Morgunblaðið - 10.06.1995, Page 37

Morgunblaðið - 10.06.1995, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 37 VILBORG BJARN- FREÐSDÓTTIR + Vilborg Bjarnfreðsdóttir, verkakona á Selfossi, fæddist á Efri-Steinsmýri í Meðallandi 19. júní 1915. Hún lést í Ljósheimum, sjúkradeild aldraðra á Selfossi, 30. maí sl. Útför hennar fór fram frá Selfosskirkju 7. júní. „LOFA þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans. Hann fyrirgefur allar mis- gjörðir þínar, læknar öll þín mein, leysir líf þitt frá gröfinni, krýnir þig náð og miskunn.“ Sálm. 103.2-3. Nú hefur hún frænka mín, bless- uð hlotið hvíldina. Ekki kom fregn- ing á óvart, löngu var hún ferðbúin af heimi. En þó kemur helfregn jafn- an óvænt og að óvörum hvemig svo sem ber að, og jafnan deyr einhver hluti af manni sjálfum þegar vinur eða samferðamanneskja kveður. Minningarnar leita á og skýrar eru þær á baksviði grafarhúms og rómsterkar í hljóðlátum vitnisburði sínum. Ég var níu ára þegar mér var komið til hennar Boggu í sveit og það urðu fjögur sumur. Vita- skuld taldi ég mig sendan til að taka að mér ábyrgð heimilisins og var hvergi banginn, jafnvel þótt ég væri svo pasturslítill og stuttur til hnésins að ég stæði vart upp úr þýfinu í Flóanum! En ekki gleymi ég þeirri hlýju og góðvild sem umvafði mig frá fyrstu stundu. Bogga, frænka mín var þá nýlega gift Asmundi Siggeirssyni frá Baugstöðum, miklum öðlingi, og þau hófu búskap á Svanavatni við Stokkseyri. Þar hét áður Mið- Kökkur og hefur víst enn á ný hlot- ið það ofur-hversdagsiega nafn. Svanavatn var snotur bær á litl- um hól, hlýlegt þangað heim að líta og fagurt þaðan að sjá. Dælur miklar lágu þar á báðar hendur og til suðvesturs blasti við Asgauts- staðarvatn og Selsvatn. Brimið á skeijum utan við sjógarðinn og Ingólfsfjall og tiginn fjallahringur- ' inn hið efra. Mér er minnisstæður ' svanasöngurinn á kvöldin, „endem- is gargið í álftinni" - eins og við karlmennirnir á bænum vildum fremur kalla það, og ilmurinn af störinni í dælunum. Ekki var búið stórt, þetta tíu til tólf kýr og á þriðja tug kinda, tvö hross ef ég man rétt og hundurinn Tryggun- Auk hjónanna voru þar I til heimilis tvö börn, sonur þeirra, ungur, Kristinn Siggeir, og dóttir ( Vilborgar, Guðrún Helga Bjarna- dóttir. Umhverfið bauð upp á ævin- týraheim til leikja, en það var líka feikinóg að gera. Ég álít það mikið lán að hafa fengið að kynnast þama heimi sem á þessum árum var að hverfa, fá nasasjón £if vinnubrögðunum sem hér höfðu tíðkast frá ómunatíð en heyra nú sögunni til, að slá með orfi og Ijá og raka á teigi, binda bagga upp á klakk, það var gert fyrsta sumarið sem ég var á Svana- vatni, þegar heyjað var á engjum, og stinga út skán og þurrka. Og ekki voru þau af lakara taginu, kennaramir. Bogga var einkar myndarleg manneskja, forkur dugleg, hrein- asta hamhleypa til verka og virtist allt leika í höndum á henni. Hún var listræn í sér snyrtileg og smekkvís. Hún kunni frá mörgu að segja heiman frá bemskudögum í Meðallandinu og lífinu í Reykja- vík. Mér varð ljóst að hún hafði mátt reyna margt misjafnt á leið sinni, og lífið fór vist tíðum ómjúk- um höndum um hana. Hún gat verið erfið sjálfri sér en alltaf var hún mér góð og hlý. Mér var falið það tignarembætti að reka og sækja kýmar. Virðu- legra embætti hef ég ekki hlotið um dagana og vandfundnir em ánægjulegri samferðanautar en kýr, þessar rólyndu og tigulegu skepnur. Enda álíta Hindúar kýrn- ar vera heilög dýr. Ég verð þó að játa að ekki var ég alltaf þolinmóð- ur við þær. Mér er hins vegar minnisstæð natnin og nærfærnin sem hún Bogga sýndi „blessuðum kúnum“. Hún spjallaði við þær og kjassaði og svo kunni