Morgunblaðið - 08.04.1995, Side 25

Morgunblaðið - 08.04.1995, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL1995 25 Ihaldsflokkurinn geldur afhroð í kosningum í Skotlandi Major kennir óeiningn um London, Edinborg. Reuter. ÍHALDSFLOKKUR- INN breski galt afhroð í sveitarstjórnakosn- ingum í Skotlandi á fimmtudag, hlaut að- eins 79 af 1.100 sæt- um og um 11% at- kvæða. John Major, leiðtogi flokksins og forsætisráðherra, sagði að óeining í flokknum væri helsta orsök ófaranna. Verkamannaflokk- urinn, sem lengi hefur verið öflugri en íhalds- flokkurinn í Skotlandi, fékk 47% atkvæða, flokkur skoskra þjóð- ernissinna 27% og fijálslyndir demókratar 8%. íhaldsmönnum hafði verið spáð lélegum árangri og voru niðurstöð- urnar í nokkru samræmi við kann- anir. Styrkir Tony Blair Úrslitin þykja styrkja Tony Bla- ir, hinn unga leiðtoga Verka- mannaflokksins, í sessi. „íbúar Skotlands eru að snúast á sveif með hinum nýja Verkamanna- flokki og æ fleiri þeirra vísa á bug íhaldsflokknum sem hefur svikið þá og er ekki tengslum við raun- veruleikann," sagði Blair í gær. Rætt hefur verið um að efnt verði til mótframboðs gegn Major í íhaldsflokkn- um en honum er kennt um lélegt gengi flokksins. Major vildi í gær ekkert tjá sig um eigin stöðu í flokknum en sagði Ijóst að missætti í röð- um flokksmanna gerði róðurinn erfið- an. Landsmenn væru því óvanir að íhalds- menn höguðu sér með þessum hætti. íhaldsflokkurinn með 23% fylgi Forsætisráðherrannn hefur þurft að kljást við erfið spillingar- mál í flokki sínum og einkalíf ein- stakra ráðherra og þingmanna hefur verið mjög til umijöllunar í fjölmiðlum. Klofningur er í Evr- ópumálum og ágreiningur á fleiri sviðum. Kannanir sýna að Major nýtur afar lítillar hylli meðal kjós- enda. Ný landskönnun gefur til kynna að Verkamannaflokkurinn njóti hylli 58% kjósenda en íhaldsflokk- urinn aðeins 23%. Sveitarstjóma- kosningar verða í Englandi í maí. JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands. ERLENT Jospin með LIONEL Jospin (fyrir miðju), frambjóðandi sósíalista í forseta- kosningunum í Frakklandi, sést hér á fundi með stuðningsmönn- um, t.v. er borgarstjórinn í Montpellier, Georges Freche. Reuter aðdaendum Samkvæmt síðustu könnunum er munurinn á forsetaframbjóð- endunum ekki mikill, í einni þeirra fær Jacques Chirac 23%, Edouard Balladur 21% og Jospin 19%. Dagens Næringsliv um Smugudeiluna Lausnin fólgin í málamiðlun LAUSNIN á fiskveiðideilu • Norð- manna og íslendinga hlýtur að fel- ast í málamiðlun, segir í grein er birtist í gær í norska blaðinu Dag- ens Næringsliv. í greininni sem nefnist „Friður með frændum" segir að úrslit þing- kosningana á Islandi í dag, laugar- dag, skipti Norðmenn engu. Mikil- vægast sé að ljúka þeim þannig að næsta lota í baráttunni um auðlegð- ir hafsins geti hafist. Greinarhöfundur er þeirrar hyggju að samningsstaða Islend- inga og núverandi utanríkisráð- herra, Jóns Baldvins Hannibalsson- ar, gagnvart Norðmönnum og Rúss- um styrkist eftir þvi sem íslenskir sjómenn sæki meira sjávarfang í Smuguna svonefndu. Þetta muni koma á daginn þegar sest verði nið- ur og samið um skiptingu kvóta. Vakin er athygli á að íslendingar hafí ekki ögrað Norðmönnum á vemdarsvæðinu svonefnda við Sval- barða. Með þessu hafi íslendingum tekist að komast hjá því að fá á sig svipað óorð og Spánverjar. Vikið er að hagsmunum þjóðanna í Síldar- smugunni svonefndu og hugsanlegri baráttu um „silfur hafsins". „Lausnin hlýtur að felast í mála- miðlun," segir í grein norska blaðs- ins og höfundur bætir við að vonast