Morgunblaðið - 21.12.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1995 31
AÐSENDAR GREINAR
listarflutnings. Sérstaklega á það
við um tónlist Johanns Sebastians
Bachs, sem leit á sjálfan sig sem
auðmjúkan þjón listarinnar en ekki
herra, og samdi allt Guði til dýrð-
ar. Enginn nær langt í flutningi
þeirrar listar án þess að nálgast
hana sem helgidóm, ná á henni
fullkomnum tökum, sameinast anda
hennar og innihaldi en afklæðast
yfirlætinu.
Inntak greinar minnar stendur
óhaggað: Mikið skortir enn á að
tónlist Bachs sé nægilega kynnt og
flutt á íslandi. í rauninni er engin
tónlistarstefna sjáanleg í landinu.
Eðli sínu samkvæmt er Sinfóníu-
hljómsveit íslands stærsti konsert-
haldari landsins. Ekki hefur hún, svo
að ég muni, látið sig stórverk Bachs
nokkru skipta, utan að hún fékk
mig til að flytja H-moll messuna á
300 ára afmæli tónskáldsins 1985.
Þessir gimsteinar tónlistar heyrast
aðeins á nokkurra ára fresti fyrir
atbeina einstaklinga. Af nærri 300
kantötum Bachs hafa aðeins örfáar
heyrst á íslandi enn. Vegur kirkj-
unnar vex á margan hátt, en hún
þyrfti að draga til sín fleiri, þar sem
fólk á kyrrðarstund frá ærðum heimi
og hugleiðir boðskap jafnframt fag-
urri tónlist, sem er eins og smyrsl
á sálina. Metnaðarfullir kirkjukórar
mundu vaxa af glímunni við svo sem
eina Bach-kantötu á ári, af nógu
er að taka, fimm sett við alla helgi-
daga ársins. Góðum hljóðfæraleikur-
um fjölgar óðum. Þarna er vettvang-
ur til að virkja krafta þeirra og kunn-
áttu og hleypa auknu lífi í guðsþjón-
ustuna. Heimur listarinnar er fullur
af gersemum, sem gætu staðið öll-
um opnar en almenningur hefur
ekki hugmynd um vegna skorts á
fræðslu. Með þeirri tæknibyltingu,
sem við búum við, eiga allir aðgang
að fagurri tónlist, en flestir hlusta
aðeins á slævandi hávaða. Líklegt
má telja, að aðeins um 2% íslensku
þjóðarinnar þekki nokkuð til tónlist-
ar Bachs fyrir utan tvö til þrjú þekkt
sálmalög.
Tónlistarfræðsla sú, sem ég hef
annast við Endurmenntunardeild
Háskóla íslands sl. þijú ár, hefur
fallið í góðan jarðveg og ljóst, að
hennar er mikil þörf. Nú hygg ég
gott til samstarfs við Listvinafélag
Hallgrímskirkju að kynna almenn-
ingi dýrustu perlur barrokktónlistar
með sérstakri áherslu á Johann
Sebastian Bach, ævi hans og að-
gengileg verk, á útmánuðum. Tón-
list Bachs opnar hlustandanum nýja
heima friðar og fegurðar. Hún á
erindi við alla, verður að hugstæðri
inneign með hárri ávöxtun sem
hvorki mölur, ryð né önnur tor-
tímingaröfl fá grandað.
Gleðileg jól.
Höfundur er tónlistarfrömuður og
forstjóri Heimsklúbbs Ingólfs.
Flestir sjúklingar, sem læknar
Landspítalans sinna, þarfnast inn-
lagnar vegna bráðra veikinda, eða
vegna sérhæfðrar læknishjálpar,
sem ekki er forsvaranlegt að fram-
kvæma utan sjúkrahúsa.
Flatur niðurskurður á framlög-
um til fullkomnustu sjúkrahúsa
landsins við núverandi aðstæður
er fljótfærnisleg ákvörðun. Stjórn-
völdum ber að leita annarra úr-
lausna í samráði við þá aðila sem
stofna til flestra útgjalda sjúkra-
húsanna, þ.e. lækna. An slíks sam-
ráðs er vonlítið að árangur náist.
