Morgunblaðið - 03.06.1995, Page 22
22 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
r
________________________LISTIR_______________________
Píslarsaga Tyrkja-Guddu sýnd í kór Hallgrímskirkju
„ÉG VILDI gefa Guðríði orðið og það er mjög áhrífamikið að geta gert það í þessu húsi,“ segir
höfundurínn , Steinunn Jóhannesdóttir. Helga Elinborg Jónsdóttir fer með hlutverk Guðríðar yngrí.
HALLGRÍMUR heggur nafn Steinunnarí legstein. Hún
var eitt fjölmargra barna sem þau Guðríður misstu.
I
í
i
i
1
>
A STIR og örlög kvenna fyrr á
öldum fá lítið rými í fs-
landssögunni. Konur lifðu
jafnan í skugga eig-
inmanna sinna og fátt var skjalfest
um persónulega hagi þeirra. „Síðasta
heimsókn Guðríðar Símonardóttur í
kirkju Hallgríms", nýtt leikverk eftir
Steinunni Jóhannesdóttur sem frum-
sýnt verður í kór Hallgrímskirkju
næstkomandi mánudag, nýtur því
nokkurrar sérstöðu en það fjallar um
píslarsögu Guðríðar Símonardóttur -
öðru nafni Tyrkja-Guddu - og ástar-
sögu hennar og Hallgríms Pétursson-
ar, eins helsta trúarskálds íslend-
inga.
„Eg vildi gefa Guðríði orðið og
það er mjög áhrifamikið að geta
gert það í þessu húsi,“ segir höfund-
urinn Steinunn Jóhannesdóttir, en
hún er jafnframt leikstjóri verksins.
„Saga Guðríðar er stórkostleg saga
íslenskrar konu sem má ekki gleym-
ast. Maður hlýtur að undrast hvað
hélt henni uppi í gegnum endurtekin
áföll. Ef til vill hefur það verið henn-
ar sterka trú. Hún hlýtur að hafa
verið líkamlega og andlega sterk í
senn.“
Numin á brott
af sjóræningjum
Saga Guðríðar hefst í Vestmanna-
eyjum sumarið 1627 þegar serknesk-
ir sjóræningjar frá Alsír námu hana
á brott ásamt ungu bami sínu. Ræn-
ingjamir, sem Islendingar nefndu
Tyrki, skyldu eftir sig blóði drifna
slóð á íslandi og urðu Vestmannaey-
ingar verst úti. Hús voru brennd, rán
framin og á fjórða tug manna lá í
valnum áður en ódæðismennimir
hurfu af vettvangi með 240 fanga.
Áður höfðu þeir rænt fólki, skipum
og Qármunum í Grindavík og á Aust-
fjörðum auk þess að ráða nokkra af
dögum. Fangamir voru settir á
þrælamarkað i Alsír, margir dóu
fljótlega og nokkrir gengu islam á
hönd.
Níu árum síðar voru um 35 íslend-
inganna keyptir úr ánauð og náðu
27 þeirra til íslands, 1637, þeirra á
meðal Guðríður Símonardóttir. Bam
hennar varð hins vegar eftir en ekk-
ert hinna fjölmörgu íslensku barna
sem rænt var átti afturkvæmt.
Á heimleiðinni hafði Guðríður við-
komu í Kaupmannahöfn þar sem hún
varð þunguð eftir ungan íslenskan
námsmann, Haligrím Pétursson að
nafni. Hallgrímur hafði verið ódæll
í æsku og því sendur utan til betrun-
arvistar. Þegar fundum þeirra Guð-
ríðar bar saman var hann 22 ára en
hún 38 ára.
Merk saga sem
ekki má gleymast
„Síðasta heimsókn Guðríðar Símonardóttur í kirigu Hallgríms“
heitir nýtt íslenskt leikverk sem frumsýnt verður í Hallgrímskirigu
á mánudaginn. Orri Páll Ormarsson komst að því að verkið er
í senn ástar- og örlagasaga þegar hann hitti höfundinn og
leikstjórann, Steinunni Jóhannesdóttur, að máli.
meðal annars flutt fyrirlestra
um hana á vegum List-
vinafélagsins í Hail-
grímskirkju.
Steinunn segir að
erfítt sé að náig-
ast beinar
heimildir um
Guðríði en
sjálf skildi
hún ein-
ungis
eftir
STEINUNN Jóhannesdóttir,
höfundur og leikstjóri „Síð-
ustu heimsóknar Guðríðar
Símonardóttur í kirkju
Hallgríms".
