Morgunblaðið - 11.05.1995, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.05.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MAÍ1995 25 LISTIR VERK eftir Else Marie Jakobsen. Flóttmn austur KVIKMYNPm Rcgnboginn AUSTURLEIÐ „WAGON EAST“ ★ >/2 Leiksljóri: Peter Markle. Aðalhlut- verk: John Candy, Richard Lewis, Ed Lauter. Carolco. 1994. BANDARÍSKI grínvestrinn eða farsinn Austurleið í Regnboganum er þekktastur fyrir að vera síðasta heila myndin sem kanadíski grin- leikarinn John Candy lék i og hún er tileinkuð minningu hans. Candy leikur drykkfelldan leiðsðgumann og grænmetisætu með heldur dapra fortíð að baki (fyrir þá sem þekkja sögu Donnerhópsins), sem fylgir flokki vesturfara aftur austur. Þeir hafa gefist upp á vestrinu, fundist það fyrir neðan allar hellur reynd- ar, og vilja ólmir fara aftur í menn- inguna í austrinu. Úr þessu spinnur leikstjórinn farsakennt grín sem leiðist þó ekki alveg út í fáránleikafyndni Mel Brooks og hans líka. Einstaka at- riði eru fyndin en önnur og mun fleiri koma síst á óvart. Ekki er frumleikanum fyrir að fara því það er eins og velflest í myndinni hafi einhverntímann, einhvérstaðar ver- ið gert áður. Grínið felst í því að snúa útúr ýmsum hefðbundum þátt- um sem einkennt hafa villta vestrið í bíómyndum og kemur gamli has- armynda-aukaleikarinn Ed Lauter þar við sögu sem vondi svartklæddi kúrekinn er reynir að koma ferða- löngunum fyrir kattarnef af ástæð- um sem of langt yrði upp að telja hér. Lauter fer skemmtilega með næstum ódrepandi grínfígúruna og stelur auðveldlega senunni. Einnig er þarna enn ein útgáfan af klikk- aða ameríska hershöfðingjanum sem stígur ekki í vitið en eins og áður sagði þá er flest hér endurunn- ið. Candy er í sama formi og löngum áður. Hann lék yfirleitt í myndum sínum, og þessi er engin undantekn- ing, mann sem fáir vilja hafa með sér en vinnur samúð fólksins í kringum sig og ekki síst áhorfenda. Brandarinn um Donnerhópinn er líka notaður sem háalvarlegur kafli í lífí hans og hvaða erindi á það nú í farsa af þessu tagi? Þannig er þetta mislit mynd sem nær aldrei neinu verulegu flugi. Ljóst er þó að margir koma til með að sakna John Candys. Arnaldur Indriðason Norsk text- fllistakona talar um verk sín NORSKA textíllistakonan Else Marie Jakobsen heldur fyrir- lestur um verk sín og sýnir lit- skyggnur í stofu 101 í Odda, í dag 11. maí kl. 20.30 á vegum Textílfélagsins og Kirkju- listahátíðar 1995. Else Marie Jakobsen er ein af þekktustu listamönnum Norðmanna. Hún er fædd í Kristiansand 1927 og hefur rek- ið þar eigin vinnustofu frá 1950. Hún hefur tekið þátt i mörgum samsýningum í Evrópu og hald- ið margar einkasýningar. Hana hefur lengi langið til þess að koma til Islands og halda sýn- ingu á verkum sínum og nú hefur draumurinn ræst. Verk hennar eru sýnd í Lista- safni Akureyrar 6.-27. maí í tengslum við Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkj u. Þar eru sýnd textíl- og grafíkverk, bæði ver- aldleg og kirkjuleg. Verk með trúarlegum mótívum, ofnar alt- aristöflur og grafíkmyndir, verða sýnd í Hallgrímskirkju í Reykjavík dagana 3.-18. júní á Kirkjulistahátíð 1995. Colman fellihýsi Colman cedar fellihýsið, verð kr. 498.000 á götuna fyrir utan skrán- ingu. Innifalið í verði: miðstöð, varadekk, tvö gardinusett fyrir rúm, tröppur, hlífar fyrir varadekk og gashylki. Algjör byltlng í verði Tilboðssala til 31. maí nk. Opið kl. 10 til 18 virka daga og kl. 10 til 15 laugardaga. Texon pallhýsi Vagnhöfða 25 Sími 5873360 Parket 02 dúkar á tilboði! ✓ I tilefni af gjöf sænska fyrirtækisins Tarkett á íþróttagólfi Laugardagshallarinnar, bjóðum við dúka og margar tegundir parkets frá Tarkett á tilboði þann tíma sem heimsmeistarakeppnin í handknattleik stendur yfir. Parket 1 urvali. Tilboð frá kr. f .995.- pr fm Dukar 1 urvali Tilboó frá kr. 990.- HARÐVIÐARVAL HF. Krókhálsi 4 llOReykjavik Sími: 567 1010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.