Morgunblaðið - 11.05.1995, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 11.05.1995, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Ljóska Ekki vaka eftir mér... ég er að fara út að leika Jæja þá, kannski svolítinn hádegis-körfubolta. svolítinn miðnætur-körfubolta. JHftcgnufrtafeifc BRÉF HL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Stigaútreikning*- ur í danskeppni Frá Níels Einarssyni: EINS og mörgum er Ijóst hefur áhugi á dansi aukist mjög hirl síð- ari ár. Danskeppnum innanlands hefur fjölgað og samfara því eykst hópur þeirra sem stunda dans- íþrótt með keppni í huga. Einnig tekur stór hópur dansara þátt i erlendum danskeppnum. Mæli- kvarði árangurs og hver staða ein- stakra dansara er sést á úrslitum í einstökum danskeppnum. Nauðsynlegt er að dómgæsla sé í höndum kunnáttumanna, því dansararnir skoða niðurstöður og verk dómaranna sér til stuðnings og leiðbeiningar um áhersluatriði fyrir næstu keppni. Þannig eru skilaboð frá dómurunum skoðuð og vinnutilhögun breytt í samræmi við niðurstöðumar. Það sem hér er verið að undirstrika er að í danskeppnum er þörf á að þeir menn sem sjá um dómarastörf séu með þekkingu á þessu sviði dans- ins, ekki einhverjir, sem sjaldan sjá danskeppni á alþjóðlegum mælikvarða né starfa á þessu sviði dansins. Dómarar þurfa einnig að vera a.m.k. 5, svo að vægi hvers og eins sé ekki hærra en 20%. Góðir dómarar geta ráðið úrslitum um framtíð dansins á íslandi. Fjöldi dansa í hverri keppni ætti að vera fimm, sérstaklega í frjálsu riðlunum, sem eru í alþjóðlegum staðli, og pörin þurfa alla þá reynslu sem hægt er að öðlast til að standa betur á erlendum mót- um. Hérlendis fá börn yngri en 15 ára aldrei að keppa í Paso Doble og vínarvalsi á danskeppnum Dansráðs íslands. Erlendis verða þau að keppa í þessum dönsum. Þetta fyrirkomulag og keppni í tveim dönsum í fijálsu er álíka gáfulegt og að æfa körfubolta með loftlausa tuðru. Þannig byggjum við ekki afreksmenn. Til fróðleiks Hvernig niðurstöður í dans- keppnum reiknast er spurning sem allflestir þátttakendur vita ekki svör við. Til frekari fróðleiks, þá er oft- ast stuðst við og notað það sem kallað er „Skating System“, kerfí sem notað er út frá skautaíþrótt- inni. í þessu kerfi eru 11 reglur. Regla 1 fjallar um val í næstu umferð, þar eru merkingar dómara taldar og val í næstu umferð reikn- aðar út frá merkingafjölda. Regla 2, dönsurum skal gefíð sæti af hveijum dómara. Regja 3 raðar niður sætum dómarana 1 = fyrsta sæti o.s.frv. Regla 4 segir að ekki megi gefa tveim pörum sama sæti. Regla 5 segir til um hreinan meirihluta, þ.e. meira en 50% merkingar dómara. Regla 6, hvernig skal reikna sæti miðað við mismikinn meiri- hluta merkinga í sama sæti, þegar tvö eða fleiri pör eru með meira en 50% merkinga dómara þá ræðst sæti af hærri summu merkinga í viðkomandi sæti. Regla 7, jöfn stig meirihluta. Dæmi: Tvö pör hafa þijár merk- ingar í fyrsta og annað sæti, ef par A er með 1+4+2+2+5 þá eru þijár merkingar í fyrsta og annað sæti, summan þar er því 5, par B er með 2+2+5+5+2 þá eru þijár merkingar í sama sæti en þar er summan 6 og því fær par A fyrsta sæti. Regla 8 varðar skort á meiri- hluta í tilteknum dansi, þá er við- komandi dansi deilt á þau pör sem ekki ná meirihluta. Regla 9 fjallar um að summa af samanlögðum sætum í sjálfum dönsunum ræður oftast endanleg- um úrslitum. Ef summa hjá tveim eða fleiri pörum er jöfn þá er farið í eina flóknustu reglu danskeppn- innar, reglu 10, sem ræður í mörg- um tilfellum hvaða sæti viðkom- andi par fær, þ.e. tvö pör eru með jafna summu. Hér á eftir er um að ræða sæti í viðkomandi döns- um, eftir útreikning frá dómurum, burtséð frá fjölda dómara. Dæmi: Par A 1+1+5+6, summa 13, par B 6+3+1+3, summa einn- ig 13. Hvernig verður endanleg niðurstaða? Par A er með tvo ása og sigrar því í þessu dæmi. Séu pörin enþá jöfn eftir að búið er að skoða reglu nr. 10, t.d. par A 1+1+3+3 og par B 3+3+1+1, þá er farið eftir reglu 11, sem telur stigagjafir hvers dómara og sá sem fær oftar lægri einkunn er sá sem fær viðkomandi sæti. í 10-dansa keppnum er stuðst við sömu reglur, en þar er hver dans dæmdur einn og sér niður í úrslit. Því er oft að par sem ekki kemst í úrslit í öllum dönsum er ekki dottið úr keppni, því parinu eru gefin stig í hverri umferð. Dæmi: Par sem keppir í 24 para úrslitum fær 18 stig og par sem keppir í undanúrslitum fær 9,5 stig. Þessi stig eru notuð við út- reikning þegar kemur að niðurröð- un í sæti. Þannig gæti því niður- staðan verið í t.d. átta dönsum. Niðurstaða dansa í eftirfarandi dæmi eru að 1 = fyrsta sæti í viðkomandi dansi. Par A: 1+1+2+3+4+4+9,5+18 summa 42,5 stig. Par B: 6+6+6+6+5+5+5+5 summa 44 stig sem er hærri summa en hjá parinu sem ekki fór í úrslit í öllum dönsunum. NÍELS EINARSSON, Reykjavíkurvegi 72, Hafilarfirði. A!lt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari þar að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.