Morgunblaðið - 24.11.1995, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995 25
LISTIR
Morgunblaðið/Árni Helgason
LEIKARAR í Leikfélaginu Grímni sýna hvernig lífið í sveitinni gekk fyrir sig.
Leikfélagið
Grímnir sýnir
Svein sáluga
í Spjör
Bústaðakirkja
Kveðjutónleikar Lúðra-
sveitar verkalýðsins
Nýjar bækur
Skáldsaga eftir
Helga Ingóifsson
SKÁLDSAGAN Letr-
að í vindinn - Þúsund
kossar eftir Helga
Ingólfsson er komin
út.
Sagan er' sjálfstætt
framhald verðlauna-
skáldsögu Helga,
Letrað í vindinn -
Samsærið, sem hlaut
bókmenntaverðlaun
Reykjavíkurborgar á
síðasta ári.
í þessari nýju bók
leiðir höfundur les-
endur sína inn í heim
Rómveija á viðsjár-
verðum tímum
skömnmu áður en Júl-
íus Cesar er myrtur. Andrúmsloft-
ið er lævi blandið og gjörðir flestra
í opinberu lífi stjórnast af valda-
fíkn og fégræðgi. Margt stór-
mennið kemur við sögu, þar á
meðal Pompejus og Cíceró, auk
Caesars. Skáldinu Catúllusi og
vinum þeirra er fylgt
í sorgum þeirra og
ástum, einkum þó ást
skáldsins á hinni
spilltu og vergjörnu
Kládíu sem reynist
örlagavaldur i lífi
margra.
„I sögunni Letrað í
vindinn - Þúsund
kossar tvinnast sam-
an yfirgripsmikil
þekking sagnfræð-
ingsins og frásagnar-
gleði höfundarins,
Helga Ingólfssonar,
en hann hefur um
nokkurt skeið kennt
sagnfræði við
Menntaskólann í Reykjavík," segir
í kynningu.
Útgefandi er Mál og menning.
Letrað í vindinn er 4 71 bls., unnin
í Prentsmiðjunni Odda hf. Margrét
E. Laxness hannaði kápuna. Verð
3.880 kr.
Helgi
Ingólfsson
Stykkishólmi. Morg’unblaðið.
LEIKFÉLAGIÐ Grímnir í Stykk-
ishólmi frumsýndi nú um daginn
leikritið „Sagan um Svein sáluga
í Spjör og samsveitunga hans“
eftir þær Onnu Kristínu Kristjáns-
dóttur og Unni Guttormsdóttur.
Leikstjóri er Vigdís Jakobsdóttir.
Leikendur eru 11 og þar eru
nokkrir sem eru að stíga sín fyrstu
spor á Ieiksviði. Og miðað við hve
vel þeim tókst upp er öruggt að
sporin eigai eftir að verða fleiri á
sviðinu. Leikritið er ekki efnism-
ikið, en hnittin tilsvör og góður
Ieikur fær gesti til að hlæja og
hafa gaman af.
Þetta er 30. verkefni félagsins
á tæpum 30 árum. Það er þvi
óhætt að segja að starfsemi félags-
ins hafi verið blómleg og það er
vel Iifandi í dag. Það er dugmikil
sljórn sem stýrir nú leikfélaginu
og er formaður hennar Guðmund-
ur Bragi Kjartansson.
LÚÐRASVEIT verkalýðsins held-
ur árlega hausttónleika sína í
Bústaðakirkju laugardaginn 25.
nóvember kl. 17.
Á efnisskrá tónleikanna eru
meðal annars verk eftir Tchaikov-
sky, Garbriel Fauré, Frank Erick-
son, Trevor L. Sharpe, Stevie
Wonder, Malcolm Arnold, Atla
Heimi Sveinsson og Emil Thorodd-
sen að ógleymdum John Philip
Sousa.
Tónleikarnir eru kveðjutónleik-
ar stjómanda sveitarinnar til síð-
ustu fímm ára, Malcolm Holloway.
Lagaval á tónleikunum tekur mið
af því og verða eingöngu flutt
nokkur af þeim verkum sem best
þykja hafa tekist í flutningi sveit-
arinnar á síðustu fimm árum. Alls
eru hljóðfæraleikarar í Lúðrasveit-
inni 48 talsins.
Adidasvörur í miklu úrvali.
Sportkringlan
Kringlunni, sími 568 6010.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis, en sú nýbreytni er tekin
upp með þessum tónleikum að
tónleikagestum gefst færi á að
styrkja gott málefni í leiðinni. Að
þessu sinni verður tekið við fijáls-
um framlögum í hléi til styrktar
aðstandendum Marínar Hafsteins-
dóttur, litlu stúlkunnar sem bíður
hjartaaðgerðar í Bandaríkjunum.
Scetirsófar
á óviðjafnanlegu verði
HÚSGAGNALAGERINN
Smiðjuvegi 9 (gul gata) - Kópavogi - slmi 564 1475 Opið mán.-fös. 13-18, lau. 11-14.
Sími 555 0202 og 555 3848
Dögg
í Hafnarfirði
er 20 ára
Af því tilefni bjóðum
við 20% afslátt af
öllum vörum þessa
helgi og allir
viðskiptavinir fa
óvæntan giaðning.