Morgunblaðið - 11.05.1995, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1995
vm**»* * *«..» * >. .
Harðir diskar
fyrir flestar tölvur 420 Mb og stærri
Verð frá ki: 23.900,-
^BOÐEIND-
Austurströnd 12. Sími 561-2061. Fax 561-2081
'MkfyP^ ábörnin
■ j m
| Frabær sumarföt £
Skór - gallaföt g
PiMlDÐ
K
BORGARKRINGUNNI - Sími 68 95 25.
SA^ll«lAT»KaOM^M«AT»aa4MkT»ll«á!ri
r
ALÞJÓÐADAGUR HJÚKRUNARFRÆÐINGA 12. MAÍ
HEILBRIGÐI
KVENNA
Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Florence
Nightingale sem fæddist 12. maí 1820, fyrir réttum 175 árum. Ár hvert er dagurinn
helgaður ákveðnu málefni sem að þessu sinni er heilbrigði kvenna.
í tilefni dagsins býður Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
almenningi að hlýða á erindi á eftirtöldum stöðum:
Föstudagur 12. maí í Ráðhúsi Reykjayíkur
13:30 Ávarp
Ásta Möller, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfrœðinga
13:40 Stúlkubamið og heilbrigði
Guðrún Einarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Heilsugœslustöð Seltjarnamess
14:00 Hvað veldur lystarstoli hjá ungum stúlkum?
Sæunn Kjartansdóttir, hjúkrunarfræðingur, geðdeild Borgarspítala
14:20 Listræn uppfærsla: Stúlka í hvítum kjól
Höfundur texta: Rósa Ó. Svavarsdóttir, hjúkmnarfræðingur
Höfundur tónlistar: Jóhann G. Jóhannsson
Leikstjóri: Guðrún Asmundsdóttir
Upplestur: Guðrún Ásmundsdóttir og Helga Þ. Stephensen, leikarar
Fiðluleikari: Bryndís Pálsdóttir
Dansari: Ásta Amardóttir
14:50 Aðgengi kvenna að heilbrigðisþjónustu
Marga Thome, dósent í hjúkmnarfræði við Háskóla íslands
15:10 Öldmn kvenna og heilbrigðishættir
Matthildur Valfells, hjúkrunardeildarstjóri, Hátúni
15:30 Dagskrá slitið
SóXfriður Guðmundsdóttir, formaður fræðslu- og menntamálanefndar
Félags íslenskra hjúkmnarfræðinga
Hótel Húsavík
20:30 „Konan í kroppnum"
Sjálfsmynd og heilbrigði kvenna
Herdís Sveinsdóttir, dósent í hjúkrunarfrœði við Háskóla íslands
Miðvikudagur 17. maí.
Grunnskólinn á Þórshöfn
20:30 Konur og breytingaskeiðið
Katrín Ósk Þorgeirsdóttir, hjúkrunarforstjóri
Blóðþrýstingsmæling ■- heilbrigðisráðgjöf_________
Föstudaginn 12. maí mæla hjúkrunarfræðingar blóðþrýsting hjá þeim
sem þess óska á eftirtöldum stöðum:
Akureyri: Hrísalundur, Nettó, Sunnuhlíð - Krónan (Norðurlandsdeild Félags íslenskra
hjúkmnarfræðinga) kl. 16—18
Dalvík: Svarfdælabúð kl. 16:30—17:30
Hafnarfjörður: Miðbær (St. Jósepsspítali) kl. 14-18
Hella: Höfn - Fríhyrningur (Suðurl.deild Félags ísl. hjúkrunarfræðinga) kl. 15-17
Húsavík: Kaupfélag S-Þingeyinga (Sjúkrahús Húsavíkur) kl. 15-18
Hveragerði: Kaupfélag Ámesinga (Suðurl.deild Félags ísl. hjúkrunarfræðinga) kl. 14-18
Reykjavík: Ráðhús Reykjavíkur (Heilsugæslustöð Miðbæjar) kl. 14-16
Selfoss: Vömhús KÁ (Suðurl.deild Félags ísl. hjúkrunarfræðinga) kl. 14-18
í Nettó á Akureyri verður einnig veitt ráðgjöf um tóbaksvamir kl. 14-16. í Svarfdælabúð
á Dalvík er kynning á störfum hjúkrunarfræðinga i héraðinu og upplýsingar veittar um
fyrirkomulag öldmnarþjónustu. Á Selfossi, Hellu og í Hveragerði standa hjúkrunarfræðingar
á Suðurlandi fyrir skyndikönnun á heilbrigði kvenna.
Fyrir hjúkrunarfræðinga föstudaginn 12. maí kl. 17:00
Forsýning á kvikmyndinni „Once were warriors" í Regnboganum
í tilefni af alþjóðadegi hjúkmnarfræðinga býður Regnboginn hjúkmnarfræðingum á forsýningu
myndarinnar „Once were warriors“. Myndin hefur hlotið ein 15 alþjóðleg verðlaun, m.a.
aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Montreal sl. haust. Sagan gerist á Nýja-Sjálandi og
greinir frá ofbeldi á heimili konu af Maori-ættum og áfengissjúks eiginmanns hennar.
Boðsmiða geta hjúkmnarfræðingar nálgast á skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, •
Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík, sími 568 7575.
