Morgunblaðið - 11.05.1995, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1995 19
ERLENT
k -j|
* ^
‘f mk - I
k ■ Jsgp \ íf|pí| s
H viÍT y
■'tg' 'v,' jgssa? f.
|f£ 1^1$$$ 1 • iBfe. ■■ r
* '"mæ...
BILL Clinton leggnr áherslu á orð sín á blaðamannafundinum með Borís Jeltsín í gær.
Reuter
Leiðtogafundur Bills Clintons og Borís Jeltsíns í Moskvu
Rússar fallast á að gefa
eftir í deilunni um Iran
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKAR herþotur gerðu eld-
flaugaárás í grennd við þorp í
Tsjetsjníju í gær, nokkrum mínút-
um eftir að Borís Jeltsín, forseti
Rússlands, lýsti því yfir eftir fund
með Bill Clinton Bandaríkjaforseta
að rússneski herinn væri ekki að
berjast þar. Clinton forðaðist að
gagnrýna hernaðaraðgerðir Rússa
á blaðamannafundi með Jeltsín eft-
ir fjögurra klukkustunda fund
þeirra í Kreml. Jeltsín sagði að
Rússar myndu hætta við að selja
írönum tæki sem Bandaríkjamenn
segja að hægt sé að nota til að fram-
leiða kjarnavopn.
„Engar hernaðaraðgerðir eiga
sér nú stað í Tsjetsjníju," sagði
Jeltsín eftir leiðtogafundinn. „Her-
inn er ekki að beijast þar. Sveitir
innanríkisráðuneytisins eru nú ein-
faldlega að taka vopn af fámennum
hópum uppreisnarmanna.“
Skömmu eftir að Jeltsín lýsti
þessu yfír gerðu að minnsta kosti
fimm herþyrlur árás nálægt þorpinu
Serzhen-Yurt og skutu eldflaugum
að þyrpingu bóndabæja, að sögn
fréttaritara Reuter.
Samstarf í baráttunni gegn
hryðjuverkum
Jeltsín sagði að leiðtogarnir
hefðu ekki leyst öll ágreiningsmál
ríkjanna tveggja en fundurinn hefði
hins vegar afsannað staðhæfingar
um mikla erflðleika í samskiptum
þeirra.
Báðir leiðtogamir sögðu að sam-
komulag hefði náðst um samvinnu
í baráttunni gegn hryðjuverkum og
árangur hefði náðst í viðræðum um
ýmis ágreiningsmál sem varða
vopn.
Clinton kvaðst telja að fundurinn
hefði verið báðum ríkjunum í hag.
„Eg tel að bæði ríkin hafi þokað
hagsmunamálum sínum áleiðis,“
sagði hann.
Líklegt er þó talið að Clinton
verði gagnrýndur í Bandaríkjunum
fyrir að gagnrýna ekki Jeltsín
harkalegar opinberlega vegna hern-
aðaraðgerðanna í Tsjetsjníju, eink-
um í ljósi árásarinnar í gær.
Þegar Clinton var spurður um
Tsjetsjníju-málið á blaðamanna-
fundinum með Jeltsín sagði hann:
„Þetta er áhyggjuefni fyrir heims-
byggðina og þetta hefur einnig ver-
ið erfitt fyrir þá [Rússa].“
Deilt um stækkun NATO
Samningur Rússa við íran, sem
hefur ekki enn verið undirritaður,
var viðkvæmasta ágreiningsmál
leiðtoganna. Jeltsín sagði að hern-
aðarlega þættinum í samningnum
yrði sleppt.
Jeltsín samþykkti að hætta við
sölu á tækjum, sem bandarískir
embættismenn höfðu sagt að íranir
gætu notað til að auðga úran og
framleiða kjarnavopn. Clinton sagði
að A1 Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna, og Viktor Tsjernomyrdín, for-
sætisráðherra Rússlands, myndu
ræða hinn þáttinn, fyrirhugaða sölu
Rússa á kjarnakljúfum til írans.
Clinton sagði að Rússar hygðust
undirrita samning við Atlantshafs-
bandalagið (NATO) um samstarf í
þágu friðar, þótt dagsetningin hefði
ekki verið ákveðin. Leiðtogana
greindi hins vegar á um áform
'NATO um að veita fyrrverandi
kommúnistaríkjum í Mið- og Aust-
ur-Evrópu aðild að bandalaginu.
Riínaí
hnapp-
helduna
Palermo. Reuter.
MAFÍUFORINGINN Salvatore
„Toto“ Riina gekk á mánudag í
hjónaband með konunni sem búið
hefur með honum síðasta aldar-
fjórðunginn og alið honum ijögur
börn, Antoniettu Bagarella. Gift-
ingin var borgaraleg og var fram-
kvæmd í Ucciardone-fangelsinu á
Sikiley þar sem Riina er í haldi.
Riina, sem hlotið hefur viður-
nefnið „Skepnan“ var handtekinn í
janúar 1993 en nú standa yfir rétt-
arhöld í máli hans og 41 annars
meðlims mafíunnar sem ákærðir
eru fyrir morð á dómaranum Giov-
anni Falcone, konu hans og lífvörð-
um. Riina hefur þegar hlotið níu
lífstíðardóma.
