Morgunblaðið - 01.11.1995, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995 47
I DAG
Árnað heilla
Ljósm.stúdíó Péturs Péturssonar
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 8. júlí sl. í Áskirkju
af sr. Árna Bergi Sigur-
björnssyni Guðlaug Jóns-
dóttir og Skúli Sigurz.
Heimili þeirra er í Vestur-
brún 8, Reykjavík.
BBIDS
llmsjón Guðmundur Páll
Arnarson
HIN „fjöllynda" opnun á
tveimur tíglum, gjaman
nefnd „multi“ í daglegu tali
bridsspilara, hefur þann
megintilgang að skapa
glundroða í herbúðum and-
stæðinganna. Tvíeðli opn-
unarinnar bitnar þó einstaka
sinnum á þeim er síst skyldi.
Á minningarmótinu um Ein-
ar Þorfmnsson um síðustu
helgi freistaðist einn spilari
til að opna á „multi“ með
spil vesturs hér að neðan,
þó svo hann ætti aðeins
fimmlit í spaða. Sú léttúð
hafði ófyrirséðar afleiðingar.
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ -
▼ Á10654
♦ G1094
♦ Á764
Vestur Austur
+ D9876 ♦ ÁKG105442
ií. ■
+ KG109 ♦ g53
Suður
♦ -
V KDG973
♦ KD765
♦ D2
Vestar Norður Austar Suílur
2 tíglar' Pass 2 grönd" 4 hjörtu
Pass Pass ■Dobl*" Pass
Pass Pass
‘ Multi, þ.e. 6-litur í hjarta
eða spaða, 5-10 punktar.
" Spuming um eðli opnun-
arinnar.
“ I þeirri fullvissu að litur
makkers sé hjarta.
Þetta er dæmi um mulfi-
ógöngur eins og þær gerast
„glæsilegastar". Með áttlit í
spaða var austur aldrei í vafa
um hver litur makkers væri,
enda aðeins 13 spil í hverjum
lit. Einhverra hluta vegna
vildi hann þó heyra hljóðið í
makker einu sinni og spurði
því með tveimur gröndum.
Ef til vill var einhver sterk
hönd inni í opnuninni, jafn-
skipt eða þrílita. Pass vesturs
við ijórum hjörtum hefur lík-
lega komið austri svolítið á
óvart, en sumir spilarar em
hreinlega tregir til að doblal
Vestur spilaði spaða út í
byijun og Gylfi Baldursson í
sagnhafasætinu horfði þrumu
lostinn á blindan. Á ýmsu
átti hann von, en ekki útspili
í tvöfalda eyðu. Gylfi tromp-
aði í borði og henti laufi heima
— sex unnir.
„Við eram sennilega eina
parið í salnum sem nær ekki
slemmunni," sagði félagi
hans, Sigurður B. Þorsteins-
son, áhyggjufullur.
Vissulega var það rétt hjá
Sigurði að slemmur voru spil-
aðar á báða bóga út um allan
sal: sex hjörtu og sex spaðar,
jafnvel sjö. En með bestu
vörn fást þó aðeins 11 slagir
í hvora átt.
Ljósm.stúdíó Péturs Péturssonar
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 26. ágúst sl. í Dóm-
kirkjunni af sr. Jakobi
Hjálmarssyni Vildís Björg-
vinsdóttir og Charles
Magnússon. Heimili þeirra
er í Reykjafold 22, Reykja-
vík.
Ljósm.stúdíó Péturs Péturssonar
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 19. ágúst sl. í Há-
teigskirkju af sr. Pálma
Matthíassyni Elsa Bára
Traustadóttir og Markús
Þorkell Beinteinsson.
Heimili þeirra er í Lönguhlíð
23, Reykjavík.
Ljósm.stúdíó Péturs Péturssonar
BRÚÐKAUP. Gefrn voru
saman 12. ágúst sl. í Bú-
staðakirkju af sr. Pálma
Matthíassyni Ester María
Ragnarsdóttir og Páil
Jónsson. Heimili þeirra er í
Yrsufelli 11, Reykjavík.
