Morgunblaðið - 21.12.1995, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1995 27
Jón Múli
Arnason
Nýjar bækur
• ÚT er komin bókin Söngdans-
ar-I sem er fyrra hefti af tveimur
með píanó- og_ söngnótum _af lögum
Jóns Múla Arnasonar. I heftinu
eru söngvar þeirra
Jóns Múki og
Jónasar Árnason-
ar úr söngvaleikj-
unum Rjúkandi
ráði og Járnhausn-
um. Útsetningarn-
ar eru eftir Magn-
ús Ingimarsson
sem stjórnaði tón-
Iistarflutningi þeg-
ar verkin voru fyrst
sett upp. I heftunum eru nótur,
hljómar og textar auk ljósmynda.
í kynningu segir: „Þó sönglög
Jóns Múla Arnasonar tindri af öllu
því besta í vestrænni sönglagahefð
þá hefur sérstök nótuútgáfa af þeim
ekki fengist hingað til. I Söngdöns-
um-I eru loksins komnar vel gerð-
ar, aðgengilegar píanóútsetningar
af sívinsælum lögum Jóns. Að auki
eru þar hljómar og textar laganna
þannig að Söngdansar-I hefur víð-
tækt notagildi fyrir einstaklinga og
hópa sem stunda hljóðfæraleik eða
söng.“
Utgefandi er Nótu-útgáfan.
Söngdansar-I fæst íhelstu hljóð-
færa- og bókaverslunum á kr. 995.
Eftir áramót hækkar verðið íkr.
1.195.
Úr
Rínargulli.
• STOFNUN Sigurðar Nordals
hefur gefið út bókina Wagner’s
Ring and Its Icelandic Sources:
A symposium at the Reykjavík
Arts Festival, 29. May 1994. Bók-
in hefur að geyma
fimm erindi sem
voru flutt á alþjóð-
legu málþingi um
Niflungahring
Richards Wagners
og íslenskar heim-
ildir hans í Nor-
ræna húsinu 29.
maí 1994. Mál-
þingið var haldið í
tilefni af frum-
flutningi Niflungahringsins á ís-
landi. En stytt útgáfa hans var flutt
á Listahátíð í Reykjavík 1994.
Þeir sem eiga erindi í bókinni
eru; Lars Lönnroth, Barry
MiIIington, Stewart Spencer,
Vésteinn Ólason og Þorsteinn
Gylfason. Efni erindanna er fjöl-
breytt og íjalla þau meðal annars
um íslenskar heimildir Niflunga-
hringsins og notkum Wagners á
þeim, félagslegar og bókmenntaleg-
ar forsendur verksins og Richard
Wagner sem skáld. Auk þess skrif-
ar Selma Guðmundsdóttir píanó-
leikari í bókina um tildrögin að
uppfærslu Niflungahringsins á List-
hátíð í Reykjavík 1994.
Ritstjóri bókarinnar er Úlfar
Bragason. Hún er önnur í flokki
smárita Stofnunar Sigurðar Nor-
dals. Ritið er 88 síður auk átta
myndasíðna. Útgáfuþjónustan
Skerpla sá um umbrot. Valur
Skarphéðinsson hannaði kápu. Gut-
enberghf. prentaði. Hið íslenska
bókmenntafélag annast dreifingu.
Bókin kostar í verslunum 1.666 kr.
V
EINAR J. SKÚLASON HF
Grensásveqi 10 • Sími 563 3000
igtSSSSm
'' ■■ I •-
■ffe:
BRAVO
MS
f m mwæ
Enn meiri kraftur-
75Mhz, 100Mhz eða 133Mhz Pentium örgjörvi.
Hraðvirkari skjávinnsla og innbyggt hljóðkort gefa enn
hraðari vinnslu. AST Command Center hugbúnaður
með margþættu öryggi, íæsingu og innbyggðri
vírusvörn ásamt "FlashBIOS" auðveldar uppfærslu
og eftirlit yfir tölvunet.
COMPUTER
Þessir einstöku eiginleikar, ásamt fjölda annarra tryggja þér
kraft til að vinna með öflugustu forrit og flóknustu töflureikna,
jafnt sem venjulega ritvinnslu, fljótt og örugglega.
PCI tengiraufar gera þér kleift að nýta kosti nýjustu
og öflugustu viðbótarspjalda á markaðnum.
• ATI Mach 64-bita skjáhraðall á PCI braut
• AST Command Center hugbúnaður, vírusvörn o.fl.
• Innbyggt hljóðkort
• Uppfyllir "Plug ‘n' play, EPA og DPMS
• Örgjörvi, skjákort og minni stækkanleg
• 3ja ára ábyrgð
-- *v
— ' \ * ' ' " '
eru fluttir oð Sœvarhöfba 2a
—■ III I ■■■■!■ .1 ■_——,