Morgunblaðið - 24.11.1995, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KATRÍN opnar sýningu á vatnslitamyndum á laugardag.
Vatnslitamyndir
Katrínar í Fold
Djasskvint-
ett Paul We-
eden í Hótel
Hveragerði
DJASSKVINTETT Paul Weeden
mun leika í Hótel Hveragerði á
vegum Tónlistarfélags Hveragerð-
is og Ölfuss laugardagskvöldið 25.
nóvember.
Bandaríski gítarleikarinn Paul
Weeden á að baki langan feril í
djasstónlist. Weeden er alinn upp
í Indianapolis þar sem hann átti
samleið með verðandi frægðar-
mönnum í djassheiminum. Ungur
lagði hann land undir fót og fór
og lék með kunnum djassleikurum.
Hann hefur búið í Noregi síðast-
liðin 20 ár en hefur leikið meðal
annars með stórsveit Count Basie
í þrjú ár. Hann kemur nú til lands-
ins í áttunda skipti.
Kvintettinn skipa auk hans þeir
Sigurður Flosason sem leikur á
alto- saxófón, Árni Scheving á
vibrafón, Bjarni Sveinbjömsson á
kontrabassa og Einar Scheving á
trommur.
Tónleikarnir standa frá kl.
20.30 til 22.30. Aðgangseyrir er
kr. 800. Þess má geta að miðnæt-
ursýning verður á Skjaldhömrum
Jónasar Árnasonar og hefst hún
kl. 23.30.
------» ♦ ♦------
RITHÖFUNDURINN Kazuo Ish-
iguro hlaut fyrir skömmu heims-
veldisorðuna bresku (OBE). Það
var Karl prins sem afhenti Ishig-
uro orðuna í viðurkenningarskyni
fyrir þjónustu í þágu bókmennt-
anna.
SÝNING á vatnslitamyndum
Katrinar H. Ágústsdóttir i Gall-
erí Fold við Rauðarárstíg verður
opnuð á laugardag kl. 15. Sýn-
inguna nefnir listakonan Húsin
þrjú - stjórnarsetrin. I kynning-
arhorni gallerisins sýnir Ásdis
Sigurþórsdóttir verk unnin úr
pappír.
Katrín stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands,
Kennaraháskóla íslands og
Myndlistaskólann í Reykjavík,
auk þess sem hún hefur farið í
námsferðir til Danmerkur og
Finnlands.
Katrín hefur haldið fjölda
einkasýninga og tekið þátt í sam-
sýningum hérlendis og erlendis.
LISTIR
Hún hefur fengið viðurkenning-
ar og verðlaun fyrir liststörf sín.
Á undanförnum árum hefur hún
lagt stund á vatnslitamálun og
textíl. Myndefnið sækir hún eink-
um í húsaþyrpingar í Iteykjavík
og íslenskt landslag. Katrín
kennir listgreinar við Kvenna-
skólann í Reykjavík.
Ásdís Sigurþórsdóttir útskrif-
aðist frá grafíkdeild Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1980
með sérhæfingu í serigrafi. Á
árunum 1994-95 nam hún við
Ontario College of Art í Toronto
í Kanada, en þar lagði hún stund
á málun. Hún hefur haldið nokkr-
ar einkasýningar og tekið þátt í
samsýningum.
REF
Forsala vegabréfa er hjá Flugleiðum í Kringlunni
og Samvinnuferðum - Landsýn í Austurstræti.
í hvaða landi gilda
þessi vegabréf?
Fjölskylduhátíð jólasveinsins í Hveragerði hefst
1. desemher. Sankti Kláus
fagnar því að hafafundið
þarfjölskyldu sína eftir
langan aðskilnað við þau
Grýlu, Leppalúða og
jólasveinana þrettán og
býður allar íslenskar
fjölskyldur velkomnar.
Jólahœrinn er Ijósum
prýddur, verslanir og
þjónustufyrirtœki bjóða gott
verðáhvers konar
jólavörum og tívolíhúsið er
orðið að risastóru Jólalandi
ineð markaðstorgi,
veitingahúsi, húsdýragarði,
stœrsta jólatré á Islandi,
skemmtidagskrá og ósviknu tívolíi
frá Englandi.
Hátíðin hefst 1. desemher. Tryggið ykkur vegabréfá
vit ævintýranna!
EIMSKiP
FLUGLEIÐIR
NNANLANDS
Valdimar
í Iðunni
BOKMENNTIR
Æ v i s a g a
ÉG SKRIFAÐI MIG í
TUGTHÚSIÐ
Valdimar Jóhannsson bókaútgefandi
segir frá. Eftir Gylfa Gröndal. For-
lagið 1995 - 260 síður.
FYRIR kemur að þegar lestri
ævisögu iýkur hugsar maður eitt-
hvað á þessa leið: Var nokkur þörf
á að þessi saga væri sögð á prenti?
Hveijum kemur hún við öðrum en
skyldmennum og nánum vinum?
Eða: Af hveiju var nú verið að skrifa
þetta fyrst öllu var
sleppt sem máli skipti?
Ævisagan skilur mann
eftir skilningsvana á
þann sem um var fjall-
að. Og svo er það viða-
mesta spurningin: Stóð
þessi maður undir ævi-
sögu?