Ljósm.stúdló Péturs Péturssonar
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 4. ágúst sl. í Minn-
ingarkapellu Kirkjubæj-
arklausturs _af sr. Siguijóni
Einarssyni Ólöf Lárusdótt-
ir og Bjarmi A. Sigurgarð-
arsson. Heimili þeirra er á
Brimnesvegi 10, Ólafsfirði.
Ljósm. Berglind Baldursdóttir
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 2. september sl. í
Bessastaðakirkju af sr. Pétri
Þorsteinssyni Arnhildur
Ásta Jósafatsdóttir og
Wichert Jan van Aalder-
ink. Þau eru búsett í Hol-
landi.
SKÁK
llmsjón Margclr
Pctursson
HVÍTUR leikur og vinnur
Staðan kom upp á stór-
móti svissneska bankans
Credit Suisse sem nú er að
ljúka í Horgen. Heimamað-
urinnViktor Kortsnoj
(2.635) var með hvttt og átti
leik, en Hollendingurinn Jan
Timman (2.590) hafði svart.
Timman er orðinn með mis-
tækustu stórmeisturum og
var að enda við að leika
skelfilegum afleik, 29. —
Ha8- c8?? þegar þessi staða
kom upp. Rétt var 29. —
Df7! og staðan er enn tvísýn.
30. Bd6+! - Ke8 (Eða 30.
- Kg8 31. Dg5+ - Kh8 32.
Hxc8+ - Bxc8 33. f7!
— Dxf7 34. Be5+ og
mátar) 31. Hxc8+ —
Bxc8 32. f7+!! og Tim-
man gafst upp, því 32.
— Dxf7 er svarað með
33. Dc2 með tvöfaldri
hótun: 34. Dxc8 mát
og 34. Hxh7.
Staðan á mótinu var
þessi eftir níundu um-
ferðina á pánudags-
kvöldið: 1. ívantsjúk 6
v. af 8, 2. Kramnik
5 Va v. af 8, 3-4. Short
og Ehlvest 4'A v. af
8, 5. Kasparov 4 7* v.
af 9, 6-7. Kortsnoj og Gulko
4 v. af 8, 8. Júsupov 4 v. af
9, 9. Vaganjan 3 v. af 8,
10-11. Timman og Lautier
2 72 v. af 8.
Markverðustu úrslitin í
níundu umferð urðu þau að
Kasparov gerði jafntefli við
Kramnik í aðeins 13 leikjum,
þótt PCA-heimsmeistarinn
stýrði hvítu mönnunum.
ívantsjúk vann Júsupov og
tók forystuna.
Ljósm.stúdíó Péturs Péturssonar
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 8. júlí sl. í Háteigs-
kirkju af sr. Guðmundi Ósk-
ari Ólafssyni Þóra Guðný
Ægisdóttir og Guðjón
Kristinsson. Heimili þeirra
er á Lindarbraut 2, Seltjam-
arnesi.
STJÖRNUSPÁ
eftlr Franccs Drakc
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins:
Þú býrð yfir miklum hæfi-
leikum oggetur náð langt
í iífinu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) a*
Þú þarft að sýna vini eða
ættingja 1 vanda tillitssemi í
dag og rétta fram hjálpar-
hönd. Þér berst spennandi
heimboð.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að hafa samráð við
ástvin áður en þú tekur
ákvörðun um fjárfestingu í
dag. Hlustaðu vel á góð ráð
sem þér era gefin.
Tvíburar
(21. maí- 20. júní) 5»
Reyndu að sýna þrasgjörnum
starfsfélaga skilning og þol-
inmæði í dag. Eitthvað óvænt
verður til þess að bæta af-
komu þína.
Krabbi
(21. júnl — 22. júlí) HS0
Heimilið og fjölskyldan hafa
algjöran forgang í dag, og
þú hefur í mörg hom að líta.
