Morgunblaðið - 21.12.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.12.1995, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1995 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Walesa fráfarandi forseti Póllands leggur fram skjöl „sem ógna öryggi ríkisins“ Varsjá. Reuter. Oleksy sakaður um njósnir fyrir Rússa LECH Walesa, sem lætur af emb- ætti forseta Póllands á laugardag, kveðst hafa undir höndum skjöl sem svipti hulunni af alvarlegri „ógnun við öryggi ríkisins“ án þess að skýra frekar frá efni skjalanna. Pólsk út- varpsstöð hafði eftir ónafngreindum heimildarmönnum að skjölin sýndu að Jozef Oleksy forsætisráðherra hefði haft samskipti við leyniþjónustu Sovétríkjanna og Rússlands frá árinu 1983 og þar til hann varð forsætis- ráðherra fyrr á þessu ári. Pólska rík- isútvarpið hafði síðar eftir einum af saksóknurum hersins að skjölin fjöll- uðu um meintar njósnir hátt setts embættismanns sem ekki var nafn- greindur. Vestrænir stjórnarerind- rekar sögðu ljóst að skjölin væru um Oleksy. Pólska stjórnin kom saman í gær og neitaði því að Oleksy hefði gerst sekur um njósnir. Heimildarmaður tengdur stjórninni sagði að ásakan- imar væru byggðar á „kunningsskap Oleksys við mann sem bjó í Varsjá og reyndist síðar rússneskur leyni- þjónustumaður". Talsmaður rúss- nesku leyniþjónustunnar neitaði því að hún hefði haft samstarf við Oleksy. Jozef Oleksy sakaði Lech Walesa og Andrzej Milczanowski innanríkis- ráðherra, sem forsetinn skipaði, um „lágkúrulega ögran“ þegar ásakan- Barist um Gudermes RÚSSAR hafa haldið jippi stans- lausri skothríð á Gudermes, aðra stærstu borg í Tsjetsjníju, en hún hefur verið í höndum skæruliða frá því í síðustu viku. Hér er rúss- neskur hermaður að hlaða sprengjuvörpu en að sögn rúss- neska sjónvarpsins í gær var loka- sóknin gegn skæruliðum í borg- inni hafin og barist á götunum. Ný sendring af rLuwa Oessous i irnar vora bornar undir hann. „Það sem gert hefur verið sýnir að öryggi ríkisins kann að hafa verið ógnað, en af hálfu þeirra sem geta ekki lát- ið af embætti með reisn.“ Wálesa og Milczanowski lögðu skjölin fram á skyndifundi með for- setum beggja þingdeilda, hæstarétt- ar og stjórnlagadómstólsins í forseta- höilinni í Varsjá í fyrrakvöld. í yfír- lýsingu frá forsetaembættinu um fundinn var ekki skýrt frá efni skjal- anna. Talsmaður ríkisstjómar vinstri- flokkanna, Alaksandra Jakubowska, kvaðst ekkert vita um málið umfram það sem fram kæmi í fjölmiðlum. „Eg tel að þetta sé aðeins enn ein tilraun- in til að grafa undan stjórn Póllands." Jakubowska sagði að Oleksy hefði óskað eftir því að Walesa boðaði DÆTUR Richards Nixons, fyrr- verandi Bandaríkjaforseta, gagnrýna harkalega kvikmynda- leikstjórann Oliver Stone og segja hann svívirða minningu Nixons I nýrri mynd leikstjórans er frumsýnd var í gær. Ljóst sé að Stone noti tækifærið sem gef- ist þar sem Nixon-hjónin séu nú Iátin og geti ekki leitað réttar síns hjá dómstólum. Breski leikarinn Anthony Hopkins leikur forsetann. Nixon er lýst sem óöruggum manni, sí- fellt gleypandi Iyf, hann hafi verið heltekinn af dauða tveggja bræðra sinna og tveggja póli- tískra andstæðinga, Johns og Roberts Kennedys. Sagt er að Nixon hafi vitað af ráðagerðum um að myrða Fidel Castro Kúbuleiðtoga og gefið í skyn að ráðabruggið hafi síðar orðið kveikjan að morðinu á Kennedy forseta 1963. Stone vísar ásökunum gagn- rýnenda sinna á bug. „Ég hygg að þeir sem sjá myndina