Morgunblaðið - 10.06.1995, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.06.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 7 FRÉTTIR Tímanum dreift á kvöldin BREYTINGAR hafa verið gerðar á útgáfu- og dreifingu dagblaðsins Tímans og mun það eftirleiðis verða prentað milli klukkan 19 og 20 á kvöldin og dreift til áskrif- anda á höfuðborgarsvæðinu um 23.30. Til áskrifenda á Akureyri á Tíminn að vera kominn í morg- unsárið næsta dag. Um þijár vikur eru síðan blaðið hóf tilraunir með breyttan útgáfu- tíma og verður endanleg ákvörðun um fyrirkomulag dreifíngar tekin eftir um mánaðartíma. Horft til Norðurlands Hrólfur Ölvisson, framkvæmda- stjóri Tímans, segir einn helsta tilganginn með þessum breyting- um að þjóna m.a. lesendum á Norðurlandi betur en áður hefur verið og eigendur blaðsins telji nýbreytni í því fólgna fyrir lesend- ur að fá það í hendur undir hátta- tímann á kvöldin á höfuðborgar- svæðinu. Þar sé um ónýttan mark- að að ræða. Ekki felist sparnaður í þessum breytingum heldur við- bótarkostnaður, en menn geri sér vonir um annan ávinning þegar til lengri tíma er litið. Hrólfur kveðst' viðurkenna að horft sé mjög til þess lesendahóps norðan heiða sem kaupir dagblað- ið Dag á Akureyri reglulega. Ótímabært sé að ræða um hugs- anlegar áherslu- eða útlitsbreyt- ingar hjá Tímanum í kjölfarið, en slíkt verði skoðað með hægð. Að- spurður um breytingar á starfs- mannahaldi, segir Hrólfur, að sem sakir standa verði það óbreytt en ekki sé hægt að útiloka breytingar á ritstjórn eða í dreifingu blaðsins. -----» ♦ ♦----- Dæmdur fyrir sölu á tælensk- um Levi’s MAÐUR, sem seldi fatnað frá Tælandi með Levi’s vörumerkinu hér á landi, var í gær dæmdur í Hæstarétti til að greiða 250 þús- und króna sekt til ríkissjóðs. Þá voru 693 flíkur gerðar upptækar til ríkissjóðs. Maðurinn dreifði auglýsingu í hús á ísafírði og Bolungarvík um fatamarkað í félagsheimilinu í Hnífsdal 30. og 31. ágúst í fyrra. í dreifibréfinu kom m.a. fram að á markaðnum yrðu í boði föt fýrir alla aldurshópa. Þá sagði: „Levi’s buxumar eru nákvæmar eftirlík- ingar af 501 gallabuxum. Sam- bærileg gæði en ekki nema helm- ingsverð.“ Lögreglan stöðvaði sölustarfsemina 31. ágúst og lagði hald á varning sem var enn óseld- ur. Brot á samkeppnislögum Þá kom fram fyrir dómi að maðurinn flutti varninginn sjálfur inn og að hann var framleiddur í Tælandi. Hæstiréttur benti á að þegar merkingar á fatnaðinum í eigu mannsins væru bornar saman við skráð vörumerki Levi Strauss & Co. í Bandaríkjunum væri ljóst að ýmist væri um að ræða notkun vörumerkjanna sjálfra, lítt eða ekki breyttra, eða hreinar eftirlík- ingar af þeim. Slíkt bijóti í bága við samkeppnislög. Hæstiréttur taldi 250 þúsund króna sekt til ríkissjóðs hæfílega refsingu, auk greiðslu á samtals 150 þúsund króna málskostnaði. Þá voru 693 flíkur gerðar upptæk- ar. Dóminn kváðu upp hæsta- réttardómararnir Hrafn Bragason, Garðar Gíslason og Gunnlaugur Claessen. og í Skeljungs. í dag kl. 10 Skeljungur býdur til Grillmeistarar grilla SS pylsur. Börnin ía litabækur mcð skogaraliunuin. Frútopiuhopurinn kemur 1 heimsokn. Börnin fa Kjörís ITÉÉil v:-" im Helixbíilinn spittir i og er til sýnis Bylgjan er a staðnum, i beinni. Starfsmenu verslunarinnar kynna vöruúrvalið Starísnienn Skogræktar ríkisins mætii með plöntur og verða með faglega ráðgjöf. Skógrækt með Skeljungi Skeljungsbúðin Suöurlandsbraut 4 • Sími 560 3878 Opið mán. - fös. kl. 9.00-18.00, laug. kl. 10.00-14.00 LukJkugrill Skeljungs 2 heppnir fá Sterling gasgrill Klippið út miðann hér fyrir neðan, skrifið nafnið ykkar og simanúmer og afhendið rrúðann þegar þið komið í Skeljungsbúðina. Við drögum úr lukkupottinum kl. 15 í tlag. Hringt verður í hina heppnu. Niifn Sími

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.