Morgunblaðið - 11.05.1995, Side 1
96 SÍÐUR B/C/D/E
Bill Clinton ræddi við háskólastúdenta í Moskvu um stríðið í Tsjetsjníju
Lagði að Jeltsín
að stöðva stríðið
Moskvu, Kænugarði. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
sagði á fundi með háskólastúdentum
í Moskvu í gærkvöldi, að hann hefði
lagt að Borís Jeltsín Rússlandsfor-
seta að stöðva herförina í Tsjetsjníju
og fínna friðsamlega lausn á deilum
þar hið snarasta.
Þyrluárás rússneska hersins í
Tsjetsjníju er hófst rétt eftir fjögurra
stunda fund leiðtoganna, varpaði
skugga á annars jákvæða niðurstöðu
fundarins þar sem forsetarnir náðu
samkomulagi um samvinnu í barátt-
unni gegn hryðjuverkum og leystu
ágreiningsefni í afvopnunarmálum
auk þess sem Rússar staðfestu að
þeir myndu undirrita sáttmála um
Friðarsamstarf Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO). Embættismenn
sögðu að gert væri ráð fyrir því að
það gæti átt sér stað í tengsium við
ráðherrafund NATO 31. maí í Hol-
landi.
Clinton heldur í dag í tveggja
daga opinbera heimsókn til Úkraínu
til þess að treysta enn frekar náin
og vinsamleg samskipti ríkjanna.
Yfirvöld í Kænugarði vonast eftir
því að forsetinn komi færandi hendi
og bjóði Leoníd Kútsjma forseta
jafnvel að sitja fund leiðtoga sjö
helstu iðnríkja heims, sem fram fer
í Halifax í Kanada í næsta mánuði.
Clinton hrósaði Úkraínumönnum
fyrir skjótan árangur í efnahagsum-
bótum.
■ Rússargefaeftir/19
Reuter
BORIS Jeltsín Rússlandsforseti gefur Bill Clinton Bandaríkjafor-
seta til kynna ánægju sína með fund þeirra í Moskvu í gær.
--1------------------
„Kjarn-
orkukylf-
ur“ í golfi
Washington. Reuter.
FYRIRTÆKI nokkurt í Kali-
forniu hefur loksins riðið á
vaðið með að breyta sverðum
í plógjárn ef svo má segja,
kjarnorkueidflaugum í golf-
kylfur. Hefur það sett á
markað nýjan ás eða „dræv-
er“, sem það kallar „Frið-
arflaugina" og var áður eld-
flaug í Rússlandi.
Höfundur nýju kylfunnar
er Cary Schuman en hann á
heimsmetið í lengsta upp-
hafshöggi eða 460 metra.
Segir hann, að gífurlegur
kraftur fylgi „kjarnorku-
kylfunni“ eins og líklegt er
en auk þess hefur hann á
boðstólum „Friðarpútter" úr
sama efni, aflóga, rússnesk-
um eldflaugum.
Reuter
MARTIN McGuiness leiðtogi Sinn Fein ræðir við blaðamenn að loknum fundi með breskri stjórnar-
nefnd í Stormont-kastala. Er það fyrsti viðræðufundur stjórnarinnar við samtökin.
Viðræður um framtíð Norður-írlands
Mega einvörðungu
vera vopnaðir rökum
Belfast. Daily Telegraph.
BRESKA stjórnin tjáði fulltrúum
Sinn Fein, stjórnmálaarms írska lýð-
veldishersins (IRA), í gær, að sam-
tökin fengju ekki fulla aðild að við-
ræðum um frhmtíð Norður-írlands
fyrr en IRA hefði nánast afvopnast.
Michael Ancram, næst æðsti breski
ráðherrann í málefnum Norður-
írlands, sagðist hafa tjáð fulltrúum
Sinn Fein, að þeir fengju ekki aðild
að viðræðum um framtíð Norður-
írlands fyrr en þeir hefðu rökin ein
að vopni eins og aðrir samningsaðilar.
Hann sagði að afvopnunin hefði
verið rædd lítilsháttar en bresku og
írsku stjórnirnar hafa undirbúið
áætlun um afvopnunina og upp-
rætingu hryðjuverkasveita. Skýrði
Ancram m.a. frá hugmyndum
bresku stjórnarinnar um eftirlit með
afvopnuninni, óháða verkstjórn,
hugsanlega af hálfu Kanadamanna,
Norðurlanda eða Sameinuðu þjóð-
anna, og tímasetningar.
Fundurinn í gær er sá fyrsti sem
fulltrúar bresku stjórnarinnar eiga
með Sinn Fein í 23 ár. Stóð hann í
fjórar stundir og var átakasamur.