okkar muni, hver sem skoðun þeirra þegar í stað til fundar um málið hjá Landvarnaráðinu, sem er skipað for- setanum, forsætisráðherranum og fleiri ráðherrum, forsetum þingdeild- anna, og æðsta manni hersins. Blöð krefjast upplýsinga Pólsk dagblöð kröfðust þess að almenningur fengi að vita um allar staðreyndir málsins og að það yrði leitt til lykta áður en Aleksander Kwasniewski sver embættiseið for- seta á laugardag. „Þótt alvarlegar sögusagnir breiðist út sem eldur um sinu í Varsjá ríkir hér algjör óvissa," skrifaði Adam Michnik, ritstjóri Gaz- eta Wyborcza. „Enginn veit neitt með vissu um staðreyndir málsins." Dagblaðið Zycie Warszawy sagði að Walesa myndi bíða mikinn álits- hnekki ef ekki reyndist fótur fyrir hefur verið fyrir á manninum, hafa öðlast meiri skilning á hon- um, manni sem var holdtekja allra andstæðnanna í landi okkar og á öldinni... Það var ekki ætlunin að sýna honum neina ill- kvittni.“ Sögunni nauðgað Stone leggur áherslu á að ekki sé um heimildarmynd að ræða, myndin sé „mitt á milli afþrey- ingar og sagnfræði" og verið sé að túlka staðreyndir á frjálsleg- an og listrænan hátt. Sagnfræðingar hafa áður fundið að því hvernig Stone fer með sögulegar staðreyndir, eink- um hafa þeir hæðst að samsæris- kenningum hans í myndinni JFK. „Það er hægt að nauðga sögunni og það hafa kvikmyndaverin í Hollywood verið að gera. Gríðar- leg ákefð Stone minnir mig á mína eigin túlkun á atburðum sögunnar þegar ég var í háskóla - og þegar ég var marxisti,“ segir bandaríski sagnfræðingur- inn Stephen Ambrose. þessum ásökunum á hendur forsætis- ráðherranum. Blaðið bætti hins veg- ar við að ef fram kæmu sannanir fyrir því að forsætisráðherrann hefði gerst sekur um landráð yrðu Pólveij- ar að spytja sig hvort þeir hefðu í reynd losnað undan yfirráðum Moskvustjórnar árið 1989, þegar Samstaða bar sigurorð af pólsku kommúnistastjórninni. Walesa hefur sagt að hann verði ekki viðstaddur þegar Kwasniewski, sem er fyrrverandi kommúnisti, verð- ur svarinn í embætti forseta. Sak- sóknarar í Varsjá sækja nú fast að Kwasniewski og óskuðu eftir því á þriðjudag að þinghelgi hans yrði rof- in til að hægt yrði að rannsaka meint lögbrot hans vegna yfirlýsingar sem hann lagði fram sem þingmaður um íjárhagslega hagsmuni hans utan þingsins. Kwasniewski lét þar hjá líða að skýra frá fjárfestingum eigin- konu sinnar í arðbæram hlutabréfum í tryggingarfélagi. Skattstofan þjarmar að Walesa Embættismaður pólsku skattstof- unnar skýrði frá því í gær að Walesa yrði gert að greiða skatt af milljónar dala greiðslu, jafnvirði 65 milljóna króna, sem hann fékk árið 1990 frá bandarísku kvikmyndafyrirtæki fyrir réttinn til að gera kvikmynd byggða á ævi hans. Hæstiréttur í Bretlandi Grátandi þingmaður tapar meið- yrðamáli London. The Daily TelegTaph. BRESKI íhaldsþingmaðurinn David Ashby gæti orðið gjaldþrota og því misst þingsæti sitt en hann tapaði á þriðjudag meiðyrðamáli sem hann höfðaði gegn The Sunday Times. Blaðið fullyrti í fyrra að Ashby væri hræsnari og lygari, hann hefði hamrað á mikil- vægi hefðbundinna fjölskyldugilda en væri samkynhneigður og hefði logið _að eiginkonu sinni. Meiri- hluti íhaldsflokksins er svo tæpur að talið er að flokkurinn muni ef til vill bjarga Ashby frá gjaldþrot- inu en breskur þingmaður verður að segja af sér verði hann gjald- þrota. Málskostnaðurinn er alls um 350.000 pund eða um 35 milljónir króna og fellur hann allur á Ash- by. The Sunday