Kaþólskur prestur, sem síðar var
handtekinn fyrir meint mafíu-
tengsl, gaf Riina og Bagarella sam-
an árið 1966 en yfirvöld tóku hjóna-
bandið ekki gilt.
Ungverjaland
Hættuleg-
asta landið
London. Reuter.
UNGVERJALAND, Pólland
og Suður-Afríka eru hættuleg-
ustu löndin fyrir ferðamenn,
ef marka má könnun bresku
neytendasamtakanna.
Ráðist er á meira en einn
af hveijum tuttugu ferða-
mönnum í þessum löndum,
samkvæmt könnuninni, sem
var gerð meðal 16.000 lesenda
tímarits samtakanna, Holiday
Which. Næst á listanum yfir
hættulegustu löndin voru
Gambía og Marokkó.
Holland og Belgía eru hins
vegar efst á lista tímaritsins
yfír öruggustu löndin.
„Nýfengið frelsi i fyrrver-
andi kommúnistaríkjum kann
að valda vandamálum fyrir
ferðamenn,“ sagði ritstjóri
tímaritsins, Patricia Yates.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands
Sögulegt að hitta tvo
forseta Frakklands
Reuter
JACQUES Chirac, Framjois Mitterrand og Vigdís Finnboga-
dóttir við minningarathöfnina í París á mánudag.
„ÞAÐ var einkar minnistætt að
tveir Frakklandsforsetar skyldu
vera viðstaddir athöfnina í París
þar sem minnst var styijaldarloka
í Evrópu," sagði Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti Islands, sem nýkom-
in er frá Frakklandi. Þar hitti hún
stuttlega þá Francois Mitterrand,
fráfarandi forseta, og Jacques
Chirac, nýkjörinn forseta lands-
ins. Segir hún Chirac hafa verið
afar ánægðan og leikið á als oddi
í myndatöku með þjóðhöfðingjun-
um. Hafí hann og Mitterrand
spaugað við nærstadda á meðan
á myndatöku stóð.
Hátíðahöldin segir Vigdís hafa
verið mjög glæsileg enda hafi
Frakkar lagt sig fram um að gera
þau sem best úr garði. „Það var
áhrifaríkt að sitja á Étoile-torg-
inu. Þetta var sögulegt augnablik,
að þarna skyldu sitja saman tveir
forsetar, báðir gestgjafar. Rætt
var um hvað þetta væri einstakt,
þetta hefur ekki gerst fyrr.“
Kjörtímabili Mitterrand forseta
lýkur síðar í mánuðinum en hann
er alvarlega sjúkur. Vigdís segir
erlendu gestina hafa dáðst að
Mitterrand. „Hann sýndi svo mik-
inn styrk og kjark og lætur ekki
á sér sjá að hann sé veikur. Hann
þurfti að ganga út á torgið og
þakka bæði hershöfðinga og
hljómsveitarstjóra og gekk styrk-
um skrefum. Þá þurfti Mitterrand
einnig að ganga yfír hluta torgs-
ins sem er allnokkur vegalengd.
Hann hefur alveg sérstakan og
virðulega stíl, Mitterrand. Alla þá
tíð sem hann hefur setið í emb-
ætti hefur hann verið mjög for-
setalegur.“
Vigdís ræddi stuttlega við Mitt-
errand enda góð vinátta frá fornu
fari á milli forsetanna. Þá gafst
henni tækifæri til að færa Chirac
hamingjuóskir. „Hann minntist
þess er ég heimsótti hann í ráð-
húsið fyrir rúmum áratug og
sagðist eiga góðar minningar um
heimsóknina."
Konur á meðal hermanna
Erlendu gestirnir voru við-
staddir hersýningu í borginni en
engin vopn voru sýnd. Segist Vig-
dís það hafa vakið athygli gest-
anna er konur birtust í herdeildun-
um sem marseruðu fram hjá.
„Þær voru afar glæsilegar og við
ræddum um það að það væri viss
léttir að sjá konur í pilsum innan
um alla þessa karlmenn. Það
hvarflaði jafnvel að mér, friðar-
sinnanum, að fyrst að ríki halda
út her, sé ekki óeðlilegt að konur
séu þar á meðal.“
Ekið var með fána íslands á
sýningunni í París eins og fána
annarra þjóðríkja sem sendu þjóð-
höfðingja sinn. Hvert ríki átti sína
bifreið þar sem fánaberi stóð.
Torben Lund, stýrimaður hjá
Landhelgisgæslunni, bar íslenska
fánann glæsilega, að sögn Vigdís-
ar, er bílarnir óku í kringum Sig-
urbogann. Það varpaði hins vegar
skugga á lok athafnarinnar að
reiðir borgarbúar púuðu á þjóð-
höfðingja í reiði sinni yfír því að
fá ekki að taka þátt í athöfninni.
Sagði Vigdís að fréttir um þetta
hefðu komið sér á óvart, hún hafi
ekki orðið vör við annað en gleði
qg hlýju er hún ók í bifreið merktri
íslandi frá þeim stað er athöfnin
var haldin á.