Morgunblaðið - 01.11.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995 39
MININIINGAR
+ Ingo Sinnhoffer
fæddist í
Giitersloh 24. des-
ember 1936. Hann
iést í Miinchen 6.
júní síðastliðinn og
fór útför hans fram
12. júní. Ingo Sinn-
hoffer var ókvænt-
ur og barnlaus.
GÓÐVINUR Kammer-
músíkklúbbsins og
margra annarra ís-
lenskra tónlistarunn-
enda, Ingo Sinnhoffer
fiðluleikari, er látinn
aðeins 58 ára að aldri.
Hann stundaði nám hjá prófessor
Wilhelm Stross í Múnchen og lék
um skeið á lágfiðlu í frægum
strengjakvartett prófessorsins. Arið
1964 varð hann lágfiðluleikari í
óperuhljómsveitinni í Múnchen, en
sneri sér brátt að fiðlu-
leik og fljótlega varð
hann 1. konsertmeistari
hljómsveitarinnar.
Hann stofnaði Sinn-
hoffer-kvartettinn 1963
og var fyrirliði hans til
dauðadags, en kvartett-
inn varð víðfrægur inn-
an Þýskalands og utan.
Tii Islands kom Sinn-
hoffer-kvartettinn fyrst
árið 1977 á vegum
Kammermúsíkklúbbs-
ins, er hann tók þátt í
heildarflutningi
strengjakvartetta Beet-
hovens með tveimur
öðrum strengjakvartettum frá Þýska-
landi, en kvartettar þessir komu allir
fyrir atbeina sonar Wilhelm Stross,
Wolfgang Stross og eiginkonu hans,
Ásdísar Þorsteinsdóttur Stross.
Síðar kom Sinnhoffer- kvartettinn
oft hingað til lands að ósk Kamm-
ermúsíkklúbbsins, alls í átta skipti.
Lék hann jafnan á tvennum tónleik-
um og má þakka það þessum tónleik-
um m.a. að síðari strengjakvartettar
Beethovens eru félögum Kammer-
músíkklúbbsins vel kunnir. Auk þess
fóru þeir félagar í kvartettinum fleiri
tónleikaferðir út á land á vegum
áhugamannahópa, en þeir höfðu
mikinn áhuga á náttúru landsins.
Settu þeir þá ekki fyrir sig, að áheyr-
endur voru stundum fáir.
Sinnhoffer-kvartettinn hefur
haldið fleiri tónleika á vegum
Kammermúsíkklúbbsins en nokkur
annar hópur erlendra tónlistar-
manna og flutt hér fjölmargar perlur
kvartetttónbókmenntanna. Sinn-
hoffer og 'félagar hans í kvartettin-
um hafa tekið þá tryggð við okkur
í Kammermúsíkklúbbnum, að við
höfðum gert ráð fyrir frekara sam-
starfi við þá framvegis.
En nú er Ingo Sinnhoffer allur
og við minnumst hans með þakklæti
sem góðs vinar og mikilhæfs lista-
manns.
Sljórn Kammermúsík-
klúbbsins.
INGO
SINNHOFFER
AAGOT
VILHJÁLMSSON
+ Aagot Fougner Vilhjálms-
son fæddist á Seyðisfirði 7.
apríl 1900. Hún lést á Borgar-
spítalanum 15. október síðast-
liðinn og fór útförin fram 24.
október.
NÚ ÞEGAR Aagot amma okkar
hefur kvatt langar okkur að minn-
ast hennar með nokkrum orðum.
Það liggur í hlutarins eðli að
minningar okkar um hana eru frá
seinni hluta hennar löngu ævi. Þar
sem fjarlægðir hafa aðskilið okkur
gegnum tíðina hafa samvistimar
við hana verið heldur stijálar, en
með sinni einstöku frásagnargáfu
hefur henni þó tekist að gera minn-
ingar sínar ljóslifandi fyrir okkur
eins og við hefðum fengið að fylgj-
ast með frá byrjun. Þá koma gjarn-
an upp í hugann minningarbrot,
eins og þegar hún sagði frá því
þegar hún sá afa í fyrsta sinn og
þessi gamla kona fékk glampa í
augun og ljómaði í framan eins og
ástfangin unglingsstúlka.
Á seinni árum hefur amma verið
mikilvægur tengiliður í sinni stóru
og sístækkandi fjölskyldu. Alltaf
fylgdist hún vel með öllum sínum
afkomendum og miðlaði frásögnum
og upplýsingum á báða bóga. Þann-
ig þekkist fólkið hennar nú mun
betur en ella hefði orðið í stórum
hópi.
Hún amma Aagot var sú jákvæð-
asta manneskja sem við höfum
nokkurn tímann kynnst. Henni
tókst ævinlega að sjá ljósu hliðarn-
ar á hlutunum og lífinu yfirleitt.