Landspítalinn og Borgarspítalinn
eru vegna sérþekkingar og tækni
endastöðvar í íslensku heilbrigðis-
kerfi og þangað er öllum alvarleg-
um tilfellum vísað. Nánast öll
kennsla heilbrigðisstétta byggir á
starfi og þekkingu starfsfólks
þessara stofnana. Því er það
ábyrgðarhluti að skera á lífæðar
þessara lykilstofnana í heilbrigðis-
kerfi landsins.
Stjórn læknaráðs Landspítalans, ,
Ásmundur Brekkan, Grétar Ólafs-
son, Sveinn Guðmundsson, Þórólf-
ur Guðnason, Helgi Sigurðsson,
Páll Torfi Önundarson, Valgerður
Baldursdóttir.
Bifreiðasalinn
og nýju lögin
HVERS eigum við
að gjalda? Að vera
bílasali í dag er ekki
öfundsvert í ljósi þess
að FÍB er eins og
hrægammar út um
borg og bæ að leita
eftir því hvort fólk
vilji ekki fara í mál
við bílasala með nýju
lögin að leiðarljósi.
Hvers vegna? Jú,
vegna þess að eftir
að lögunum var
breytt í júní 1994,
virðist sá misskiln-
ingur vera útbreiddur
meðal almennings, að
ef bíllinn bilar, þá eigi bílasalinn
að borga brúsann. Þetta er að
sjálfsögðu ekki rétt, hið rétta er
að seljandi ber ábyrgð á þeinv
hlut sem hann er að selja. Þó
vegur skoðunarskylda kaupanda
ekki minna, og skulu kaupendur
hafa það í huga að rannsóknar-
skyldan hvílir á þeim. Hitt er svo
annað mál að í lögum nr. 69/1994
4. gr. segir: „Bifreiðasali skal
afla upplýsinga, sem staðfestar
skulu skriflega af seljanda, um
akstur og ástand ökutækis."
Þetta er túlkað þannig að ef eig-
andi hefur tekið upp t.d. vél
og/eða gírkassa og á ekki nótur
Það minnkar áhættuna,
segir Vignir Arnar-
son, að eiga viðskipti
við bifreiðasala.
Vignir Arnarson
fyrir því, og hlutirnir bila, þá eigi
að vera hægt að krefja bifreiða-
salann um bætur. Þetta er frám-
unalega vitlaust í ljósi þess að
kaupanda var gefinn kostur á að
fá óháðan aðila til að meta ástand
bílsins; þessi klausa á að vera í
öllum afsölum bifreiðasala núna
og er óvefengjanleg ábending til
kaupanda um að framkvæma
þessa skoðun með einum eða öðr-
um hætti. Ef sanna má hins veg-
ar að bifreiðasala eða starfsmanni
hans hafi orðið á mistök, er fólki
að sjálfsögðu bent á að leita rétt-
ar síns, en mistök bílasala geta
vart orðið til þess að vél hrynji!!!
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
er það félag bíleiganda sem hefur
lögmann á sínum snærum, og
hefur hvað mest reynt að fá fólk
til að fara í mál vegna galla í
bílum. Þau mál, sem ég fékk upp-
lýsingar um, voru öll á sama veg:
ekki var haft samband við selj-
anda heldur beint við bifreiðasala.
Fyrrverandi eigendur voru furðu
lostnir er ég hafði samband við
þá og skildu síst í þessu.
Þegar mál er komið til lögfræð-
ings, er það að sjálfsögðu komið
langt út fyrir okkar svið. Það
hefur orðið bæði bifreiðasölum og
ekki síður kaupendum undrunar-
efni hversu mikið kapp er lagt á
að koma sökinni á bifreiðasalann
en ekki seljandann. Því auðvitað
er það hann sem svarar fyrir seld-
an hlut.
En við skulum skoða aðeins
hugtakið „galli“. „Galli er þegar
hinn seldi hlutur svarar ekki þeim
kröfum sem til hans má gera skv.
samningi aðila eða hann hefur
Ókeypis lögfræðiaðstoð
í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00
í síma 551 1012.
