Morgunblaðið - 21.12.1995, Síða 32

Morgunblaðið - 21.12.1995, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1995 33 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. YOPNAÐIR RÁNSMENN VOPNAÐIR RÁNSMENN setja orðið svip sinn á höfuð- borgarsvæðið. Þrír vopnaðir og grímuklæddir menn rændu útibú Búnaðarbankans við Vesturgötu síðastiiðinn mánudag. Fyrir aðeins tveimur mánuðum var gerð ránst- ilraun í Háleitisútibúi Landsbankans. Fyrr á árinu voru starfsmenn Skeljungs rændir - á leið með „helgarsölu“ af benzínstöðvum fyrirtækisins í útibú íslandsbanka í Lækjargötu. Fyrir fáeinum árum urðu ránsmenn manni að bana á benzínstöð við Stóragerði. Fjarskipta- og samgöngutækni nútímans hefur nánast þurrkað út ljarlægðir og fært þjóðir heims í nábýli. ís- land er ekki lengur einangrað eyland yzt í veraldarútsæ. Þetta nábýli hefur fært okkur fjölmargt jákvætt á menn- ingar- og viðskiptasviðum, en einnig það neikvæða í umheiminum, m.a. eiturlyf með tilheyrandi glæpum og ofbeldi. Byssuhlaupi var beint að höfði gjaldkera útibús Búnað- arbankans við rán nú í vikunni. Sú staðreynd minnir okkur ónotalega á að starfsfólk banka og annarra stofn- ana, sem peninga og önnur verðmæti geyma, getur verið í lífshættu við störf sín. Mikilvægt er að öryggi þeirra verði tryggt sem kostur er. Sem og að fyrirbyggjandi aðgerðir og öryggisbúnaður séu í samræmi við það sem bezt þekkist. Rán og þjófnaðir úr bílum, ibúðum, sumarbústöðum og verzlunum, sem og árásir á fólk á förnum vegi, teng- ist oftar en ekki kaupum og neyzlu eiturlyfja. Botnfall erlendra stórborga speglast að þessu leyti í íslenzku samfélagi dagsins í dag. Öll ábyrg þjóðfélagsöfl verða að leggjast á árar í baráttunni gegn þessum ófögnuði. Hún þarf að vera forgangsverkefni okkar næstu misser- in og árin. EES í UPPNÁMI? MIKLAR vonir hafa verið bundnar við samninginn um Evrópskt efnahagssvæði, meðal annars á þeim forsendum að hann veiti hindrunarlausan aðgang að markaði Evrópusambandsins fyrir langstærstan hluta íslenzkra sjávarafurða. Samningurinn hefur nú þegar skilað íslenzkum sjávarútvegi umtalsverðum ávinningi og hefur útflutningur unninna sjávarafurða til dæmis aukizt, en hráefnisútflutningur minnkað hlutfallslega eftir að samningurinn gekk í gildi. Ákvörðun Evrópusambandsins um að beita öryggis- ákvæðum EES-samningsins - sem voru reyndar sett í samninginn að kröfu EFTA-ríkjanna - til að ákveða lág- marksverð á innfluttan lax frá íslandi og Noregi, snert- ir ekki íslenzka hagsmuni til skemmri tíma litið, eins og fram kom í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í gær. Hins vegar skapar hún fordæmi til lengri tíma fyrir því að ESB grípi til alls kyns geðþóttaákvarðana, sem geta hindrað frjálsan aðgang íslenzkra sjávarafurða að Evr- ópumarkaðnum. EFTA-ríkin telja að öryggisákvæði EES nái ekki til viðskipta með sjávarafurðir, þar sem almenn ákvæði samningsins um frjáls vöruviðskipti taka ekki til sjávaraf- urða heldur var gerð sérstök bókun við samninginn um þær tegundir sjávarafurða, sem flytja má tollfrjálst inn á Evrópumarkaðinn. Verði ákvörðun