sé til þess að samningaviðræður geti hafíst skömmu eftir að kosning- arnar hér á landi í dag eru afstaðn- ar. Saman dí-egur með Perez de Cuellar og Fujimori fyrir forsetakosningar í Perú Sáttasemjarinn leggur til atlögu við forsetann Lima. Reuter. DREGIÐ hefur úr forystu Albertos Fujimori, forseta Perú, á lokaspretti kosningabaráttunnar fyrir forseta- kosningar sem fram fara í landinu á morgun, sunnudag. Vonast aðal- keppinautur hans, Javier Perez de Cuellar til þess að honum takist að knýja fram aðra umferð. Kosninga- lög banna birtingu skoðanakannana 15 daga fyrir kosningar en ekkert kemur hins vegar í veg fyrir að þær verði gerðar. Hafa blaðamenn beðið spenntir eftir niðurstöðum en freist- ist þeir til að birta þær, eiga þeir yfír höfði sér um 30 milljón kr. fjár- sekt. Kosningabaráttan hefur harðnað á síðustu dögum en hún var lengi vel háð í skugga landamæradeilu Perú og Ekvador. Perez de Cuellar, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, hefur kastað af sér ham sáttasemjarans og ráðist af hörku á Fujimori, sem hefur verið óhræddur við að nýta sér þau tæki- færi sem gefast, svo sem við opinber- ar athafnir, til að ráðast á andstæð- ingana, þrátt fyrir að það bijóti í bága við kosningalög. Klókur sáttasemjari Perez de Cuellar gegndi embætti framkvæmdastjóra SÞ í tíu ár. Hann er innfæddur Perúmaður en hefur búið síðustu tuttugu árin fjarri hei- malandinu. Er hann var kjörinn framkvæmdastjóri var það málamiðl- un eftir að gengið hafði verið 17 sinn- um til kosninga innan SÞ árið 1982. Perez de Cuellar gerir sér nú vonir um að þvinga fram aðra umferð í forsetakosningunum, sem yrði í júní, og að honum takist að sameina and- stæðinga Fujimoris að baki sér. Hann er óháður frambjóðandi. Perez de Cuellar er 75 ára og þykir klókur sáttasemjari. Seta hans á stóli framkvæmdastjóra var mun átakaminni en eftirmanns hans, Bo- utros-Boutros Ghali. Hann þótti bera gott skynbragð á hversu langt hann gæti gengið í embætti. Hann var framkvæmdastjóri er kalda stríðinu lauk en það beið eftirmannsins að takast á við afleiðingar þess. Meðal þess sem hann fékk áorkað í emb- ætti var að koma á friði í stríði ír- aka og írana, og styðja Namibíu- menn á braut til sjálfstæðis. Höfðað til lýðræðisástar í kosningabaráttu sinni hefur Perez de Cuellar höfðað óspart til lýðræðisástar og þjóðemiskenndar Perúmanna. „Er það ekki niðurlægj- andi fyrir Perú að vera eina ólýðræð- islega ríkið í Mið- og Suður-Amer- íku?“ sagði hann á 15.000 manna kosningafundi í vikunni. Síðar viður- kenndi hann í sjónvarpsþætti að lýð- ræði væri heldur ekki í hávegum haft á Kúbu. „Hinn 9. apríl getið þið kosið á miíli lýðræðis og einræðis, með þessu atkvæði getið þið frelsað Perú,“ sagði Perez de Cuellar á fundinum. Með því vísar hann til þess er Fujimori leysti þingið upp og lýsti yfír neyðar- lögum árið 1992, til þess að geta geta ráðist af fullri hörku gegn hryðjuverkamönnum og komið í gegn róttækum efnahagsumbótum. Fujimori er sonur japanskra inn- flytjenda og sigraði i forsetakosning- Reuter PEREZ de Cuellar og eigin- kona hans Marcela, veifa til stuðningsmanna. Hann hefur saxað á forskot Fujimoris en ekki má gefa upp tölur úr kosn- ingaspá 15 siðustu dagana fyr- ir kjördag. Alberto Fujimori, forseti Perú, (á minni mynd- inni), hefur verið sakaður um einræðistilhneigingar. Honum til hægri handar er eiginkonan fyrrverandi, Susana Higuchi, en þetta er síðasta myndin sem tekin var af þeim saman. unum árið 1990 öllum að óvörum en búist hafði verið við sigri rithöfund- arins Marios