Morgunblaðið - 21.12.1995, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Miski en
ekki fjár-
hagslegt
Qón
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær konu
miskabætur vegna kostnaðar og
óþæginda eftir umferðaróhapp, en
sagði að þar sem litlar líkur væru á
að aflahæfi hennar hefði skerst til
frambúðar yrðu henni ekki dæmdar
bætur vegna fjártjóns.
í málinu lá fyrir mat lækna á því
að tímabundin læknisfræðileg örorka
konunnar hefði verið 100% í þijár
vikur, en varanleg 20%, þar af 5%
vegna þess slyss sem málið snerist
um.
{ framburði læknis kom fram, að
konan gæti unnið eftirvinnu eftir sem
áður, en ekki erfiðisvinnu og ekki
framreiðslustörf, sem hún hætti
vegna slyss er hún varð áður fyrir.
Annar læknir tók undir þetta og
sagði, að tjón konunnar reiknaðist
fremur sem miski en fjárhagslegt
tjón. Féllst Hæstiréttur á það sjónar-
mið.
FRÉTTIR
Hagfræðingur Þjóðhagsstofnunar um áhrif bandormsins
Skerðir ekki tekjur ellilíf-
eyrisþeg’a með lágar tekjur
SIGURÐUR Snævarr, hagfræðingur Þjóðhags-
stofnunar, segir að breytingar sem felast í band-
orminum leiði ekki til skerðingar á heildartekjum
ellilífeyrisþega sem lægstar tekjur hafa. Afnám
ákvæðis um 15% skattaafslátt lífeyrisþega af
lífeyrisgreiðslum leiði hins vegartil þess aðjaðar-
skattar hækki umtalsvert hjá þeim sem fá
stærstan hluta tekna sinna úr lífeyrissjóði.
Hækkun á jaðarskatti
Sigurður sagði að sú aðgerð stjómvalda að
faíla frá fyrri ákvörðun um að halda lífeyrisbót-
um almannatrygginga óbreyttum að krónutölu
á næsta ári hefði mest áhrif á ráðstöfunartekjur
þeirra sem lægstar tekjur hefðu. Bæturnar
hækka í samræmi við hækkun vísitölu og þess
vegna myndu tekjur þessa hóps ekki rýma. Þó
væri hægt að fínna sérstök afmörkuð dæmi um
tekjusamdrátt hjá þessum hópi vegna bandorms-
ins.
Alþingi samþykkti um síðustu áramót að 15%
tekna úr lífeyrissjóði yrðu frádráttarbær frá
skatti en þetta hefur nú verið afnumið með breyt-
ingu á lögum um tekju- og eignaskatt. Sigurður
sagði að þetta leiddi til þess að jaðarskattur
hækkaði talsvert, sérstaklega hjá þeim sem
hefðu mestan hluta tekna sinna úr lífeyrissjóði.
Tenging fjármagnstekna við almannatrygginga-
bætur hefði einnig talsverð áhrif á jaðarskattinn.
Bandormurinn gerir ráð fyrir að .50% fjár-
magnstekna skerði almannatryggingabætur.
Sigurður sagði að menn renndu blint í sjóinn
með áhrifín af þessari tengingu. Takmarkaðar
upplýsingar lægju fyrir um vaxtaberandi eignir
einstakra aldurshópa.
Samkvæmt útreikningi sem Sigurður vann
fyrir heilbrigðisráðuneytið á áhrifum bandorms-
ins á tekjur ellilífeyrisþega hækka greiðslur ein-
staklings, sem hefur engar tekjur nema frá
Tryggingastofnun, úr 50.334 krónur á mánuði
í 51.618 krónur. Tekjur einstaklings sem hefur
eingöngu tekjur úr lífeyrissjóði og frá Trygginga-
stofnun fara að skerðast þegar tekjumar fara
upp fyrir u.þ.b. 70 þúsund krónur á mánuði.
Tekjur einstaklings sem hefur 100 þúsund krón-
ur í tekjur úr lífeyrissjóði og frá Tryggingastofn-
un lækka um rúmlega 5.000 krónur á mánuði
með þeim lagabreytingum sem gerðar eru með
bandorminum. Jaðarskattur þessa einstaklings
hækkar úr 35,64% í 41,93%.