hún af þeim ótal sögur sem vörpuðu ljósi á per- sónuleika þeirra og upplag, sem var vissulega með margvíslegu móti, eins og hjá mannfólkinu. Ýmsar sögurnar líða mér seint úr minni. Reyndar var henni Boggu einkar lagið að gæða frásögn sína lífi og lit, hún var afar næm á hið spaugilega og skondna í umhverf- inu og gat verið mesti prakkari. Hún hafði líka næmt auga fyrir blómum og gróðri og vakti athygli manns á söng fuglanna og látæði þeirra og brýndi fyrir manni var- færni og virðingu við málleysingj- anna, ekki síst hreiður og unga. Vélaöldin hélt innreið sína. Hag- ur minn og upphefð vænkaðist þar með ekki alllítið. Ási festi kaup á traktor, Hanomag dísel, og það var MINNIIMGAR nú meira verkfærið. Allir Farmallar og Fergussynir í Flóanum fölnuðu nú í samanburði við hann. Og ég fékk að keyra. Ekki aðeins heima á túni, heldur líka úti á vegum. Fór sendiferðir „niðurúr" það er að segja inn í þorp og var jafnvel lánaður út til að aðstoða einyrkja þar að hirða, svo sem Sigga Páls og Finnu á Bakka. Svo maður þótt- ist nú maður með mönnum, sem vonlegt er. Börnum nú til dags er ekki sýnt svo mikið traust, enda heimurinn stærri og flóknari og hætturnar augljósari. Stokkseyri er nú bara svipur hjá sjón. Engir vélbátaskellir heyrast nú úr sundinu. En þá var líf í tusk- um, búskapur stundaður í hvéiju koti, iðandi líf í frystihúsinu, og bátaþröng við bryggjurnar, já, og einar fimm verslanir í plássinu. Auk kaupfélagsins og Pöntunarfélags verkamanna átti maður erindi til Jósteins í Hausthúsum að kaupa hverabrauð og hjá Eyþóri vóru bestu vínarbrauð og svo var auðvit- að Ásgeirsbúð mest þeirra og merkilegust, enda er þar núna ráð- hús hreppsins til húsa. Svo þurfti maður að fara á símstöðina að pósta bréf og í Hellukot til að sækja bögglana sem komu með rútunni. Alls staðat var litlum snáða aiúð- lega tekið, og svo beið kannski heljarstórt oststykki í mjólkur- brúsanum á brúsarpallinum, svona sérstök gjöf frá mjólkurbúinu, þess- ari Auðhumlu sem jós auði og vel- sæld yfir byggð og land! Veröld sem var. Enn svarrar brimið við sker. Enn titrar Flóinn í tíbránni á sólbjörtum degi. Enn lyftir álft sér af Ásgauts- staðavatni og mýrispýta gellur í mónum. En engin lítil böm lötra eftir kúm fram með Selsvatninu, hann Ási stendur ekki á íjóshellunni og fær sér í nefið og horfir dreym- inn út í daginn og tautar: „Ingólfur með þann ljósa." Og hún Bogga strýkur ekki framar litlum kúarekt- or um kinn hlæjandi og segin „Fáðu þér köku, væni minn,“ um leið og hún réttir honum sjóðheita flatköku í verkalaun. Þeirra verkadagur var að kveldi kominn. Guð blessi hann og signi minningarnar og blessi myndir þeirra og óma. Hann varðveiti þau öll sem hún Bogga unni, umfram allt bömin hennar, Hansínu Ósk, Guðrúnu Helgu og Kristinn Siggeir og þeirra böm og fjölskyldur, þau voru stolt hennar og gleði mest. Já, Guð blessi þau og launi og blessi það allt sem hún Bogga var og vildi vera til góðs og gæfu okkur öllum. Lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans. Karl Sigurbjörnsson. RICHARD ARON EGILSSON + Richard Aron Egilsson var fæddur 8. nóvem- ber 1990 í Keflavík. Hann lést á Spáni 25. maí síðastliðinn. Foreldar hans eru Berglind Richards- dóttir og Egill B. Sigurðsson. Hann ólst upp hjá móður sinni og fósturföð- ur, Jósep Þor- bjömssyni. Richard átti tvær yngri syst- ur, Anítu Hörpu og Natalíu Rós Jós- epsdætur. Útför hans fór fram i Ytri- Njarðvíkurkirkju 2. júní síðast- liðinn. LITILL drengur, ljós og fagur, horf- inn er af braut. Af hveiju? Hver er tilgangurinn? Við spyijum okkur sjálf þessarar spumingar í sífellu, en fáum engin svör. Það hlýtur að bíða okkar eitthvert