Morgunblaðið - 21.12.1995, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1995 29
AÐSENDAR GREINAR
við viðskiptavinina vegna þess að
SKÝRR er falin umsjá opinberra
upplýsingakerfa. Þa^) kemur mál-
inu einfaldlega ekki við hver velta
SKÝRR er sem hlutfall af heildar-
veltu í upplýsingaiðnaði.
SKÝRR og fjárlögin
Þorsteinn Garðarsson fullyrðir í
grein sinni að SKÝRR sé ekki og
hafi aldrei verið á fjárlögum ríkis-
ins. Það er óumdeilt að í fjárlögum
hefur um nokkurra ára skeið verið
sérstakur fjárlagaliður undir ijár-
málaráðuneyti, Skýrsluvélakostn-
aður. Samkvæmt skýringum í fjár-
lagafrumvörpum rennur þessi fjár-
veiting til reksturs, viðhalds og
nýsmíði stærstu upplýsingakerfa
ríkisins. Þessi kerfi eru flest í
umsjá SKÝRR. í ijárlagafrumvarpi
fyrir árið 1996 eru áætlaðar tæp-
lega 500 m.kr. undir þessum lið.
Það eru því umtalsverðir fjármunir
sem renna til SKÝRR á ári hveiju
um þennan farveg. Til samanburð-
ar má nefna að skv. upplýsingum
í Fijálsri verslun nam velta SKÝRR
rúmlega 700 m.kr. árið 1994. Að
mínu mati skiptir ekki niáli hvort
þetta heitir að vera á fjárlögum
eða ekki, peningarnir koma þaðan
engu að síður.
SKÝRRog einkaleyfið
Þorsteinn bendir á að SKÝRR
hafi ekki einkaleyfi á neinu sviði.
Þetta er hárrétt, enda held ég því
ekki fram að SKÝRR njóti lög-
bundinnar einokunar. Til að
SKÝRR geti sinnt gagnavinnslu-
verkefnum sínum fyrir eigendurna
hefur verið byggt upp öflugt fyrir-
tæki með gríðarlegri íjárfestingu
í ýmiss konar tækjum og aðstöðu,
hugbúnaði og þekkingu starfs-
manna. Þessi staða þýðir í raun
að SKÝRR er í einokunaraðstöðu
gagnvart eigendum sínum og getur
hagað verðlagningu sinni í sam-
ræmi við það. Þessi mikla fjárfest-
ing tryggir SKÝRR einnig yfir-
burðastöðu á sviði upplýsingamiðl-
unar á almennum markaði.
SKÝRR og Internet-þjónusta
Þorsteinn fullyrðir í grein sinni
að SKÝRR veiti ekki Internet-þjón-
ustu. Ef til vill veit Þorsteinn ekki
betur. Internet-þjónustuaðilar
veita aðgang að Internet og/eða
vista upplýsingar viðskiptavina á
veraldarvefnum. Það hefur ekki
farið framhjá þeim sem láta sig
Internetið varða að SKÝRR vistar
heimasíður viðskiptavina á verald-
arvefnum og hefur auk þess opnað
þar þjónustu sem heitir Upplýs-
ingaheimar. Hér nýtur SKÝRR
áfram sérstöðu sinnar sem helsta
gagnavinnslufyrirtæki hins opin-
bera. Bæði er stór hluti fjárfesting-
arinnar þegar til staðar og hjá
SKÝRR eru varðveitt helstu upp-
lýsingakerfi landsmanna sem
draga að notendur. Upplýsingar
úr þessum kerfum mynda síðan
grunninn að heimasíðum Upplýs-
ingaheima.
Lokaorð
Eg er eindregið þeirrar skoðunar
að ríkið hafi hingað til fýlgt rangri
stefnu í málefnum Pósts og síma
og SKÝRR. Lögð hefur verið
áhersla á að byggja upp þessi
sterku opinberu fyrirtæki í stað
þess að nýta kosti einkaframtaksins
og stuðla að raunverulegri sam-
keppni á sem flestum sviðum fjar-
skiptaþjónustu og upplýsingaiðnað-
ar. Starfsemi þessara fýrirtækja er
ekki einn af grundvallarþáttunum
í starfsemi ríkisins. Rekstur þeirra
er hins vegar ágætt dæmi um hlið-
arstarfsemi sem dregur athygli og
starfskraft stjórnmálamanna og
annarra frá fjölmörgum brýnum
verkefnum sem eðli máls sam-
kvæmt heyra undir opinbera aðila.
Höfundur er rafmagnsverkfræð-
ingur og framkvæmdastjóri
Skímu ehf.
Æ) BÚNAÐARBANKINN
"Snæfinnur snjókarl, sniðugur meö krónurnar" -Traustur banki
QLAN • AUGLÝSINGASTOFA