Morgunblaðið - 10.06.1995, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
____________________VIÐSKIPTI_______
ŒM storkar Microsoft
með tilboðinu íLotus
New York. Reuter.
EF IBM kemst yfír hugbúnaðarfyr-
irtækið Lotus Development Corp.
gæti það orðið handhægt verkfæri
til þess að bijóta keppinautinn Mic-
rosoft á bak aftur, að mati sérfræð-
inga.
IBM vonast til að geta gert hug-
búnaðinn Lotus Notes að samstæð-
um búnaði, sem muni að lokum ná
til hvers konar tölva, hvort sem í
hlut eiga stórtölvur, borðtölvur eða
fartölvur.
„Tilgangurinn er að gera Notes
að stjómtæki, sem er alls staðar
nálægt, sagði sérfræðingur í New
York.
Með stuðningi IBM telja sérfræð-
ingar að Lotus geti gert Notes-bún-
aðinn allsráðandi og látið hann
tengja saman ólík tölvuumhverfi,
tölvunet einkanotenda, Internetið
og beintengdar tölvuþjónustur.
„Notes getur gert fyrir IBM það
sem Windows hefur gert fyrir Mic-
rosoft," sagði sérfræðingurinn í
New York. „Gert IBM kleift að
endurheimta fyrri stöðu í einkat-
ölvuiðnaðinum.
Um leið verður búnaðurinn vopn
er IBM getur notað til þess að beij-
ast gegn yfirdrottnun Microsoft,
sem á ekkert sem stenzt samjöfnuð
við Lotus Notes.
Á þessu sviði hefur Microsoft
unnið að gerð Exchange, en verkið
hefur sífellt dregizt á langinn.
„Þess vegna fær IBM öflugt vopn
gegn Microsoft,“ sagði sérfræðingur
í Kalifomíu. Þó sagði hann að vopn-
ið væri dýrkeypt og mundi ekki
auka tekjur IBM 1996 nema um 1%.
Glatað tækifæri
IBM-fyrirtækið missti af tæki-
færi til þess að verða stórveldi á
hugbúnaðarsviðinu snemma á síð-
asta áratug, þegar það fékk Micro-
soft til að smíða stýrikerfið MS-
DOS í IBM-einmenningstölvur.
Það varð upphafíð að velgengni
Microsoft-fyrirtækisins og gerði
það að stórveldi, því að Microsoft
seldi stýribúnað í allar IBM-ein-
menningstölvur og ótal afsprengi,
sem seinna komu fram.
IBM ætlar ekki að endurtaka þau
mistök og reynir því að kaupa bún-
að, sem kann einnig seljast vel.
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 15
- kjarní málsins!
i
•I
Áfengi má
auglýsa í
brezku
sjónvarpi
London. Reuter.
RAUNVERULEGU banni við aug-
lýsingum á áfengi í sjónvarpi í Bret-
landi hefur verið aflátt og sjón-
varpsáhorfendur mega vænta þess
að sjá viskí, vodka og gin auglýst
á skjánum í haust.
Sjónvarpsbannið var upphaflega
„heiðursmannasamkomulag" um-
svifamikilla áfengisfyrirtækja á
fyrstu dögum sjónvarps í Bretlandi
á ámnum eftir 1950, en síðan varð
bannið liður í siðareglum óháðra
sj ónvarpsfýrirtækj a.
Ákvörðun brezka sjónvarpsráðs-
ins um afnám bannsins bindur enda
á nokkurt misræmi, því að þrátt
fyrir það hefur mátt auglýsa bjór,
léttvín og jafnvel líkjöra í sjónvarpi
en ekki viskí gin, vodka og koníak.
--------» ♦ ♦---
Aukinn
hagnaður
Deutsche
Telekom
Bonn. Reuter.
DEUTSCHE Telekom AG, fjarskipt-
arisinn í Þýzkalandi, hefur skýrt frá
mikilli tekjuaukningu á síðasta ári
og kveðst nálægt því marki að setja
skilmála í samningaviðræðum um
kauphallarskráningu í New York á
næsta ári.
Rekstrarhagnaður nam 7.1 millj-
arði marka fyrir millifærslur til rík-
isins samanborið við 3.2 milljarða
1993. Velta jókst í 64 milljarða
marka úr 59 milljörðum. Gert er ráð
fyrir að sala aukist í um 69 millj-
arða marka 1995 og hagnaður auk-
ist einnig.
Látin var í ljós bjartsýni á að
framkvæmdanefnd ESB mundi sam-
þykkja bandalag Deutsche Telekom
og France Telecom að gengið yrði
frá samningum við bandaríska
Sprint-fyrirtækið yrði gengið frá
samningi fljótlega..
» ------
KLMgreið-
irafturarð
Amsterdam. Reuter.
KLM-flugfélagið hefur sagt að það
muni greiða arð af hlutabréfum á
ný, þar sem hagnaður hafi rúmlega
fjórfaldazt.
Nettóhagnaður á tólf mánuðum
til marzloka 1995 jókst í jafnvirði
297 milljóna dollara úr 82 millijónum
1993/94. Velta jókst í 5.8 milljarða
dollara úr 5.5 milljörðum.
KLM sagði að greiddur yrði 1,50
gyllina arður, hinn fyrsti til hluhafa
síðan 1991/92.
SÝNING DAG
ATVINNUBÍLAR
BIFREIÐAR OG LANDBÚNAÐARVÉLAR ÁRMÚLA 13
SÍMI568 1200 BEINN SÍMI553 1236
B&L sýnir í dag mesta úrval
sem boðið er upp ó í VSK - bílum.
Verö frá kr. 518.867.- án Vsk
Opiðfrákl 10:00-17:00