Morgunblaðið - 24.11.1995, Síða 46
i6 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
K I IV G A
imm
Vinningstölur
22.11.1995
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ A HVERN VINNING
H 6 af 6 1 47.840.000
B1 5 af 6 LÆ+bónus 0 686.593
R1 5 af 6 5 43.240
H 4af6 194 1.770
ra 3 af 6 t?Jn+bónus 579 250
BWi/inningur: fór'til Fihnlands
26 44
BÓNUSTÖLUR
12 35 45
Heildarupphæð þessa viku:
49.230.923
á ísl.:
1.390.923
UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI 568 1511 EÐA
GRÆNT NR. 800 6511 — TEXTAVARP 453
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
r
Skór á alla fjölskylduna
Stærðir 36-41 • Svart leður Stærðir 36-42 • Fóðraðir, svart leður.
Veró 5.950 Verð 6.450
Stærðir 36-41 • Svart leöur
og brúnt nubuk
Verð 4.980
SIHGLUGGINN
Stærðir 36-41 • Svart leður
Verð 5.950
SKÆDI MÍLANO
Reykjavíkurvegi 50, s. 565 4275
Kringlunni 8-12 s. 568 9345
Laugavegi 61-63 s. 551 0655
Ábendingar á injólkunimbúðum, nr. 32 af 60.
íslenskufrœðsla á mjólkurumbúðum er samstarfsverkefni Mjólkursamsölunnar,
íslenskrar málnefndar og Málrœktarsjóðs.
Á hundavaði!
hundar vaða eða
synda yfir ár.
Þannig getur þú
annaðhvort farið yfir
þennan fróðleik á hundavaði
eða lesið hann vandlega.
Orðatiltækið að fara yfir e-ð á
hundavaði merkir að gera
eitthvað hratt og óvandlega.
Líkingin er dregin
af því hvemig
ÍDAG
BRIDS
Umsjón Guðm. I’áll
Arnarson
BRETINN Tony Sowter var
ánægður með sitt framlag
í spili dagsins, en hann sat
í austur með einn gosa og
flata skiptingu. Spilið er frá
Politiken-tvímenningnum í
Kaupmannahöfn.
Austur gefur; NS á
hættu. „ ,
Norður
♦ G3
V DG7
♦ 98
♦
Vestur
♦ K108765
V 109
♦ D64
♦ D8
AK9632
Áustur
4 42
llll *632
1111 ♦ G7532
* 1074
Suður
♦ ÁD9
V ÁK854
♦ ÁKIO
♦ G3
Vestur Norður Austur Suður
Kendriek Nilsland Sowter Falienius
Pass 1 Lauf*
2 spaðar 2 grönd" 3 spaðar! Pass
Pass Dobl Pass 5 hjörtu
Pass Pass Pass
* Sterkt lauí, þ.e. 16+ HP.
** Yfirfærsla í lauf, geimkrafa.
Eins og sjá má, vinnast
sjö hjörtu í NS og auðvitað
sex grönd og sex lauf í suð-
ur. Einn sagnhafi vann lauf-
slemmuna í norður eftir
spaða út. Hann stakk upp
ás, tók ÁK í laufi, spilaði
hjarta flórum sinnum og
henti niður spaða. Aðeins
eitt par náði sjö hjörtum -
Muller og De Boer frá Hol-
landi, en Fallenius og Nils-
land voru eina parið í geimi.
Hvað kætti Tony svo
mjög? Hann var ánægður
með hversu vel þriggja spaða
sögnin heppnaðist. Fallenius
passaði til að byija með, en
var svo í nánast óleysanleg-
um vanda við úttektardobli
makkers. Líklega hefði hann
gert best í því að passa, því
það má taka þijá spaða 1400
niður! Sögnin sem hann valdi
var þó ekki slæm. En venju-
lega neitar siíkt stökk upp á
fimmta þrep fyrirstöðu í lit
andstæðinganna, og þess
vegna passaði Nilsland, þrátt
íyrir hjartastuðning og AK
í laufi.
Hlutavelta
ÞESSAR duglegu stúlkur seldu nýlega heimatil-
búið perludót í hús til styrktar Flateyringum og
létu ágóðann sem varð kr. 2.550 renna til Rauða
krossins. Þær heita frá vinstri Sara, Erla (fyrir
framan), Katrín, Linda (fyrir framan) og Dagný.
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu
til styrktar landssöfnuninni Samhugur í verki og
varð ágóðinn 4.787 krónur. Þær heita Þóra Björk
Gísladóttir, Þórunn Hannesdóttir, Harpa Ragnars-
dóttir, Ólöf Rúnarsdóttir og Lára Ósk Hafbergs-
dóttir.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
í okkar
fagra landi
KONA hringdi og sagði
Þorstein Erlingsson hafa
samið texta lagsins „í
okkar fagra landi“ er
Þuríður Sigurðardóttir
söng inn á plötu fyrir
margt löngu, en um text-
ann var spurt í Velvak-
anda sl. sunnudag.
íþróttataska
tapaðist
SVÖRT meðalstór
Hummel-taska tapaðist
fyrir u.þ.b. þremur
vikum. Eigandinn hjólaði
frá líkamsræktarstöðinni
Mætti, Suðurlands-
brautina að Kleppsveg.
Taskan gæti hafa dottið
af á leiðinni. Skilvís
finnandi vinsamlega
hringi í síma 588-3488.
Til þingmanna
Með bólpar hendur blása í
kaun
brúka vökustaura.
Þingmönnum með lítil laun
lánum nokkra aura.
Ellilífeyrisþegi
mumm
Leðurhanski
fannst
SVARTUR vandaður
karlmannsleðurhanski
fannst í Neðra-Breiðholti
neðarlega við
Arnarbakkann.
