Morgunblaðið - 10.06.1995, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
___________________FRÉTTIR
Hátíðahöld á sjósókn-
arstöðum um land allt
Morgunblaðið/Þorsteinn Kristjánsson
Sjómenn í slysavarnaskóla
SLYSAVARNASKÓLI sjómanna erjjessa dagana með námskeið
fyrir sjómenn við suðurströndina. I gær var Sæbjörg í Grinda-
vík og þar sóttu 54 sjómenn fjögurra daga grunnnámskeið og
17 til viðbótar sérstakt tveggja kvölda námskeið fyrir smábát-
asjómenn. Sæbjörgin verður í Vestmannaeyjum á sjómannadag
og í næstu viku verða haldin þar slysavarnanámskeið fyrir sjó-
menn. Síðan verður förinni haldið áfram austur um land.
AÐ VENJU verður á öllum sjó-
sóknarstöðum á landinu efnt til
hátíðardagskrár nú um helgina í
tilefni af Sjómannadeginum 11.
júní.
Suðurnes
Á Suðumesjum verður mest um
að vera í stærsta sveitarfélaginu,
Keflavík, Njarðvík og Höfnum.
Dagskrá Sjómannadagsins hefst
þar kl. 10 með athöfn sem haldin
er til heiðurs þyrlusveit Vamarliðs-
ins, sem unnið hefur mörg björgun-
arafrek á hafi úti á undanförnum
áram. Kl. 11 er sjórnannamessa í
Ytri-Njarðvíkurkirkju. Þá verða
ræðuhöld, róðrarkeppni, k'oddaslag-
ur, björgunarsund, reiptog og fleira.
Þyrla Landhelgisgæzlunnar verður
með björgunarsýningu kl. 16.
Akranes
Á hádegi í dag verður hið árlega
Akraneshlaup. Á sama tíma fer
fram stórt sundmót í bænum, list-
sýningar em í gangi og boðið verð-
ur í skemmtisiglingu.
Á sunnudeginum verða fánar
dregnir að húni kl. 8. Messað verð-
ur kl. 11 í Akraneskirkju. Að lok-
inni messu verður lagður blóm-
sveigur að minnismerki sjómanna á
Akratorgi. Hátíðardagskráin verður
með hefðbundnu sniði og má þar
nefna atriði eins og reiptog, kapp-
róður, tunnuhlaup og kraftakeppni.
Dansleikur verður í Hótel Ósk.
Isafjörður
Á ísafírði hefst dagskrám í dag
kl. 13 með hópsiglingu frá Ásgeirs-
bakka og á Siíndahöfn verður kapp-
róður, kararóður, koddaslagur og
tunnuhlaup.
Messu verður í Hnífsdalskapellu
kl. 9 á sunnudag og kl. 11 í ísafjarð-
arkapellu. Aðalhátíðardagskráin fer
fram í íþróttahúsinu í Torfnesi, þar
sem ávörp verða haldin, sjómenn
heiðraðir, efnt til keppni í netabæt-
ingum og pokahlaupi.
Siglufjörður
Kappróður verður við Togara-
bryggju á Siglufírði í dag en á
morgun kl. 12.30 verður farið í
skemmtisiglingu. Sjómannadags-
messa verður við minnismerkið um
drukknaða sjómenn kl. 14 og
skömmu síðar hefst skemmtidag-
skrá á Roaldsplani. Harmoniku-
sveitin leikur, ræða dagsins haldin,
sjómenn heiðraðir og aðrir fastir
liðir.
Húsavík
Húsvíkingar halda daginn hátíð-
legan báða daga helgarinnar og
hefst dagskráin kl. 13 í dag í
íþróttahöll bæjarins. Árshátíð sjó-
manna verður í félagsheimili Húsa-
víkur kl. 20 í kvöld.
Fánar verða að venju dregnir að
húni kl. 8 á sunnudagsmorgun, og
sjómannadagsguðsþjónusta hefst
kl. 11 í Húsavíkurkirkju. KI. 13
verður farið í skemmtisiglingu um
Skjálfanda og að henni lokinni hefj-
ast hefðbundnir sjómannadagsleikir
við höfnina. Aldraðir sjómenn verða
heiðraðir og verðlaun afhent. Að
auki verður boðið upp á þijár bíó-
sýningar fyrir böm, sem hefjast kl.
