Morgunblaðið - 19.12.1995, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995 61
FRÉTTIR
*
Islenskur skemmti-
þáttur á Stöð 3
STÖÐ 3, Magnús Scheving íþrótta-
maður ársins, Hilmar Oddsson leik-
stjóri og Saga film undirrituðu fyr-
ir helgi samkomulag um framleiðslu
á nýjum íslenskum þáttum sem
verða sýndir hálfsmánaðarlega á
dagskrá Stöðvar 3 í vetur.
Fyrsti þátturinn verður á dagskrá
stöðvarinnar að kvöldi annars dags
jóla. Hilmar Oddsson er stjórnandi
þáttanna en hann mun, ásamt Ól-
afi Hauki Símonarsyni leikskáldi
og Magnúsi, semja handrit þeirra.
Spjallað og spaugað
Að sögn Úlfars Steindórssonar
framkvæmdastjóra Stöðvar 3
verða þættirnir „léttir og öðruvísi
spjallþættir þar sem Magnús er
gestgjafi og fær til sín viðmælend-
ur. Hann rabbar við þá eins og
honum er einum lagið. Um leið er
Dagbók lögreglunnar
Níu útköll á
eitt skólaball
BÓKANIR eftir helgina voru 438
talsins. Lögreglumenn þurftu al-
loft að hafa afskipti af ölvuðu
fólki á almannafæri, eða 62 sinn-
um, auk 29 afskipta vegna há-
vaða og ónæðis utan dyra og inn-
an, en hins vegar eru óvenju fáir
ökumenn, sem stöðvaðir voru í
akstri, grunaðir um ölvunarakst-
ur, eða 4 alls. Að jafnaði eru um
15 ökumenn kærðir fyrir ölvunar-
akstur í borginni um helgar. Ekki
er vitað til að ölvaður ökumaður
hafi lent í umferðaróhöppum, en
að þessu sinni var tilkynnt um
47 slík til lögreglu. Meiðsli á fólki
urðu í 3 tilvikum. Fjórir ökumann-
anna óku á brott af vettvangi
eftir óhöppin án þess að gera
ráðstafanir til að ná til eiganda
þess ökutækis sem þeir óku á eða
utan í.
Um helgina var tilkynnt um
20 innbrot og jafn marga þjófn-
aði. Um hnupl í verslunum var
að ræða í um helmingi tilvika.
Þá eru skráðar 9 líkamsmeiðingar
í dagbókina. Astæða þótti til að
kæra 63 ökumenn fyrir ýmis
umferðarlagabrot.
Lögreglumenn voru níu sinnum
kvaddir að Hótel íslandi aðfara-
nótt föstudags vegna afskipta af
ölvuðu ungu fólki. Þar var sam-
eiginleg skemmtun Verslunar-
skólans og Fjölbrautaskólans í
Breiðholti. Skemmtunin hafði
verið leyfð með því skilyrði að
hún yrði áfengislaus og að upp-
fylltum öðrum skilyrðum, sem um
slíkar skemmtanir gilda. Raunin
varð því miður önnur en ætlast
var til. í framhaldi af þessari
„skemmtun" verður hugað sér-
staklega að samkomuhaldi
nefndra skóla á næstunni.
Lögi’eglumenn ásamt starfs-
fólki ÍTR fylgdust með þvi um
helgina hvort börn eða unglingar
væin utan dyra eftir að útivist-
artíma lauk. Hið ánægjulega var
að fólk í þessum aldurshópi sást
ekki einsamalt utan dyra á þeim
tíma. Hins vegar bar talsvert á
fullorðnu fólki á foreldravakt í
hverfunum og er framtak þess
lofsvert.
Veski stolið af leigubílstjóra
Á laugardag var tilkynnt um
mikinn reyk frá húsi við Snorra-
braut. Þar hafði ket í potti brunn-
ið með fyrrgreindum afleiðingum.
íbúarnir voru fluttir á slysadeild
vegna gruns um reykeitrun.
Aðfaranótt sunnudags var
veski stolið af leigubifreiðastjóra
þar sem hann var á biðstöð í
Breiðholti. Veskið fannst skömmu
síðar - tómt.
Um miðjan dag á sunnudag var
tilkynnt um að 6 ára barn hefði
meiðst á hendi þar sem það var
að leik ásamt öðrum börnum í
Grafarvogi. Börnin höfðu lyft
þungu loki af brunni og verið að
kíkja ofan í hann þegar lokið skall
aftur með þeim afleiðingum að
barnið missti framan af einum
fingri.
