Morgunblaðið - 01.11.1995, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Innilegar þakkir til állra þeirra, sem, í tilefni
af 85 ára afmœli mínu, glöddu mig og heiÖr-
uöu meö nœrveru sinni, margskonar gjöfum,
blómum og heillaskeytum.
LifiÖ heil!
i Jón Jónsson,
Smáraflöt 42, 210 Garðabæ.
Rannsóknaráætlun Evrópusambandsins;
Kynning á Orkurannsóknaráætlunum
Kynningarfundur veröur haldinn á vegum Rannsóknarráðs íslands og Kynningar-
miðstöðvar Evrópurannsókna (KER) fimmtudaginn 2. nóvember kl. 9:00-12:45 í
Borgartúni 6, þar sem Enzo Millich og Francisco Lasa, starfsmenn framkvæmda-
stjórnar ESB, kynna Orkurannsóknaráætlanir Evrópusambandsins JOULE og
THERMIE. Tækifæri gefst til að kynnast alþjóðlegum sóknarmöguleikum á sviði
orkutækni með stuðningi Evrópusambandsins.
Dagskrá:
09:00-09:10 Setning, Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri
Rannsóknarráðs íslands.
09:10-10:00 Kynning á stöðu þekkingar á sviði orkutækni og orku-
rannsóknum hér á landi og forsendur til alþjóða samvinnu
og þekkingarútflutnings:
- Jakoþ Björnsson, orkumálastjóri
- Einar Tjörvi Elíasson
- Steinar Friðgeirsson
10:00-10:15 Kaffihlé
10:15-12:15 Kynning á Orkurannsóknaráætlunum Evrópusambandsins,
JOULE og THERMIE. Farið verður yfir þá möguleika sem
standa til boða innan áætlunarinnar og hvaða kröfur eru
gerðar til umsækjenda, með tilliti til væntanlegrar þátttöku
íslenskra aðila:
- Enzo Millich, orkumálaráðuneyti ESB
- Francisco Lasa, orkumálaráðuneyti ESB
12:15-12:45 Umræður
Skráning fer fram hjá Rannsóknarráði íslands í síma 562-1320.
RANNÍS
'Abendingar á mjólkummbúðum, nr. 12 af 60.
Góðan
dag!
Blessaður! Sæll! HeiII og sæll!
Sæl og blessuð! Komdu blessuð og sæl!
Vertu sæll! Verið þið öll blessuð og sæl!
Við íslendingar eigum nóg af fallegum
og hlýlegum kveðjum.
Innantóm
„hæ“ og „bæ“
gætu þó hæglega
útrýmt þeim ef
við höldum ekki
vöku okkar.
Sýnum hvert öðru þá virðingu
að heilsast og kveðjast á íslensku!
MJÓLKURSAMSALAN
íslenskufrteðsla á mjólkurumbúðum er samstarfsverkefni Mjðlkursamsölunnar,
íslenskrar málnefndar og Málrœklarsjóðs.
I DAG
Farsi
„ Tb'rrtfis þó,áttc/ ekkert annaJÖ tíl s/v
ísbjór?"
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Athyglisverð
blaðagrein
ANNA hringdi og vildi
vekja athygli á mjög góðri
grein sem birtist í Morg-
unblaðinu miðvikudaginn
25. október sl. Greinin er
eftir Helgu Siguijónsdótt-
ur og er opið bréf til for-
eldra. Greinar Helgu um
skólamál eru allar mjög
athyglisverðar, því hún
kemur að ýmsum efnum
sem ekki hafa verið mikið
rædd annars staðar í
seinni tíð. Vill Anna vekja
athygli foreldra og ann-
arra á þessum greinum
Helgu og þá ekki síst
greininni sem birtist sl.
miðvikudag.
Börnin
heim
GRÓA hringdi og vildi
koma með fyrirspurn til
ríkisstjómarinnar um
hvort ekki sé hægt að
aðstoða Sophiu Hansen
fjárhagslega í baráttu
hennar fyrir að fá börnin
sín heim. Sophia er búin
að standa í þessari bar-
áttu í fimm ár og ekkert
hefur gengið ennþá og
líklegt er að hún sé fjár-
vana - en einhver úrslita-
stund mun vera í málinu
núna seinnipartinn í nóv-
ember. Er ekki hægt að
hjálpa Sophiu eins og
öðrum sem nú eru nauð-
staddir?
HÖGNIHREKKVÍSI
„ FLjóturf ^7
CTcé
♦ þakjcc^þér fyrir. "
LEIÐRÉTT
Grímur Heiðland
I fyrirsögn, formála og
texta minningargreina um
Grím Heiðland Lárusson á
blaðsíðu 42 og 43 í Morg-
unblaðinu í gær, þriðudag
31. október, er misfarið
með nafn hins látna og
hann nefndur Heiðlund og
Heiðdal. Þá láðist að nefna
böm Gríms og Magneu
Halldórsdóttur. Þau em:
Reynir, Lárus Halldór,
Bára, Helgi, Guðrún og
Sesselja. Hlutaðeigendur
eru innilega beðnir afsök-
unar á þessum mistökum.