Evrópusambandsins ekki hnekkt, er því hætta á að samskipti EFTA-ríkjanna og ESB á sviði viðskipta með sjávarafurðir verði í uppnámi, þótt ekki sé nema vegna þess að það traust, sem nauðsynlegt er að ríki, verður ekki fyrir hendi. Stjórnvöld í EFTA-ríkjun- um, þar á meðal íslenzka ríkisstjórnin, mega því einskis láta ófreistað að fá Evrópusambandið ofan af ákvörðun sinni. Bezt er auðvitað að það gerist með viðræðum, en ekki má heldur útiloka þann möguleika að vísa málinu til gerðardóms. Verði lagatúlkun Evrópusambandsins hins vegar ofan á að lokum, er íslendingum vandi á höndum. Vandséð er að ESB myndi vilja taka upp samninga að nýju til að tryggja rétt EFTA-ríkjanna. Norskir sérfræðingar í áfallastreitu og hjálp Allir verða að kunna eitthvað Norsku geðlæknamir Lars Weisæth og Pál Herlofsen, sem em sérfræðingar í áfalla- streitu, sögðu Hiidi Friðriksdóttur frá því að standi fólk frammi fyrir langvarandi streitu og ótta eða verði fyrir miklu áfalli án þess að hafa möguleika á að tjá sig um það, valdi það sjúkdómum síðar á lífsleiðinni, allt að 10-40 ámm eftir atburðinn. ' Morgunblaðið/Reuter MISMUNANDI er eftir starfsstéttum hversu mikið fólk þarf að vita um áfailahjálp, en að sögn norsku geðlæknanna þurfa allir að kunna eitthvað fyrir sér. AFALLAHJÁLP er í hugum íslendinga hjálp við að- stæður þar sem fjöldi fólks verður fyrir áfalli t.d. af völdum náttúruhamfara eða slysa. Norðmenn, sem eru komnir langt í rannsóknum á áfallastreitu og áfalla- hjálp, ræða um hvort tveggja í mun víðtækara samhengi, eins og t.d. í sambandi við nauðgun, umferðarslys, ofbeldi og rán. í þeirra augum er áfallahjálp í raun ferli sem bytjar þegar fólki er kennd skyndihjálp og nær allt til sérfræðihjálpar eftir stór- slys. Hér voru staddir í vikunni tveir norskir geðlæknar, prófessor Lars Weisæth og Pál Herlofsen, í tilefni ráðstefnu Geðdeildar Landspítalans um áfallastreitu og áfallahjálp þar sem þeir fluttu fyrirlestra. Lars Weisæth hefur í rúm tíu ár verið prófessor í áfallastreitufræðum við Óslóarháskóla og er einn af forset- um Evrópska sambandsins um áfalla- streitu. Hann hefur gert margar rann- sóknir á afleiðingum stórslysa, svo sem sprengingu stórrar málningar- verksmiðju, hrunS olíuborpallsins Alexander Kjelland, bruna ferjunnar Scandinavian Star og Tsjernobylslyss- ins. Pál Herlofsen starfar á vegum norska hersins í Ósló. Hann hefur gert rannsóknir á afleiðingum mannskæðs snjóflóðs, hópvinnu með þolendum bankarána og aðlögun norskra hermanna að streitu sem fylg- ir starfi þeirra. Forysta Norðmanna Upphaf rannsókna Norðmanna á áfallastreitu má rekja tii heimsstyij- aldarinnar síðari, enda hafa Norð- menn upplifað mikla streitu í fanga- búðum, andspyrnuhreyfingu og skipa- siglingum. „Á sjötta áratugnum kom í ljós að sálræn heilsa þessara sterku, hug- rökku manna fór hnignandi. Þetta þótti merkilegt og leiddi til þess að í kringum 1957 var hafin rannsókn á áfallastreitu. Þar kom í ljós í fyrsta sinn að standi venjulegt fólk, sem hefur ósköp eðlilegan bakgrunn, frammi fyrir alvarlegu áfalli eða mik- ilii streitu í umtalsverðan