15, 17 og 19.
Neskaupstaður
Dagskráin hefst í dag með seinni
umferð sjóstangveiðimóts. Eftir
hádegið fer síðan fram firmakeppni
hestamannafélagsins Blæs, björg-
unarsveitaræfing með þátttöku
þyrlusveitar Varnarliðsins, auk
hefðbundinna skemmtiatriða. Kl.
21 hefjast útitónleikar í portinu við
Egilsbúð með hljómsveitunum Yu-
kon og Siva. Fjörið heldur slðan
áfram á dansleik í Hótel Egilsbúð.
Á Sjómannadaginn verða fánar
dregnir að húni kl. 8:30 og kl. 9
halda skip og bátar í hópsiglingu.
Vestmannaeyjar
í Vestmannaeyjum verður há-
tíðadagskráin í Friðarhöfn og hefst
hún í dag kl. 13. Þar verður efnt
til kappróðurs, keppni í pokahnýt-
ingu, lyftararalls, sýningar á Sig-
mundarsleppibúnaðinum og knatt-
spymukeppni verður milli skips-
hafna. Kl. 20 verður sjómannahóf
í Alþýðuhúsinu og Höfðanum, þar
sem dansinn dunar langt fram á
sjálfan Sjómannadaginn.
Sjómannadagurinn í Reykjavík
Fjölbreytt dagskrá
við Reykjavíkurhöfn
FJÖLBREYTT dagskrá verður í
Reykjavík á sjómannadaginn. Auk
ræðuhalda verður keppt í hefð-
bundnum sjómannadagsgreinum
eins og reiptogi, kappróðri og
koddaslag.
Dagskráin hefst kl. 8 á sunnu-
dagsmorgunn, þegar fánar verða
dregnir að húni á skipum í Reykja-
víkurhöfn. Kl. 11 hefst minningar-
guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Bisk-
upinn yfir íslandi, herra Ólafur
Skúlason, minnist dmkknaðra sjó-
manna. Sr. Jakob Hjálmarsson
þjónar fyrir altari. Blómsveigur
verður lagður á leiði óþekkta sjó-
mannsins í Fossvogskirkjugarði.
Útihátíðaliöld við höfnina
Mikið verður um dýrðir við
Reykjavíkurhöfn. Boðið verður í
skemmtisiglingu kl. 13 með
skemmtiferðaskipinu Ámesi frá
Faxagarði. Ávörp verða flutt kl. 14
og ræðumenn verða Þorsteinn Páls-
son sjávarútvegsráðherra, Arthur
Bogason formaður Sambanda smá-
bátaeigenda, Sævar Gunnarsson
formaður Sjómannasambands Is-
lands og Guðmundur Hallvarðsson,
alþingismaður og formaður Sjó-
mannadagsráðs sæmir aldraða sjó-
menn heiðursmerki Sjómannadags-
ins.
Þyrla Landhelgisgæzlunnar sýnir
björgun og björgunarsveitir SVFÍ
sýna ýmis atriði varðandi björgun
og björgunarbúnað. Koddaslagur,
flekahlaup og kappróður skipshafna
verður einnig meðal skemmtiatriða.
Stórt tjald verður á svæðinu, þar
sem boðið verður upp á kaffí, kök-
ur, gos og sælgæti.
Á Sjómannadaginn verður opið
hús á dvalarheimilum aldraðra sjó-
manna í Reykjavík og Hafnarfírði
milli kl. 13.30 og 17 á sunnudag
og frá kl. 9 til 16 á mánudag. Þar
verður sýning og sala á handunnum
munum Hrafnistufólks.
í,Á Sjómannadaginn verður líf og
fjör í Árbæjarsafni. Ef veður leyfír
verður nýtt stakkstæði tekið í notk-
un og saltfískur breiddur út. Til að
fullkomna stemmninguna verða
sagðar góðar gamlar sjóarasögur
og sjómaður hnýtir net á staðnum.