verkeftii fyrir handan, þegar við hverfum héðan. Rikki var einstakur drengur, hann var fullur af lífi og fjöri, dálít- ill prakkari en alltaf svo blíður. Hann tók svo skemmtilega á móti okkur fyrir stuttu síðan, er við vor- um á leið í heimsókn til fjölskyld- unnar. Mamma hans og pabbi voru ekki heima, en stóri frændi var að passa hann. Rikki kom brosandi til dyra, hann var eins og lítill fullorð- inn maður er hann sagði við okkur: „Mamma og pabbi eru ekki heima, en þið getið bara komið aftur á morgun." Þetta var svo blíðlega sagt að það er ekki hægt að gleyma því. Einnig er okkur ofarlega í huga laugardagurinn 22. apríl, stóri dag- urinn sem allir vom svo glaðir. Jú, þetta var brúðkaupsdagur foreldar hans. Rikki var svo fínn, klæddur upp í kjólföt. Við hugsuðum held ég flest það sama: Hversu lengi tekst Rikka að hafa skyrtuna niðri í buxunum og vera svona fínn. En þennan dag var hann eins og prins allan daginn. Hann var svo spennt- ur, mamma og pabbi voru að gifta sig. Já, það er stutt á milli gleði og sorgar, fjölskyldan er nýbúin að sameinast við mikla gleðistund, en nú er komið að sorgarstundinni. Jósep, Linda, Aníta Harpa og Natal- ía, Bubbi og Aníta, Rikki, Harpa og íjölskylda, guð gefi ykkur styrk til að takast á við þá miklu sorg sem þið hafíð orðið fyrir. Það er ávallt ljós framundan, þó svo að myrkið sé mikið. Kær kveðja, Bergþór og Kristjana. Er við lítum um öxl til ljúfust daga liðinnar ævi, þá voru það stundir í vinahópi sem veittu okkur mesta gleði. (Nico) Þeir deyja ungir sem guðirnir elska, það á svo sannarlega við um hann Rikka okkar sem tek- inn var frá okkur alltaf fljótt. Þó erfitt sé að sætta sig við það, þá hlýtur tilgangurinn að vera sá að haris bíði mikilvægari verkefni ann- ars staðar. Rikki byijaði hjá okkur fyrir ári. í byijun gekk á ýmsu, Rikki var ekki aveg tilbúinn að sætta sig við leikskólann. En með góðri samvinnu við Lindu og Jósep var takmarkinu náð og Rikki undi sér vel í leikskól- anum. Rikki féll vel í hópinn og átti hann marga góða vini, senni- lega var það vegna þess hve opinn, kraftmikill og fjörugur hann var. Nú hefur stórt skarð verið höggv- ið í barnahópinn en eins og einn vinur Rikka sagði: „Rikki er dáinn en við geymum hann í hjartanu okkar og í höfðinu." Elsku Linda, Jósep og fjölskylda, megi Guð gefa ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Að endingu viljum við minnast Rikka með sálmi sem oft er sunginn á Bakka. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvflast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt því þú ert hjá mér. Sproti þinn og stafur hugga mig þú býrð mér borð frammi fyrir fjendum mínum. Þú smyrð höfuð mitt með olíu bikar minn er barmafullur. Já gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína og í húsi Drottins bý ég langa ævi. Börn og starfsfólk leíkskól- ans Heiðarsels. I ( ( ( ( ( < i 1 i SmÓ ouglýsingar / KEFAs\ KRISTIÐ SAMFÉLAG Dalvegi 24, Kópavogi Samkoma fellur niður í dag vegna sumarmóts að Langaholti á Snæfellsnesi. Sjá hversu fagurt og yndislegt er, er systkini dvelja saman. FERÐAFÉLAG # ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Laugard. 10. júni kl. 9.00 SöguferA á Njáluslóðir Farið verður á ýmsa áhugaverða sögustaði. Góð leiðsögn. Verð 2.500 kr., frítt f. börn m. fullorön- um. Brottför frá BSÍ, austan- megin og Mörkinni 6. Ferðafélag islands. Mt Fimmtudaginn 15. júní kl. 21 hefst sumarskóli félagsins með erindi í Ingólfsstræti 22. Honum verður fram haldiö að Flúðum kl. 17.30 á föstudag og stendur til hádegis á mánudag. Aðal fyr- irlesari verður Joy Mills, en einn- ig verður haldin smiðja um hag- nýta iðkun og daglegt llf. Að loknum sumarskóla heldur Joy Mills þrjú erindi í húsi félagsins mánud.