tíma, leiðir það til langvarandi sálrænna vanda- mála. Jafnvel 10-40 árum eftir atburð- inn,“ sagði Weisæth. Ekkí bara viðkvæmir Weisæth benti jafnframt á að eftir þessar rannsóknir hefði orðið nokkur viðhorfsbreyting í geðlæknavísindum. Fram að þeim tíma hafi verið litið svo á, að þeir sem hlutu sálræn vandamál í kjölfar áfalls eða streitu hlytu að vera viðkvæmar sáiir eða hafa Ient í einhveiju fyrr á ævinni. Rannsóknir sýndu að svo þurfti ekki að vera. „í ljós kom að lítið er hægt að gera þegar svo langt er um liðið. Streitan eða áfallið hafði þau áhrif að heilsu fólks hrakaði. Stór hópur fólks dó fyrir aldur fram vegna krabbameins eða annarra sjúkdóma. Margir áttu einnig við hvers konar geðræn vandamál að stríða.“ Um miðjan áttunda áratuginn var komið á fót stofnun sem Oslóarhá- skóli og norski herinn stóðu að. „Hug- myndin var að þróa inngrip strax eft- ir áfall eða meðan á því stendur. Jafn- vel væri hægt með fyrirbyggjandi aðgerðum að draga úr líkum á alvar- legum eftirköstum." Fólk vill gleyma en það eykur líkur á sjúkdómum síðar meir Þeir Weisæth og Herlofsen bentu á að þegar fólki var sagt eftir stríð að gleyma hörmungunum og lifa lífinu eins og ekkert hefði í skorist tók það ráðleggingunum fegins hendi. „Þetta er svipað og þegar manneskja verður fyrir nauðgun. Hún vill gleyma og Iáta eins og atburðurinn hafi ekki átt sér stað. Það er mjög sársaukafullt en óhjákvæmilegt að horfast í augu við áfall og ræða um það,“ sögðu þeir og lögðu áherslu á að því sé kom- ið fyllilega tii skila að þegar fólk lend- ir í sorg, langvarandi streitu eða áfalli eigi það að leita til einhvers sem það geti talað við. „Það þarf ekki að vera sérfræðingur því vinnufélagi, fjöl- skylda eða vinir eru oft besta hjálp- in,“ sögðu þeir. Til að leggja áherslu á orð sín um hversu nauðsynlegt sé að tjá sig tekur Weisæth sem dæmi Sonatorrek Egils Skalla-Grímssonar og segir að slíkt tjáningarform sé ekki nýtt af nálinni. Hann tekur annað dæmi: „Edward Munch varð fyrir áfalli sem ungur drengur þegar hann horfði bæði á móður sína og systur deyja úr berkl- um. Það sést á myndum hans lengi framan af að hann var að kljást við þetta vandamál. Munch sagði að svo lengi sem minningarnar sæktu á hann yrði hann að fá útrás fyrir tilfinning- amar, enda má líta á fyrstu 20 ár hans sem málara sém tímabil lækn- inga. Eftir 1908 fór hann fyrst að mála fallegt landslag. Það skiptir ekki höfuðmáli, hvort tjáningaformið er að tala, skrifa eða mála. Þetta eru hinar eðlilegu aðferð- ir til að lækna sjálfan sig.“ Áhættuþættirnir fimm - Hversu alvarlegir þurfa atburðir að vera til að fólk verði að vinna sér- staklega úr sínum málum? „Við skiptum áhættuþáttum niður í fimm flokka og getum t.d. ímyndað okkur umferðarslys, árás eða annað slíkt,“ sagði Weisæth. „í fyrsta lagi í hversu mikilli lífs- hættu viðkomandi var. í öðru lagi hversu hroðalegum atburði manneskj- an varð vitni að, þ.e. sá hún einhvern deyja, alvarlega slasaðan mann eða var hún hjálparlaust vitni að hræðileg- um atburði. Þetta síðastnefnda getur haft mjög alvarleg áhrif. í þriðja lagi