Vargas Llosa. Fujimori segir ekki vera stjómmálamaður í venjulegum skilningi þess orðs en andstæðingar hans saka hann um að vera lýðskrumara með einræðistil- hneigingar. Hefur hann átt í sér- kennilegu stríði við fyrrverandi eigin- konu sína, Susana Higuchi, sem sótti um skilnað til þess að geta farið í framboð gegn eiginmanninum. Ekk- ert varð úr framboði hennar þar sem hún hafði ekki tilskilinn fjölda undir- skrifta stuðningsmanna. Stjóm Fujimoris hefur ráðist gegn verðbólgudraugnum og komið fijálsu markaðshagkerfí á. Einkavæðing hefur skilað 3,2 milljörðum dala í ríkiskassann og erlendar fjárfesting- ar um fjórum milljörðum dala. Á síðasta ári var mesti hagvöxtur heims í Perú, 12,9% á ári. Mestur vöxturinn var í byggingariðnaði, fískveiðum og framleiðslu. Hagfræð- ingar eru flestir sammála um að stjórn Fujimoris hafí tekist best upp í þvi að draga úr verðbólgu, sem var 7.650% árið 1990 en er komin niður í um 10%. Þá hefur traust erlendra fjárfesta aukist vegna góðs árangurs baráttunnar gegn hryðjuverkum. Perez de Cuellar hefur hins vegar bent á viðskipahalli Perú við útlönd sé of mikill. Hann var 1,1 milljarður dala á síðasta ári og hefur verið eitt helsta bitbein andstæðinga Fujimor- is. Efnahagsráðherra í stjórú hans, Jorge Camet, svarar því hins vegar til að tveir þriðjuhlutar erlendrar fjárfestingar Perú á síðasta ári hafi verið vegna stofnkostnaðar ýmissa fyrirtækja og að sú fjárfesting muni með tímanum leiða til enn meiri hag- vaxtar. Sönnun fyrir sar- in-eign JAPANSKA lögreglan fann í gær efni í húsum sértrúar- safnaðar sem grunaður er um að hafa gert gasárás í Tókýó, sem sannar að taugagasið sarin var geymt þar. Efnið myndast aðeins þegar sarin sundrast. Ekki er að fullu ljóst hvort að sarin hefur verið framleitt á staðnum. Hætt við van- trauststillögu RÚSSNESKA þingið hætti í gær við að ganga til atkvæðis um vantrauststillögu á ríkis- stjómina eftir að þjóðemis- sinninn Vladimír Zhír- ínovkskíj, dró til baka stuðn- ing sinn við tillöguna. Reiddist hann yfír því að tillagan hlaut ekki stuðning flokka sem hann kvaðst hafa stutt í einu og öllu. Dollarinn fellur enn DOLLARINN stóð í stað í gær eftir að hafa fallið enn meira gagnvart japönsku jeni en nokkra sinni. Fór dollarinn í 83,65 jen í fyrrinótt en gengi hans hefur ekki verið svo lágt frá stríðslokum. Dauðalisti áHaítí BANDARÍSK yfírvöld hafa hvatt stjórnina á Haítí til að koma í veg fyrir pólitískir andstæðingar Jean-Bertrand Aristide, forseta Haítí, verði myrtir en Bandaríkjamenn telja líf 27 manna í mikilli hættu. Dagblaðið The New York Times hafði eftir banda- rískum embættismanni að ráðuneytið hefði sett saman „dauðalista" yfír þá sem væra í mestri hættu. Ráðist gegn mafíunni ÍTALSKA lögreglan gerði áhlaup á heimili granaðra meðlima mafíunnar víðs vegar um Sikiley í dögun í gær. 14 menn vora handteknir, gran- aðir um morð og önnur ofbeld- isverk á síðustu 20 áram. 22 komust undan réttvísinni. Vilja ekki vernda málið FLESTIR Frakkar eru and- vígir lögum sem sett vora á síðasta ári til að vernda franska tungu fyrir erlendum áhrifum, sér í lagi enskum. í könnun sem birt var á fimmtu- dag kom í ljós að 71% FYakka telja „að tungumálið verði að vera opið fyrir erlendum orð- um til að auðgast og þróast". Jaruzelski fyrir rétt SAKSÓKNARI í Póllandi höf- aði í gær mál á hendur Wojc- hech Jarazelski herhöfðingja og ellefu öðram fyrram emb- ættismönnum kommúnista en þeir eru sakaðir um að bera ábyrgð á morðum á 44 verka- mönnum árið 1970.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.