„Þetta hlýtur að hafa verið ást við
fyrstu sýn,“ s'egir Steinunn, „og ég
reyni því að nýta mér þennan drama-
tíska fund þeirra í Kaupmannahöfn.
Þegar Guðríður kynnist Hallgrími er
hann ekki þetta hrjáða passíusálma-
skáld sem allir kannast við heldur
ungur, frískur og hugaður elskhugi;
maðurinn sem ekki bregst henni.“
Talin hafa hrasað
Þegar Guðríður varð þunguð vissi
hún ekki um afdrif Eyjólfs Sölmund-
arsonar, eiginmanns síns í Vestman-
neyjum, en hann hafði drukknað
ásamt fjölda sjómanna á vertíð
skömmu áður. Hefði það verið alvar-
leg sök ella. Hallgrímur hætti í námi
og fylgdi verðandi barnsmóður sinni
til íslands 1637 og gengu þau í heil-
agt hjónaband skömmu síðar.
Hjónin mættu fýrst í stað óvild
hér heima enda á tímum Stóradóms.
Þjóðin taldi þau hafa hrasað og leit
hjúskap þeirra homauga. Langur
tími leið uns Hallgrímur fékk upp-
reisn æru og var vígður til prests.
Píslarsögu Guðríðar var þó hvergi
nærri lokið. Átti hún mörg böm með
Hallgrími en einungis eitt þeirra
komst á legg; drengurinn sem kom
undir í Kaupmannahöfn. Hafði
bamamissirinn djúpstæð áhrif á
hjónin. Þá er líklegt að löng og ströng
veikindi Hallgríms sem drógu hann
að lokum til dauða hafi tekið sinn
toll af Guðríði sem lést í hárri elli,
södd lífdaga.
„Þessi ótrúlega og óskaplega lífs-
reynsla sem Guðríður varð fýrir hafði
ekki einungis áhrif á hana heldur
hafði hún einnig mikil áhrif'á Hall-
grím,“ segir Steinunn. „Ég er viss
um að píslarsaga Guðríðar hefur
ýtt honum að einhveiju leyti út í
að hugsa um píslarsögu Krists.
Hann var trúarskáld og orti
aldrei beint lím persónulega
reynslu sína en auðvitað hef-
ur hún haft áhrif á vc
hans.“
Áhugi Steinunnar á
Guðríði og sögu hennar
vaknaði þegar hún fór
með titilhlutverkið
uppfærslu Þjóðleik
hússins á leikritint
Tyrkja-Guddu eftir
séra Jakob Jónsson
um árið. Síðan hefur
hún jafnt og þétt
safnað heimildum um
þessa goðsagna-
kenndu persónu og GUÐRÍÐUR rekur örlagasögu sína. Helga
sig eitt bréf. Hefur höfundurinn því
þurft að styðjast mikið við sögu
Hallgríms.
Hafði nóg efni
Steinunn kveðst ennfremur hafa
drukkið í sig heimildir um þrælahald
á tímum Ottóman veldisins og sér-
staklega beint sjónum að því hvernig
farið var með konur. Hún hafði því
úr nógu efni að moða þegar stjóm
Kirkjulistahátíðar 95 bað hana að
skrifa leikrit um Guðríði með flutning
í kór Hallgrímskirkju í huga.
í verkinu er Guðríður orðin öldruð
kona sem rifjar upp ævi sína, ástir
og örlög. Með hlutverk sögukonunn-
ar fer Helga Bachmann en Helga
Elínborg Jónsdóttir leikur Guðríði
i unga. Hallgrímur er leikinn af Þresti
Leó Gunnarssyni en einnig kemur
við sögu Sölmundur, sonur Guðríðar,
bamungur og á unglingsaldri. Fara
Bjöm Brynjúlfur Bjömsson og Guð-
jón Davíð Karlsson með hlutverk
hans. Leikmynd og búninga gerði
Elín Edda Ámadóttir en tónlist-
in er eftir Hörð Áskelsson og
leikur hann jafnframt á orgel
Hallgrímskirlqu.
Einungis eru fyrirhug-
aðar tvær sýningar á
Síðustu heimsókn
Guðríðar Símonar-
dóttur í kirkju Hall-
gríms“ og verður
síðari sunnu-
daginn 11.
júní.
su
Bachmann í hlutverki sínu.
i
f
:
t
\