Morgunblaðið - 19.12.1995, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995 51.
AÐSENDAR GREINAR
Hágæða
franskar
snyrtivörur
umræður á opinberum vettvangi um
þá gríðarlegu uppsöfnun fjár, sem
undanfarin ár hefur átt sér stað í
svonefndum bótasjóðum vátrygg-
ingafélaga. Þetta hefur gerst með
þeim hætti að félögin hafa á hverju
ári fært til gjalda í ársreikningum
sínum tjónakostnað eftir þeim að-
ferðum við áætlanir sem að ofan
getur. Þetta er svo fært skuldar-
megin á efnahagsreikningi, sem
skuld við bótasjóð, eða m.ö.o. við
tjónþolana. Að verulegu leyti er hér
um að ræða gjaldfærslur á kostnaði
við tjón sem félögin vita að verður
aldrei neinn kostnaður. Á þennan
hátt komast þau hjá skattgreiðslum
af þessu fé um leið og þau byggja
upp mikið fjármálaveldi. Síðustu
fréttir herma að tvö stærstu félögin
hyggist eignast banka saman. Hið
furðulega er, að þetta hefur gerst
að því er virðist án nokkurra at-
hugasemda frá Vátryggingaeftirlit-
inu. Þar á bæ virðast menn fyrst
og fremst hugsa um að gjaldþol
félaganna sé fullnægjandi og ör-
yggis sé gætt í rekstri þeirra. Það
er auðvitað nauðsynlegt. Og ekki
skal um það efast að undanfarin
ár hafi verið þörf á að styrkja hina
svokölluðu bótasjóði vátryggingafé-
laganna. En það getur aldrei átt
að gerast með þeim hætti að gjald-
færa útgjöld sem allir vita að aldrei
muni verða útgjöld. Reyndin virðist
vera sú að íslensku vátryggingafé-
lögin leiti allra leiða til að skrá hjá
sér líkamstjón svo að unnt sé að
bóka hinn áætlaða kostnað. í frétta-
skýringu hér í Morgunblaðinu 10.
október sl. er sagt frá athugun
umferðardeildar borgarverkfræð-
ings í Reykjavík á fjölda slysa á
gatnamótum Kringlumýrarbrautar
og Miklubrautar. Deildin fékk
slysatölur hjá Sjóvá-Almennum
tryggingnm hf. til samanburðar við
opinberar tölur. Í ljós kom að þetta
eina tryggingafélag hafði skráð hjá
sér helmingi fleiri slys á þessum
gatnamótum en fram komu á lög-
regluskýrslunum. Á þessu kunna
að vísu að vera til vissar skýringar
en dæmið sýnist samt benda til ríkr-
ar tilhneigingar tii að skrá slys. Það
er ekki skrítið þó að íslensku vá-
tryggingafélögin telji fleiri líkams-
tjón í umferðinni hér á landi en
þekkist erlendis. Á þennan hátt
hafa þau á undanförnum árum lát-
ið bíleigendur í landinu bera kostn-
aðinn af uppbyggingu fjármálaveld-
is, sem sífellt verður meira áber-
andi í þjóðlífinu. Þetta lagast ekki
nema til komi erlend vátryggingafé-
lög til að bijóta upp samtrygging-
una sem nú einkennir þennan mark-
1.430 milljónir króna vegna tjón-
anna 587 (þ.e. eftir að þau hafa
verið umreiknuð yfir á heilt ár á
allan tryggingastofninn). Út frá
þeirri kostnaðarhækkun var verið
að fjalla um hvort iðgjöld ársins
1993 í bílatryggingum að fjárhæð
3.935 milljónir króna þyrftu að
hækka. Maðurinn er að segja að
það skipti ekki máli fyrir útreikn-
inginn á hækkunarþörfínni, þó að
talan 2.600 milljónir króna lækki!
Mér fínnst að framkvæmdastjórinn
ætti, þegar hann þarf að fjalla um
skaðabótalög og iðgjöld í bíla-
tryggingum, að halda sig við það
eitt að tala um þóknanir til lög-
manna. Þar heldur hann sig á því
plani, sem sýnilega hentar honum
betur en að fjalla um atriði sem
máli skipta.
Að mínum dómi er framganga
Sambands íslenskra tryggingafé-
laga gagnvart breytingartillögun-
um á skaðabótalögunum hreinrækt-
að hneyksli. Ég skora á alþingis-
menn að láta ekki vinnubrögð af
þessu tagi hrekja sig frá því að
gera hinar nauðsynlegu lagabreyt-
ingar. Og jafnvel þó að það þýddi
eilítið lengri vökur í önnum þing-
manna fyrir jól, ættu þeir ekki að
Iáta það hamla. Með því að lögleiða
breytingamar strax yrði líka þess-
um skipulagða þrýstihópi fyrir-
svarsmanna vátryggingafélaga
veitt sú ráðning sem hann verð-
skuldar.
■
Höfundur er hæstaréttar-
lögmaður.
Veita ber þeim ráðningu
í fréttum Morgunblaðsins sl.
sunnudag var fjallað um ofan-
greinda umsögn SÍT til allsheijar-
nefndar Alþingis. Þar var leitað
svara hjá framkvæmdastjóranum
Sigmari Ármannssyni. Honum
vafðist tunga um tönn, eins og
eðlilegt er. Stórbrotnast var svarið,
þegar hann var spurður, hvort eðli-
legt hefði verið að reikna með að
öll tjónin 587 leiddu til bóta-
greiðslu. Þá svaraði hann, að kæmi
til þess, „að ekki þyrfti að greiða
bætur i einhveijum þessum tilvik-
um, þá skipti það ekki máli í þessu
sambandi þar sem væntanlega yrði
ekki um bótagreiðslur að ræða
heldur samkvæmt núgildandi
skaðabótalögum". í umsögn SIT
var verið að reikna út meinta
hækkun á tjónakostnaði í líkams-
tjónum upp á 2.600 milljónir króna,
þar sem búið var að innreikna um
POSTUR OG SIMI
- með hollum mat!
Manneldisráð
Söludeild Árrnúla 27, sírni 550 7800 • Þjónustumiðstöð í Kirkjustrætí, slmi 550 6670
Söludeild Kringlunni, sími 550 6690 • Póst- og símstöðvum um land allt
eða viltu bara fylgjast með? Valið er
§ 1 • i . ..fannst seinna í i •
í öðrum bæjarhluta.J
"Það korau skilaboð - 842 - ég kannaði málið
og kvöldið fór öðruvísi en ég ætlaðin|
%M m&m cadMqtai* . .# . t'.. t i 8 M / jí 1 | i$ f íf J | J ar
Vertu tengdur með 842. Viltu verða numinn á brott^