Morgunblaðið - 24.11.1995, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995 43
FRÉTTIR
Ríó tríóið heldur tónleika í tilefni 30 ára söngafmælis
Fræðasetrið
EJ ölskyldutónleikar
í túninu heima
RÍÓ tríóið heldur fjölskyldutón-
Ieika í tilefni af 30 ára söngaf-
mæli sínu og 40 ára afmæli
Kópavogskaupstaðar í íþrótta-
húsinu í Digranesi laugardaginn
25. nóvember kl. 17. Yfirskrift
tónleikanna er í túninu heima
og fylgir sú skýring að tríóið
hafi upphaflega byrjað að raula
við gítarundirleik í bjartri vor-
nótt á Digranestúni.
Helgi Pétursson sagði að
hann, Olafur Þórðarson og Hall-
dór Fannar hefðu stofnað Ríó
tríóið í gagnfræðaskóla Kópa-
vogsskóla fyrir um 30 árum.
Tríóið hefði upphaflega notast
við tvo lélega kassagítara og _
notið velvilja skólayfirvalda Alf-
hólsskóla vegna æfingahús-
næðis. Tónleikahaldið hefði svo
smám saman undið upp á sig
og hefði tríóið gefið út tæplega
20 hljómplötur og farið í ótal
tónleikaferðir híér heima og er-
lendis. Tríóið hefur verið með í
fjölmörgum útvarps- og sjón-
varpsþáttum á ferli sínum. Ag-
úst Atlason gekk til liðs við tríó-
ið árið 1968. Halldór Fannar
hætti hins vegar.
Um þessar mundir er verið
að vinna að gerð sjónvarpsþátt-
■ Á föstudags- og laugardags-
kvöld leikur danssveitin KOS sem
skipuð er þeim Sigurði Dagbjarts-
syni, Kristjáni Óskarssyni, Má El-
íssyni og Evu Ásrúnu. Á sunnu-
dags- og mánudagskvöld leika svo
þau Grétar Örvarsson og Sigga
Beinteins. Á þriðjudagskvöldið 28.
nóvember leika svo félagamir Ingi
Gunnar og Eyvi.
■ CAFÉ AMSTERDAM Trúbador-
inn Siggi Björns leikur fimmtu-
dags-, föstudags- og laugardags-
kvöld.
■ HÓTEL SAGA Á Mímisbar
leika Ragnar Bjarnason og Stefán
Jökulsson föstudags- og
laugardagskvöid. í Súlna-
sal föstudagskvöld frá kl.
22-3 leikur Geirmundur
Valtýsson ásamt hljóm-
sveit og á laugardagskvöld
er síðasta sýning á Ríó-
sögu. Á eftir sýningu
verður svo dansleikur með
Geirmundi.
■ Hljómsveitin Reaggie
on Ice leikur föstudags-
og laugardagskvöld á
Astró.. Dúndurfréttir
taka svo við og leika
sunnudags- og mánudags-
kvöld en þriðjudaginn 28.
nóvember verður haldið
Bítlakvöld í beinni út-
sendingu á Rás 2 þar sem
fram koma hljómsveitirnar
Sixties, Rúnar Júl., Jón
Ólafs o.fl. Á miðvikudag-
inn 29. og fimmtudaginn 30. nóvem-
ber leika 3 to One.
■ FÓGETINN Jón Ingólfsson leik-
ur föstudags- og laugardagskvöld.
Guðmundur Rúnar leikur einnig
sunnudags- og mánudagskvöld og
Jón Ingólfsson á þriðjudagskvöld. Á
miðvikudags- og fimmtudagskvöld
leikur trúbadorinn Halli Reynis.
■ LIPSTIKK heldur tónleika í
Rósenbergkjallaranum laugar-
dagskvöld en hljómsvcitin hefur und-
anfarið verðið að vinna að nýju efni.
Þriðjudaginn 28. og miðvikudaginn
29. nóvember verða svo tónleikar í
Vitanum, Hafnarfirði.
■ BLÁA LÓNIÐ Dans- og diskó-
hljómsveitin Hunang heldur stórdis-
kóball í Bláa Lóninu laugardags-
kvöldið 25. nóvember. Skemmtunin
hefst kl. 23, 18 ára aldurstakmark.
ar um tríóið og verður tækifær-
ið gripið og myndað á tónleikun-
um á laugardaginn. Helgi sagði
að sérstaka ánægju þremenn-
inganna vekti að þeim til fullt-
ingis yrðu Skólahljómsveit
Kópavogs undir stjórn Ossurar
Geirssonar og Kór Kársnesskóla
undir stjórn Þórunnar Björns-
dóttur. Yngri deild Skólahljóm-
sveitarinnar leikur í anddyri
íþróttahússins fyrir tónleikana.
