Morgunblaðið - 08.04.1995, Side 54
54 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar,
amma og langamma,
ESTHER THORAREIMSEIM
JÓNSDÓTTIR,
Birkimel 6b,
lést í Borgarspítalanum þann 7. apríl
sfðastliðinn.
Bergur Ingimundarson,
Sigurjón Hafnfjörð Siggeirsson,
Rúnar Eiríkur Siggeirsson, Valgerður Sigurðardóttir,
Olga Soffía Siggeirsdóttir, Hafsteinn Sigurðarson,
Sævar Siggeirsson, Sigriður Arnþórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARGRÉT KOIMRÁÐSDÓTTIR,
Hrafnistu,
áður Stigahlíð 22,
lést í Landspítalanum 6. apríl.
Jaröarförin verður auglýst síðar.
Aðalsteinn Th. Gíslason,
Guðrún Árnadóttir, Sigríður Árnadóttir,
Garðar Pálmason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar,
GUÐJÓN GRÍMSSON,
Miðdalsgröf,
verður jarðsunginn frá Kollafjaröarneskirkju miðvikudaginn 12. apríl
kl. 14.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er
bent á Kollafjaröarneskirkju.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Guðfriður Guðjónsdóttir,
Sigríður Guðjónsdóttir.
OLAFUR JONSSON
+ Ólafur Jónsson
var fæddur á
Höfðabrekku í
Mýrdal. Foreldrar
•hans voru hjónin
Jón Brynjólfsson,
trésmiður og vega-
vinnuverksfjóri í
Vík í.Mýrdal, f. 24.
8. 1865 í Breiðu-
hlíð, d. 24. 8. 1948
í Vík, og kona hans
Rannveig Einars-
dóttir, f. 6. 9. 1867
á Strönd í Meðal-
landi, d. 1957 í Vík.
Foreldrar Jóns
Brynjólfssonar voru hjónin
Brynjólfur Guðmundsson, f.
22. 8. 1833 í Skammadal, d.
19. 9. 1900 á Litlu-Heiði, og
kona hans, Þorðgerður Jóns-
dóttir, ljósmóðir, f. 12. 12.
1830, d. 11. 2. 1920 á Litlu-
Heiði. Móðir Bryiyólfs var
Guðrún systir Helgu ömmu
Þorsteins Erlingssonar skálds.
Guðrún var dóttir Hallgríms
bónda á Neðra-Velli, Brynj-
ólfssonar og Guðríðar systur
Sæmundar föður Tómasar
Fjölnismanns. Guðríður var
dóttir Ogmundar, prests á
Krossi, bróður Böðvars prests
í Holtaþingum, föður Þorvalds
prests og skálds í Holti, föður
Þuríðar langömmu Vigdísar
forseta. Foreldrar Þorgerðar
ljósmóður frá Svartanúpi í
Skafártungu voru hjónin Jón
Þorláksson, f. um 1797, d.
1847, og kona hans Sigríður
Sturludóttir, f.
1797, d. 1857,
Jónssonar, bónda
á Þórustöðum í
Grímsnesi, f. 1761,
d. 1846. Kona
Sturlu var Guðrún
Gísladóttir frá
Kiðjabergi í
Grímsnesi, f. 1761,
d. 1846. Foreldrar
Jóns Þorlákssonar
í Svartanúpi voru
Þorlákur Jónsson
á Flögu í Skaftárt-
ungu, f. 1776, d.
1839, og kona
hans Elín Loftsdóttir, f. 1771.
Afi Þorláks Jónssonar var
Ólafur Ólafsson í Hjörleifs-
höfða, f. um 1689, d. 1755.
Systkini Ólafs Jónssonar voru:
Magnús, f. 1893, d. 1971, gift-
ur Halldóru Ásmundsdóttur,
f. 1896, d. 1992. Börn þeirra:
Ásgeir, f. 1921, d. 1976, Karl,
f. 1924, Jón Reynir, f. 1931,
* Þorgerður, f. 1897, d. 1991,
gift Einari Erlendssyni. Börn
þeirra: Erlendur, f. 1921,
Steinunn, f. 1924, Erla, f. 1930
* Brynjólfur, f. 1899, giftur
Maren Guðmundsdóttur. Barn
hans með Svanhvíti Sveins-
dóttur fyrir hjónaband: Sveinn
Hilmar, f. 1930, * Guðrún, f.
