Morgunblaðið - 10.06.1995, Qupperneq 40
40 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Tommi og Jenni
l ^ j\ *** í
Æ\
Smáfólk
HERE'5 TME WORLP FAM0U5
5ER6EANT OF THE F0REI6N
LE6I0N LEAPIN6 HI5TR00P5
ACR055 THE DESERT..
ASTHEYMARCH UNDER
A MOONLIT SKY.THEf'5IN6
A5TIRRIN6 FI6HT S0N6..,
’ SOME ENCHANTEP
EVENIN6" 15 NOT A
5TIRRIN6 FI6HT 50N6!
Hér er hinn heimsfrægi liðþjálfi Þeir syngja fjörlegt baráttulag „Töfraþrungið kvöld“ er ekki
Útlendingahersveitarinnar að er þeir marsera í tunglsljósinu___ baráttulag!
leiða lið sitt yfír eyðimörkina...
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlúnni 1103 Reykjavik • Sími 5691100 • Símbréf 5691329
En hvað það
var skrýtið
Frá Karli Ormssyni:
EIN mest lesna barnasaga á íslandi
(kannski fyrir utan „Gagn og gam-
an)“ heitirjþessu nafni. Hún er eft-
ir Pál J. Ardal og er skemmtileg
bamasaga. En hvers vegna er ég
að skrifa þetta? Jú,
nýlega sendi Fiski-
stofa bát út á miðin
að taka myndir af
sjómönnum kasta
fiski í hafið og þótti
það mörgum skrýt-
ið.
Margir hafa
skrifað greinar
undanfama ára-
tugi um hvemig
fiski er hent, sjómenn hafa sagt frá
því ótal sinnum og ýmsir hafa sagt
að hent sé fiskafurðum í hundruða
tonna tali. Það hlýtur að vera hent
ógrynni af fiski á humar- og rækju-
skipum. Sjómenn verða að fá að
koma með þennan fisk að landi,
t.d.d heilfrystan. Enginn hefur trú-
að þessu fyrr en Fiskistofa festi það
á myndband.
Þekktur síldarskipstjóri kom í
þjóðarsálina á rás tvö og sagði að
engri síld væri hent dauðri nema í
vitlausu veðri, öðmm skipum væri
gefíð þetta, „í sumum tilfellum er
það satt, já“. Daginn eftir sagði
annar skipstjóri að þeir hefðu misst
um 2-3 þúsund tonn af síld er
nótin sprakk með dauðri síld í. Er
nema von að fólk sé orðið áttavillt
í þessu máli?
Segja má, eins og litla telpan í
áðurnefndri bók, að sumum fínnist
þetta kannski lítið. En þó eru áreið-
anlega miklu fleiri sem segja: „Enn
hvað þetta er skrýtið."
Tugir frystitogara koma úr veiði-
túrum með ca. 250 tonn af beinlaus-
um roðlausum flökum. Það gera ca.
8-900 tonn upp úr sjó. Hvað halda
menn að verði af afganginum?
Halda menn að hann gufí upp? Að
sjálfsögðu er því öllu hent í sjóinn.
Ég veit ekki hvort margir „land-
krabbar" vita af því, að um borð í
mörgum skipum eru stórar afkasta-
miklar hakkavélar sem allt úrkast
er sett í og er því síðan dælt á haf
út. Margir vita þetta en enginn sér
það, „sæll er sá sem trúir án þess
að sjá“.
Nú má enginn hugsa að ég haldi
að það sé auðvelt að breyta þessu,
en það verður einfaldlega að koma
í veg fyrir þetta. Lífsafkoma þjóðar-
ínnar er í veði. Það tekst aldrei að
byggja upp fískistofnana með svona
vinnubrögðum. Við höfum einfald-
lega ekki undan, vegna þess að allt-
af er tekið meira en byggist upp.
Allir verða að leggjast á eitt að
fínna aðferð sem kemur í veg fyrir
þessa rányrkju.
Það er vart hægt að ætlast til
að sjómenn komi að landi með afla
sem þeir fá sektir fyrir að veiða.
Þannig verður að koma með lausn
sem allir geta sætt sig við.
Það er búið að fjárfesta allt of
mikið í stórum skipum sem físka
upp í landsteinum, svo nálgast
bijálæði. í fylgiblaði Morgunblaðs-
ins „Úr Verinu“ taldi ég 48 togara
að veiðum á hryggningarstöðvum
Vestmannaeyja daginn sem ég
skrifaði síðustu grein mína um þetta
mál. Það geta allir séð það, að ekki
er hægt að slátra mjólkurkúnni ef
hægt á að vera að reka „batteríið“
áfram.
Það verða allir vitlausir ef maður
segir sannleikann en ég vil leggja
mitt af mörkum og ég er með til-
lögu að lausn: Togaramir eru allt
of margir, gefa ætti línu- og króka-
veiðar fijálsar, banna netaveiðar
um hryggningartímann og senda
alla togara út fyrir 100-200 sjómíl-
ur. Ef flotinn er hæfilega afkasta-
mikill og engum fiskafurðum er
hent þarf engan kvóta.
KARL ORMSSON,
áhugamaður um fiskveiðar,
Kringlunni 87, Reykjavik.
Athafnaskáldin og
embættismennirnir
Frá Einari Vilhjálmssyni:
EIGANDI fískvinnslufyrirtækis
hefur verið úrskurðaður í gæslu-
varðhald vegna gruns um stórfelld
innskattsvik á rúmlega tveimur
áram. Hih' meintu skattsvik era
talin nema hátt á annan tug millj-
óna króna og ekki vitað um aðra
starfsemi fyrirtækisins en viðskipt-
in við ríkissjóð.
Við þetta riijast upp hið fræga
Vatnsberamál, þar sem innskatt-
svik námu á þriðja tug milljóna.
Verulegur hluti þessara skattsvika
vora framin af tugthúslimi meðan
hann sat inni vegna dóms. Hvergi
hefur komið fram hvaða gæslumað-
ur ríkisfjár átti þama hlut að máli.
Er ekki eitthvað bogið við embætt-
isfærslu, þar sem svona mistök eiga
sér stað? Hefur fjármálaráðherra
látið rannsaka starfshætti viðkom-
andi embætta eða er mistakanna
að leita hjá ráðuneytinu? Þarf Ríkis-
endurskoðun ef til vil að athuga
starfshætti fjármálaráðuneytisins
og embætta, sem undir það heyra,
með fyrrgreind svikamál í huga?
Skattrannsóknarstjóri hefur stað-
fest að flöldi mála af þessu tagi
væra til meðferðar hjá skattyfír-
völdum og næmu svikin í sumum
tilvikum tugum milljóna. Það hlýtur
að vera krafa skattgreiðenda að
fjármálaráðherra upplýsi hveijir
þarna eiga hlut að máli og skýri
frá nöfnum viðkomandi athafna-
skálda og embættismanna í fjöl-
miðlum.
EINAR VILHJÁLMSSON,
Garðabæ.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi,.