Morgunblaðið - 01.12.1995, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1995 47
í dag
opnum við nýj a verslun
heim
^jijá þér!
icriii
Hvort viltu eýBU'"WHLnur tímum
eða 8 mínútum til þess að
versla inn til helgarinnar?
*
Eitt er það, sem við höfum aldrei nóg
af, en það er tími. Hefur þú velt því
fyrir þér hversu mikill tími fer í að
versla inn fyrir heimilið og hvort þeim
tíma væri ekki betur varið í eitthvað annað?
@
Við hjá Netkaup erum sannfærð um að það þurfi
ekki að vera langt og leiðinlegt verk að versla og
þú getur sannreynt það með því að setjast fyrir
framan tölvuna þína og slá inn
http://www.saga.is/netkaup í uppáhalds
veflesaranum þínum.
@
Eftir að þú slærð inn kennitöluna þína og
heimilisfang getur þú tekið til við
únnkaupin. Rétt eins og kaupmaðurinn
á horninu munum við eftir þér í hvert
skipti, sem þú kemur að versla, og við
munum líka hvað þú kaupir oftast, þannig að
þú þarft ekki að gramsa í gegn um allt vöruúrvalið
hjá okkur í hvert skipti sem þú verslar, en
tegundirnar skipta þúsundum þegar allt er talið.
@
Þegar þú hefur lokið við innkaupin tiltekur þú
hvenær þú vilt fá vöruna senda heim og á tilsettum
tíma kemur sendill svo færandi varninginn heim.
@
Við seljum ekki bara matvöru, því hjá
okkur getur þú líkað dreypt á jólabóka-
flóðinu, keypt alla þá hljómdiska, sem út
koma nú fyrir jólin, og aukin heldur keypt!
tölvur, mótöld og hugbúnað. Tölvurnar konium
við ekki bara með heim að dyrum, heldur tengjum
við þær líka og setjum upp, þannig þú getir (eins
og lofað er í auglýsingunum) í raun og veru kveikt
á henni og hafist handa.
Tíminn er dýrmætur
Verið velkomin í
■
A II B
http : / /www ■ saga • is/netkai^