Hún var ákaflega lífsglöð og félags-
lynd kona sem alltaf var tilbúin að
gleðjast með öðrum yfir smáu sem
stóru. Hún var alveg laus við nei-
kvæða gagnrýni en átti ætíð til
næga hlýju og ríka samúð með
þeim sem minna máttu sín.
Hún var meistari í þeirri list að
gefa og þiggja. Bara það að hittast
veitti báðum ómælda gleði og hún
sendi mann frá sér fullhlaðinn af
jákvæðum tilfinningum. Við kvödd-
umst alltaf ríkari en áður og með
gleði í huga. Sú tilfinning fylgir
okkur áfram þegar við nú kveðjum
ömmu í síðasta sinn með hlýju og
þakklæti fyrir samfylgdina.
Margrét, Árni, Auður og
Anna Þórdís.
Til elskulegrar
ömmu minnar.
Er heillandi brosið og hugurinn þinn,
heimkynni okkar nú kveðja.
Þú sýndir að gleðin var sigur þinn,
og söngst þegar þurftir að kveðja.
Þögul nú þökkum við ferilinn þinn,
í þögninni felst okkar kveðja.
Við gleðjumst í hjarta við gluggann þinn
og grátum, þvi sárt er að kveðja.
(Ók. höf.)
Nú er sál þín rós
í rósagarði Guðs
kysst af englum
döggvuð af bænum
þeirra sem þú elskaðir
aldrei framar mun þessi rós
blikna að hausti.
(Ragnhildur Ófeigsdóttir)
Sigríður Snorradóttir.
JÓHANNA
BJARNADÓTTIR
+ Jóhanna Bjarnadóttir fædd-
ist í Reykjavík 22. janúar
1950. Hún lést í Reykjavík 14.
október siðastliðinn og fór útför
hennar fram frá Seljakirkju 23.
október.
MIG LANGAR til þess að minnast
með nokkrum orðum Jóhönnu
Bjarnadóttur, nágrannakonu
minnar. Haustið 1982 fluttist fjöl-
skylda mín í Seljahverfið í Reykja-
vík. Yngra barnið, lítil stúlka, var
þá á fyrsta ári. Þegar hún fór að
ganga og hreyfa sig um næsta ná-
grenni kynntist ég nágrönnum mín-
um nánar. Þegar hún gæti hafa ver-
ið 2-3 ára stóð eitt sinn ungur dreng-
ur á tröppunum og spurði hvort ég
hefði séð Guðrúnu Helgu. Nei, ég
hafði ekki séð Guðrúnu Helgu og
vissi ekki hver hún var. En sonur
minn gat frætt mig á því að Guðrún
Helga væri lítil stúlka, sem ætti
heima í næstu götu, og að þetta
væri bróðir hennar.
En við áttum svo sannarlega eftir
að kynnast henni Guðrúnu Helgu.
Það kom í ljós að hún og Guðbjörg
Halla voru nánast jafngamlar, fædd-
ar með níu daga millibili. Mér finnst
eins og Guðrún Helga og fjölskyida
hennar, Hanna, Jón og bræðurnir
þrír, séu hluti af uppvexti dóttur
minnar hér í Seljahverfinu. Guðrún
Helga var í leikskóla eftir hádegi
og Guðbjörg Halla fyrir hádegi en
utan þess tíma léku þær sér saman.
Þær eru nú að hefja áttunda ár sitt
í skóla og hafa alitaf verið í sama
bekk. Þegar börn hafa svo náið sam-
neyti verða foreldrarnir eðli málsins
samkvæmt að ræða ýmis mál. Og
það höfum við Hanna svo sannarlega
gert á undanförnum 11-12 árum.
Það var um ýmislegt að ræða í sam-
bandi við skólann, félagana og svo
var ýmislegt fleira brallað t.d. farið
í leikhús og bíó, á reiðnámskeið, í
sumarbúðir og að sjálfsögðu haldnar
stórfenglegar afmælisveislur. Um
þetta þurftu mæðurnar að ráðslaga
og það gerðum við Hanna óspart í
gegnum síma og á tröppunum hvor
hjá annarri.
Mér geðjaðist strax vel að þessari
glaðlegu nágrannakonu. Eg sá líka
fljótt að þar fór ein af þessum mynd-
arlegu gamaldags húsmæðrum sem
ég mundi eftir úr æsku minni, meira
að segja húsmæðraskólagengin. Það
mátti mikið ganga á svo að ekki
væri tekið slátur og bakaðar smá-
kökur fyrir jólin. Stundum fannst
mér jafnvel að dóttir mín öfundaði
vinkonu sína af þessari myndarlegu
móður sém eldaði ,venjulegan“ mat
í stað endalauss heilsufæðis og bak-
aði skúffukökur um helgar. Hanna
var sérstaklega greiðvikin. Oft
hringdi ég og baðst ásjár þegar ég
komst ekki heim á réttum tíma til
þess að taka á móti minni dóttur
þegar skóla var lokið. Þá var ekkert
sjálfsagðara en taka á móti henni
og gefa henni að borða. Um tíma
tók Hanna að sér að vera dagm-
amma dóttur minnar og leysti það
eins og allt annað af mikilli alúð.