hversu alvarlegir lík- amlegir áverkar eru. í fjórða lagi það sem við köllum „hinn ómögulega val- kost“, sem getur orsakað djúpa sektarkennd. Fjórð- ungur þeirra sem lent hafa í stórslysum eins og t.d. snjóflóði lentu í „hinum ómögulega valkosti", þ.e. að velja á milli þess hvort þeir ættu að hefja hjálparstarf eða sækja aðstoð og láta viðkomandi eiga sig að sinni. Þetta getur Iíka verið spurning um hvort bjarga eigi eigin skinni eða stofna sér í lífshættu með því að reyna að bjarga öðrum. I fimmta lagi að verða vitni að hryllilegum afleiðingum slysa eða Allir veröa að vita hvað gera á þegar eldur kemur upp Morgunblaðið/Ámi Sæberg GEÐLÆKN ARNIR Lars Weisæth (t.v.) og Pál Herlofsen. náttúruhamfara, eins og að horfa upp á og ganga frá illa förnum líkömum. Lendi einhver í umferðarslysi þar sem engir þessara þátta koma við sögu er áhættan minni og lítil ástæða til að hafa áhyggjur." Þeir segja að auk fagfólks ætti al- menningur að vita hvaða streituþættir séu áhættumiklir. Þeir skýra frá því að 50% kvenna sem verði fyrir nauðg- un eða kynferðislegu ofbeldi eigi við veruleg sálræn vandamál að stríða ári eftir atburðinn fái þær enga hjálp strax á eftir. j,Sama á við um ung- barnadauða. Áhætta á að veikindi taki sig upp síðar meir hjá foreldrum og systkinum eru veruleg." Getur fólk orðið varkárara Þegar þeir ræða fyrirbyggjandi að- gerðir gegn náttúruhamförum kemur fram ákveðin gagnrýni á mannfólkið. „Einn milljarður manna eða fjórðung- ui' mannkyns hefur lent í náttúruham- förum. Maður getur velt fyrir sér hvað séu náttúruhamfarir og hvar sá þáttur að vernda fólk hafi brugðist. Jafn- sterkur jarðskjálfti veldur ólíkum skemmdum t.d. í Armeníu og Kalifomíu. í Armeníu deyja um 30 þúsund manns en í Kalifomíu um 60 manns. Þetta undirstrikar að jarð- skjálftar drepa ekki fólk heldur deyr það af völdum lélegra bygginga." í framhaldi af því ræða þeir um veðurspár og segja að í fyrri heims- styrjöldinni hafí veðurspár frá íslandi og Bretlandi verið hernaðarleyndar- mál. Af þeim sökum voru norskir sjó- menn í mun meiri hættu en ella. „Við gleymum gjarnan hversu margar milljónir manna hafa bjargast um all- an heim eftir að veðurspár urðu full- komnari. Þrátt fyrir þær deyja þús- undir manna á hveiju ári vegna flóða í Bangladesh. Því getur maður velt fyrir sér, hversu jjiargir hlusta á veð- urspár og hvernig bregðast menn við, ef þeir heyra að eitthvað geti hugsan- lega gerst?“ Þá bæta þeir við að í Noregi sé búið að ákveða að gefa stormum nöfn eins og í Karíbahafínu. „Ástæða þess að hvirfilvindar hafa hver sitt nafn er að þegar tilkynnt er að „Anna“ sé á Auðveldara er að vinna sig út úr skyndi- legu áfalli leiðinni gera allir viðeigandi ráðstaf- anir. Ef „Anna“ fer framhjá og veldur litlum skaða er viðbúið að minni ráð- stafanir verði viðhafðar næst þegar tilkynnt er að hún nálgist. Þess vegna er næsti hvirfilbylur nefndur „David“.