Morgunblaðið - 10.06.1995, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 10.06.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 27 . ívöldin. Eiríkur EIRÍKUR á ekki í vandræðum með að vinna öll verk á bátnum. Kristján KRISTJÁN segist gjaman taka upp simann ef honum leiðist úti á sjó. egar vorar i skakaramir hreyfinmi Smábátaútgerð heldur 340 manna byggðarlagi við Tálknafjörð uppi yfír sumartímann. Lífíð snýst um veiðar, brælu og banndaga. Anna 1 5 G. Olafsdóttir og Þorkell Þorkelsson fylgd- ust með því þegar skakaramir af staðnum og aðkomumenn komu í höfn fyrr í vikunni. Þau eru nýkomin úr þriggja mánaða reisu um Afríku og næst er förinni heitið til Indlands. Aflaklóin Skakarnamir eru sammála um að heldur færri krókaleyfisbátar séu komnir til Tálknafjarðar en í fyrra. Aðeins séu komnir um 30 bátar mið- að við hátt í 50 þegar best lét í fyrra- sumar. Þeir telja ástæðuna felast í því að enn veiðist töluvert á grunn- rDenise a hans Denise Beccard láta , Tálknafirði. Fiskverkun FISKVERKAFÓLK vinnur hröðum og öruggum liandtökum að flökun, snyrtingu og pakkningu í hraðfrystihúsinu. slóð annars staðar á landinu. En kappið í skökurunum á Tálknafirði er mikið og þó einhveijum þyki nóg komið og undirbúi sig undir að fara í koju, hafa aðrir ákveðið að nýta hveija stund og halda áfram að físka um nóttina. Einn af þeim er aflakló- in Theodór Erlingsson á Hönnu Kristínu HF og háseti hans Andrés Þorsteinsson. Þó tvímenningarnir þyki með þeim hörðustu í skakinu er nokkuð af þeim dregið þegar þeir hafa landað í annað sinn á rúmum sólarhring næsta morgun. „Við fór- um út um kl. 3 síðustu nótt,“ segir Theodór sem hefur orð fyrir þeim Andrési. „Ég held að við höfum ver- ið tvo tíma út. Við lönduðum 2,8 tonnum á milli kl. 5 og 6 og fórum svo beint út aftur enda spáði illa. Við höfðum skilið eftir 6 línur af 14 og drógum þær inn í seinni túrnum. Þeim afla, 1,8 tonnum, lönduðum við núna,“ segir Theodór. Theodór er tuttugu og fjögurra ára og fluttist með fjölskyldu sinni frá Tálknafirði til borgarinnar fyrir 8 til 9 árum. Hann segir lítið við að vera á Tálknafírði á veturna enda oft snjóþungt. Hins vegar hefur hann verið á bát frá Tálknafirði á hverju sumri frá 13 ára aldri. Ekki segist hann trúa því að hægt sé að fá á tilfinninguna hvar helst sé fisk að fá. „Ég fer þangað sem fiskurinn er og fer eftir veðri og öðrum aðstæð- um. Menn fá ekkert í hausinn hérna,“ segir hann. Handflattur saltfiskur Samanlagður afli dragnótabát- anna reyndist tæp 40 tonn á fimmtu- daginn. Aflinn fer ýmist á fiskmark- að, í Hraðfrystihús Tálknafjarðar eða í saltfisk S fiskverkunarhúsinu Þórs- bergi hf. Sérstaða saltfiskverkunar- innar miðað við jafn stór hús felst í því að allur fiskur er handflattur. Vinnslan tekur meiri tíma en ella, en fiskurinn er fyrir bragðið afar eftirsóttur og eru dæmi um að er- lendir aðilar hafi ásælst merki fé- lagsins OTM. O stendur fyrir Vest- firði, T fyrir Tálknafjörð og M fyrir Magnús, stofnanda fyrirtækisins. Kristín, verkstjóri og dóttir Magn- úsar, verður fyrir svörum í Þórs- bergi. Hún segir nýlegt gjaldþrot Þórslax í eigu sömu eigenda stóran bagga á fyrirtækinu. Ef ekki væri fyrir gjaldþrotið ætti reksturinn að geta gengið vel. Hvað umfangið vat'ðar nefnir hún að 900 tonn af saltfiski hafi verið verkuð í húsinu í fyrra. Fiskurinn fer aðallega á mark- að á Spáni. Minna fer til Ítalíu en Kristín átti einmitt von á ítölsku kaupendunum seinna um daginn. Hún segir að vinnslan sé smám saman að fara í gang. Starfsmenn séu núna um 15 og verði allt að 30, með skólakrökkum og útlendingum, þegar allt verði komið á fullt. Þegar spurst er fyrir um hvort leitað hafi verið eftir innlendu vinnuafli segir hún að auglýst hafí verið eftir vönu flatningsfólki án árangurs. Fyrirtækið gerir út tvo dragnóta- báta og fjóra krókabáta, Gylli, Gyðu, Góa og Otur, og þar að auki eru tíu aðrir handfæra- og línubátar í við- skiptum við Þórsberg. Kristín segir að afli bátanna sé meiri og fiskurinn stærri en síðasta sumar. Hlutur skakaranna á krókabátunum er 60% af 76% aflaverðmæti. Ef tveir eru á bát koma 30% í hlut hvors. Hráefnisskortur . Þó starfsmenn saltfískvinnslunnar séu af ýmsum þjóðernum, frá Lithá- en, Bretlandi og Portúgal, verða þjóðernin enn fleiri þegar komið er í næsta hús. Að frátöldum á þriðja tug heimamanna starfar einn Port- úgali, fjórir Suður-Afríkubúar og tveir Pólveijar, hjá Hraðfrystihúsi Tálknafjarðar. Þórður Reimarsson, verkstjóri, segist eiga von á að starfsmenn verði allt að 40 þegar nægilega mikið hrá- efni fáist til að setja vinnsluna í full- an gang. Hann nefnir sem dæmi um erfiðleika i hráefnisöflun, að eftir sjö daga brælu hafí tekið við þrír banndagar ekki alls fyrir löngu. Nú hafi viku bræla komið á undan einum veiðidegi og um helgina taki við þrír banndagar. Af 31 degi í maí hafi löndunardagar aðeins verið 10. Tutt- ugu og einn dagur detti út og sé launalaus hjá sjómönnunum. Hráefn- isskorturinn hafi þær afleiðingar að ekki sé hægt að veita skólafólkinu atvinnu strax. Svona staðreyndir virðist þeir ekki skilja við skrifborðin fyrir sunnan. Þegar Þórður er spurður hvort til greina komi að kaupa fisk til vinnslu í gegnum fiskmarkaði segir hann erfiðleikum bundið að keppa við kaupendur fyrir sunnan. Þeir virðist alltaf hafa næg fjárráð og hann viti eiginlega ekki hvað þeir geri við fisk- inn. Hraðfrystihúsið gerir út tíu handfærabáta og segir Þórður að fiskurinn hefði verið vel í meðallagi stór. Alls fóru 450 tonn af hráefni í gegnum frystihúsið yfir sumarmán- uðina í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.