1900, gift Guðmundi Þor-
steinssyni. Börn þeirra: Sigríð-
ur, f. 1917, Guðrún, f. 1921,
Sólveig, f. 1922, Óskar, f. 1925,
Jón Rafn, f. 1925, Ólafur, f.
1930, Kristrún, f. 1933, d.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á
heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa
örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
t
Elskuleg fraenka okkar,
AÐALHEIÐUR FRIÐÞJÓFSDÓTTIR
bókasafnsfræðingur,
Tómasarhaga 43,
sem lést 1. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudag-
inn 10. apríl kl. 10.30.
Fyrir hönd ættingja,
Sigríður Guðjohnsen,
Aðalsteinn Guðjohnsen,
Elísabet Guðjohnsen.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
AGNETE ÞORKELSSON
hjúkrunarfræðingur,
Ránargötu 19,
Akureyri,
sem andaðist 2. apríl sl., verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 11. apríl kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast hennar, er bent á Hjartavernd eða Vinarhöndina, Styrktar-
félag vangefinna.
Helen Þorkelsson,
Sólveig Þorkelsson,
Jóhann Björgvinsson,
Erla Björg Björgvinsdóttir,
Halla Björgvinsdóttir,
Emma Agneta Björgvinsdóttir,
Ásta Hrönn Björgvinsdóttir,
og barnabarnabörn.
Björgvin Lenonardsson,
Ásthildur Sverrisdóttir,
Óiafur Ólafsson,
Sigurður G. Sigurðsson,
Vigfús Ó. Bjarkason,
Guðjón Steindórsson
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls móður okkar,
tengdamóður ömmu og langömmu,
SVÖVU E. MATHIESEN.
Erna Á. Mathiesen,
Matthías Á. Mathiesen, Sigrún Þorgilsdóttir Mathiesen,
Erna S. Mathiesen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KJARTAN R. GÍSLASON,
Sunnuvegi 11,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju
þriðjudaginn 11. apríl kl. 13.30.
Þórleif Guðjónsdóttir,
Ársæll Ársælsson,
Sigurbjartur Kjartansson, Arndfs Gísladóttir,
Eygló Kjartansdóttir,
Laufey Kjartansdóttir, Ingvi R. Sigurðsson,
Ásta Kjartansdóttir, Haukur Sigurðsson,
Erla Kjartansdóttir, Óskar Björnsson,
Sigurborg Kjartansdóttir, Pétur H. Birgisson,
Guðjón Kjartansson, Brynhildur Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær unnusta mín,
JOAN GAARBO,
sem varð bráðkvödd sunnudaginn 3. apríl, verður jarðsungin frá
Toftarkirkju, Færeyjum, sunnudaginn 9. apríl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Fjalar V. Stefánsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
STEFÁNS ÞÓRHALLSSONAR,
Dælengi 6, Selfossi,
áðurtil heimilis
íBirkihrauni 11,
Mývatnssveit.
Sérstakar þakkir til Landsvirkjunar og starfsmanna Kröfluvirkjunar
fyrir mikla og góða hjálp.
Aðstandendur.
1983, * Einar, giftur Kristínu
Pálsdóttur, f. 1903, d. 1983.
Börn þeirra: Guðlaug, f. 1936,
Málfríður, f. 1942, d. 1989,
* Steinunn, f. 1905, d. 1945,
gift Valmundi Björnssyni, f.
1898, d. 1973. Börn þeirra:
Jón, f. 1929, og Sigurbjörg, f.
