Morgunblaðið - 21.12.1995, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Andstyggilega
kvikindislegt
Frá Evu Benjamínsdóttur:
ÞAÐ VAR dag einn seinnipart júlí-
mánaðar að einhver var á símsvar-
anum þegar ég kom heim til mín
úr bæjarferð. Það er í sjálfu sér
ekkert óeðlilegt, þar sem hlutverk
símsvarans er einmitt það að taka
við skilaboðum ef fólk af ýmsum
ástæðum kemst ekki í símann.
Það fer alltaf um mig kærkomin
tilfinning þegar ég heyri þetta píp
í símsvaranum á nokkurra sekúntu
fresti, svona smá spenna, hver
skyldi nú vera að reyna að ná í
mig. Oftast fer ég ekki úr yfirhöfn-
inni heldur dríf mig að símanum,
ýti á „message playback" takkann
og vona alltaf að það séu nú ekki
slæmar fréttir.
Þennan dag fór snældan í sím-
svaranum á stað eins og aðra daga
nema, þar hljómaði rödd konu sem
ég kannaðist ekki við og þegar hún
svo kynnti sig þá var ég alveg viss
um að ég þekkti hana ekki.
Röddin: Já, Eva Benjamínsdóttir,
ég heiti Kristín Björk Svavarsdóttir
og hringi fyrir hönd ferðaskrifstof-
unnar Urval- Útsýn og tilkynni þér
hér með að þú hefur unnið í mynda-
samkeppni, ferð fyrir tvo til Florida.
Þú getur vitjað vinningsins og náð
í mig hjá Úrval-Útsýn í síma
569-9300'.
Fleiri voru ekki skilaboðin þann
daginn. Ég hengdi upp yfihöfnina
og fór strax að hugsa hverjum ég
ætti að bjóða með mér í ferðalagið.
En æ,æ, það er svo íjári heitt á
Flórida á þessum árstíma og ég er
á kafí í málverkinu, sýningin geng-
ur fyrir og verður að komast upp
í september. Þetta gengur ekki,
þetta er alveg ómögulegur tími fyr-
ir mig, ég verð bara að reyna að
semja við þá hjá Úrval-Útsýn og
fara frekar þegar myrkrið skellur
á hér á hjara veraldar, þó það kosti
eitthvað smávegis í viðbót. Það er
svo dýrðlegt að komast úr myrkrinu
og kuldanum í birtuna og hlýjuna.
Fantasían yfirtók allan raunveru-
leika um stund, en svo var eins og
í mig kippt ú hæðstu hæðum og
skellt niður á jörðina. Ég áttaði
mig nú á því að ég var alls ekki
búin að senda umslagið með mynd-
unum í samkeppnina. Þarna lá þá
umslagið fyrir faman mig með ut-
anáskriftinni: DV umhverfismynda-
verðlaunasamkeppni, osfrv. Hvem-
ig getur staðið á þessu?
569-9300 það hringir, Úrval -
Útsýn góðan dag. Góðan dag, ég
heiti Eva Benjamínsdóttir, gæti ég
fengið samband við Kristínu Björku
Svavarsdóttur? Það er engin Kristín
Björk Svavarsdóttir starfandi hér
að mér vitandi. Nú, er þetta ekki
hjá ferðaskrifstofunni Úrval-Útsýn?
Jú, jú, það er rétt. Hum, þannig
er nefnilega mál með vexti að ég
var að vinna myndasamkeppni, ferð
fyrir tvo til Flórída á ykkar vegum,
þetta voru mjög skýr skilaboð á
símsvaranum mínum í dag. Augna-
blik, sagði konan vinsamlega, ég
skal athuga þetta betur, annars
veit ég ekki til að hér á bæ hafi
verið einhver myndasamkeppni í
gangi, sendir þú okkur myndir í
samkeppni? Neei, ég man nú ekki
til þess, en ég tek óhemju mikið
af ljósmyndum. Heyrðu Eva, má ég
ekki bara fá símanúmerið þitt ?
Jú jú, það er allt í lagi. Ég gaf henni
upp símanúmerið og kennitölu líka
að mig minnir, við kvöddumst og
hún lofaði að hringja eftir stund.
Konan kannaði allar deildir fyrir-
tækisins og komst að því að Úrval
-Útsýn hefði ekki boðið upp á neina
myndasamkeppni, allavega ekki á
þessu ári, það var á hreinu. Því
miður verð ég að segja þér, Eva,
að þú ert víst ekki sú fyrsta í dag
sem hefur hlotið þannig vinning.