Þegar stelpurnar urðu eldri var farið
að flytja sængur á milli húsa og þá
var stundum gott að eiga Hönnu að
þegar foreldrarnir þurtu að bregða
sér af bæ og stóri bróðir var ekki
heima.
Hanna átti við mikið heilsuleysi
að stríða síðustu tvö árin og veit ég
að henni féll mjög þungt að geta
ekki sinnt heimili sínu af þeim mynd-
arskap sem henni var eiginlegur.
Ég og fjölskylda mín viljum fá að
þakka henni fyrir greiðvikni og vin-
áttu sem hún sýndi okkur. Við biðj-
um.góðan Guð að styrkja Jón og
börnin fjögur, Bjarna, Guðlaug, Guð-
rúnu Helgu og Pétur.
Sigrún Helgadóttir.
-----♦ ♦ ♦--
BRYNJAR
EYDAL
+ Bryi\jar Eydal fæddist á
Akureyri 22. október 1912.
Hann lést á lyúkrunarheimilinu
Eir 9. október síðastliðinn og
fór útför hans fram frá Foss-
vogskapellu 20. október.
ELSKU afi minn, nú ertu kominn
til englanna á himnum. Ég man
þegar þú varst þú varst í Hátúninu
og við komum að heimsækja þig.
En síðan fluttist þú á Eir. Þú brost-
ir alltaf til mín þegar ég kom og
ég held að þér hafi hætt að líða
illa þá litlu stund sem ég var hjá þér.
Marta Eydal.
t
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, sonur, bróðir og mágur,
KRISTINIM JÓNSSON,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju fimmtudaginn 2. nóvember
kl. 13.30.
Sigfrfður Védís Ásbjörnsdóttir,
Jón Gunnar Krístinsson,
Svavar Knútur Kristinsson,
Vilmundur Torfi Kristinsson,
Jón Stefánsson, Svava Torfadóttir,
Bjarni Jónsson, Þóra Víkingsdóttir,
Sveinn Jónsson, Vibe Anderberg,
Guðrún Jónsdóttir, Öyvind Krogstadmo,
Erna Jónsdóttir, Francis J. Mason,
Anna Jónsdóttir, Garðar Guðnason.
t
Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ÞORBJÖRG JAKOBSDÓTTIR,
Tunguvegi 62,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
föstudaginn 3. nóvember kl. 13.30.
Páll J. Daníelsson,
Daniel J. Pálsson, Linda Garðarsdóttir,
Ólöf Pálsdóttir, Gunnar A. Ottósson,
Unnur Pálsdóttir, Oddur Helgason,
Sigurþór Dan Jónsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BENJAMÍN GUNNAR ODDSSON
bifreiðastjóri,
Hjallavegi 12,
Flateyri,
verður jarðsunginn frá Flateyrarkirkju
föstudaginn 3. nóvember kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent
á björgunarsveitirnar.
Guðrún Kristjánsdóttir,
Marsibil P. Benjamínsdóttir, Egill Pétursson,
Sigríður Kr. Benjamínsdóttir, Einar Ó. Magnússon,
Guðrún Halla Benjamfnsdóttir,
Svanhildur Erla Benjaminsdóttir
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HALLGRÍMUR PÉTURSSON
frá Hellu,
Jökulgrunni 6,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju föstu-
daginn 3. nóvember kl. 15.00.
Ásta Vilhjálmsdóttir,
Erna Hallgrimsdóttir, Finnbogi Böðvarsson,
Helga Hallgrímsdóttir, Konráð Beck,
Herdís Hallgrímsdóttir, Sigurður Ólafsson,
Pétur V. Hallgrímsson, Hafdís Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Fjölskylda
HELGA EINARSSONAR
húsgagnasmíðameistara
frá Hróðnýjarstöðum,
Sporðagrunni 7,
Reykjavík,
færir öllum, sem auðsýndu þeim samúð
og vinarhug vegna andláts og útfarar
hans, alúðarþakkir.
Guð blessi ykkur öll.
Edda Helgadóttir, Nikulás Gislason,
Sjöfn Helgadóttir, Hannibal Helgason,
Birgir Helgason, Sigrún Guðmundsdóttir,
Logi Helgason
og aðrir aðstandendur.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför
LAUFEYJAR MARTEINSDÓTTUR
frá Gilá,
til heimilis á Skulabraut 10,
Blönduósi.
Auðunn Ágúst Hjörleifsson,
Marteinn Ágúst Sigurðsson,
systkini og makar þeirra.