Með morgunkaffinu
> Ast er...
t í * S — / /
f '
, 10-19
reynslu sem setur mark sitt á þig.
TM Reg. U.S. Pat. Ofl. — «H rights r«served (C) 1995 Los Angolos Tlmos Byndtoate
ÞJÓNN! Það er súpa
á flugunni minni.
Hlutavelta
ÞESSIR duglegu strákar héldu nýlega hlutaveltu og notuðu
ágóðann sem varð kr. 885 til styrktar Félagi heymarlausra.
Þeir heita Magnús Guðmundsson og Ásgeir Valur Einarsson.
Víkveiji skrifar...
FÉLAG framhaldsskólanema
stóð með mikilli prýði að blys-
för þeirri sem farin var niður
Laugaveg að Ingólfstorgi í fyrra-
kvöld, til að minnast fómarlamba
snjóflóðsins á Flateyri og sýna
syrgjendum hluttekningu. Það var
ákaflega áhrifarík sjón að fylgjast
með tugum þúsunda ganga í þögn
niður Laugaveginn, með kyndla eða
blys og safnast síðan saman í bæn
á Ingólfstorgi. Félag1'framhalds-
skóla á heiður skilinn fyrir hvernig
til tókst og sömuleiðis þeir tugir
þúsunda Islendinga sem sýndu sam-
hug sinn í verki, með þátttöku í
göngunni.
xxx
AÐ TÓKST frábærlega til með
samsendingu sjónvarpsstöðv-
anna í fyrrakvöld, í tilefni af lands-
söfnuninni Samhugur í verki. Vík-
verji hefur heyrt í fjölda manns sem
fylgdist með útsendingunni frá upp-
hafí til enda og er það mál manna
að mjög smekklega hafi verið að
dagskrárgerðinni staðið á alla lund.
Falleg og innihaldsrík huggunarorð
voru flutt Flateyringum hvaðanæva
af landinu, tónlistaratriðin voru vel
valin, með tilliti til sorgaratburð-
anna og samstarf sjónvarpsmanna
frá Ríkisútvarpinu og Stöð 2 var
eins og best verður á kosið. Vík-
verji veit að hann tilheyrir mjög
stórum hópi íslendinga sem var
djúpt snortinn þegar sent var út
þakkarávarp Magneu Guðmunds-
dóttur, sem tekið hafði verið upp í
litlu kirkjunni á Flateyri. Magnea
lýsti því á afar fallegan hátt hversu
Flateyringar væru hrærðir og þakk-
látir fyrir samúð þjóðarinnar og
samhug, sem styrkti þá í raunum
þeirra.
xxx
SÍÐLA Á mánudagskvöld var á
dagskrá Ríkissjónvarpsins
annar þátturinn um Sameinuðu
þjóðirnar í tilefni 50 ára afmælis
þeirra. Víkverja þykir þáttaröð
þessi fyrir margar sakir athyglis-
verð, því óvenju gagnrýnum augum
er litið á störf Sameinuðu þjóðanna
undanfarna hálfa öld, í þessari
bresku heimildarþáttaröð. Spilling-
in innan samtakanna var sérstak-
lega til skoðunar í þessum þætti
og frómt frá sagt virðist víða vera
pottur brotinn í rekstri og skipu-
lagi þessara alþjóðlegu samtaka,
sem hafa innan sinna vébanda 190
þjóðir. WHO (Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin) fékk harkalega á bauk-
inn, fyrir dýra yfirbyggingu, fjára-
ustur í ráðstefnur, ferðalög, hvers
konar sólundun o.s.frv. á meðan
að börn þriðja heimsins liðu skort,
fengju ekki lyf og læknisumönnun,
WHO og starfsmenn stofnunarinn-
ar væru með öllu óþekkt fyrirbæri
á stórum svæðum Afríku, þar sem
mikil örbirgð og neyð ríkti, stofn-
unin hefði eytt milljarði til bygg-
inga á loftkældum húsum fyrir
starfsmenn sína í Sómalíu, en nú
væri starfsemi stofnunarinnar að
leggjast niður í landinu, mikið
væri lagt upp úr því af starfsmönn-
um WHO í Genf, þar sem höfuð-
stöðvar stofnunarinnar eru, að
veita fjárframlögum til þriðjaheims
ríkja, sem státuðu af glæstum sól-
arströndum, svo starfsmenn í opin-
berum erindum gætu sólað sig í 3
til 4 daga í lúxus, um leið og þeir
heimsæktu viðkomandi ríki, og svo
framvegis og svo framvegis. Reyn-
ist aðeins brot af því sem fram
kemur í þessari þáttaröð á rökum
reist, er það skelfilegt.