Times sagði í jan- úar í fyrra að Ashby, sem er 55 ára, hefði deilt rúmi með karl- manni í sumarley.fi í Goa á Ind- landi og átt í löngu ástarsambandi við manninn, 32 ára gamlan lækni, Ciaran Kilduff. Atkvæði í hæstarétti féllu 10 gegn 2, blaðinu og fyrrverandi rit- stjóra þess, Andrew Neil, í vil. Er niðurstaðan var kynnt grét Ashby. Vitnisburður eiginkonu hans, Sil- vana, var notaður gegn þingmann- inum. Er hún reyndi að hugga hann með faðmlögum og kossi ýtti hann henni frá sér og sagði. „Láttu mig bara í friði!“ Tæpur meirihluti Síðast varð þingmaður að segja af sér vegna gjaldþrots árið 1928. Meirihluti Ihaldsflokksins er nú aðeins fimm atkvæði í neðri deild- inni og telja flestir öruggt að sæti Ashbys myndi tapast ef efnt yrði til aukakosninga í kjördæmi hans í norðvesturhluta Leicestershire. Einn af þingmönnum flokksins lést nýlega og vinni stjórnarandstaðan það færi meirihlutinn í þijú sæti; falli sæti Ashbys einnig verður stjórn Johns Majors með aðeins eins atkvæðis meirihluta. Unita- menn í flugslysi FLUGVÉL frá Zaire, sem fórst í Angóla á þriðjudag, var tekin á leigu af Unita-skæruliðum, að sögn. háttsetts embættis- manns í Angóla í gær. Sagði embættismaðurinn að vélin hefði farist skammt frá Jamba, þar sem hefur verið eitt öflugasta vígi skærulið- anna. 141 fórst með flugvél- inni en tveir þeirra fimm sem lifðu slysið af, létust af sárum sínum í fyrrinótt. Neita tals- menn Unita að flugferð skæruliðanna hafi verið til marks um það að fyrir dyrum standi miklir liðsflutningar þeirra í Angóla. Kozyrev vill verja sig ANDREI Kozyrev, utanríkis- ráðherra Rússlands, hugðist veija hendur sínar fyrir rétti í Moskvu í gær en fékk ekki tækifæri til þess. Var ástæðan sú, að kærandinn, Vladímír Zhírínovskíj, leiðtogi þjóðern- issinna, mætti ekki og það gerði dómarinn ekki heldur. Kozyrev kvaðst vera kominn til að veija þann rétt sinn að mega kalla fasista fasista en fyrir það kærði Zhírínovskíj hann fyrr á árinu. Simpson af- hendi gögn um fjármál DÓMARI í Los Angeles hefur skipað O.J. Simpson að af- henda fjölskyldum Nicole Simpson og Ronalds Goldmans gögn um fjármál sín. O.J. Simpson var sýknaður af ákæru um að hafa myrt þau en Nicole var fyrrverandi eig- ink'ona hans. Fjölskyldur hinna myrtu hafa höfðað einkamál á hendur Simpson, sem þær saka um að bera ábyrgð á dauða Nicole og Goldmans. Fullyrt hefur verið að Simpson hafi þénað um 3 milljónir dala, tæpar 200 milljónir ísl. kr. á meðan hann sat í fangelsi. Díana ein um jólin? DÍANA prinsessa mun ekki dvelja hjá bresku konungsfjöl- skyldunni um jólin. Synir Dí- önu og Karls prins munu eyða jólunum með föðurfjölskyldu sinni á setri Elísabetar drottn- ingar í Sandringham og hafði Díana ákveðið að vera hjá fjöl- skyldunni. Hún hefur nú séð sig um hönd en ekki hefur verið upplýst hvar hún verður um jólin. Brotist inn hjá bítli BROTIST var inn á heimili bítilsins Paul McCartney í London er hann var hjá eigin- konu sinni, Lindu, en hún ligg- ur nú á sjúkrahúsi eftir að hnúður var íjarlægður úr bijósti hennar. Svo virðist sem einhver hafi komið að húsinu er þjófarnir athöfnuðu sig inn- andyra og flúðu þeir á brott án þess að taka með sér nokk- uð fémæýt. Þeir ollu hins veg- ar töluverðum skemmdum á íbúð McCartneys. Reuter Ný kvikmynd um Nixon frumsýnd Stone sakaður um sögufölsun og róg Los Angeles, Washington. The Daily Telegraph, Reuter.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.