Morgunblaðið - 10.06.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR10. JÚNÍ 1995 45
FÓLK í FRÉTTUM
Húðflúrið
er ósvikið
i
I
i
► SVO VIRÐIST sem húðflúr
það, sem stúlkan góða Pamela
Anderson lét nýlega skera í
hörund sitt og líkir eftir
gaddavír vöfðum um upphand-
legg hennar, sé ósvikið. Marg-
ir héldu að Pamela hefði ein-
ungis límt flúrið á sig til
að tolla tímabundið
í tískunni og
kynna myndina
Gaddavír eða
„Barbed Wire“, en svo virðist
ekki vera. Sýndi hún húðflúrið
stolt á kvikmyndahátíðinni í
Cannes fyrir skömmu.
Framleiðendur sjónvarps-
þáttanna Strandvarða segja að
ekki sé ákvæði í samningi
stjörnunnar sem banni svona
lagað, en hún byijar aftur að
leika i þáttunum þann 10.
júlí næstkomandi.
Annars er það að frétta
af myndinni að Adam
Rifkin leikstjóri hennar
hefur verið rekinn eftir
aðeins viku tökutíma.
David Hogan, sem er
þekktur fyrir leiksljórn
sína á tónlistarmyndbönd-
um, tekur við af honum.
Ekki er vitað um ástæður
uppsagnarinnar.
HÚÐFLÚRUÐ
Pamela.
Díana
prinsessa
á ferðinni
DÍANA prinsessa kemur í land
eftir bátsferð um Feneyjar, en hún
,var í tveggja daga heimsókn þar
nýlega. Meðal annars fór Díana í
kvöldverð til styrktar Serpentine
sýningarsalnum í Lundúnum og
er myndin tekin þegar hún er á
leiðinni í þann fögnuð.
fær fjórar
stjömur
► ÍNÝJASTAtölublaði
breska tónlistartímaritsins Q er
birtur dómur um plötu Bjarkar
Guðmundsdóttur, „Post“. Verk-
ið fær fjórar stjörnur af fimm
Mögulegum, og ætti hún að ven
nokkuð ánægð með það. Segir
í greininni að Björk hafi ekki
fallið í sömu gryfju og margir
aðrir tónlistarmenn, að endur-
taka sig, eftir að hafa slegið í
gegn með sína fyrstu breið-
skífu, Debut.Hlýtur þa ð að telj-
ast henni til tekna.
f Dúndrandi harmóníkuball
Hljómsveitin Neistar ásamt Karli Jónatanssyni,
^ Kristbjörgu Löwe og Jónu Einarsdóttur.
iAPANTANIR í SÍMA S68-622Q
Sími 568 9686
Enginn aðgagnseyrir — snyrtilegur klæðnaður
Hljómsveitin SAGA KLASS,
ásamt söngvurunum
Guðrúnu Gunnarsdóttur
og Reyni Guðmundssyni,
leikur íyrir dansi til kl. 3.
Gylfi og Bubbi í GG bandi
halda uppi léttri og góðri
stemningu á
MÍMISBAR
AFMÆLISTILBOÐ
í MAÍ OG JÍJNÍ
Þriggja rétta matseöill
Forréttir
Reyktiir lax með sterkkrydduðum linsubaunum
og stökku vermichelli
Stökkt blandað salat með soya-
og engifennarineruðum kalkúnabitum
Saffranlöguð fiskisúpa með fínt skornu grœnmeti
Aðalréttir
Pönnusteiktur koli með rótargrœnmeti
og steinseljusósu
Grilluð kjúklingabringa, fyllt með hvítlauksbeikon rjóma-
osti og borin fram með hrísgrjónum og hunangssoyasósu
Ofnbökuð lambafiUet með selleríkartöfhtmauki,
og lamba kryddjurtarsósu
Eftirréttur
Siikkulaðimoussekaka með appelsínuvanilhisósu
Kr. 2.490
Lifandi tónlist um helgar
Öll fóstudags- og laugardagskvöld.
_____Boröapantanir í síma 551 1440 eða 551 1247.
YDDA F69.30 / SÍA