Að því loknu tekur tríóið við og
syngur kórinn með því nokkur
lög. Því til viðbótar fær tríóið
til liðs við sig þekkta tónlistar-
menn á borð við Szymon Kuran
fiðluleikara, Reyni Jónasson
harmóníkuleikara og Björn
Thoroddsen gítarleikara, og
með þeim leikur hljómsveitin
Saga Class.
Þekktlög
Helgi sagði að reynt yrði að
höfða til allrar fjölskyldunnar á
tónleikunum. „Við leikum og
syngjum flest af okkar þekkt-
ustu lögum. Ég get svo nefnt
að við fáum Kársnesskólakórinn
til að syngja með okkur Kópa-
vogsbraginn svokallaða og við
syngjum með þeim mjög fallegt
■ VINIR VORS OG BLÓMA flýg-
ur vestur á Isafjörð laugardaginn
25. nóvember og leikur í Sjallanum.
Aldurstakmark er 18 ár.
■ DRAUMALANDIÐ leika á dans-
leik nemenda Fjölbrautaskóla Vest-
urlands föstudagskvöld á Hótel
Akranesi.
■ BJARNI TRYGGVA OG TEIT-
UR GUÐNA hafa slegið saman í dúó
og Ieika föstudasgkvöldið í Dalabúð
í Búðardal. Á laugardagskvöld leika
félagarnir á bjórhátíðinni á Hótel
Akranesi þar sem skemmtunin hefst
kl. 23.
■ GARÐAKRÁIN, GARÐABÆ Á
föstudags- og laugardagskvöld leikur
hljómsveitin Klappað og klárt með
þeim Garðari Karlssyni og Onnu
Vilhjálmsdóttur.
■ MAMMA RÓSA Á föstudags- og
laugardagskvöld skemmtir Viðar
Jónsson gestum.
■ HÓTEL ÍSLAND Á föstudags-
og laugardagskvöld er Tommy
Dorsey Sliow þar sem fram korna
17 hljóðfæraleikarar undir stjórn
Buddy Morrow. Söngvari er Walt
Andrus. Gestasöngvari hljómsveit-
arinnar verður Björgvin Halldórs-
son og mun hann syngja þekktustu
lög Frank Sinatra. Eftir tónleikana
leikur hljómsveit Tommy Dorsey fyr-
ir dansi. Laddi sýnir í Asbyrgi föstu -
dags- og laugardagskvöld. A sunnu-
dagskvöld er svo Kántrý-dansleikur
frá kl. 21-1.
Ríó tríóið
HELGI, Ágúst og Ólafur
í góðri sveiflu.
grískt lag,“ sagði Helgi.
Þó tónleikarnir verði ekki
endurteknir starfar Ríó tríóið
enn af fullum krafti og leikur
og syngur á Hótel Sögu um
hveija helgi. „Við erum hættir
að lofa því að hætta,“ sagði
Helgi í því sambandi í léttum
dúr.
„Tríóið er farið að verða fyr-
ir okkur eins og spilaklúbbur
fyrir öðrum og við virðumst
aldrei ætla að verða þreyttir
hver á öðrum.“
■ ÓÐAL Á föstudags- og laugar-
dagskvöld heldur Egill Ólafsson
tónleika á jarðhæðinni þar sem hann
flytur frumsamnin lög og tónlist eft-
ir aðra. Á miðhæð verður lifandi tón-
list. Söngvari er Bjarni Ara. Á
sunnudasgkvöld verður svo Bogomil
Font með Kurt Wald-tónleika á mið-
hæðinni.
■ NÆTURGALINN Hljómsveitin
Fánar leika um helgina.
■ IN BLOOM heldur tónleika
laugardagskvöld á Tveimur vinum
þar sem hljómsveitin kynnir nýtt efni
sem út kemur á næsta ári.
■ FEITI DVERGURINN Á föstu-
dags- og laugardags-
kvöld leika Arnar og
Þórir.
■ ARI í ÖGRI Síðustu
tónleikar írska hljómlist-
armannsins Tisch Frier
verða föstudags- og
laugardagskvöld.
■ SIXTIES leikur
föstudags- og laug-
ardagskvöld í Ránni,
Keflavík. Sixties var að
ljúka við upptökur á
plötu sem kemur út fyr-
ir jólin. Platan ber nafn-
ið Jólaæði og segir í til-
kynningu að jólahátíðin
verði skoðuð frá nýju
sjónarhorni. Platan er
væntanleg um mánaða-
mótin.
■ ÁSLÁKUR MOSFELLSBÆ Á
föstudags- og laugardagksvöld leikur
E.T. bandið.