Bjóddu ástvini í kvöldverð við
kertaljós.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) <ef
Láttu það ekki á þig fá þótt
dráttur verði á stöðuhækkun,
sem þú áttir von á. Úr rætist
fljótlega og fjárhagurinn
batnar.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Með góðri samvinnu ástvina
tekst þér að koma ár þinni
vel fyrir borð í dag og tryggja
fjölskyldunni betri afkomu í
framtíðinni.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Gættu þess að lesa vel smáa
letrið áður en þú undirritar
samning í dag ef þú vilt koma
í veg fyrir vandræði síðar
meir.
Sporódreki
(23.okt. - 21. nóvember)
Aukin samkeppni í vinnunni
hvetur þig til dáða, og þú
nærð góðum árangri. Vinir
og ættingjar veita þér mikinn
stuðning.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) &
Vanræktu ekki skyldustörfin
heima í dag. Gamall vinur,
sem þú hefur ekki séð lengi,
kemur óvænt í heimsókn.
Fjárhagurinn batnar.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar) .
Umbætur sem þú stóðst fyrir
í vinnunni eru farnar að skila
árangri, og þér berast góðar
fréttir varðandi fjármálin.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Hlustaðu á góð ráð vinar, því
þau geta fært þér velgengni.
Á næstunni gefst þér óvænt
tækifæri til hvíldar og
skemmtunar.
Fiskar
(19. febrúar- 20. mars)
Ef þú lætur hendur standa
fram úr ermum í vinnunni í
dag nærð þú umtalsverðum
árangri. Gamall draumur er
við það að rætast.
Stjörnuspána á aó lesa sem dœgra-
dvöl. Spár af þessu tagi byggjast
ekki á traustum grunrli visindalegra
stadreynda.
Sjónarhorn
Fituneysla bama
tengd holdafari
foreldra
Á seinni árum hefur því verið haldið fram, að
börn o g unglingar séu feitari en jafnaldrar
þeirra voru á fyrri árum. Margrét Þorvalds-
dóttir segir að nýlegar rannsóknir leiði í ljós
að tengsl eru á milli neyslu barna á fíturíkum
fæðutegundum og holdafari foreldra þeirra.
til að fullnægja öðrum
þðrfum en hungri. Börn
hafa tilhneigingu til að
líkja eftir mataræði
foreldra sinna þegar
þau yfirgefa heimilið.
Ráð við offitu
er fituminni matur
í SEPTEMBERBLAÐI tímaritsins
Inform segir frá nýlegri rannsókn
sem var gerð við Illinois-háskóla
á neyslumunstri 3-5 ára bama.
Hún leiddi í Ijós að jafnvel þó að
lagður væri fýrir bömin málsverð-
ur þar sem 32% orka kæmi úr
fitu kom í ljós að um tæpur helm-
ingur þeirra sótti í fæðutegundir
þar sem orkan kom út fitu. Við
nánari skoðun reyndist dálæti
þessara bama á fituríkari fæðu-
tegundum vera í beinum tengslum
við holdarfar foreldranna.
Börn sem eiga við
offitu að stríða fá sér
oft aukabita utan mat-
artíma. Hreyfingarleysi;
sem oft fylgir offitu,
kemur í veg - fyrir
brennslu á umframorku
og svo er það sjónvarps-
glápið. Kannanir hæfa leitt í
ljós að eftir því sem börn horfa
meira á sjónvarp þjást þau oftar
af offitu, bæði vegna hreyfingar-
leysis og fitandi nasls sem oft er
haft innan seilingar.
Flestir sem beijast við offítu
vilja gjarnan losna við aukakílóin
og eru alls konar ráð í boði fyrir
þá sem viljað hemja matarlistina.
Sumir leita kostnaðarsamra
lausna sem oft reynast gagn-
lausar eða em beinlínis hættuleg-
ar. Þó þekkja allir ráðið góða sem
aldrei bregst, en það er að borða
fítuminni mat og borða í hófí.
