Morgunblaðið - 10.06.1995, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 10.06.1995, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 21 Þarf ekki að borga leigu INGVAR Carlsson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, þarf ekki að borga húsaleigu á tveim stöðum, bæði fyrir einkasetur sitt í út- jaðri Stokkhólms og nýja for- sætisráðherrabústaðinn í mið- borginni. Skattanefnd þingsins komst að þeirri niðurstöðu að forsætisráðherra þurfi ekki að greiða leigu fyrir ráðherrabú- staðinn ef ráðherrann hefur einnig einkabústað sem hann eða hún þarf að greiða leigu fyrir. Ebola stöðvuð ALÞJÓÐLEG nefnd á vegum alþjóða heilbrigðismálastofnun- arinnar hefur staðfest að tekist hafi að stöðva Ebolafaraldurinn sem kom upp í Zaire í apríl. Enn hætta tala greindra tilfella, en ástæðan er að enn eru að grein- ast sjúklingar sem sýktust á tímabilinu janúar til mars, en eru fyrst að koma í ljós núna eftir nákvæma rannsókn. Alls hafa nú greinst 211 tilfelli og 164 hafa látist af völdum veir- unnar. Kaktus blómstrar SJALDGÆFUR kaktus í Bret- landi blómstraði í gær í fyrsta sinn í heila öld, eftir að loftkæl- ing í glerhúsi í skrúðgarði Ox- fordháskóla, með þeim afleið- ingum að hiti hækkaði. Kaktus- inn blómstraði síðast 1896 skömmu eftir að ferðalangar færðu skrúðgarðinum hann að gjöf- Kosið í Frakklandi RÚMLEGA 40 milljónir kjós- enda eru væntanlegir að kjör- borðinu í Frakklandi á morgun. Kosnir verða borgar- og bæjar- stjórar og fulltrúar sem fara skulu með völd í 36,664 borgum, bæjum og kauptúnum Frakk- lands. Samkvæmt stjórnarskrá Frakklands er stjórnmálamönn- um heimilt að gegna embættum á vegum bæði ríkis og bæja. Því er það, að 33 af 43 meðlim- um ríkisstjórnar Alans Juppes eru í framboði á morgun. Ólæti í París GRÍMUKLÆDDIR unglingar létu ófriðlega í niðumíddu No- isy-le-Grand hverfi í París snemma í gærmorgun. Bílar voru skemmdir og bensín- sprengjur notaðar til að kveikja í fimm skólahúsum. Þetta er aðra nóttina í röð sem unglingar eru með ólæti í hverfinu og valda skemmdum. Saka þeir lögreglu um að hafa viljandi ekið á og valdið dauða ungs Araba sem var á stolnu vél- hjóli. Stjórnmálamenn deila um hvort ólætin tengist bæjar og sveitastjórnarkosningum sem eru i Frakklandi í dag. Ólögmætt nafn á lestum DÓMSTÓLL í París kvað í gær upp þann úrskurð að frönsku ríkisjámbrautunum væri óheim- ilt að kalla þær lestar sem fara gegnum Ermasundsgöngin Eur- ostar. Nafnið væri of líkt skráð vömmerki flutningafyrirtækis í París sem heitir Eurostart. Ríkisjámbrautimar hafa hálft ár til að breyta nafni lestanna. Forsætisráðherra Víetnam segir heimsókn sína til íslands árangursríka Lögð drög að frekara sam- starfi landanna VO VAN Kiet, forsætisráðherra Víetnams, sagði á fréttamannafundi sem hann hélt ásamt Davíð Odds- syni, forsætisráðherra íslands, í gær, að opinber heimsókn hans til Islands hefði verið árangursrík. Lögð hefðu verið drög að frekara samstarfi þjóðanna á sviði efna- hags- og menningarmála, einnig í vísindum og tækni. „Tilgangur heimsóknar minnar til íslands er að halda áfram að styrkja vináttubönd og samskipti þjóðanna." Kiet sagði að viðhorf Víetnama og íslendinga í þeim málaflokkum sem auka á samstarf í væru mjög svipuð. „Til að bytja með hefur ver- ið ákveðið að ganga til samstarfs í sjávarútvegi, það er að segja, við veiðar, vinnsiu og markaðssetningu. Efnt verður til viðræðna þar sem unnið verður að og endanlega geng- ið frá rammasamningi um samstarf milli landanna tveggja. Síðar verður væntanlega skrifað undir samning sem auðveldar og hvetur til fjárfest- inga, auk þess sem haga þarf málum þannig að ekki komi til tvísköttun- ar.“ Sagði forsætisráðherrann að með þessu móti myndi skapast lagalegur grundvöllur fyrir nánar skilgreint samstarf á hinum ýmsu sviðum í náinni framtíð. Um væntanlega för íslenskrar sendinefndar til Víetnams á næstu vikum sagði Kiet að honum hefði í fyrrakvöld gefíst tækifæri til að ræða við bankastjóra Seðlabanka íslands, sem muni fara fyrir sendi- nefndinni. „Ég er sannfærður um að í þeirri heimsókn verður búið svo um hnútana að unnt verði að stað- festa það sem okkur hefur samist um í heimsókn minni nú.