Kl. 14 og 16 verður keppt í sjó-
stakkahlaupi og flekahlaupi í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum í
Laugardal og kl. 16 verður bryggju-
ball á bryggjunni.
Af Öræfa-
jökli á
snjóbretti
SEX MANNA hópur áhugamanna
um útivist og fjallgöngu kleif Or-
æfajökul og gekk á Hvannadals-
hnjúk, hæsta tind íslands, um síð-
ustu helgi. Það væri sjálfu sér
ekki í frásögur færandi nema
vegna þess að einn fjallgöngu-
mannanna, hinn tólf ára gamli
Erlendur Þór Magnússon, renndi
sér niður af tindinum á snjóbretti
og alveg niður í 200 m hæð. Faðir
Erlendar, Magnús Dan Bárðarson,
sem var með í för, dregur í efa
að yngri fjallgöngumaður hafi náð
að ganga alla leið upp á Hvanna-
dalshnjúk, í 2119 m hæð. Hann
kveðst heldur ekki vita til þess að
Morgunblaðið/Magnús Dan Bárðarson
nokkur maður hafi rennt sér niður
af Öræfajökli á snjóbretti. Erlend-
ur sagði að erfiðasti hluti ferðar-
innar hefði verið uppgangan. „Það
var miklu auðveldara að fara nið-
ur,“ sagði Erlendur sposkur. Hann
kveðst hafa farið mjög varlega
og segir að það hafi verið „bara
gaman“ að húrra niður jökulinn.
Andlát
JÓHANNES
BJARNASON
JÓHANNES Bjama-
son verkfræðingur lést
fimmtudaginn 8. júní
sl., 74 ára að aldri.
Jóhannes fæddist í
Knarramesi í Mýrar-
sýslu þann 18. júlí
1920, sonur hjónanna
Ástu Jónsdóttur og
Bjama Ásgeirssonar
ráðherra. Hann lauk
stúdentsprófí frá
Menntaskólanum í
Reykjavík 1939 og
f.hl. prófí í almennri
verkfræði frá Univers-
ity of Manitoba 1941.
Jóhannes lauk prófi í iðnaðar- og
vélaverkfræði frá MeGill University
í Montreal 1943 og landbúnaðar-
vélaverkfræði frá Iowa State Col-
lege 1944. Hann stundaði fram-
haldsnám í framkvæmdastjórn og
iðnrekstri við New York University
1950-51.
Jóhannes var framkvæmdastjóri
Orku hf. 1944-47, hann stofnaði
Steypustöðina hf. 1947 og var
framkvæmdastjóri hennar jafn-
framt því að reka eigin verkfræði-
stofu árin 1947-50. Jóhannes und-
irbjó byggingu og
framvarp til laga um
áburðarverksmiðju og
sat í stjómskipaðri
nefnd til að ljúka rann-
sóknum og undirbún-
ingi að sementsverk-
smiðju. Hann var verk-
fræðingur hjá Áburð-
arverksmiðjunni hf.
1951-54, yfírverk-
fræðingur og aðstoð-
arverksmiðjustjóri
1954-58 og ráðgjafar-
verkfræðingur frá
1958. Jóhannes var
ráðgefandi verkfræð-
ingur Sementsverksmiðju ríkisins
1958-73 og stundaði jafnframt al-
menn verkfræðistörf. Hann sat í
stórn Áburðarverksmiðju ríkisins
1977-81 og í fóðuriðnaðamefnd
1976-80.
Eftirlifandi eiginkona Jóhannes-
ar er Margrét Sigrún Ragnarsdótt-
ir, fædd í Reykjavík 7. nóv. 1924.
Þau gengu í hjónaband 18. jan.
1947. Börn þeirra eru Ásta Ragn-
heiður f. 16. okt. 1949, Guðrún f.
22. des. 1950, Ragnar f. 9. okt.
1956 og Bjarni f. 9. des. 1960.
Umsókn Jóhanns gagn-
rýnd af meirihlutanum
UMSÓKN Jóhanns G. Bergþórsson-
ar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins í Hafnarfirði, um starf forstöðu-
manns framkvæmda- og tæknisviðs
bæjarins er gagnfynd af flokksfélög-
um hans sem segjast ekki telja starf-
ið fara saman við setu í bæjarstjórn.