Markmiðið að veija hag tekjulágra
„Heildarbreytingin á högum ellilífeyrisþega
með öllum þeim breytingum sem bandormurinn
felur í sér leiðir til þess að þeir sem eru lægst
launaðir, hafa tekjur upp að 68-70 þúsund krón-
ur á mánuði, koma betur út eftir þessa breyt-
ingu en fyrir. Það segir manni að kjör þeirra
sem verst standa séu sæmilega vernduð með
þessum breytingum sem verið er að gera, en
það er eitt af markmiðum lagasetningarinnar,"
sagði Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður heil-
brigðisráðherra, um bandorminn.
Eldur frá jólaseríu skemmir jólahald í íbúð í Unufelli 23
ISÍÍÍK
v fSsSS*
RIS
Alþingi samþykkir
stækkun álversins
ALÞINGI samþykkti í gær lög um
samning um stækkun álversins í
Straumsvík með 47 atkvæðum gegn
einu en sex þingmenn sátu hjá í
atkvæðagreiðslunni.
Hjörleifur Guttormsson þingmað-
ur Alþýðubandalagsins var einn
þingmanna á móti samningnum en
þrír þingmenn flokksins, Ragnar
Amalds, Steingrímur J. Sigfússon
og Svavar Gestsson sátu hjá, eins
og allir þrír þingmenn Kvennalist-
ans.
Fjórir þingmenn Alþýðubanda-
lags og óháðra, Margrét Frímanns-
dóttir, Ólafur Ragnar Grímsson,
Bryndís Hlöðversdóttir og Ögmund-
ur Jónasson greiddu hins vegar at-
kvæði með samningnum eins og
allir þingmenn Framsóknarflokks,
Sjálfstæðisflokks Alþýðuflokks og
Þjóðvaka.
Bættur efnahagur
Margrét og Ögmundur sátu hjá í
atkvæðagreiðslu við 2. umræðu
málsins. Margrét sagði við atkvæða-
greiðsluna í gær að hjásetan hefði
byggst þar sem hún hefði viljað að
þingið afgreiddi tillögur flokksins
um mótun framtíðarstefnu í orku-
og stóriðjumálum og könnun
byggðaáhrifa áður en hún tæki af-
stöðu til málsins. Því miður hefði
hefði þingið ekki samþykkt þær.
Margrét sagðist vera mjög hugsi
yfír afleiðingum byggðar í landinu,
ef stofna ætti til annarra stjórfram-
kvæmda á suðvesturhorni landsins.
Þá sagðist hún ekki vera sátt við
mengunarvamakröfur sem gerðar
hefðu verið til álversins í Straums-
vík. Á hitt bæri að líta að stækkun
álversins myndi bæta afkomu
Landsvirkjunar og efnahag landsins
og draga úr atvinnuleysi á höfuð-
borgarsvæðinu og að auki væru
samningur um orkusölu til álversins
og skattasamningur viðunandi.
Þetta sagði Margrét ráða afstöðu
sinni til málsins. Ögmundur færði
svipuð rök fyrir sinni afstöðu.
Morgunblaðið/Kristinn
HÚSRÁÐANDI í Unufelli 23 týnir saman sótuga hluti úr íbúð sinni.
Flugleiðir fundnir sekir um mismunun vegna aldurs
Jólapakkarnir til-
búnir inni í stofu
Starfsmaður fái 16 millj-
ónir króna í skaðabætur
„ÞETTA er rosalegt áfall. Við
vorum búin að setja upp jólaskraut
í alla íbúðina og pakkarnir tilbún-
ir inni í stofu. Það eina sem átti
eftir að gera var að setja upp jóla-
tréð og skúra,“ sagði heimilisfaðir
fímm manna fjölskyldu, sem býr
í íbúð á fjórðu hæð í Unufelli 23
í Breiðholti, sem kviknaði í í fyrra-
dag. Allir íbúar voru að heiman
þegar eldurinn kviknaði.
Eldurinn virðist hafa kviknað
út frá jólaseríu í stofunni og eldur
læst sig í sófa. íbúðin er mikið
skemmd af völdum elds og reyks.
Geysilegur hiti hefur myndast.
Plast hefur bráðnað og í herbergi
lengst frá eldsupptökum hangir
bráðnað skraut á veggjum. Sót er
á öllum innréttingum og myndum
á veggjum.
