ingi Ólafsson, setti ráð- stefnuna. Þann dag héldu erindi þau Björn Björnsson, leikmyndahönnuð- ur, Erna Hauksdóttir, frkvstj. og Paul Richardsson frá Ferðaþjónustu bænda. Björn ræddi um íslenska menn- ingu og gerði m.a. að umtalsefni hugmyndir um Sögusafn og Sjávar- útvegssafn. Þá kom hann með ýms- ar hugmyndir um það hvernig Is- lendingar geta kynnt betur menn- ingu þjóðarinnar í sambandi við ferðaþjónustu. Skortur á merking- um athyglisverðra sögustaða á Is- landi er eitt af mörgu sem þarf að bæta. Erna ræddi um umhverfismál hótela og veitingahúsa og kom víða við, kynnti meðal annars hvemig á þeim málum er tékið hjá nágranna- þjóðunum. Hátt verðlag og misjöfn umgengni Seinni daginn flutti erindi Hall- dór Bjarnason, framkvæmdastjóri, Guðjón Ó. Magnússon, landfræð- ingur, Ómar Ragnarsson, frétta- maður, Karl Rafnsson, hótelstjóri, og Arni Johnsen, alþingismaður, en auk þess voru í pallborðsumræðum María Guðmundsdóttir, forstöðu- maður, Rögnvaldur Guðmundsson, ferðamálafulltrúi, og Kristbjörg Þórhallsdóttir, leiðsögumaður. Um- ræðuefni þeirra var uppbygging afþreyingar. Halldór lagði áherslu á góða vegi um þvert og endilangt landið. Ákveðnir staðir væru heppilegri en aðrir til dvalar en góðar samgöngur milli þeirra staða undirstaða ferða- mennsku á landinu. Honum varð tíðrætt um verðlag á þjónustu svo sem matarverð á hótelum og veit- ingastöðum sem væri allt of hátt. Guðjón ræddi umhverfismál og umgengni um landið okkar. M.a. sýndi hann myndir þar sem kom fram að umgengnin er víða slæm og skipulagsleysi virðist ráða ríkj- um víða á þeim vettvangi. Karl kynnti sérstaklega stefnu- mótunarverkefni í ferðamálum sem Skaftárhreppur stóð að fyrir fáum árum og síðan er unnið eftir og tók þar sérstaklega út þáttinn „afþrey- ingu“. Árni ræddi um ferðaþjónustu almennt og framtíðarsýn í þeirri grein en erindi Ómars hét „Hvað vil ég að sé í boði - Hvernig vil ég að sé tekið á móti mér.“ Hagsmunasamtök ferðaþjónustu Var gerður góður rómur að öllum erindum en þátttakendur á ráð- stefnunni voru um 70 talsins. Það kom fram í máli margra að þörf virðist vera á að stofna einhvers konar hagsmunasamtök ferðaþjón- ustuaðila ekki ósvipað og aðrar greinar, t.d. á sjávarútvegurinn sín samtök o.s.frv. Þá voru fundarmenn sammála um það að fjármagn til ferðaþjónustunnar þurfi að auka, t.d. til rannsókna á því sviði þar sem sáralitlar upplýsingar liggja fýrir um ferðaþjónustu, markaðs- kannanir, áætlanir o.þ.h. nema hjá hvetjum einstökum aðila eða fyrir- tæki. í tengslum við ráðstefnuna voru síðan nokkrir sýnendur, Hraunverk- smiðjan, Landkostir, handverkshóp- ar af Suðurlandi og Askur, tölvu- vædd upplýsingamiðlun. Fyrir ÞÁ Sem Fara Skynsamlega Með Peninga Mercedes-Benz C lína. Verð frá 2.935.000 kr. Ríkulegur staðalbúnaður fylgir: ABS hemlakerfi, öryggispúði í stýri, fjarstýrðar samlæsingar með þjófavörn og margt fleira. Fjölbreyttur valbúnaður fáanlegur. Valbúnaður á mynd, álfelgur. 0 Mercedes-Benz ræsir hf Skúlagötu 59, sími 561 9550

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.