Morgunblaðið - 24.11.1995, Side 46

Morgunblaðið - 24.11.1995, Side 46
i6 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ K I IV G A imm Vinningstölur 22.11.1995 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ A HVERN VINNING H 6 af 6 1 47.840.000 B1 5 af 6 LÆ+bónus 0 686.593 R1 5 af 6 5 43.240 H 4af6 194 1.770 ra 3 af 6 t?Jn+bónus 579 250 BWi/inningur: fór'til Fihnlands 26 44 BÓNUSTÖLUR 12 35 45 Heildarupphæð þessa viku: 49.230.923 á ísl.: 1.390.923 UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI 568 1511 EÐA GRÆNT NR. 800 6511 — TEXTAVARP 453 BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR r Skór á alla fjölskylduna Stærðir 36-41 • Svart leður Stærðir 36-42 • Fóðraðir, svart leður. Veró 5.950 Verð 6.450 Stærðir 36-41 • Svart leöur og brúnt nubuk Verð 4.980 SIHGLUGGINN Stærðir 36-41 • Svart leður Verð 5.950 SKÆDI MÍLANO Reykjavíkurvegi 50, s. 565 4275 Kringlunni 8-12 s. 568 9345 Laugavegi 61-63 s. 551 0655 Ábendingar á injólkunimbúðum, nr. 32 af 60. íslenskufrœðsla á mjólkurumbúðum er samstarfsverkefni Mjólkursamsölunnar, íslenskrar málnefndar og Málrœktarsjóðs. Á hundavaði! hundar vaða eða synda yfir ár. Þannig getur þú annaðhvort farið yfir þennan fróðleik á hundavaði eða lesið hann vandlega. Orðatiltækið að fara yfir e-ð á hundavaði merkir að gera eitthvað hratt og óvandlega. Líkingin er dregin af því hvemig ÍDAG BRIDS Umsjón Guðm. I’áll Arnarson BRETINN Tony Sowter var ánægður með sitt framlag í spili dagsins, en hann sat í austur með einn gosa og flata skiptingu. Spilið er frá Politiken-tvímenningnum í Kaupmannahöfn. Austur gefur; NS á hættu. „ , Norður ♦ G3 V DG7 ♦ 98 ♦ Vestur ♦ K108765 V 109 ♦ D64 ♦ D8 AK9632 Áustur 4 42 llll *632 1111 ♦ G7532 * 1074 Suður ♦ ÁD9 V ÁK854 ♦ ÁKIO ♦ G3 Vestur Norður Austur Suður Kendriek Nilsland Sowter Falienius Pass 1 Lauf* 2 spaðar 2 grönd" 3 spaðar! Pass Pass Dobl Pass 5 hjörtu Pass Pass Pass * Sterkt lauí, þ.e. 16+ HP. ** Yfirfærsla í lauf, geimkrafa. Eins og sjá má, vinnast sjö hjörtu í NS og auðvitað sex grönd og sex lauf í suð- ur. Einn sagnhafi vann lauf- slemmuna í norður eftir spaða út. Hann stakk upp ás, tók ÁK í laufi, spilaði hjarta flórum sinnum og henti niður spaða. Aðeins eitt par náði sjö hjörtum - Muller og De Boer frá Hol- landi, en Fallenius og Nils- land voru eina parið í geimi. Hvað kætti Tony svo mjög? Hann var ánægður með hversu vel þriggja spaða sögnin heppnaðist. Fallenius passaði til að byija með, en var svo í nánast óleysanleg- um vanda við úttektardobli makkers. Líklega hefði hann gert best í því að passa, því það má taka þijá spaða 1400 niður! Sögnin sem hann valdi var þó ekki slæm. En venju- lega neitar siíkt stökk upp á fimmta þrep fyrirstöðu í lit andstæðinganna, og þess vegna passaði Nilsland, þrátt íyrir hjartastuðning og AK í laufi. Hlutavelta ÞESSAR duglegu stúlkur seldu nýlega heimatil- búið perludót í hús til styrktar Flateyringum og létu ágóðann sem varð kr. 2.550 renna til Rauða krossins. Þær heita frá vinstri Sara, Erla (fyrir framan), Katrín, Linda (fyrir framan) og Dagný. ÞESSAR duglegu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu til styrktar landssöfnuninni Samhugur í verki og varð ágóðinn 4.787 krónur. Þær heita Þóra Björk Gísladóttir, Þórunn Hannesdóttir, Harpa Ragnars- dóttir, Ólöf Rúnarsdóttir og Lára Ósk Hafbergs- dóttir. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags í okkar fagra landi KONA hringdi og sagði Þorstein Erlingsson hafa samið texta lagsins „í okkar fagra landi“ er Þuríður Sigurðardóttir söng inn á plötu fyrir margt löngu, en um text- ann var spurt í Velvak- anda sl. sunnudag. íþróttataska tapaðist SVÖRT meðalstór Hummel-taska tapaðist fyrir u.