Ekki lengi að gerast
Þau geta þakkað það góðum
hirslum að persónulegir munir
eins og myndbandsspólur og
myndaalbúm urðu ekki fyrir
skemmdum
„Þetta var lán í óláni, við hefð-
um getað verið sofandi. Eldri
stelpan okkar fór út rétt fyrir kl.
fjögur og síðan er eldsvoðinn til-
kynntur um kl. sjö. Ég ráðlegg
fólki eftir þessa lífsreynslu að taka
alltaf allt rafmagnsjólaskraut úr
sambandi þegar íbúðin er yfirgef-
in, hversu stuttan tíma sem um
er að ræða. Þetta er ekki lengi
að gerast," sagði húsbóndinn.
Hann sagði jafnframt að hann
hefði lokað öllum gluggum um
morguninn vegna kulda og hefði
hann ekki gert það hefði eldurinn
auðveldlega getað teygt sig í þak-
skeggið og breiðst yfír í nærliggj-
andi íbúðir.
Innbúið var allt tryggt. Talið
er að það taki um tvo mánuði að
koma íbúðinni í samt lag aftur. Á
meðan hefur fjölskyldan fengið
inni í orlofshúsi Sjómannafélags
Húsavíkur í Reykjavík.
KVIÐDÓMUR í Bandaríkjunum
dæmdi fyrirtækið Flugleiðir á þriðju-
dag til þess að greiða einum starfs-
manna flugfélagsins 250 þúsund
Bandaríkjadollara (rúmlega 16 millj-
ónir íslenskra króna) í skaðabætur
vegna þess að honum hefði óviljandi
verið mismunað vegna aldurs og lið-
ið „andlegan sársauka og þjáningar"
fyrir þær sakir.
Dómurinn var kveðinn upp í airík-
isdómstól í New York-ríki. Steinn
Logi Bjömsson, starfsmaður Flug-
leiða í Baltimore, sagði í gær að Flug-
leiðir hefðu ákveðið að nýta þann
rétt að leita til dómara í því skyni
að fá upphæðina, sem kviðdómurinn
úrskurðaði manninum, lækkaða.
Búist er við því að dómarinn komist
að niðurstöðu innan tveggja vikna,
en Steinn Logi sagði að sennilega
yrði málinu þá lokið af hálfu Flug-
leiða vegna þess að málarekstur
væri dýr í Bandaríkjunum.
Að sögn Steins Loga voru ákæru-
atriði mörg, en þegar kom til kasta
kviðdómsins að skera úr um það
hvort starfsmanninum hefði verið
mismunað hafði dómari dregið þau
saman í fimm atriði. Spurt var hvort
honum hefði verið mismunað vegna
aldurs eða þjóðernis, hvort það hefði
verið viljandi, hvort hann hefði sætt
ofsóknum af hálfu félagsins í gegn-
um tíðina eða gripið til hefndarráð-
stafana eftir að málaferlin hófust.
Skorið úr um fimm kæruatriði
Niðurstaða kviðdómsins kom
fram fyrir helgi og var sú að mann-
inum hefði verið mismunað á grund-
velli aldurs, en það hefði verið óvilj-
andi. Því varð að úrskurða hvort
manninum bæri að greiða skaða-
bætur. Sá úrskurður var eins og
áður segir kveðinn upp á mánudag.
Maðurinn færði rök að þvi að hann
hefði beðið mikið heilsutjón af völd-
um Flugleiða, væri orðinn hjartveik-
ur og þjáðist af Parkinson-veiki.
Steinn Logp sagði að kviðdómur-
inn hefði hafnað því að maðurinn
hefði orðið fyrir heilsutjóni, en hann
hefði beðið andlegt áfall og það
bæri Flugleiðum að bæta honum
með 250 þúsund dollurum.
Upphæð geðþóttaákvörðun
„Þessi upphæð er geðþótta-
ákvörðun kviðdómsins,“ sagði
Steinn Logi. „Lögfræðingar hans
fóru fram á eina milljón doliara fyr-
ir andlega tjónið og 750 þúsund
dollara fyrir heilsutjón. Kviðdómur-
inn staðfesti að orðið hefði formlegt
brot, en ekki þannig að verið væri
að ná sér niðri á manninum. Það
sést Iíka á því hvað upphæðin er lág
miðað við kröfu, þótt við teljum hana
háa miðað við fordæmi í málum af
þessu tagi.“
Mál þetta hófst árið 1991 þegar
umræddur starfsmaður, Alfred Shea,
var fluttur til í starfí og íslendingur
fór í starf hans. Shea var þá 64 ára.
Hann hefur starfað hjá Flugleiðum
í 39 ár og er enn starfsmaður flugfé-
lagsins.