Jóhann segist ekki munu segja af
sér embætti bæjarfulltrúa fái hann
starfið.
Magnús Gunnarsson, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins, segir að ekki færi
saman að gegna starfi forstöðu-
manns framkvæmda- og tæknisviðs
og að sitja í bæjarstjóm sem bæjar-
fulltrúi. „Það stangast á við mín við-
horf,“ sagði hann. „Bæjarbúar eiga
að geta leitað til embættis bæjar-
verkfræðings á sem hlutlausastan
hátt.“ Sagði Magnús að á fundi
meirihluta bæjarstjómar í síðasta
mánuði hafi verið rætt um þau mál
sem upp hafa komið undanfarið ár.
Þegar ráðuneytin úrskurðuðu að vísa
bæri frá kærumálum meirihlutans
hafi verið ákveðið.að reyna að slíðra
sverðin og láta verkin tala. „Þá lýsti
Jóhann því yfir að hann mundi ekki
sækja um stöðu bæjarverkfræðings.
Þetta var 11. maí síðastliðinn,“ sagði
Magnús.
Magnús sagði að vera kynni að
aðstæður í fámennum sveitarfélög-
um á landsbyggðinni væru slíkar að
sami aðili yrði að gegna embætti en
sæti jafnframt í sveitarstjóm. „Um
bæjarfélag eins og Hafnarfjörð með
um 17 þúsund íbúa gegnir allt öðru
máli,“ sagði hann. „Og á höfuðborg-
arsvæðinu þar sem stjómsýslan er
umsvifameiri, spyr maður hvort
flokkur eins og Sjálfstæðisflokkurinn
eigi ekki að sneiða hjá vafasamri
braut. Lögfræðingar sem leitað hefur
verið til telja að þetta gangi ekki
upp.“
Fordæmi um allt land
Jóhann G. Bergþórsson sagði að
það væru einkaskoðanir Magnúsar
að bæjarfulltrúi ætti ekki jafnframt
að gegna stöðunni. Það lægi fyrir
niðurstaða félagsmálaráðuneytisins
um að þetta væri heimilt. „Þá má
minna á fordæmi, því þannig hefur
málum verið fyrirkomið í Kópavogi,
Akureyri og vítt og breitt um landið,
fyrir utan önnur sambærileg störf í
kerfinu," sagði Jóhann.
Jóhann sagði að setja mætti
spurningamerki við það hvort væri
réttara út frá siðferðilegu sjónarmiði
að marka sér stefnu eins og Magnús
hefur gert eða virða hvorki skriflega
né munnlega samninga. „Það var
gert samkomulag um það að ég
gegndi stöðunni án skilmála við
stjómarmyndun 9. júní 1994. Enda
hafði ég þá sótt um og var almennt
talinn hæfastur níu umsækjenda."
Met stöðuna pólitískt
Jóhann sagðist ekki gefa neinar
yfirlýsingar um hvort hann muni
hætta að styðja meirihluta bæjar-
stjómar ef hann fengi ekki stöðuna.
„Eg met stöðuna pólitískt hverju
sinni þegar hún kemur upp,“ sagði
hann. „Menn hljóta að spyija sig ef
allar ytri aðstæður eru í lagi hvaða
áhrif það hefur á samstarf manna.
Það má líka spyija hvað gerist ef
ég fæ stöðuna?"
Ellefu umsóknir bárust um starfið
og hafa þær verið lagðar fram í
bæjarráði. Umsækjendur eru auk
Jóhanns, Brynjar Bijánsson bygg-
ingaverkfræðingur, Ármann Jóhann-
esson byggingaverkfræðingur, Hall-
dór Hannesson byggingaverkfræð-
ingur, Kristinn Ó. Magnússon bygg-
ingaverkfræðingur, Sigurður Har-
aldsson byggingaverkfræðingur,
Guðmundur Ámundason bygginga-
verkfræðingur, Guðmundur Elíasson
rekstrarverkfræðingur og Sigurþór
Aðalsteinsson arkitekt. Tveir um-
sækjenda óskuðu nafnleyndar.