“ Jákvæð varnaraðgerð Þeim verður tíðrætt um ,jákvæða vamaraðgerð" og nefna sem dæmi, að allir verði að vera viðbúnir því að eldsvoði bijótist út. „Við ætlumst ekki til að fólk hugsi um slíka hluti dags daglega, heldur einu sinni til enda. Þá er grunn- þekkingin til staðar ef eitthvað kemur upp á. Með því t.d. að eyða tíu sekúndum { að kanna út- gönguleiðir þegar komið er inn á nýtt hótel og jafn- vel telja skrefin að út- göngudyrunum, þá nægir það. Menn þurfa auðvitað ekki að velta sér upp úr því ailan dvalartímann.“ Þó þeir leggi áherslu á að almenn- ingur hugleiði áhættur ganga þeir þó ekki svo langt að vilja fá sérfræðinga til að fjalla um þessi mál í skóla. Hins vegar segja þeir kennsla í hjálp í við- lögum/skyndihjálp sé fyrsta skrefið í þessa átt. Það kom þeim því verulega á óvart að heyra að engin slík kennsla fer fram í almennum skólum hér á landi. Þeir bentu einnig á að áfalla- streitufræði þyrfti að koma inn í kennslu í hjálp í viðlögum. Skyndihjálp í ökuskóla Þá tóku þeir fram, að nauðsynlegt væri að kenna skyndihjálp í ökuskóla, en hér á landi er skyndihjálp einungis kennd vegna meiraprófs. Þeir bentu á að bílstjórar gætu verið fyrstir til að koma að slysi og verði því að geta veitt fyrstu hjálp. „Þetta er ekki áfallahjálp í sjálfu sér en samt hluti hennar,“ sögðu þeir. „Sumir verða að læra heilmikið um áfallahjálp en allir verða að læra eitthvað." Þá sögðust þeir hafa rannsakað hvers konar ástand eða áhættuþættir leiði einna helst til vandamála síðar meir. „Svo virðist sem þarna fari lang- varandi ógnun verst með fólk, einkum ef ef viðkomandi er stöðugt á varð- bergi og getur aldrei slakað á. Þetta getur t.d. átt við um barn sem á of- beldisfullan föður. Þrátt fyrir að of- beldi sé ekki beitt „nema“ annan hvern mánuð nær barnið aldrei djúpum svefni og er öryggislaust. Fólk lærir að lifa við þetta ástand og erfítt getur verið að sjá fyrir aðra en sérfræðinga að bamið þjáist. Þegar barnið verður fullorðið, eignast maka og byijar kyn- líf þá geta vandamálin orðið viðkom- andi ofviða," sögðu þeir. „Sem betur fer á fólk auðveldara með að vinna sig út úr skyndilegu áfalli eins og snjóflóði. Viðbrögðin láta ekki á sér standa á fyrstu dögum og vikum, þannig að auð- veldara er að sjá hveijir þurfa á hjálp að halda og hveijir komast af með sjá]fshjálp.“ í lokin sögðu Pál Herlovsen og Lars Weisæth að þegar þeir spyrðu sjúklinga sína, hvort þeir hefðu orðið fyrir áfalli ein- hvern tíma á ævinni eða óeðlilega mikilli streitu, kæmi í ljós að svo væri í flestum tilfellum. „En það verður að spyija sérstaklega að því, fólk seg- ir ekki frá slíku að fyrra bragði,“ sögðu þeir. Hvað verður um breytingar á Ítalíu? Reuter ÞRÁTT fyrir breitt bros og öflugt fjöltniðlaveldi þykir Silvio Berlusconi (t.h.), fyrrum forsætisráðherra Italíu, eiga mjög undir högg að sækja. Bjartsýnin hefur gufað upp Að venju eru ítalskar stjómmálafréttir eins og kaflar í endalausri spennusögu. Sigrán Davíðsdóttir var á ferð á Ítalíu og hugar hér að baksviði stjómmálanna þar. Af FJÖLMIÐLAUMRÆÐ- UNNI ítölsku þessar vik- urnar mætti halda að ítalir hefðu leyst öll sín vanda- mál að einu undanteknu: Hvenær á að kjósa næst? Dómsrannsóknir og Hreinar hendur njóta orðið lítillar at- hygli, Evrópumálin eru látin fræðing- um eftir og