Morgunblaðið - 11.05.1995, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11 MAÍ1995 27
(p. :
i&x 05 >VÍ(> €Í4 h
;
KMjjtfllÍSSI
AÐSENDAR GREINAR
Um laun for-
seta Alþing’is
NeHBWI0l!T
ásamtPersonal JVetware
Verí kn 5.900,-
*BQÐEIND-
Austurströnd 12. Sfmi561-2061.Fax561-2081
ÚTILÍFí?
GLÆSIBÆ . SÍMI 812922
FRÁ því að til tals kom að ég
yrði kjörinn forseti Alþingis hafa
rannsóknafréttamenn, pistlahöf-
undur og upplýsingafulltrúi farið
mikinn í skrifum og tali um
hneyksli, sem væri í vændum.
Nú ætti sem sagt að greiða vænt-
anlegum þingforseta ráðherralaun,
nú væri lag þar sem karlmaður
tæki við af konu — þá
mætti hækka launin.
Eftir tæplega aldar-
fjórðungs þing-
mennsku er ég orðinn
svo vanur slettum úr
þessari átt að ég nenni
varla að svara. Mér
finnst ég þó verða að
setja hér nokkur orð á
blað vegna þessarar
umræðu — ekki vegna
minnar persónu —
heldur vegna þess að
jafnréttismál hafa ver-
ið dregin inn í umræð-
una, og svo vegna þess
að gengið virðist út frá Olafur G.
ákveðnum forsendum, Einarsson
án þess þær hafi verið kannaðar.
Grein upplýsingafulltrúans
Upplýsingafulltrúi Alþýðubanda-
lagsins, Hildur Jónsdóttir, ritar
grein í DV 8. maí. Hildur er gráti
nær yfir því sem hún gefur sér sem
Ég bið Hildi, Odd og
Salome að upplýsa hver
mánaðarlaun þingfor-
seta voru, t.d. í marz,
—
segir Olafur G. Einars-
son, svo réttur saman-
burður fáist við ráð-
herralaun.
staðreynd, að laun þingforseta eigi
að hækka við það að ég setjist í
stól Salome, eða eigum við að segja
að karl setjist í stól konu.
Síðan kemur hún með þá lögskýr-
ingu að verði laun mín hærri en
laun Salome þá geti Salome kært
þá ráðstöfun, að mér skilst annað-
hvort til lækkunar minna væntan-
legu iauna, eða hækkunar sinna
launa síðustu fjögur árin.
Af þessu tilefni er hér einföld
spurning til Hildar: Verði mín laun
lægri en laun Salome voru, get ég
þá kært?
Pistill Odds Ólafssonar
Oddur er fastur pistlahöfundur
Tímans. Flann hefur á undanförnum
árum lagt sig sérstaklega fram um
að nefna mig í pistlum sínum af
lítilli velvild og miklum rangfærsl-
um. Ekki veit ég með vissu hvers
vegna en þykist þó fara nærri um
ástæðuna.
í pistli Odds í Tímanum 9. maí
kemst hann að þeirri niðurstöðu að
Salome hafi sparað Alþingi 4,8
milljónir á síðasta kjörtímabili, mið-
að við væntanleg laun mín á hinu
næsta. Þar með gefur Oddur sér
að ég verði þingforseti næstu fjögur
árin og þakka ég traustið. Nú spyr
ég Odd: Hvernig er þessi tala fund-
in?
Viðtal við Salome
Á forsíðu Tímans 9. maí er við-
tal við Salome. í fyrirsögn segir:
„Vissi alltaf að málið kæmi upp
þegar karl tæki við“. Hún tekur svo
fram að rétt sé að bíða og sjá hvað
gerist, hvort kjörunum
verði breytt. En hún
er greinilega í við-
bragðsstöðu, og að ég
ætla þær báðar,
Salome og Guðrún
Helgadóttir, en þær
voru vel sammála í út-
varpsþætti fyrir
skömmu um þá vá sem
væri fyrir dyrum ef
þingforseti ætti nú að
fara á ráðherralaun.
Að lokum
Forsætisráðherra
hefur látið þau orð falla
að forseti Álþingis ætti
að hafa sömu laun og
ráðherra. Af þeim orðum spratt
umræðan. Ég hef á þessu skoðun
en vegna þess að málið kann að
snerta mig er rétt að láta þá skoð-
un liggja milli hluta.
í þeim orðum sem vitnað er til
hér að framan kemur fram áber-
andi réttlætiskennd. Ég á því vænt-
anlega hauka í horni þegar upplýst
hefur verið um kjörin, því það verð-
ur að gera. Hér duga engar ágisk-
anir.
Því bið ég þau Hildi, Odd og
Salome að upplýsa hver laun og
önnur kjör þingforseta voru á mán-
uði, t.d. í mars sl. Ég hef aflað mér
þessara gagna sjálfur en skora nú
á umrædda aðila að upplýsa um
staðreyndir málsins svo réttlætis-
kennd þeirra verði ekki dregin í efa.
Þau gætu jafnvel skrifað eina grein
í sameiningu í Tímann eða DV.
Ég upplýsi hér með ráðherra-
launin en þau eru nú þessi:
Þingfararkaup pr. mán. kr. 177.993
Ráðherralaun pr. mán. kr. 115.735
Samtals kr. 293.728
ÍtaULa/i á kewia /00% Imyiullá áUiúlecja (pÍn uesiii Ui. 2.300
Höfundur er alþingismaður og fv.
ráðhcrra.
Kjarni málsins!
Auk þessa er greiddur kostnaður
við síma.
Þá hefur ráðherra bifreið til
umráða. Þau hlunnindi eru metin
sem kr. 18.648 á mánuði, eða kr.
223.776 á árinu 1994. Af þeim
hlunnindum er tekin staðgreiðsla
skatta, eða kr. 93.829 síðasta ár,
kr. 7.819 á mánuði.
Um aðrar greiðslur var ekki að
ræða til mín, ef frá er talin óvænt
þóknun fýrir greinarstúf í DV á sl.
ári, kr. 6.900.
Fleira var það ekki að sinni.
n
/
O
3
ll
1
■
■
' \ ; KC’t/Hlf_
Jákfci 8.99oTL
Vesti 3.79tr
Skyrta 2.990
Buxur 4.790 -
Nærbuxur 89JL
msm
Sendum i póstkröfu
hlutma
1 ívíbara
samhengi
- kjarni malsins!