Morgunblaðið - 19.12.1995, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 19.12.1995, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995 31 LISTIR Skýjahöllin fær góða dóma í Variety SKÝJAHÖLLIN, kvikmynd Þor- steins Jónssonar, fær lofsamlega dóma í nýlegu tölublaði hins út- breidda kvikmyndarits Variety. „Mynd íslenska leikstjórans Þor- steins Jónssonar, Skýjahöllin, erfall- eg og næm saga um dreng og hund- inn hans sem greinir börnum frá draumum og hugrekki en kemur fullorðnu fólki jafnframt í opna skjöldu með fáguðum og hárná- kvæmum frásagnarstíl sínum,“ segir meðal annars í umfjöllun gagnrýn- anda Variety. Þá segir hann að Skýjahöllin sýni og sanni að þegar höfundar barna- mynda treysti jafnvel greind yngstu áhorfendanna þurfí fjölskyldu- myndaformið alls ekki að vera þrándur í götu góðrar myndar. Síðan heldur hann áfram: „Með góðri talsetningu í stað skjátexta mun Skýjahöllin hitta víða í mark, meðal annars á barnamyndahátíð- um, hjá kapalstöðvum og að lokum í barnasjónvarpi víða um heim.“ -----------» ♦ ♦----- Nýjar hljómplötur • ÚT ER kominn geisladiskurinn POEM í flutningi Evu Mjallur Ing- ólfsdóttur og Hisako Fukui. Flytja þær nokkrar af perlum klassískrar tónlistar fyrir fiðlu og píanó, verk eftir Tartini, Massenet, Wieniawsky, Debussy og Chausson. Eva Mjöll Ingólfsdóttir hefur búið erlendis undanfarin ár, kennt og spilað bæði í Kenya og Japan og er nú búsett í Boston. Hún stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykja- vík og framhaldsnám í Brussel, Frakklandi og Amsterdam. Hisako Fukui er einleikari og píanókennari í Kyoto í Japan og unnu þær saman við tónleikahald í Japan á síðasta ár og er geisladiskurinn Poem ávöxt- ur þess samstarfs. Verkin voru tekin upp í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði síðasta sumar. Heimstónn gefur út og Skífan sér um dreifingu. Diskurinn kostar 1.499 kr. ♦ ♦ ♦ ■ TÆPAR 400 milljónir fengust fyrir safn 300 rússneskra mál- verka á uppboði hjá Sotheby’s á fimmtudag og er það mun hærri upphæð en búist hafði verið við. Elstu verkin voru frá 13. öld en þau yngstu frá tímum sovétraun- sæisins. Hæst verð fékkst fyrir verk Ivans Aivazovskíj frá síðustu öld, „Tunglsljós" en það seldist á 17 milljónir kr. Annað verk Aivazovskíjs, „Konstantínópel" seldist fyrir um 15 milljónir, sem er þrefalt meira en búist hafði verið við. Talið var að hæst verð myndi fást fyrir verk eftir annan 19. aldar málara, Ivan Shishkín, en verk hans „Hliðið" seldist á um 15 milljónir kr. .^^að sem þú heyrir er ekki alltaf þaö sem þú vilt heyra. Þess vegna er nauösynlegt að geta valiö áhuga- veröa og áreiðanlega umfjöllun hvenær sem þér hentar. Skriflegt samband við stærstu fréttastofu landsins tryggir þér upp- lýsingar um allt sem skiptir þig máli - þegar þú vilt - þar sem þú vilt, hvort sem þú færö Morgunblaöiö inn um bréfalúguna eöa um Alnetiö.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.