Þrír af fímm fulltrúum Sinn Fein
hafa á baki dóma tengda starfsemi
IRA. Ekki þykja miklar líkur á að
viðræður með fullri aðild alira deilu-
aðila séu innan seilingar þar sem
formaður flokks sambandssinna í
Ulster sagðist ekki vilja eiga nein
frekari samskipti við Anc.ram meðan
hann ætti í viðræðum við Sinn Fein.
■ Breskur ráðherra/18
Bandaríkj amenn
selja refsitolla
á japanska bfla
Washington, Genf. Reuter.
BANDARÍSK 6tjórnvöld ætla að
setja háa refsitolla á dýra fólksbíla
og fleiri vörur frá Japan vegna
óánægju með meinta tregðu Japana
til að opna heimamarkað sinn fyrir
bílainnflutningi. Einnig hafa þeir
ákveðið að kæra Japana hjá Alþjóða-
viðskiptastofnuninni nýju, WTO,
vegna deilunnar.
Búist er við að aðgerðirnar valdi
því að innflutningur dýrra, jap-
anskra bíla til Bandaríkjanna leggist
af verði tollarnir að veruleika og
hafa samtök bandarískra bílasala
mótmælt áformunum. Þau segja að
aðgerðirnar muni gera út af við
fjölda sjálfstæðra bílasala og valda
verðhækkun á bílum.
Booth Gardner, fulltrúi Banda-
ríkjastjórnar, sagði fréttamönnum í
Genf í gær að hann hefði afhent
Renato Ruggiero, framkvæmda-
stjóra WTO, bréf frá Mickey Kant-
or, aðalviðskiptafulltrúa ríkisstjórn-
ar Bills Clintons. Þar kæmi fram að
fyrirhugað væri að leggja kæruna
fram eftir um það bil 45 daga. Leið-
togar repúblikana á þingi, sem eru
í meirihluta, styðja eindregið stefnu
stjórnarinnar í málinu og samþykkti
öldungadeildin á þriðjudag ályktun
þess efnis með miklum meirihluta.
Evrópsk fyrirmynd
Carl Levin, demókrataþingmaður
frá Michigan, ræddi málið ásamt
fleiri þingmönnum við Kantor í gær.
Sagði Levin á fréttamannafundi að
fyrirhugaðar aðgerðir byggðust í
„aðalatriðum á evrópskri fyrir-
mynd“. Hann gerði ráð fyrir að
Evrópuríkin myndu styðja sjónarmið
stjórnvalda í Washington hjá WTO.
Halli Bandaríkjamanna í viðskipt-
um við Japana er um 66 milljarðar
dollara á ári og á innflutningur á
bílum og bílavarahlutum þar drýgst-
an þátt. Bandaríkjamenn segja Jap-
ana beita ýmsum bellibrögðum er
stangist á við reglur WTO um fijáls
heimsviðskipti. Með þessu sé komið
í veg fyrir að bandarískir bíiar nái
fótfestu á Japansmarkaði.
Japanar benda hins vegar á að
bandarísk fyrirtæki geti sjálfum sér
um kennt. T.d. hafi Chrysler-verk-
smiðjurnar til skamms tíma ekki
framleitt bíla með hægri handar
stýri fyrir Japansmarkað en þar í
landi er ekið á vinstri vegarhelmingi.
Walesa íhugar málsókn
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa Póllandsforseti íhugar
að Iáta draga forsætisráðherra
landsins, Jozef Oleksy, fyrir sér-
stakan ríkisdóm vegna þess að ráð-
herrann tók þátt í hátíðarhöldum í
Moskvu í tilefni stríðslokaafmælisins
gegn vilja forsetans.
Að sögn talsmanns Walesa, Tom-
asz Kwiatkowskis, hefur forsetinn
ekki gert upp hug sinn í málinu en
búið er að semja drög að ákæru.
Walesa neitaði að fara til Moskvu
vegna andstöðu þarlendra stjórn-
valda við að Pólland fái að ganga í
Atlantshafsbandalagið, NATO, einn-
ig vildi hann mótmæla hernaðinum
í Tsjetsjníju. Hann taldi ferð Oleksys
grafa undan mikilvægum hagsmun-
um ríkisins á alþjóðavettvangi.
Oleksy varði ákvörðun sína, sagði
heimsóknina hafa verið bæði þarfa
og gagnlega. Ráðherrann er fyrrver-
andi kommúnisti, hlynntur inngöngu
Póllands í NATO en leggur áherslu
á nauðsyn þess að hafa góð sam-
skipti við Rússa.