“ Davíð Oddsson sagðist þakklátur hinum víetnamska starfsbróður sín- um fyrir að þekkjast boð um að koma til íslands. Tók Davíð undir þau orð Kiets að heimsóknin hefði verið árangursrík. Ákveðið hefði verið að fela viðkomandi ráðuneyt- um að gera mögulega samvinnu fyrirtækja í löndunum. Þakklátur Kiet sagði að lokum að hann væri þakklátur fyrir að hafa verið boðið til íslands. Þótt um væri að ræða hans fyrstu heimsókn til lands- ins og hún væri þar að auki stutt hefðu íslendingar sýnt sér og sendi- nefnd sinni einstaka gestrisni og hlýhug, það kynni hann að meta. Morgunblaðið/RAX VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti íslands, tók á móti Vo Van Kiet, forsætisráðherra Víetnams, og konu hans, Phan Luong Cam, á Bessastöðum í gær. Morgunblaðið/Golli VO Van Kiet þótti Almannagjá tilkomumikil. Hann fékk lánaða myndavél hjá aðstoðarmanni sínum til þess að festa gjána á filmu, þegar erlendu gestimir heimsóttu Þingvelli í gær. PLEASE WAtT HERE UNT1L THE COUNTER IN ERONT OF YOU ISFREE Allt flug SAS lá niðri ALLT innanlands- og millilanda- flug SAS-félagsins lá niðri í gær vegna sólarhrings vinnustöðvunar flugmanna. Lögðust rúmiega 800 ferðir niður og raskaði það ferða- lagi um 56.000 farþega. Á Ar- landa-flugvellinum í gær reyndu starfsmenn SAS að koma farþeg- um félagsins með flugvélum ann- arra flugvélaga. Samið um Svartahafsflota Sochi. Reuter. RÚSSAR og Úkraínumenn undirrit- uðu í gær samning sem bindur endi á langvarandi deilur ríkjanna um framtíð Svartahafsflotans. Er vonast til þess að þetta verði til þess að bæta samskipti landanna, sem oft hafa verið stirð. Borís Jeltsín Rússlandsforseti og Leoníd Kútsjma, forseti Úkraínu, undirrituðu samkomulagið í lok fund- ar sem þeir áttu í Sochi. Kom sam- komulagið á óvart en allt fram á síð- ustu stundu var óljóst hvort að það næðist. Jeltsín sagði við undirritunina að stundin væri söguleg og Kútsjma bætti því við að þrátt fyrir að ekki væru öll ágreiningsatriði þjóðanna leyst, hefði samkomulag náðst. Deilt hefur verið um skiptingu Svartahafsflota sovéska hersins frá hruni Sovétríkjanna árið 1991. Hvað eftir annað hefur svo virst sem sam- komulag hafi náðst en það hefur ekki reynst á rökum reist. Eitt helsta ágreiningsatriði ríkj- anna var hvort að flotar beggja ríkj- anna ættu að hafa afnot af flotastöð- inni í Sevastopol á Krímskaga. Rúss- ar hafa viljað ráða stöðinni einir en í gær samþykktu þeir að veita úkra- ínska flotanum aðgang. Reuter cis-9,10-octadecenoamide Nýuppgötvað efna- samband svæfir Washington. Reuter. ÞÓTT nafnið hljómi ekki einsog vögguvísa gæti nýuppgötvað efna- samband sem kallast cis-9,10- octadecenoamide svæft mann á skammri stundu. „Svefn er ein stórkostlegasta ráðgáta taugavísindanna," sagði taugasérfræðingurinn Steven Henriksen. „Svefn er með því ein- faldasta sem heilinn gerir, og er okkur enn óskiljanlegt." Fyrstu rannsóknir lofa góðu Henriksen og fimm starfsbræð- ur hans við Scripps vísindastofn- unina í La Jolla í Kaliforníu greindu frá uppgötvun sinni í tímaritinu Science sem kom út á fimmtudag. Þótt væntanlega sé langt þangað til efnasambandið verður prófað sem ráð við svefn- leysi eru niðurstöður fyrstu rann- sókna á köttum og rottum „afar athyglisverðar," sagði Henriksen. Rúmlega 40 milljón manns í Bandaríkjunum einum eiga í vand- ræðum með svefn. Segir Henrik- sen að mjög erfitt sé að lækna svefnleysi. Efnasambandið tilheyrir hópi nýlega uppgötvaðra efnasam- banda í heilanum, og eru flest þeirra vísindamönnum ráðgáta. Henriksen og félagar rannsökuðu magn cis-9,10 í heila- og mænu- vökva í rottum sem þjáðust nokk- uð af svefnleysi. Síðan sprautuðu þeir efnasambandinu í ketti og rottur, sem féll vær og eðlilegur blundur á brá eftir 10-15 mínút- ur, jafnvel þótt aðgerðin hefði far- ið fram um miðjan dag eftir að dýrin höfðu sofíð alla nóttina áður. Ólíkt svefnlyfjum „Þarna var ekki um að ræða svæfíngu með lyfjum," sagði Hen- riksen. Dýrin fóru gegnum eðlileg svefnstig og vöknuðu hress og endurnærð, en ekki ringluð og utangarna. „Svefnferillinn var eðlilegur, ólíkt því sem gerist þeg- ar svæft er með dæmigerðum svefnlyfjum,“ sagði Henriksen. Rannsóknin var nýstárleg að því leyti að við hana unnu tauga- sérfræðingar og efnafræðingar saman. Þeir síðamefndu sinna yf- irleitt ekki rannsóknum á svefni. Henriksen var ánægður með þetta þverfaglega samstarf, en að einu leyti óhress með efnafræðingana. „Þeir voru ófáanlegir til að gefa [efnasambandinu] nafn sem væri gegnsærra. Þeir vildu kalla það cis-9,10-octadecenoamide. En svona eru nú efnafræðingar inn- , réttaðir." W/S4S M ANCU) VÁNTA HAH TILLS DETARDINTUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.