Eigandinn má vitja hans
í síma 557-5953.
Myndavél tapaðist
MEÐALSTÓR vönduð
svört myndavél með
flashi í blárri hliðartösku
tapaðist 2. nóvember sl.
líklega í Leifsstöð, eða í
vél sem fór til London
kl. 16 þann dag. Á
hliðartöskunni var vasi
sem í voru lyklar. Skilvís
finnandi er vinsamlega
beðinn að hafa samband
við Margréti Erlu í síma
562-8501 eða Erlu Björk
í síma 557-9224.
Gæludýr
Högni
í óskilum
HVÍTUR ungur högni
með svörtum flekkjum á
haus og baki og svarta
rófu hefur verið í óskilum
í u.þ.b. hálfan mánuð í
Móbergi 12, Hafnarfirði.
Hann var ómerktur og
er afar gæfur. Eigandinn
er beðinn að hafa
samband í síma
565-4171.
Pennavinir
17 ÁRA stúlka frá Lúxem-
borg, sem hefur mikinn
áhuga á Islandi, íþróttum,
bréfaskrifum, tónlist, söfn-
un, náttúrunni, dýrum og
jarðfræði:
Claire Jussac,
2,rve Macher,
5550-Remich,
Luxembourg.
UNGT fólk frá 32 löndum
óskar eftir íslenskum
pennavinum;
World Correspondence
Association,
Skraenten 30,
DK-2970 Horsholm,
Denmark.
15 ÁRA austurrísk stúlka,
sem hefur áhuga á ferðalög-
um, tennis, hjólreiðum,
sundi og bréfaskrifum:
Kirstin Ottowitz,
9182 Rosenbach 121,
Carinthia,
Austria.
18 ÁRA hollensk stúlka,
sem hyggst koma til íslands
sem skiptinemi á næsta ári,
vill skrifast á við Islendinga
til að undirbúa dvölina. Hef-
ur áhuga á náttúrunni, hest-
um, skíðaíþróttum, júdó,
tónlist, ljósmyndun, öðrum
löndum o.fl.:
Christine Klaver,
Het Dagwerk 1,
8433 PK Haulerwyk
(Fr.),
The Netherlands.
LEIÐRÉTT
Fréttin var frá
Hafnarfjarðarbæ
Við vinnslu fréttar Morg-
unblaðsins í gær, um ráðn-
ingu Sverris Olafssonar sem
forstöðumanns Listamið-
stöðvarinnar í Straumi urðu
þau mistök, að menningar-
málanefnd Hafnarfjarðar
var borin fyrir fréttatilkynn-
ingu sem Morgunblaðinu
barst um þetta efni. Hið
rétta er að fréttatiikynning-
in er frá Hafnaríjarðarbæ,
enda rituð á bréfsefni Hafn-
arfjarðarbæjar.
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJI varð fyrir þeirri
óskemmtilegu lífsreynslu, að
kaupa geisladisk af hljómplötu-
verzlun Skífunnar í Kringlunni nú
fyrir nokkrum dögum. Þetta var
jóladiskur, sem kom út fyrir
nokkrum árum og nefnist „Jóla-
strengir". Víkverji greiddi 999
krónur fyrir diskinn og gekk síðan
út úr verzluninni í gengum þjófa-
varnarhlið liennar.
Þegar út úr verzluninni kom
hugkvæmdist Víkverja, sem aldrei
skyldi verið hafa, að kíkja sem
snöggvast inn í verzlun Hagkaups
og skoða þar hvað helzt væri á
boðstólum. En Víkveiji var vart
kominn inn fyrir þröskuldinn í
Hagkaupi, er allt þjófavarnarkerfi
verzlunarinnar fór í gang. Allir
viðstaddir litu grunsemdaraugum
á Víkverja og veltu eflaust fyrir
sér hvaða rummungsþjófur þarna
færi og væri gripinn.
STÚLKA í öryggisgæzlunni tók
diskinn og gekk með hann
að hliðinu og viti menn aftur fór
þjófavarnarkerfið í gang. Því næst
hringdi hún í Skífuna og sagði
síðan Víkverja að fara þangað og
láta athuga geisladiskinn, en tekið
skai fram að ekki sást á honum
að hann væri með þjófavörn.
Er í Skífuna kom, opnaði af-
greiðslustúlkan diskinn og kom
þá í ljós að þjófavörnin var falin
inni á milli laga í umbúðunum
utan um diskinn. Hún gaf þá skýr-
ingu, eins og ekkert væri, að disk-
urinn væri eflaust endursendur úr
kaupfélagi utan af landi, hefði
ekki selzt þar og þjófavarnarkerfið
í Skífunni væri af öðrum toga og
gerði því ekki viðvart um falda
merkið. Hagkaup væri hins vegar
með sama kerfið og kaupfélögin.
Raunar baðst hún ekki afsökun-
ar á þessum mistökum Skífunnar,
fyrr en Víkvetji fór að óskapast
yfir þeirri meðhöndlun, sem hann
hefði fengið með þessum mistök-
um Skífunnar.
XXX
AÐ verður að segjast, að það
er gjörsamlega ófyrirgefan-
legt af verzlun eins og Skífunni,
að kanna ekki hvaða þjófavarnar-
merki eru í þeirri vöru, sem þeir
selja. Saklaust fólk getur orðið
fyrir ómældum óþægindum af
slíku framferði. Raunar hefði Vík-
verji aldrei trúað því, fyrr en þetta
atvik henti, að nokkur kaupmað-
ur, sem telur sig sómakæran og
vill umgangast viðskiptavini sína
af tillitssemi og fytlstu kurteisi,
láti slíkt sem þetta viðgangast.
Eitt er víst að það verður bið á
því að Víkveiji sýni sig eða kaupi
eitthvað í Skífunni.