Þessum vangaveltum
kem ég að í upphafi
máls til að leggja
áherslu á að engar slík-
ar vangaveltur þurfa að
sækja að manni varð-
andi ævisögu Valdimars
Jóhannssonar. Valdi-
mar er tvímælalaust
merkur maður, sem
markað hefur þau spor
í samtíma sinn að þess mun lengi
sjá stað. Á miklum átakatímum var
hann í forystusveit manna sem héldu
fram ákveðnum þjóðmálaskoðunum.
Og hann er einn örfárra íslendinga
sem hafa orðið þess heiðurs aðnjót-
andi að sitja í fangelsi fyrir skoðanir
sínar. Þá var Valdimar um langt
skeið mikilvirkur bókaútgefandi. Um
tíma sá stærsti hérlendis. Fjölmörg
eru þau bókmenntaverk sem komið
hafa út á hans vegum og auðgað
íslenska bókmenningu. Því er full
ástæða til að saga hans sé sögð og
geymist á bók.
Athyglisverð er þessi saga einnig
á marga lund. Hún segir frá sveita-
pilti úr Svarfaðardal, sem elst upp í
fátækt, en hjá góðum foreldrum. Frá
unga aldri er þessi drengur haldinn
óslökkvandi lestrar- og fróðleiksþrá.
Hvar sem hann veit af bókum í daln-
um heijar hann þær út til lestrar og
það þó að þær liggi ekki alltaf á
lausu. Þessi drengur ætlaði sér vissu-
lega að ganga menntaveginn. En
þegar til átti að taka veiktist hann
af berklum og varð að leggja
menntaáform á hillu. Ekki lagði hann
þó árar í bát. Hann kemst síðar í
Kennaraskólann og enda þótt veik-
indi og fjárskortur hamli lýkur hann
kennaraprófi með glæsibrag. Hriflu-
Jónas, sem þá var valdsmaður mik-
ill, kemur fljótt auga á þennan unga
Svarfdæling, alinn upp í Framsókn-
aranda og býður honum kennslu við
Samvinnuskólann. Þar kennir hann
svo við góðan orðstír uns Jónas upp-
götvar að þessi ungi maður hefur
óþarflega sjálfstæðar skoðanir. Brátt
taka við sviptingaár í blaðamennsku
og stjórnmálum: Þjóðólfur - Þjóð-
vörn - Fijáls þjóð - Þjóðvarnarflokk-
ur. Og svo síðasti langi áfanginn:
bókaútgáfa. Þar er hægt farið af
stað, enda efni lítil sem engin. En
með hagsýni og forsjálni búmanns-
ins, hyggjuviti góðu og þrotlausri
vinnu blómgast fyrirtækið og hann
skilar því loks í hendur eftirkomenda
sem stórveldi.
Ferðinni lýkur þar
sem hún hófst, hringur-
inn lokast. Ungur
drengur safnaði um sig
bókum og las og las.
Gamall situr hann í stól
sínum með bókastafla
allt í kringum sig og
les. Síðasta setning ævi-
sögunnar, hins sílesandi
manns, er: ævi mín er
ævintýr.
Gylfi Gröndal er
þrautþjálfaður atvinnu-
maður um ritun ævi-
sagna. Því var ekki ann-
ars að vænta en að
ævisaga sem hann
færði í letur væri vel
gerð. Sú er og raunin
á, enda var honum fenginn góður
efniviður í hendur. Þessi ævisaga er
prýðilega vel rituð, skemmtileg af-
lestrar og efnismikil. Efninu er vel
fyrir komið og æviferill Valdimars
þess eðlis að áhugi lesandans helst
vel vakandi. Það sem mér fannst
helst að er hversu fljótt er stundum
farið yfir sögu. Og nú reyni ég
(kannski af hálfgerðri stríðni, sem
ég veit að Valdimar fyrirgefur mér)
að setja mig í spor bókaútgefandans
Valdimars Jóhannssonar, sem hefur
næma tilfinningu fyrir hvað er frá-
sagnarvert. Ég hefði þá líklega sagt
þegar Gylfi hefði komið með handrit-
ið: Ævisöguritun sem þessi þarfnast
lengri tíma. Taktu þér eitt ár í við-
bót. T.a.m. þarf töluvert meira að
segja frá bókaútgáfuárunum. Þar er
áreiðanlega frá mjög mörgu fróðlegu
að segja. Mönnum sem Valdimar
kynntist og hafði samskipti við.
Merkum bókum sem hann gaf út.
Ýmsum minnisstæðum atvikum. Og
síðast en ekki síst: Hver var galdur-
inn á bak við velgengni hans fram
yfir marga aðra? Frá þessu er að
vísu nokkuð sagt, en alltof lítið. Já,
taktu þér lengri tíma. Valdimar í
Iðunni stendur vel undir tveimum
bindum!
En eins og ég hef stundum áður
sagt: Aðall góðra bóka er einatt sá
að manni finnst þær of stuttar.
Sigurjón Björnsson
Valdimar
Jóhannsson
EITT verka Jóhanns, Undir bláum himni.
Sýningu Jóhanns G. að ljúka
MYNDLISTARSÝNINGU Jó-
hanns G. Jóhannssoar myndlist-
ar- og tónlistarmanns, í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar í Garðabæ
og í Jakobsstofu, Argentínu
steikhúss, lýkur nú á sunnudag,
en þann dag verður sýningin
opin í Sparisjóði Hafnarfjarðar
í Garðabæ frá kl. 14-18. Lista-
maðurinn verður viðstaddur.
Jóhann sýnir um tuttugu
myndir á hvorum stað.
1
r
>
\
>
í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i