Morgunblaðið - 03.06.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
Goðsagnir
Holiywood
á frímerki
PÓSTÞJÓNUSTAN í Bandaríkjun-
um gaf út frímerki til minningar
um Marilyn Monroe á afmælisdag
hennar 1. júní. Það er hið fyrsta í
röð frímerkja sem gefín verða út
undir yfirskriftinni „Goðsagnir
Hollywood". Næst í röðinni er frí-
merki til minningar um Lusille Ball,
en tíu ár eru liðin frá því að hún
féll frá. Áður verður hins vegar
gefið út frímerki af djassistanum
Louis Armstrong.
Frímerkið af Marilyn Monroe
kom út í 400 milljónum eintaka,
en frímerki af Elvis Presley seldist
á sínum tíma í hálfum milljarði ein-
taka. Yfirmaður Póstþjónustunnar
brosti yfir þessum samanburði og
sagði: „Við getum alltaf gefíð út
fleiri." Það mátti sjá mörg þekkt
andlit við afhjúpun frímerkisins, þar
á meðal var leikkonan Zsa Zsa
Gabor.
Að venju voru heljar ræðuhöld í
tilefni dagsins, þar sem sagðar voru
sögur af Monroe í gamansömum
tón. Þar kom meðal annars fram
að hún hafi verið fræg fyrir að
mæta oft og iðulega of seint á töku-
stað. Á þeim tíma var leikstjórinn
Billy Wilder spurður að því hvemig
hann færi að því að umbera óstund-
vísi Monroe og svaraði: „Ég gæti
fengið Tillie frænku í hlutverkið, -
hún myndi mæta á hverjum degi
klukkutíma áður en tökur hæfust,
- en þá kæmi enginn á myndina."
FORREST Gump er kominn í
hlaupaskóna, en verður eitt-
hvað af hlaupinu?
Lætur Forrest
aftur á sér
j kræla?
I HÖFUNDUR Forrests Gumps,
Winston Groom, hefur nýlokið við
handrit að framhaidi myndarinnar.
Það ber yfirskriftina Gump & Co,
en samkvæmt heimildum Varíety
hafa áhrifamenn í kvikmyndaiðnað-
inum efasemdir um að hún muni
nokkurn tíma ná á breiðtjaldið.
Ástæðan er meðal annars sú að
flestir lykilmennirnir sem stóðu á
bak við Forrest Gump, þar á meðal
ieikstjórinn Robert Zemeckis og
•eikarinn Tom Hanks, séu lítt hrifn-
ir af hugmyndinni.
FÓLK í FRÉTTUM
WILLEM Dafoe hefur slegist í
hóp með Ralph Eiennes og Juli-
ette Binoche í væntanlegri stríðs-
mynd Saul Zaentz „Breski sjúkl-
ingurinn" en leikstjóri verður
Anthony Minghella. Myndin er
gerð eftir skáldsögu Michael
Ondaatje og fjallar um samband
hjúkrunarkonu og bresks sjúkl-
ings með alvarleg brunasár í
heimsstyijöldinni síðari.
Dafoe lék nýlega í myndinni
„Tom & Viv“ og leikur um þess-
ar mundir í leikritinu „Loðni
apinn“ í New York. Hann mun
næst fara með stórt hlutverk í
hasarmyndinni „Sigur“, sem
byggð er á skáldsögu Josephs
Conrads, sem verður frumsýnd í
nóvember. Tökur á „Breska
sjúklingnum“ hefjast fyrstu vik-
una i ágúst.
WILLEM Dafoe er
einna kunnastur
fyrir frammi-
stöðu sína í
Platoon.
SVIPAST um á æfingu Ferðaleikhússins, frá vinstri: Michael
Jón Clarke, tónlistarstjóri, Nuno M.C., Hrafnhildur Björnsdótt-
ir, Eggert Kaaber, Guðjón Bergmann, Anita og Kristín G.
Magnús, leikstjóri.
Ferðaleikhúsið færir
Jósep í skrautkápuna
ÆFINGAR eru nú í fullum gangi
á söngleiknum Jósep og hans
undraverðu skrautkápu eftir Tim
Rice og Andrew Lloyd Webber.
Það er Ferðaleikhúsið sem setur
söngleikinn upp í Tjamarbíói og
áætlað er að sýningar hefjist í
byijun júlí. Með aðalhlutverk fara
Eggert Kaaber, leikari, og Hrafn-
hildur Bjömsdóttir, sem nýlega
útskrifaðist úr Söngskóla Reykja-
víkur. Kristín G. Magnús er leik-
stjóri sýningarinnar, Michael Jón
Clarke tónlistarstjóri og David
Greenall danshöfundur. Söngleik-
urinn er framburður Rice ogLloyd
Webbers frá árinu 1968. Sagan
er tekin úr Mósebók og fjallar um
Jósep, einn af tólf sonum Jakobs.
Bræður Jóseps öfunda hann
vegna þess að hann er í uppá-
haldi hjá Jakob og selja hann sem
þræl til Egyptalands. Þar kemst
hann til metorða hjá faraó og fær
tækifæri til að gera upp sakirnar
við bræður sína. Til gamans má
geta þess að tónlist söngleiksins
er afar fjölbreytt, allt frá franskri
kaffihúsatónlist og poppi til
kalypsó-tónlistar og rokks.