■ CAFÉ ROYALE Á föstudags-
kvöld leikur hljómsveitin Hunang og
á laugardagskvöld leikur Guðmund-
ur Rúnar.
■ VINIR DÓRA halda útgáfutón-
leika á Hótel Tanga, Vopnafirði, í
tilefni útkomu geisladisksins Hittu
mig sem nýlega er komin út. Hljóm-
sveitipa skipa Halldór Bragason,
Jón Ólafsson og Ásgeir Óskarsson.
■ NORÐAN ÞRÍR + ÁSDÍS leika
laugardagskvöld á Blönduósi. Dans-
leikurinn er árlegur dansleikur
Styrktarsjóðs Ilúnvetninga. Einnig
verður efnt til happdrættis þar sem
vinningar verða veglegir.
í Sandgerði
opið
almenningi
FRÆÐASETRIÐ í Sandgerði verður
í fyrsta sinn opið almenningi helgina
'25. og 26. nóvember. Opnunartími
um helgar er frá kl. 11 fyrir hádegi
til kl. 17 síðdegis. Aðgangseyrir í
vetur er 200 krónur fyrir fullorðna
og 100 krónur fyrir börn.
Sérferðir á vegum setursins laug-
ardaginn 25. nóvember verða:
Gönguleiðir á söguslóðum með Pétri
Brynjarssyni, sagnfræðingi og Sand-
gerðingi. Lagt verður af stað frá
Fræðasetrinu kl. 13. Fuglaskoðun
með Jóhanni Óla Hilmarssyni, fugla-
fræðingi. Lagt verður af stað kl.
13.30. Fjöruferð með Svövu Stein-
arsdóttur, líffræðingi. Lagt af stað
frá Fræðasetrinu kl. 14.
Verð fyrir hverja sérferð þessa
byrjunardaga er 400 kr. á mann.
Áætlunarferðir eru til Sandgerðis
með SBK frá Umferðarmiðstöðinni r
Reykjavík.
Málþing um
mannréttindi
ogjafnt vægi
atkvæða
MANNRÉTTINDASTOFNUN Há-
skóla íslands stendur fyrir málþingi
laugardaginn 25. nóvember. Til um-
ræðu er spurningin: „Er jafnt vægi
atkvæða mannréttindi?" Málþingið
fer fram í stofu 101 Lögbergi og
hefst kl. 13.30. Fundarstjóri verður
Gunnar G. Schram prófessor.
Frummælendur á málþinginu
verða Atli Harðarson heimspekingur,
Jón Baldvin Hannibalsson alþing-
ismaður, Ólafur Þ. Þórðarson fyrr-
verandi alþingismaður og Sigurður
Líndal prófessor. Að loknum fyrir-
lestrum verða almennar umræður.
Stofnendur Mannréttindastofnun-
ar Háskóla Isladns eru, auk Háskól-
ans, Lögmannafélag Islands og Dóm-
arafélag íslands. Megintilgangur
stofnunarinnar er að vinna að rann-
sóknum á lögfræðilegum þáttum
mannréttinda, annast dreifmgu á
niðurstöðum þeirra og að styðja við
kennslu á þessu sviði. Mannréttinda-
stofnunin beitir sér jafnframt fyrir
kynningarfundum um ýmsa þætti
mannréttindamála.
Teiknað
með tölvum
VEGNA gífurlegrar aðsóknar laug-
ardaginn 11. nóvember á „Teiknað
með tölvum,“ hefur verið ákveðið að
endurtaka dagskrána laugardag og
sunnudag kl. 12-17. Mikilvægt er
að skrá sig, því aðeins takmarkaður
fjöldi kemst að.
Börnum á aldrinum 6-12 ára er
boðið í tölvusmiðju Norræna hússins,
þar sem þeim gefst færi á að teikna
sínar eigin myndir með tölvum. Báða
dagana verður unnið í tveimur hóp-
um, frá kl. 12-14 eða 15-17, gert
er ráð fyrir sex þátttakendum i hveij-
um hópi. Leiðbeinandi verður Kristín
Maria Ingimarsdóttir hreyfimynda-
teiknari, menntuð í Bandaríkjunum.
Hún hefur starfað hér heima m.a.
við að leiðbeina bömum og ungling-
um í hreyfimyndagerð.
Myndirnar verða prentaðar út í lit
og sett verður saman sýning á verk-
um þátttakenda í bókasafni og kaffi-
stofu Norræna hússins.
Allir eru velkomnir og aðgangur
ókeypis.
Fyrirlestur
um heimspeki
FYRIRLESTRAR á vegum Félags
áhugamanna um heimspeki verður
haldinn á morgun laugardag kl. 14
í hátíðarsal aðalbyggingar Háskól-
ans.
