Morgunblaðið - 11.05.1995, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. MAÍ1995 43
FRÉTTIR
ELDRI borgarar taka lagið i Gjábakka.
Gjábakkadagar í
Kópavogi
Á ÞESSU ári, nánar tiltekið
fimmtudaginn 11. maí, eru 40 ár
liðin frá því að Kópavogur fékk
kaupstaðarréttindi. Af þessu til-
efni hefur bæjarstjórn Kópavogs
skipað afmælisnefnd.
Föstudaginn 12. maí verður
dagskrá flutt af eldri bæjarbúum
í Kópavogi. Afmælisnefndin hefur
kosið að kalla þennan dag Gjá-
bakkadag en Gjábakki er félags-
og tómstundamiðstöð eldri bæj-
arbúa. Dagskráin hefst kl. 9.30
með léttum æfingum í Sundlaug
Kópavogs. Félag eldri borgara sér
um þennan þátt. Um kl. 11 leggja
gönguhópar af stað frá Gjábakka.
Afmælismatur verður í hádeginu,
sjávarréttahlaðborð. Það þarf að
panta matinn í síðasta lagi í dag,
fimmtudaginn 11. maí.
Hátíðardagskrá
Kl. 13.30 hefst hátíðardagskrá.
Opnuð verður sýning á verkum
Sigfúsar Halldórssonar og flutt
nokkuð af ljóðum og Iögum lista-
mannsins. Frístundahópurinn
Hana nú flytur valin atriði úr
verkum Jóns úr Vör. Afhent verða
verðlaun í skák og flutt hátíðaljóð
sem samið hefur verið í tilefni
þessara tímamóta. Afmæliskaffi
verður í Gjábakka og um kl. 16
verður ekið í rútum inn í Digra-
nes. Þar syngur Kór aldraðra í
Kópavogi, undir sljórn Sigurðar
Bragasonar nokkur lög og leik-
fimiiðkendur vetrarins sýna.
Kl. 18 verður sýning á leikriti
Nafnlausa hópsins sem eldri borg-
arar í Kópavogi flytja í Félags-
heimili Kópavogs. Leikritið Full-
veldisvofan hefur verið samið sér-
staklega fyrir þetta tækifæri og
byggir á atburðum ársins 1918.
Að lokum verður spilað og dansað
í Félagsheimili Kópavogs og er sú
skemmtun í umsjón Félags eldri
borgara í Kópavogi.
Aðgangseyrir er enginn að dag-
skrá dagsins en á leikritið og fé-
lagsvistina og dansinn er aðgangs-
eyri mjög stillt í hóf.
Evrópu- og
íslandsmót í handflökun
EVRÓPUMEISTARA- og íslands-
meistaramót í handflökun verður
haldið 27. maí nk. í stóru tjaldi á
miðbakkanum við Reykjavíkurhöfn.
Keppnin er nú haldin í samvinnu við
Reykjavíkurborg og nokkur fyr-
irtæki. íslandsmót í handfiökun var
fyrst haldið í fyrra en nú eru líkur
á að nokkrir erlendir keppendur taki
þátt og þá munu þeir sem og ís-
lensku keppendurnir geta unnið til
Evrópumeistaratitils.
Markmiðið með þessari keppni er
að örva fiskvinnslufólk sem þetta
starf vinnur til dáða en með aukinni
tæknivæðingu fiskvinnslunnar hefur
þessi aldna verkkunnátta víða tapast
niður. Þá mun keppnin vafalítið auka
gæðavitund þeirra sem þátt taka í
keppninni og æfa sig fyrir hana.
Einnig er ætlunin að keppnin veki
athygli almennings á fiskvinnslu-
störfum, segir í fréttatilkynningu.
Dæmt verður eftir þremur atrið-
um; gæðum, nýtingu og hraða. Flak-
aðar verða þijár tegundir, þorskur,
karfi og flatfiskur.
Verðlaun fyrir þijá efstu íslend-
ingana verður skoðunar- og fræðslu-
ferð til Humbersvæðisins í Englandi.
Ráðstefna um
Leonardó-áætl-
unina
LANDSSKRIFSTOFA um Leonardó
stendur fyrir ráðstefnu í dag,
fimmtudaginn' 11. maí, á Grand
Hótel Reykjavík frá kl. 10-17. Á
ráðstefnunni verður kynnt Leon-
ardó-áætlun Evrópusambandsins á
sviði starfsþjálfunar og endurmennt-
unar.
Evrópusambandið hefur um ára-
bil staðið að mjög umfangsmiklu
samstarfi á sviði endurmenntunar
og starfsþjálfunar sem hefur það
markmið að efla, bæta og samræma
ýmsar aðgerðir hinna einstöku aðild-
arríkja á þessu sviði. í því skyni
veitir sambandið styrki til tilrauna-
verkefna á fjölmörgum sviðum og
einnig til svokallaðra mannaskipta,
sem veita einstaklingum tækifæri á
að sækja t.d. starfsþjálfun til ann-
arra Evrópuríkja. í Leonardó-áætl-
uninni er verið að sameina nokkrar
fyrri áætlanir og opnast nú íslend-
ingum aðgangur að samstarfsmögu-
leikum sem ekki hafa áður staðið
til boða. Heildarfjárveiting til áætl-
unarinnar á yfirstandandi ári er um
12 milljarðar íslenskra króna.