-miðvikud. kl. 20. Upplýsingar og skráning hjá Halldóru í síma 562-5551. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Almenn samkoma kl. 20.30. Ræðumaður Charlene Call frá Bandaríkjunum og Levi Call, eiginmaður hennar, syngur. Allir hjartanlega velkomnir. Dagskrá vikunnar framundan: Sunnudagur: Brauðsbrotning kl. 11.00. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Almenn samkoma kl. 20.00. Ræðumaður Charlene Call. Athugið breyttan samkomu- tíma. Miðvikudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Föstudagur: Landsmót ungra hvítasunnumanna hefst í Kirkju- lækjarkoti Fljótshlíð, kl. 20.30. Hallveigarstíg 1 • sími 614330 Dagsferð laugard. 10. júní Kl. 09.00 Yfir Eskjuna, fjalla- syrpa, 1. áfangi. Farið verður upp Þverárkotsháls á Hátind, fyrir Skálatind og þaðan niður í Kjós. Verð 1.200/1.400. Dagsferð sunnud. 11. júní Kl. 10.30 Hvalfjaröareyri. Gengið sem leiö liggur í fjörunni og steinar skoðaðir, síðan meðfram Kiöafellsá að Óshól. Þetta er um 4 klst. gangur sem hentar öllum i fjölskyldunni. Verð 1.300/1.500. Dagsferð sunnud. 11. júní Kl. 08.00 Básar í Þórsmörk. Dagsferð sunnud. 18. júní Kl. 10.30 Leggjabrjótur. Gengið frá Svartagili, upp Biskupsbrekk- ur og ofan við Sandvatn. Gljúfrin á Brynjudalsá skoðuð, endað að Botni f Botnsdal. Áætlaður göngutími 6-7 klst. Brottför frá BSf, bensínsölu, miöar við rútu. Einnig uppl. ítextavarpi bls. 616. Helgarferðir 16.-18. júní 1. Mýrdalur - Höfða- brekkuheiði Kl. 20.00 Gengiö inn á Höfða- brekkuheiðar, á Selfjall. Skoðað- ir hellar, turnar og skvompur. Þá verður farið í siglingu með hjólabátnum frá Vík og hugað að fuglalífinu. 2. Básar í Þórsmörk Kl. 20.00 Fjölbreyttar göngu- ferðir. Gist í skála. Sumarleyfisferðir 14.-18. juní Esjufjöll - Öræfa- jökull. Gengið frá Breiðamerk- urlóni ( Esjufjöll þar sem gist verður í tvær nætur. Gengið á tveimur dögum yfir Öræfajökul og komiö niður hjá Sandfelli. 21.-25. júní Sólstöðuferð um Norðurland. Ekið norður í land, fyrir Vatnsnes, í Hindisvík, að Hvítserk og að Borgarvirki. Ekið fyrir Skaga, gengið á Ketubjörg, farið í Selvík og út Reykjaströnd, að Reykjum og í Glerhallavík. Sigling í Drangey. Upplýsingar og miöasala á skrif- stofu Útivistar. Útivist. FERÐAFÉLAC 4 ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Sunnud. 11. júníkl. 13.00 Náttúruminjagangan 7. áfangi Vatnsskarð - Djúpavatn I þessum næstsíðasta áfanga náttúruminjagöngunnar verður gengiö frá Vatnsskarði, hjá Hrútagjá yfir að Djúpavatni. Þetta er falleg og skemmtileg leið meðfram Reykjanesfjall- garði. Verð 800 kr., frítt f. börn m. fullorðnum. (Ath. engin ferð kl. 10.30). I síðasta áfanganum þann 25. júní verður haldið áfram að Sela- töngum (þá verða jarðfræðingar með í för). Fjölmenniö í þessa skemmtilegu raðgöngu, sem far- in er í tilefni náttúruverndarárs Evrópu, þátttakendur eru komn- ir yfir 600. Þátttökuseðill gildir sem happdrættismiöi. Brottför frá BSÍ, austanmegin, og Mörk- inni 6. Heiðmörk, skógræktarferð, (frítt) á miðvikudagskvöldið 11. júní kl. 20. Opið hús: Kynning á ferðum og ferðaútbúnaði á fimmtudags- kvöldiö 15. júní í Mörkinni 6 (nýja sal). Stutt kvöldganga um Elliða- árdal kl. 20. Komið og kynnið ykkur fjölbreyttar sumarleyfis- ferðir innanlands. 17. júní ferðir í Þórsmörk og ó Fimmvörðuháls. Brottför laugard. kl. 08.00. Helg- arferðir í Þórsmörk um hverja helgi. Miðvikudagsferðir í Þórsmörkina hefjast 21. júni. Fjölskylduhelgi í Þórsmörk verður 30/6-2/7. Pantið tímanlega. Fjölbreytt dagskrá fyrir unga sem aldna. Mjög ódýr ferð. Ferðafélag (slands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.