Síðdegis á sunnudag var til-
kynnt um að skemmdir hefðu ver-
ið unnar á 20 bifreiðum, sem stað-
ið höfðu við bílasölu í Skeifunni.
Einhver, eða einhveijir, höfðu
gengið á bifreiðarnar og annað-
hvort tekið með sér eða skemmt
þurrkublaðaarma bifreiðanna.
Margt fólk var í miðborginni
aðfaranætur laugardags og
sunnudags eftir að vínveitinga-
stöðum var lokað. Veður var gott.
Lítið bar á unglingum. Þó voru 5
þeirra færðir í athvarfið aðfara-
nótt laugardags þangað sem þeir
voru sóttir af foreldrum sínum.
Sparkað í höfuð manns
Maður var sleginn í andlitið og
tveir menn handteknir í kjölfar
þess. Þá var sparkað í höfuð
manns í Lækjargötu, annar var
sleginn í andlitið á vínveitingastað
við Hverfisgötu og enn annar var
fluttur á slysadeild eftir að gler-
augu höfðu verið brotin á andliti
hans í slagsmálum á vínveitinga-
stað í miðborginni. Aðfaranótt
sunnudags fundust tveir ungling-
ar í kösinni. Annar var sóttur af
foreldrum sínum, en hinn var
færður í aðstöðu fyrir unglinga í
Efstasundi. Tveir menn voru
slegnir á vínveitingastað í mið-
borginni og enn annar á vínveit-
ingastað við Eiðistorg.
Fólk hefur veitt því athygli að
á allnokkur hin stærri almenn-
ingsjólatré utan dyra vantar
neðstu perurnar í seilingarljar-
lægð. Virðast einhveijir gera sér
það að leik að skrúfa perurnar
úr og eyðileggja. Þá sem það
gera vantar enn talsvert á að til-
einka sér hinn sanha boðskap
jólahátíðarinnar.
136 teknir ölvaðir í
desember í fyrra
Lögreglan á Suðvesturlandi
fylgist sérstaklega með ökumönn-
um í desembermánuði með tilliti
til ölvunaraksturs. Áhersla verður
lögð á þetta eftirlit jafnt að degi
sem á nóttu. Reynslan hefur sýnt
að vegna þess siðar er lýtur að
því að einstaklingar og fyrirtæki
bjóði viðskiptavinum sínum og
starfsfólki upp á svonefnda ,jóla-
glögg“ síðustu dagana fyrir. jól
og ekki síður vegna áfengisneyslu
fólks um helgar sem og um jól
og áramót.
í desembermánuði í fyrra voru
136 ökumenn, sem stöðvaðir voru
í akstri, grunaðir um ölvunarakst-
ur á starfssvæði lögreglunnar á
Suðvesturlandi. Af þeim höfðu 19
lent í umferðaróhöppum og -slys-
um áður en til þeirra náðist.
í gangi gamanþáttur með fjölda
persóna og fléttast liann á
skemmtilegan og óvæntan hátt inn
í spjall Magnúsar við gesti sína,“
segir Úlfar.
Að sögn Úlfars kemur frjöldi
kunnra íslenskra leikara fram í
þáttunum sem eru viðamesta ís-
lenska dagskrárgerð sem- Stöð 3
hefur staðið að síðan hún hóf göngu
sína.
-------» ♦ --------
VINNINGSTÖLUR 16 12 1995
LAUGARDAGINN
000
FJOLDI
VINNINGAR VINNINGSHAFA
2.
3. 4al5
4.;
69
2.965
UPPHÆÐ Á HVERN
VINNINGSHAFA
4.249.830
143.900
10.790
580
Heildarvinnlngsupphæö:
7.145.740
BIRTMEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
ÆT W
Jólaljósin tendruð
Þúsundlr manna og bám. »öfnuöu»» «m«n é Austurv*lll * 9"*
Umræðuhóp-
ar og blaða-
ótgáfa í jafn-
ingjafræðslu
EINS og fram hefur komið hjá Birni
Bjarnasyni menntamálaráðherra
hefur Félag framhaldsskólanema
fengið styrk til forvarnarátaks sem
nefnt er jafningjafræðsla.
Átakið gengur út á að jafnaldrar
upplýsi hvorir aðra um skaðsemi
fíkniefna. Hugmyndin er sú að gefa
út veglegt blað og ýmislegt fleira
ásamt því að stofnaðir verða um-
ræðuhópar innan hvers skóla.