þ.b. þremur vikum. Eigandinn hjólaði frá líkamsræktarstöðinni Mætti, Suðurlands- brautina að Kleppsveg. Taskan gæti hafa dottið af á leiðinni. Skilvís finnandi vinsamlega hringi í síma 588-3488. Til þingmanna Með bólpar hendur blása í kaun brúka vökustaura. Þingmönnum með lítil laun lánum nokkra aura. Ellilífeyrisþegi mumm Leðurhanski fannst SVARTUR vandaður karlmannsleðurhanski fannst í Neðra-Breiðholti neðarlega við Arnarbakkann. Eigandinn má vitja hans í síma 557-5953. Myndavél tapaðist MEÐALSTÓR vönduð svört myndavél með flashi í blárri hliðartösku tapaðist 2. nóvember sl. líklega í Leifsstöð, eða í vél sem fór til London kl. 16 þann dag. Á hliðartöskunni var vasi sem í voru lyklar. Skilvís finnandi er vinsamlega beðinn að hafa samband við Margréti Erlu í síma 562-8501 eða Erlu Björk í síma 557-9224. Gæludýr Högni í óskilum HVÍTUR ungur högni með svörtum flekkjum á haus og baki og svarta rófu hefur verið í óskilum í u.þ.b. hálfan mánuð í Móbergi 12, Hafnarfirði. Hann var ómerktur og er afar gæfur. Eigandinn er beðinn að hafa samband í síma 565-4171. Pennavinir 17 ÁRA stúlka frá Lúxem- borg, sem hefur mikinn áhuga á Islandi, íþróttum, bréfaskrifum, tónlist, söfn- un, náttúrunni, dýrum og jarðfræði: Claire Jussac, 2,rve Macher, 5550-Remich, Luxembourg. UNGT fólk frá 32 löndum óskar eftir íslenskum pennavinum; World Correspondence Association, Skraenten 30, DK-2970 Horsholm, Denmark. 15 ÁRA austurrísk stúlka, sem hefur áhuga á ferðalög- um, tennis, hjólreiðum, sundi og bréfaskrifum: Kirstin Ottowitz, 9182 Rosenbach 121, Carinthia, Austria. 18 ÁRA hollensk stúlka, sem hyggst koma til íslands sem skiptinemi á næsta ári, vill skrifast á við Islendinga til að undirbúa dvölina. Hef- ur áhuga á náttúrunni, hest- um, skíðaíþróttum, júdó, tónlist, ljósmyndun, öðrum löndum o.fl.: Christine Klaver, Het Dagwerk 1, 8433 PK Haulerwyk (Fr.), The Netherlands. LEIÐRÉTT Fréttin var frá Hafnarfjarðarbæ Við vinnslu fréttar Morg- unblaðsins í gær, um ráðn- ingu Sverris Olafssonar sem forstöðumanns Listamið- stöðvarinnar í Straumi urðu þau mistök, að menningar- málanefnd Hafnarfjarðar var borin fyrir fréttatilkynn- ingu sem Morgunblaðinu barst um þetta efni. Hið rétta er að fréttatiikynning- in er frá Hafnaríjarðarbæ, enda rituð á bréfsefni Hafn- arfjarðarbæjar. Víkveiji skrifar... VÍKVERJI varð fyrir þeirri óskemmtilegu lífsreynslu, að kaupa geisladisk af hljómplötu- verzlun Skífunnar í Kringlunni nú fyrir nokkrum dögum. Þetta var jóladiskur, sem kom út fyrir nokkrum árum og nefnist „Jóla- strengir". Víkverji greiddi 999 krónur fyrir diskinn og gekk síðan út úr verzluninni í gengum þjófa- varnarhlið liennar. Þegar út úr verzluninni kom hugkvæmdist Víkverja, sem aldrei skyldi verið hafa, að kíkja sem snöggvast inn í verzlun Hagkaups og skoða þar hvað helzt væri á boðstólum. En Víkveiji var vart kominn inn fyrir þröskuldinn í Hagkaupi, er allt þjófavarnarkerfi verzlunarinnar fór í gang. Allir viðstaddir litu grunsemdaraugum á Víkverja og veltu eflaust fyrir sér hvaða rummungsþjófur þarna færi og væri gripinn. STÚLKA í öryggisgæzlunni tók diskinn og gekk með hann að hliðinu og viti menn aftur fór þjófavarnarkerfið í gang. Því næst hringdi hún í Skífuna og sagði síðan Víkverja að fara þangað og láta athuga geisladiskinn, en tekið skai fram að ekki sást á honum að hann væri með þjófavörn. Er í Skífuna kom, opnaði af- greiðslustúlkan diskinn og kom þá í ljós að þjófavörnin var falin inni á milli laga í umbúðunum utan um diskinn. Hún gaf þá skýr- ingu, eins og ekkert væri, að disk- urinn væri eflaust endursendur úr kaupfélagi utan af landi, hefði ekki selzt þar og þjófavarnarkerfið í Skífunni væri af öðrum toga og gerði því ekki viðvart um falda merkið. Hagkaup væri hins vegar með sama kerfið og kaupfélögin. Raunar baðst hún ekki afsökun- ar á þessum mistökum Skífunnar, fyrr en Víkvetji fór að óskapast yfir þeirri meðhöndlun, sem hann hefði fengið með þessum mistök- um Skífunnar. XXX AÐ verður að segjast, að það er gjörsamlega ófyrirgefan- legt af verzlun eins og Skífunni, að kanna ekki hvaða þjófavarnar- merki eru í þeirri vöru, sem þeir selja. Saklaust fólk getur orðið fyrir ómældum óþægindum af slíku framferði. Raunar hefði Vík- verji aldrei trúað því, fyrr en þetta atvik henti, að nokkur kaupmað- ur, sem telur sig sómakæran og vill umgangast viðskiptavini sína af tillitssemi og fytlstu kurteisi, láti slíkt sem þetta viðgangast. Eitt er víst að það verður bið á því að Víkveiji sýni sig eða kaupi eitthvað í Skífunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.