Orator
, félag laganema.
ekki þau einkenni eða
eiginleika sem al-
mennt má ætla að
hlutir af sömu tegund
hafi.“ Þarna er átt við
að bera þarf saman
sambærilega vöru og
hina seldu og skoða
málin út frá því. Ef
um bifreið er að ræða,
spilar inn í markaðs-
verð svo og verð til-
tekinnar bifreiðar og
akstur, því auðvitað
eru bifreiðar í misj-
öfnu ásigkomulagi og
engar tvær eins, og
þá ekki verðið. Það
er auðvitað útilokað að bifreiða-
sali geti borið ábyrgð á því ef
viðskiptavinur kemur inn, og lýg-
ur að sölumanni og/eða segir
kaupanda ósatt um ástand bíls-
ins, því að sölumaður er ekki allt-
af með þeim, og getur því ekki
vitnað um hvað þeim fór í milli á
meðan.
Það eru til óteljandi dæmi um
að ekki hafi verið rétt staðið að
viðskiptum, hvort heldur um er
að ræða bifreiðar eða annað,
menn deila jafnan um þetta. Að
ætlast til þess að bifreiðasali beri
ábyrgð á gamalli bíldruslu, sem
ekið hefur verið 100 þús. km, er
út í hÖtt, það sér hver heilvita
lesandi, og gaman væri að vita
hver er ábyrgð þeirra, sem aug-
lýsa í blöðum; er ábyrgðin blaðs-
ins eða eigandans? (Það má ör-
ugglega finna bílasala til að
kenna um.) En fyrst við erum
komin út í bílaviðskipti skulum
við skoða örlítið þá hópa sem eru
æði misjafnir á bílasölum. Það er
athyglisvert að skoða það sem
almenningur kallar braskara,
þetta eru almennt þeir menn sem
almenningi er illa við og vill ekk-
ert af vita. Staðreyndin er hins
vegar sú, að þetta eru þeir menn
sem almennt engin vandamál eru
í kringum. Þetta eru menn sem
kaupa og selja bifreiðar og hafa
ánægju af og stundum smá skot-
silfur, en ef upp kemur einhver
kvilli í seldum bíl, þá er það lagað
orðalaust. Það er annað en al-
menningur gerir, hann telur að
verið sé að rífa úr sér hjartað ef
bifreiðasali hringir og segir að
bíllinn hafi bilað, og svarið er ein-
hvern veginn á þann veg, að það
geti engan veginn átt sér stað,
eða þessi klassíska eigingirni:
„Og ég sem átti bílinn í 10 ár og
hann bilaði aldrei. Skrýtið að
hann skuli gera það strax eftir
að ég sel hann,“ eða: „Hann kann
bara ekkert dð setja hann í gang
í kulda,“ eða: „Það verður að
gæta að olíunni í hvert skipti sem
sett er á hann bensín.“ Já, það
er margt sem gleymist þegar
gamlir bílar eru seldir enda^ekki
hægt að ætlast til að fólk muni
allt. En núna er allt í lagi að
gleyma að segja frá atriðum eins
og að hann brenni u.þ.b. 1 1 af
olíu á hverja 100 km. Eða: „Já,
heyrðu, ég var búinn að panta
styrktarbitana undir hann. En
þetta er allt í lagi því bílasalinn
borgar!!!“ Það skal skýrt tekið
fram að að sjálfsögðu á fólk að
leita eftir því að eiga viðskipti við
löggilta bifreiðasala, það gæti
minnkað áhættuna.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Barnatískuskór
2.495
Tegund:!
Litir: Svart brúnt
Ath: Avallt næg ókeypis bílastæði fyrir framan verslunina.
Póstsendum samdœgurs
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN
DOMUS MEDICA SÍMI 551 8519
..ítalskar hágceðasokkabuxur!
SÖLUSTAÐIR
75) Verslunitt Brá
Erobic sport
75) Versluniti Etttbla
Hress
Snyrtistofan Hrund
Hárgreiðslustofan Prítttadonna
^j Versluttin Sandra
' Verslunin Stella
% Stúdíó Ágústu og Hraftts
’~Zfj Versluttitt Snyrtihöllin
Textilline
^3) Verslunitt Rita
Toppform
^j World Class
^ Hárgreiðslustofan Hársel
'~ÍJ\ Verslunin Ltbía
73}' Verslunitt Natta
Heildsala: Studio Vík hf.
Kleppsmýravegi 8 • 104 Reykjavík
Sími: 568 7282 • Fax 568 7267