1930. Rannveig og Jón Brynj-
ólfsson fluttu frá Litlu-Heiði
að Höfðabrekku árið 1894 með
son sinn Magnús. Þar bjuggu
þau í 13 ár. Á þeim tíma eign-
uðust þau sex börn auk Magn-
úsar sem upp komust. Þau Jón
og Rannveig fluttu til Víkur
árið 1907, Þegar þau hjónin
Rannveig og Jón hefja búskap
í Vík er Ólafur Jónsson tólf
ára. Gerðist hann fljótt vinnu-
drengur og síðar vinnu- og
starfsmaður í Suður-Vík,
1907-1918 hjá Halldóri Jóns-
syni, sem þá rak verslun í Vík
og útræði auk búrekstrar. Ól-
afur lauk barnaskóla- og ungl-
ingaskólanámi í Vík og síðar
námi við Flensborgarskólann
í Hafnarfirði. Ólafur kvæntist
I. 12. 1917 Elísabetu Ingi-
björgu Ásbjörnsdóttur, f. 6.
10. 1897. Foreldrar hennar
voru Ásbjöm Jónsson, húsa-
smiður í Melhúsum á Akra-
nesi, og kona hans Sigríður
Árnadóttir. Dóttir Óiafs og
Elísabetar var Sigríður, f. 1.
II. 1918, d. 1990, organisti við
kirkjuna í Vík um árabil. Hún
var gift Valdemar Tómassyni
verslunarmanni í Vík, f. 22.
11. 1914, d. 1978. Ólafur Jóns-
son verður jarðsunginn frá
Vík í dag, 8. apríl.
ÆVISTÖRF Ólafs Jónssonar voru
við verslunarstörf hjá Halldórs-
verslun í Vík, en í þeirri verslun
var um árabil pósthúsþjónustan í
Vík. Eftir að Jón Halldórsson féll
frá kom það í hlut Ólafs að ann-
ast þá afgreiðslu. Þegar Póstur
og sími byggði síðar nýtt hús í
Vík, fluttist póstafgreiðsían þang-
að og var Ólafur starfsmaður þar
uns hann lét af störfum 1972, þá
sjötíu og sjö ára gamall. Með starfi
sínu við Halldórsverslun gegndi
Ólafur ýmsum öðrum störfum ma.
var hann gjaldkeri sjúkrasamlags-
ins í Vík um árabil.
Hér áður fyrr fylgdu oft auka-
störf verslunarstarstarfsmönnum
í Vík. Veiddur var fugl í björgun-
um, farið var til veiða á Heiðar-
vatn og síðast en ekki síst var
róið til fískjar. Ólafur Jónsson var
áhugasamur í þeim störfum sem
hann tók sér fyrir hendur. Hann
var í ígripum formaður á fiskibát-
um í Vík í mörg ár. Var Ólafur
mjög farsæll formaður, enda gæt-
inn og íhugull og þekkti vel til
strauma og sjávarfalla. Var hann
laus við óhöpp. Hins vegar voru
þeir ekki ófáir sem á þeim árum,
féllu fyrir ægi við brimströndina
í Vík. Sá sem þessar línur skrifar
var munstraður eina vertíð á sex-
æringinn Víking, þá seytján ára,
en Ólafur frændi var þar formað-
ur. Bát þennan hafði Erlendur afi
smíðað og er hann enn sjófær eft-
ir því sem ég best veit. Ekki hefði
ég viljað missa af þessari sjósókn,
þótt stutt væri. það var vissulega
lærdómsríkt að stunda sjó frá
brimströndinni í Vík.
Skipsströnd voru tíð áður fyrr
við brimströnd suðurlandsins. Hér
verður aðeins minnst á eitt þeirra.
Aðfaranótt 25. nóvember árið
1913 strandaði breski togarinn
Lord Carington á Kerlingadals-
fjöru austan Víkur. Var þetta
fyrsta ferð skipsins. Allri áhöfn
var bjargað. Minnst er á þetta hér
vegna þess, að Ólafur Jónsson, þá
sautján ára, fékk leyfi til þess að
nýta járn úr skipinu. Úr járninu
smíðaði hann skeifur og seldi, en
um þær mundir var minna að gera
í Halldórsverslun. Þetta sýndi vel,
hve Ólafur var áhugasamur að
finna sér störf. Ég rifjaði upp
strand Lord Carington fyrir fimm