Oj bara, en andstyggilega kvikind-
islegt gabb. Já, því miður, sagði
konan.
Ég fleygði yfir mig yfirhöfninni,
þreif umslagið með Ijósmyndunum
og brenndi af stað með myndirnar
í hina raunverulegu ljósmyndasam-
keppni, staðráðin í því að vinna
ferð fyrir tvo til Flórída.
EVA BENJAMÍNSDÓTTIR,
Hrísmóum 4, Garðabæ.
Aðgát skal
höfð í nær-
veru sálar
Frá Ingveldi Höllu Kristjánsdóttur:
UM DAGINN var mér litið í Morg-
unblaðið. Þar sem ég er mikil áhuga-
manneskja um ræktun íslenskrar
tungu las ég grein Stefáns Snævarr
um hrörnun ástkæra málsins okkar.
Ég var sammála Stefáni í því að
efla þyrfti sókn íslenskunnar á heim-
ilum, skólum og í fjölmiðlum en aft-
ur á móti var ég mjög ósammála því
sem hann sagði um íslenska ungl-
inga. í grein hans segir orðrétt:
„Engu líkara er en að unga fólkið
sé hópur villimanna sem hefur
skyndilega ráðist inn í landið. Líkt
og villimenn er það nánast ólæst,
ofbeldisgjarn, kann vart að draga til
stafs og lifir í eilífu núi, hefur enga
sögulega vitund." Þetta finnst mér
einum of sterkt til orða tekið. En
Stefán lætur sér þetta ekki nægja.
Hann heldur áfram og segir: „Rétt-
ast væri að rétta hyskið og senda
ungviðið á einhveija Jótlandsheiðina
í henni Ameríku. Þar getur það glápt
á ofbeldismyndir þangað til það dett-
ur niður dautt.“ Mér er spurn. Fyrst
íslenskt ungviði er svona hræðilega
illa statt málfræðilega, hver er þá
rétta lausnin fyrir það? Ég veit ekki
um neina heildarlausn í þessu máli.
Héma fléttast svo margt saman. En
hins vegar veit ég að rétta lausnin
er ekki að upphefja sjálfan sig og
vera með hroka eins og Stefán ger-
ir. Ég tel mig og mína vini ágæta
fulltrúa okkar kynslóðar, og unga
og upprennandi menn. Þess vegna
gat ég ekki annað en móðgast, þeg-
ar ég las greinina hans Stefáns. Mér
fannst hún ekki góð skilaboð til ís-
lenskra ungmenna. Það er ekki gam-
an að lesa að maður sé einskis nýtur
og ætti helst að detta niður dauður.
Mér fínnst að Stefán ætti að líta í
eigin barm áður en hann tekur upp
á því að dæma aðra. Dropinn holar
harðan steininn og með þolinmæð-
inni einni tekst okkur að bjarga ís-
lenskunni. Okkur miðar ekkert áleið-
is með hroka. Og í reynd fínnst mér
Stefán bara bæta gráu ofan á svart.
INGVELDUR H. KRISTJÁNSDÓTTIR,
17 ára nemi í Fjölbrautaskólanurn í
Breiðholti.
Við náðum ótrúlega hagstæðum samningum við
HAKU M0BLER í Danmörku
RÚM, SJÓNVARPSBORÐ, BLAÐAGRINDUR OG HJÓLAVAGNAR
Við bjóðum nú takmarkað magn af
vönduðum og fallegum húsgögnum
frá HAKU á sérstöku jólatilboði.
Láttu þetta einstaka tækifæri ekki
renna þér úr greipum.
ÍNGVAR&GYLFIP
Grensásvegi3.108Reykjavík.S.5681144Fax5888144<t.540993-2119 HjÓlavagn kl". 15.309,- Stgi".
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1995 53
EGGERT feldskeri
Sími 5511121
Grisporf
gönguskór
Srærðir 36-46.
Vondaðir leðurskór.
Varnsheldir.
Grófur göngusóli.
Höggdeyfor í sóla.
Fórlaga innsóli.
Grirex einangrun
gegn kulda.
Grirex einangrun
gegn bleyru.
Verð oðeins 5.950
Munið gjafQbréfin!
Pósrsendum samdœgurs.
Opiðídag kl.9-22.
SKÚUERSLUN
KÚPAV0GS
HAMRAB0RG 3 • SÍMI 554 1754