Kristján Kristjánsson flytur fyrir-
lestur er nefnist: Af tvennu illu: Um
Skemmtanir
HLJÓMSVEITIN KOS leikur á Kaffi Reykjavík
föstudags- og laugardagskvöld.
klípusögur, nytjastefnu og dygða-
fræði.
Svokallaðar klípusögur eru notað-
ar í siðfræði til að setja fram í eim
földu formi siðferðileg álitamál.
Kristján mun segja nokkrar slíkar
sögur og rannsaka hvernig tekst að
takast á við álitamálin með röksemd-
um nytjastefnu annars vegar og
dygðafræði hins vegar, en sú stefna
hefur verið mjög áberandi í siðfræði
undanfarin ár.
Dr. Kristján Kristjánsson er dós-
ent í heimspeki við Háskólann á
Akureyri.
Birting o g
Framsýn
sameinast
STOFNFUNDUR sameinaðs félags
Alþýðubandalagsfélaganna Birting-
ar og Framsýnar í Reykjavík verður
haldinn á Kornhlöðuloftinu laugar-
dagin 25. nóvember.
Stofnfundurinn verður haldinn að
loknum aðalfundi beggja félaganna.
Félögin hafa undanfarið haft tölu-
verða samvinnu og stiga nú skrefið
til fulls með sameiningu, segir í
fréttatilkynningu.
Stofnfundurinn hefst kl. 14.30.
Auk stofnfundarstarfa mun flytja
stutt ávörp Margrét Frímannsdóttir
formaður Álþýðubandalagsins, Björn
Guðbrandur Jónsson formaður Birt- •
ingar, Leifur Guðjónsson formaður
Framsýnar og Guðmundur Andri
Thorsson rithöfundur.
Fundarstjóri verður Hildur Jóns-
dóttir upplýsingafulltrúi.
Rabbfundur
um fornleiðir
ÁHUGAFÓLK um skoðun, skrán-
ingu, varðveislu og notkun gamalla
alfaraleiða hundrað ára og eldri,
fornleiða, efnir til rabbfundar við ~
Islandslíkanið, Tjarnarsalnum í Ráð-
húsi Reykjavíkur laugardaginn 25.
nóvember kl. 14.
Kynnt verður hvað fomleiðir em,
staða þeirra sem fornminja, um-
gengnisreglur um þær, skráning og
merking.
Fulltrúar frá Þjóðminjasafni ís-
lands, Ömefnastofnun, Landmæling-
um íslands og Sjómælingum íslands
verða á staðnum.
Allt áhugafólk um skráningu og
notkun fornleiða velkomið.
Basarar
■ JÓLABASAR Sólheima í Grímsnesi
Árlegur jólabasar Sólheima verður í
Templarahöllinni við Eiríksgötu 5 í
Reykjavík sunnudaginn 26. nóvember
og hefst kl. 15 en ekki 14 eins og verið
hefur. Sjálfseignarstofnunin Sólheimar í
Grímsnesi var stofnuð árið 1930 af Sess-
elju Hreindísi Sigmundsdóttur. Hlutverk
þess er og hefur verið að annast með-
ferð og umönnun þroskaheftra. í dag
dvelja á Sólheimum 39 einstaklingar. A
jólabasar Sólheima gefst fólki kostur á
að sjá og kaupa framleiðsluvörur heimil-
isins. Má -þar helst nefna handsteypt
bývaxkerti, kubbakerti, mottur, dúka,
trefla, silkikort, óróa, púða, tréleikfóng
og grænmeti. Einnig verður á boðstólum
mjólkursýrt grænmeti, en mjólkursýring
er sérstök geymslu- og verkunaraðferð
á grænmeti sem viðheldur upphaflegum
næringar- og fjörefnum þess jafnframt
því að veita grænmetinu ferskt, sætsúrt
bragð. Samhliða Sólheimabasarnum
stendur Foreldra- og vinafélag Sól-
heima fyrir kökubasar og kaffisölu.
Ollum ágóða af sölunni er varið til upp-
byggingar á starfsemi Sólheima.
■ WALDORFSKÓLINN Ylur í Lækj-
arbotnum heldur sinn árlega jólabasar
á morgun milli kl. 13-17 í húsnæði skól-
ans í Lækjarbotnum. Auk hefðbundinnar
kaffi- og veitingasölu verða seldir hand-
unnir munir og leikföng. Fiðluieikari
og trúður koma í heimsókn og dregið
verður í happdrætti að lokinni brúðuleik-
hússýningu.
W w
-leikur að Ixral
Vinningstölur 23. nóv. 1995
6*8 «9*10 «17*21 *26
Eldri úrslit á símsvara 568 1511