Morgunblaðið - 08.04.1995, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 21
Slysavamafélag' Islands kynnir stöðluð prófunartæki
Miklar úrbætur
í öryggismálum
á leiksvæðum
Morgunblaðið/Þorkell
REYKJAVÍKURBORG gerði nýverið þá kröfu í útboði á leiktækja-
kaupum að tækin stæðust staðlapróf.
Fjórir nýir
pastaréttir
frá Knorr
HEILDSALA Ásbjöms Ólafs-
sonar hf. setti nýverið á mark-
aðinn pastarétti frá Knorr. í
pökkunum er pasta og hráefni
í pastasósu fyrir tvo. Hægt
er að fá fjórar mismunandi
tegundir: Pasta með ostasósu,
pasta með karbonarasósu (bei-
konsósa), pasta með tómat-
og basilikumsósu og pasta
með pestósósu (kryddsósa).
Réttirnir era tilbúnir á örfá-
um mínútum með lítilli fyrir-
höfn. Það eina sem þarf að
gera er að sjóða vatn og bæta
síðan örlitlu smjöri ásamt inni-
haldi pakkans saman við. Til-
valið þykir að bera Knorr
pastaréttina fram með fersku
salati og brauði, einnig sem
meðlæti með kjöti eða fersku
grænmeti.
Morgunblaðið/Júlíus
Begoníur
og páskaliljur
í Ikea
FRÁ því um síðustu mánaða-
mót hafa pottaplöntur verið
til sölu hjá Ikea eins og
drekatré, gúmmítré og
burknar.
Núna fást þar einnig
páskaliljur og begoníur. Þijár
páskaliljur í potti kosta 195
krónur og síðan er hægt að
fá begoníur í þremur litum
og kostar stykkið 325 krón-
ur.
Plönturnar eru ræktaðar í
gróðurhúsum í Borgarfirði
og Hveragerði.
Húsráð
Frystið fersku
kryddjurtirnar
ÞEGAR fólk kaupir ferskar
krydc(jurtir eins og til dæm-
is steinseyu er ágætt að
frysta það sem ekki er
strax notað. Deilið krydd-
jurtinni í mátulega
skanunta, setjið í poka og
frystið síðan. Bragðið kann
að verða aðeins daufara
þegar búið er að frysta
kryddið.
í VOR mun Slysavarnafélag ís-
lands kynna stöðluð prófunartæki,
sem notuð verða til að mæla hvort
öryggi ýmissa leiktækja á gæslu-
völlum, leikskóla- og skólalóðum,
sé fullnægjandi.
Prófunartækin eiga að auðvelda
starfsmönnum tæknideilda
sveitarfélaga eftirlit með öryggis-
atriðum, t.d. mælingar
á opum og bilum
tækja, grindverka og
stiga. Hönnuðir og
framleiðendur leik-
tækja þurfa ennfremur
að nota tækin sem
viðmiðun.
Um er að ræða tvö
einföld tæki úr plasti,
sem eru svipuð keilu í
lögun. Stærra tækið
er að ummáli jafn stórt
og stærsta höfuðmál
12 ára barns og minna
tækið er að ummáli
eins og minnsta bijóst-
mál eins árs barns.
Hin tvö tækin era
öllu smærri, annars
vegar nokkrir hringir
í kippu til að mæla
stærðir á skrúfum,
rám og stólpum sem
ekki mega ná út fyrir
ákveðin mörk og hins
vegar tæki til að gera
svokallað reimapróf. Það er ein-
faldlega snæri með hnúð á endan-
um, sem á að mæla hæfilega stærð
raufa, en reimar á úlpum bama
hafa oft fest í leiktækjum og vald-
ið alvarlegum slysum.
Fyrir um það bil ári fluttu
undir sama þak þýsku listarnir
Quelle og Ottó. Um sitthvort fyr-
irtækið er þó að ræða.
I nýja húsnæðinu, sem er í
Samstarfsverkefni
Að sögn Herdísar Storgaard hjá
Slysavamafélagi íslands er ísland
skuldbundið til að samþykkja alla
staðla frá evrópska staðlaráðinu
(CEN). Ilérlendis var tækninefnd
sett á laggirnar fyrir þremur
áram. í henni eiga 11 manns sæti,
þ. á m. hönnuðir, framleiðendur
leiktækja, fulltrúar ráðuneyta og
borgarinnar. Nefndin hóf störf
eftir að Slysavamafélag íslands
hóf vinnu að úrbótum í öryggis-
málum á leiksvæðum. Staðlaráð
kynna sér nýja vor-
og sumarlistann. Að sögn fram-
kvæmdastjórans, Ólafs Sveins-
sonar, er fyrirtækið beintengt við
Þýskaland og afgreiðslutími 2-3
vikur.
íslands gekk fljótlega til liðs við
félagið og verkefnið varð sam-
starfsverkefni.
Herdís er formaður nefndarinn-
ar, en hún segir nefndina fylgjast
vel með vinnunni í evrópska
staðlaráðinu. Hlutverk nefndar-
innar sé m.a. að fylgja eftir að
öryggi íslenskra barna sé tryggt
vegna þess að hér séu hættur á
leiksvæðum öðravísi en tíðkist víða
erlendis og taka þurfí tillit til þess
í gerð samræmdra staðla.