—L
MORGUNBLAÐIÐ i
AÐSEIMDAR GREIIMAR
ODDAFLUG
Blanda af skemmtan og fróðleik
Í LOK aprílmánaðar
sýndi ríkissjónvarpið
nýja mynd eftir Pál
Steingrímsson, kunn-
an kvikmyndagerðar-
mann á sviði heimilda-
og náttúrulífsmynda.
Myndina nefnir Páll
„Oddaflug". Með hon-
um stóðu að myndinni
valinkunnir kvik-
myndagerðarmenn,
dýrafræðingar og nátt-
úruskoðarar, enda ár-
angurinn góður. Auk
þess að vera fagmann-
lega unnin, skartaði
myndin mörgu af því
fegursta sem landið og
íslensk náttúra hefur uppá að bjóða
- dýralíf, fjöll, heiðar, vötn og ís -
fléttað saman við staðgóðan fróðleik
um viðfangsefnið, oft með ljóðrænu
ívafi sem hæfði efninu.
Þessar hugleiðingar eru skrifaðar
til að fagna því að sjónvarpið skuli
hafa metnað til að stuðla að gerð
slíkra mynda, sem eiga erindi til
fólks á öllum aldri, ekki síst yngstu
kynslóðarinnar. Það er nefnilega
okkur foreldrum töluvert áhyggju-
efni hve sjónvarpsefni fyrir börn
er misjafnt að gæðum og það er
langt frá því að þættir og myndir
í sjónvarpi séu alltaf bömum okkar
samboðin. „Oddaflug" var hins veg-
ar sannkölluð fjölskyldumynd því
heima hjá mér sátu böm og full-
orðnir og fylgdust af áhuga með
öllu því sem myndhöfundur hafði
fram að færa. Og allir höfðu bæði
gagn og gaman af, því fróðleikur
og undrafagurt myndefnið skírskot-
aði til hvers og eins, allt eftir sjónar-
horni og þroska áhorfandans.
í raun má segja að „Oddaflug“
sé óður til náttúru landsins, þar sem
viðfangsefnið er tignarlegir gæsa-
stofnamir og aðrir fuglar og spen-
dýr, og samspil þeirra við landsins
gæði, ekki síst við óblítt veðurfar.
Um leið og brýnt var fyrir okkur
að stuðla að vemdun þessara fjár-
sjóða lands okkar, er ekki haldið
fram einstrengingslegum friðun-
arkröfum, heldur alið á virðingu
fyrir náttúmnni og því sem hún
gefur og elur. Þetta em líka mikil-
vægustu skilaboðin til okkar sem
byggjum jörðina í dag.
Náttúmverndarstefna sem ekki
gerir ráð fyrir hóflegri
nýtingu er ekki líkleg
til árangurs. Óneitan-
lega fínnst manni um-
ræðan um náttúru-
vemd ekki alltaf virða
þessi sjónarmið nægi-
lega, þó ekki sé það
áberandi hér á landi.
Það er auðvitað nauð-
synlegt að ala upp
komandi kynslóðir á
grandvallarhugsjón-
inni um vemdun um-
hverfisins þar sem hóf-
leg nýtingarsjónarmið
eiga sinn sess. Hér
hlýtur uppfræðslan að
gegna stærstu hlut-
verki, þar sem boðskapurinn er sett-
ur fram á öfgalausan og skýran
háttj líkt og tekist hefur að gera í
mynd Páls Steingrímssonar. Von-
andi gefst nemendum gmnnskól-
anna tækifæri til að kynna sér þetta
efni, jafnvel sem sérstaklega útbúin
námsverkefni. Og vonandi fáum við
sjónvarpsáhorfendur að sjá myndir
í sama gæðaflokki um aðra þætti
íslenskrar náttúm, til dæmis um
gróðurfar landsins og baráttuna við
jarðvegseyðingu á hálendinu, um
íslenska bústofninn og sambýli hans
við landið, um fiska og aðra sjáv-
arbúa og hvernig okkur ber að
umgangast þá auðlind svo hún verði
okkur og afkomendum okkar upp-
N áttúruverndarstefna
sem ekki gerir ráð fyrir
hóflegri nýtingu er,
að mati Jóhanns Sigur-
jónssonar, ekki líkleg
til árangurs.
spretta lífsviðurværis um ókomna
tíð sem hingað til. Þetta hlýtur að
vera verðugt viðfangsefni fyrir gott
islenskt sjónvarp. Og hver veit
nema að myndir á borð við „Odda-
flug“ færi okkur björg í bú á erlend-
um filmumörkuðum, þótt mér sé
ljóst að þar er margt í boði og sam-
keppnin hörð.
Höfundur er sjávarllffræðingur.
Jóhann
Siguijónsson
Ló6a -og landeigendur
ÁBURÐUR
OG GRASFRÆ
MR búðin • Láugavegi 164
Símar: 551 1125 • 552 4355 • Fax: 581 4450
mt: /Ibitibi
BAÐÞILJUR
Stórglæsilegar amcrískar baóplötur.
Mikió úrval á hreint ótrúlega lágu verði.
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar
íÁrmúlu 29.
Alltaf til á lagcr
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29, sími 38640
JHtoyMiiWbúttfr
- kjarni málsins!
4