Orsakir offitu
geta verið margvíslegar
Rannsókn þessi er þó ekki ein-
hlít. í bókinni „Understanding
nutrition“ er kafli um orsakir of-
fitu. Þar segir að umfram líkams-
fita hlaðist upp þegar fólk taki
inn meiri fæðuorku en það þurfi
fyrir dagleg efnaskipti og störf
vöðva og meltingu. Ekki er vitað
hvers vegna fólk borðar meira en
það þarf. Leitað hefur verið svara
m.a. í erfðaþáttum, umhverfis-
þáttum, andlegu ástandi, skap-
gerð og liffræðilegum þáttum.
Enginn hefur fundið eitt algilt
svar, enda er offita talin hafa
margar orsakir.
Neysluvenjur móta
holdafarið
Hvað erfðir og umhverfisþætti
snertir þá hefur verið kannað
hvort ættleidd börn líkist meira
fósturforeldrum sínum en líf-
fræðilegum foreldram. Niður-
stöður leiddu í ljós að tilhneiging
til offitu liggi í erfðaþáttum, en
að áhrif frá umhverfinu geti
hindrað að fita verði að vanda-
máli. Því hefur verið haldið fram
að offita liggi í ákveðnum fjöl-
skyldum. Kannanir hafa sýnt að
ef annað foreldrið er feitlagið eru
40 prósent líkur á að barnið verði
það einnig, ef hvorugir foreldrar
eru of feitir eru líkurnar 7 pró-
sent. Ef aftur á móti báðir foreldr-
ar eru haldnir offitu eru 80 pró-
sent líkur á að börnin verði það
líka.
Þó að offita geti legið í fjöl-
skyldum styður það ekki kenning-
una um erfðaþáttinn einan og
sér, fleira kemur til. Þær venjur
sem börn læra snemma á ævinni
fylgja þeim oft á lífsleiðinni. Fjöl-
skyldur sem leggja mikla áherslu
á mat, borða oft meira en þörf er
á við máltíðir, þær borða hratt,
grípa oft til nasls og borða oft
Mátargerð þarf að
kenna í sjónvarpi
Þar sem neyslumunstur er að
breytast þarf að kenna, sérstak-
lega unga fólkinu, að matbúa
holla, einfalda og bragðgóða
málsverði. Ungt fólk sem er að
hefja búskap þarf og vill læra að
útbúa venjulega málsverði, þ.e.
mat sem það hefur efni á að borða
daglega.
Sjónvarpið er kjörið til sýni-
kennslu. Matargerðarþættir sem
þar era sýndir era skemmtiþættir
en ekki kennsluþættir. Það er
beinlínis sorglegt að sjá hve þar
er farið illa með góðan útsending-
artíma. Oft er sumt hráefni sem
þar er notað fólki framandi eða
ekki á markaði. Síðan er notkun
á feitmeti eins og smjöri og ijóma
með ólíkindum. Slíkt fitubraðl í
matargerð stuðlar að offitu og er
í algjörri andstöðu við áherslur í
nútíma matargerð og manneldis-
markmið.
Góð kunnátta í matargerð
fellur undir forvarnir
Þeirri ósk er hér með beint til
stjórnenda sjónvarpsstöðva að
þeir stuðli að því að boðið verði
upp á kennsla í matreiðslu í sjón-
varpi. Þættirnir þurfa að vera vel
undirbúnir. í upphafi hvers þáttar
þarf að liggja á borðinu allt sem
á að fara í málsverðinn og sýna
síðan meðhöndlun og fulla nýt-
ingu á hráefninu. Slíkir þættir
þurfa að vera í höndum fólks sem
hefur þjálfun í kenna matreiðslu
og þeir þurfa að vera á góðum
sýningartíma í miðri viku eða síð-
degis á laugardegi.
Markviss kennsla i matreiðslú
í fjölmiðli eins og sjónvarpi getur
haft mikil áhrif á mataræði,
holdafar og heilsu þjóðar. Slíka
fræðslu má fella undir forvarnir
í heilbigðismálum þegar til lengri
tíma er litið.