Fíkniefnaneysla ungs fólks hefur
aukist til mikilla muna. Félagi fram-
haldsskólanema finnst orðin ærin
ástæða til að gera eitthvað í málun-
um og sporna við vandanum með
því að fræða og upplýsa framhalds-
skólanemendur um skaðsemi og af-
leiðingar neyslu fíkniefna.
-leikur að Itera!
Vinningstölur 16. des. 1995
4.8.12*16.17.20.30
Vinningstölur 18. des. 1995
1 .6.10*16.20*21 .30
Eldri lirslit á símsvara 568 1511
Nei, nei, strákar, bara horfa, ekki koma við síldina.
Texta vantaði
ÞAU mistök urðu við birtingu
myndar Sigmunds í laugardags-
blaðinu að textinn varð viðskila við
teikninguna. Beðist er velvirðingar
á þessum mistökum um leið og
mynd og texti eru birt saman.
-kjarni málsins!
VINNINGASKRÁ
BINGÓLOTTÓ
Útdráttur þann: 16. dcsember, 1995
Bingóútdráttur: Ásinn
15 52 25 26 72 17 33 29 66 5 23 21 71 49 69 40 68 67 14 28
EFTIRTALIN MIÐANÚMER VINNA 1000 KR. VÖRUÚTTEKT.
10035 10300 10587 11211 11509 11839 12141 12600 13353 14067 14337 14722 14918
10047 10376 10640 11249 11713 12060 12208 12757 13381 14079 14570 14734 14972
10122 10552 10716 11269 11799 12083 12473 12826 13482 14193 14632 14775
10145 10557 10787 11491 11816 12107 12488 13160 13931 14250 14677 14795
Bingóútdráttun Tvisturinn
3 66 68 16 50 18 15 55 44 69 33 34 72 46 57 71 38 45 58
EFTIRTALIN MIÐANÚMER VINNA 1000 KR. VÖRUÚTTEKT.
10010 10136 10411 11003 11357 11582 12121 12424 13122 13506 14014 14260 14771
10053 10201 10571 11205 11369 11639 12276 12591 13227 13729 14016 14287 14784
10088 10298 10642 11237 11508 12073 12314 12899 13228 13897 14153 144%
10116 10343 10644 11305 11575 12076 12412 13067 13495 13922 14161 14758
Bingóútdráttur: Þristurinn
39 19 14 2 1 50 33 17 66 53 11 35 7 72 74 48 25 15
EFTIRTALIN MIÐANÚMER VINNA 1000 KR. VÖRUÚTTEKT.
10283 10530 10822 11206 11436 11819 11974 12295 12940 13550 14439 14732 14860
10365 10565 10901 11207 11548 11899 11980 12344 13090 13678 14445 14758 14973
10431 10736 11003 11232 11552 11913 12144 12483 13499 13750 14494 14773
10500 10774 11012 11331 11761 11935 12178 12637 13531 13799 14510 14795
Lukknnúmer Ásinn
VINNNINGAUPPHÆB 10000 KR VÖRUÚTTEKT FRÁ JJONES & VERO MODA
12150 12772 11729
Lukkunúmcr: Tvisturinn
_______VINNNINGAUPPHÆÐ 10000 KR. VÖRUÚTTEKT FRÁ NÓATÚN.________
11529 13454 13816
Lukkunúmcr. Þristurinn
________VINNNINGAUPPHÆÐ 10000 KR VÖRUÚTTEKT FRÁ ÚTILÍF.________
« 14019 10670 10080
Vinningar grciddir út frá og mcð þriðjudegi.
Vinningar í Bingó Bjössa ferðaleiknum
Útdráttur 16. dcscmbcr.
Sony Play Station fri Skifunni hlaut:
Bergur Ólafsson, Karfavogi 33, Reykjavik
Ársáskríft af Andrés önd blöðunum frá Vðku Helgafell hlutu:
Amar Gauti Óskarsson, Fumgerði 15, Reylgavlk
Bjarai Stefánsson, Smárarima 94, Reykjavík
10.000,- þúsund króna gjafaúttekt frá Leikbæ hlaut:
Þorbjörg Kjartansdóttir, Æsufclli 6, Reykjavík
Stiga slcða frá Útilíf hlaut:
Þórdís Jóna, Botnahlíð 29, Seyðisfirði