Á ráðstefnunni verða kynnt hvers
konar samstarfsverkefni sem ís-
lenskir aðilar geta sótt um styrki
til, hver eru helstu umsóknarskilyrði
og hvaða fyrirgreiðslu landsskrif-
stofan mun veita. Skráning á ráð-
stefnuna er nú lokið og munu sækja
hana 150 manns frá skólum á fram-
halds- og háskólastigi, endurmennt-
unarstofnunum og fyrirtækjum og
samtökum sem eru virk á þessu
sviði.
---------------
Cosmokvöld á
Kaffi Reykjavík
BOÐIÐ er upp á Cosmokvöld á Kaffí
Reykjavík í kvöld klukkan 20. Model
79 sýnir nýjustu sumarlínu frá helstu
tískuborgum heimsins. Kristjana
Karlsdóttir í Kompaníinu sýnir hár-
greiðslu, ilmurinn DNA frá Bijan
verður kynntur og loks spila bræð-
urnir Magnús og Finnbogi Kjartans-
syni ásamt Vilhjálmi Guðjónssyni.
- kjarni málsins!
BV
land-
lyfti-
vngnar
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUNIN
SMIÐJUVEGUR 70, KÓP.
SlMI 564 4 711 • FAX 564 4725
Tilraunaverkefnið
ÍBÚÐ Á EFRIHÆÐ
KYNNIN G ARFUNDUR
í Ráðhúsi Reykjavíkur
fimmtudaginn 11. maí kl. 17.00
Allir velkomnir.
Verkefnisstjórn.
Ritgerðasam-
keppni barna
o g unglinga
STÆRSTU dagblöð Norðurlanda,
Norðurlandaráðs og Norræna ráð-
herranefndin standa fyrir keppni um
bestu ritgerðina um kynþáttafor-
dóma, útlendingahræðslu eða haturs
vegna mismunandi trúarbragða.
Keppnin er fyrir börn og unglinga
allt að 20 ára.
Ritgerðin á að byggjast á eigin
reynslu vegna kynþáttafordóma, út-
lendingahræðslu eða haturs vegna
mismunandi trúarbragða. Hægt er
að nálgast verkefnið á margra vegu,
t.d. sem þolandi, gerandi, áhorfandi
eða sem áhugamanneskja um mál-
efnið. Nýbúar eru sérstaklega hvatt-
ir til að taka þátt í keppninni, segir
í fréttatilkynningu.
Ritgerðin á að hámarki vera 140
línur (vélritaðar). Ritgerðin á ekki
að vera í formi sögu eða frásagnar,
heldur skal hún fyrst.og fremst vera
byggð upp á umræðum og skoðunum
á efninu.
Skilafrestur ritgerðanna hefur
verið lengdur til 1. ágúst og skal
skilað í lokuðu umslagi til Æskulýðs-
sambands íslands, Snorrabraut 60,
pósthólf 1426, 121 Reykjavík.
Á íslandi verður komið á þriggja
manna dómnefnd sem fulltrúar frá
Morgunblaðinu, landsnefndinni
ftlVStftBAfcAMK
Korraa rltterilauinktppBt
A rc&jr. Bk<í:v G-Xlbaí*
>iiy liiON'fc'xi'Mí.-íVt
Rltjtrðirrtd
V-íf vit K><4>ír.iVaíc:<*,
ttl ts!>y VCJJ'H irKPrwiNtt
SUiabvt&r
8**»:«!«j- v•.. ,<in va VW niuc'ííim
Sr«ir*fc-Sj: 60. !<% w
VtríiaiíB
5 n.-aiDunít' ’WOXI
? vc'&íw*.' ■■•XOX-
3. wjráacnár. i/b CPC •
09 Kv»:
„Misrétti - mismunandi" og Nor-
rænu ráðherranefndinni skipa.
Hinn 24. október verða vinnings-
ritgerðir í hveiju landi valdar. Þetta
mun gerast á sama tíma á öllum
Norðurlöndunum. Norræna ráð-
herranefndin mun síðan safna saman
verðlaunaritgerðunum, þýða þær á
öll norðurlandamálin og gefa út.
1. verðlaun eru kr. 150.000, 2.
verðlaun kr. 100.000, 3. verðlaun
verða veitt fimm ritgerðum kr.
50.000 hverri.
Nánari uppl. er hægt að fá á skrif-
stofu Æskulýssambands íslands.
40-70%
VERÐLÆKKUN
Frábært úrval af sumarskóm
á alla fjölskylduna.
Opið í dag firá kl. 10-20
föstudag frá kl. 10-20
laugardag frá kl. 10-16
Góðir skór
ganga langt!
LÆKJARGÖTU
AÐALFUNDUR
ÞRÓUNARFÉLAGS REYKJAVÍKUR
verður haldinn að Hótel Borg
föstudaginn 26. maí kl. 16:00.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins.
Tillögur um breytingar á samþykktum
félagsins skulu berast stjórn þess eigi síðar
en viku fyrir aðalfund.
Stjóm Þróunarfélags Reykjavíkur