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Mörkinni 6, sími 588 5518.
OPIÐ FRÁ KL. 10-18 í DAG
Dúndurtilbod
á tilboðsslánni
Verið velkomin
Heitt á könnunni
FLYTUR
Verslunin er flutt
af Laugavegi 21
I Mörkina 6.
Sumarúlpur
Kápur, stuttar og síöar
Hattar og alpahúfur
- tt/ær stærðir
LAUGARDAGUR 3. JUNI1995
m
Kirkjulistahátíð
1995
3. júní kl. 14.00
Setning hátiðarinnar.
Sr. Sigurbjöm Einarsson biskup setur
hátíðina og Póra Kristjánsdóttir, for-
maður Listvinafélags Hallgn'mskirkju
flytur ávarp.
Bamakórar úr
Reykjavíkurprófastsdæmum
frumflytja nýja sálma eftir Hjálmar
H. Ragnarsson og Kristján Val
Ingótfsson.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson opnar
myndlistarsýningar.
3. júní kl. 15.00
Myndlistarsýning barna.
Opnun myndlistarsýningar bama úr
Myndlistarskólanum í Reykjavík.
Tema sýningarinnar er englar.
Sýningin stendur til 18. júní.
3. júní kl. 15.00
Myndlistarsýning Else Marie
Jakobsen.
Opnun sýningar textfllistakonunnar
Else Maríc Jakobsen frá Krístiansand í
Noregi. Sýnd verk með trúarlegum
mótívum, myndvcfnaður og grafík-
myndir. Sýningin stendur til 18. júní.
4. júní kl. 20.00
Fran^ois-Henri Houbart.
Orgeltónleikar Franfois-Henri
Houbart. Lcikin eru frönsk orgelverk
frá fjórum öldum.
5. júní kl. 20.00
Heimur Guðríðar, frumsýning.
Nýtt leikrit eftir Steinunni
Jóhannesdóttur, Heimur Guðríðar -
síðasta heimsókn Guðríðar
Símonardóltur í kirkju Hallgríms frum-
sýnt. Leikendur Helga Bachmann,
Helga E. Jónsdóttir og Þröstur Leó
Gunnarsson. Leikstjóri Steinunn
Jóhannesdóttir, leikmynd og búninga
gerir Elín Edda Ámadóttir. Tónlistin
er í höndum Harðar Áskelssonar.
6. júní kl. 20.00
Tónleikar.
Tónleikar Samkórs
Reykjavíkurprófastsdœmis eystra og
Sinfónluhljómsveitar áhugamanna.
Einsöngvarar eru Sigríður Gröndal
sópran, Þorgeir J. Andrésson tenór og
Sigurður Skagfjörð barítón. Á
dagskránni er Messa í G-dúr eftir
Franz Schubert og norræn kórtónlist.
8. júníkl. 20.00
Engleskyts.
Sópransöngkonan Anne-Lise Bemtsen
og Nils Henrik Asheim organisti frá
Noregi flytja gamla alþýðusálma f
nýrri útsetningu.
9. júní kl. 20.00
Edgar Krapp.
Orgeltónleikar Edgar Krapp frá
Þýskalandi. Leikin eru verk eftir
J.S.Bach og róinantísk orgeiverk frá
Þýskalandi.
U.júníkl. 17.00
Gillian Weir.
Orgeltónleikar Gillian Weir frá
Englandi. Hún leikur fjölbreytta
orgeltónlist frá Englandi og megin-
landinu.
11. júní kl. 20.00
Heimur Guðríðar - síðasta heimsókn
Guðriðar Símonardóttur í kirkju
Hallgríms eftir Steinunni
Jóhannesdóttur, sjá 5. júní.
15. júní kl. 20.00
Requiem og Litanía Mozarts.
Requiem KV 626 og Litanía KV 243
eftir W.A.Mozart í flutningi Sólrúnar
Bragadóttur, Hrafnhildar
Guðmundsdóttur, Gunnars
Guðbjömssonar og Magnúsar
Baldvinssonar, Mótettukórs
Hallgrímskirkju og
Sinfóníuhljómsveitar íslands undir
stjóm Harðar Áskelssonar. Við
sálumessuna er dansatriði eftir Nönnu
Ólafsdóttur, dansað af íslenska dans-
flokknum. Leikmynd og búninga
hannaði Sigurjón Jóhannsson.
Athugið takmarkað sætaframboð.
16. júní kl. 20.00
Requiem og Litanía Mozarts. sjá 15.
júní.
lS.júní kl. 20.00
Requiem og Te Deum Olssons.
Requiem op.13 og Te Deum eftir Otto
Olsson í flutningi Charlottu Nilsson
sópran, Inger Blom alt, Lars
Cleverman barítón og Anders
Lotenlzson bassi, Gustav Vasa
Oratoriekör og hljóðfæraleikurum úr
Kungliga Hovkapellet frá Svíþjóð
undir stjóm Anders Ohlson.
Öll hátíðin fcr fram í Hallgrimskirkju
Forsala aðgöngumiða fer fram í
kirkjunni kl. 16.00 til 18.00.
Miðapantanir í síma 551 9918