„Hér er náttúrulegt umhverfí
látið halda sér sem mest þegar
leiksvæði eru hönnuð. Því eru þau
oft ekki eins kaldranaleg og hrá
og erlendis, en kalla á að hugað
sé að annars konar öryggisbún-
aði. íslenska nefndin hefur haft
áhrif innan evrópska staðlaráðsins
og komið með tillögur um ýmsar
úrbætur í gerð leiksvæða með til-
liti til öryggismála," segir Herdís.
Mikið af úreltum tækjum
Herdís hefur undanfarið ferðast
um állt land með prófunartækin
til að kynna sér öryggi á leiksvæð-
um. Hún segir að margt þurfí að
laga, töluvert af úreltum tækjum
séu í notkun, en ástandið víðast
ekki ýkja alvarlegt. Menn hafí
bragðist vel við tillögum um úr-
bætur og prófunartækin komi
áreiðanlega í góðar þarfír.
Nefndin ætlar að beita sér fyrir
því að tillögurnar, þ.e. leiktækja-
staðallinn, verði samþykktar, en
umhverfísráðherra hefur málið nú
til meðferðar. Leiktækjastaðallinn
gengur í stuttu máli út á að fram-
leiðendur leiktækja þurfa að fram-
fylgja ákveðnum reglum varðandi
hæfílega stærð á raufum og bilum
og taka ýmis stærðarhlutföll með
reikninginn. Einnig eru gerðar
þær kröfur til eigenda tækjanna
að þeir viðhaldi þeim samkvæmt
leiðbeiningum frá framleiðendum.
Aðrar reglur fjalla um útbúnað
einstakra tækja.
Herdís segir að þegar sé farið
að vinna samkvæmt viðmiðun
prófunartækjanna og Reykjavík-
urborg hafí nýverið gert þá kröfu
í útboði á leiktækjakaupum að þau
stæðust tæmandi staðla. Hún seg-
ir staðlana byltingu í öryggismál-
um og býst við að kosið verði um
þá í Evrópuráði seinni hluta árs
1996. Enn sem komið er nái stað-
alinn aðeins yfír opinber leiksvæði
en íslenska nefndin hafí komið
með tillögu um að hann gildi einn-
ig fyrir fjölbýlishúslóðir o.fl. staði.
Athugasemd
um páskaegg
Síðustu daga hefur verið fjallað
um verð og gæði á páskaeggj-
um hér í blaðinu á þann veg,
að ekki samræmist þeim kröf-
um, sem Morgunblaðið gerir.
Sl. laugardag birtist í blað-
inu frétt um könnun á gæðum
páskaeggja, sem hafði farið
fram á meðal nítján starfs-
manna Morgunblaðsins. Það
er auðvitað fráleitt að láta slíka
gæðakönnun fara fram meðal
starfsmanna Morgunblaðsins
til birtingar í blaðinu, enda
getur það ekki talizt fagleg
könnun og niðurstöður hennar
því ekki marktækar um vöru-
gæði einstakra framleiðenda. I
þeim tilvikum, sem Morgun-
blaðið hefur staðið að gæða-
könnun á t.d. matvöram hefur
verið leitað til hlutlausra aðila
utan blaðsins um slíka könnun.
í þessu sambandi var einnig
fjallað á mjög óviðeigandi hátt
um framleiðsluvörur einnar
sælgætisgerðar.
Á föstudag í síðustu viku
birtist frétt í Morgunblaðinu,
þar sem samanburður var
gerður á verði á páskaeggjum,
sem Bónus lætur framleiða og
á verði páskaeggja frá Nóa-
Siríus í Hagkaup. Þessi sam-
anburður var auðvitað ekki við
hæfí, þar sem verðlag er al-
mennt lægra í Bónus en í
Hagkaup. Enda birtist frétt
hér í blaðinu daginn eftir, sl.
laugardag, þar sem upplýst
var að verð á umræddri stærð
og tegund af páskaeggjum frá
Nóa-Siríus var mun lægra í
Bónus en í Hagkaup. Þar láð-
ist hins vegar að geta þess,
að hið sama gilti um verð á
páskaeggjum frá Mónu.
Þessi vinnubrögð og frétta-
flutningur eru ekki samboðin
Morgunblaðinu og era lesend-
ur og þeir, sem hlut eiga að
máli beðnir afsökunar á þess-
um mistökum.
Ritstj.
Sjábu hlutina í víhara samhengi!
JBflrgira&Iutitti
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
STÖÐLUÐ prófunartæki. T.v. er tæki,
sem mælir stærsta höfuðummál 12 ára
barns og við hliðina annað, sem sýnir
minnsta brjóstummál eins árs barns. Fyrir
framan er reimaprófunartæki og ýmsar
stærðir af hringjum til að mæla hve skrúf-
ur og rær mega ná langt út fyrir eða upp
úr grindverkum o.fl.
Nýir sérlistar hjá
póstverslun Quelle
SERLISTAR frá
póstverslun Quelle
eru á þriðja tug og
nú hafa bæst við þrír
nýir. Ber þar fyrst
að nefna Image sem
er tískulisti fyrir kon-
ur og karla, sér-
stakan lista fyrir
miðaldra fólk og loks
búsáhaldalista.
Ottó og Quelle
á sama stað
Fossvogsdal, er nú
einnig tvískipt versl-
un þar sem hægt er
að kaupa fatnað frá
Quelle og ýmsar aðr-
ar vörur, s.s. sauma-
vélar, raftæki og
búsáhöld.
í hinum hlutanum
er Madeleine-versl-
un þar sem hægt er
að kaupa tískufatn-
að frá Madeleine og