hagfræðingurinn Romano Prodi þreifar fyrir um stuðning til að þjappa saman vinstrivængnum og miðjunni. Á hægrivængnum reyna menn einn- ig að þenja sig yfir miðjuna, en Silvio Berlusconi fjölmiðlakóngur og fyrrum forsætisráðherra á í vök að veijast. Utanflokkastjórn Lamberto Dinis berst fyrir að halda lífi eftir að verk- efnum hennar lýkur fyrir áramót, þeg- ar fjáriögin eiga að vera komin í gegn. Þrátt fyrir tilhlaup til vantrausts á stjórn Dinis er kosningatalið kannski meira í munni en huga ýmissa stjórn- málamanna. Dini er ekki einn um að álíta heppilegast að stjórnin sitji áfram fram á mitt næsta ár, þar sem Ítalía fer með formennsku í Evrópusam- bandinu frá áramótum og fram í júní- lok. Bjartsýnin, sem var svo áberandi fyrir tveimur árum, á að nú yrði hreinsað til í ítölsku þjóðfélagi hefur gufað upp. Það er kannski táknrænt að meðan að gamlir kommúnistar skjóta upp kollinum í Austur-Evrópu og hreiðra aftur um sig í valdastólun- um þá hreiðrar gamla ítalska valda- stéttin einnig um sig aftur. í Sikileyj- arskáldsögunni Hlébarðanum eftir Giuseppe Lampedusa reynir gamli furstinn að finna leiðir til að láta und- an kröfu um breytingar, án þess að neitt breytist. Það er eins og ítölsk stjórnmál hafí tekið furstann hans Lampedusa sér að leiðarljósi og það getur vart verið í mikilli óþökk þorra landsmanna. Skjólstæðingaþjóðfélagið er kjölfestan Ekki svo að skilja að kosningar og kjördagur séu lítið mál, því það er ekki lítið sem stendur til. Eftir hrun gömlu valdafiokkanna Kristilega demókrata- flokksins og Sósíalista- flokksins leita ítölsku flokk- arnir og leiðtogar þeirra sem ákafast að nýrri tví- skiptingu í stað gamla hægri- og vinstrivængsins. Það er eins og stjórn- málalíf ítala sé svo rækilega steypt í far þessarar tvenndar að annað virðist óhugsandi. Kerfi án tveggja skýrlega afmarkaðra blokka er ekki til um- ræðu. Að baki þessarar viðleitni liggur svo leitin að hinum sterka leiðtoga. Þessi óstöðvandi þrá ítala eftir ein- um sterkum leiðtoga er lögð út á ýmsa vegu. Föðurímynd í þjóðfélagj, sem er jafn grundvallað á fjölskyld- unni og skipan hennar í kringum hinn sterka föður kemur ekki á óvart. En líklega kemur fleira til en feðrahyggj- an. I ítalskri þjóðfélagsgerð kemur íslendingi margt kunnuglega fyrir sjónir. Kunningja- og vinargreiða- þjóðfélagið gerir ráð fyrir áhrifa- mönnum sem þekkja mann og annan á hverjum stað, allt frá smæstu þorp- um. Slíkir áhrifamenn hafa undir verndarvæng sínum skjólstæðinga og sjálfir eru þeir undir verndarvæng annarra og þannig rekur keðjan sig upp eftir öllu þjóðfélaginu. Efst þarf svo helst að sitja einn sterkur leið- togi með þjóðina undir styrkum verndarvæng sínum. Sem dæmi um skjólstæðingakerfið má nefna að nýlega kom upp úr kaf- inu að líkt og franskir stjórnmálamenn þá sitja hinir ítölsku gjarnan í ódýrum leiguíbúðum í eigu ríkisins. Þegar leigumyllan varð fréttaefni lofuðu þeir bót og betrun og sögðust auðvitað fúsir til að greiða fullt markaðsverð. Því mótmæltu hins vegar samtök leigjenda í opinberu húsnæði, þar sem margir þeirra bjuggu einmitt í íbúðum, sem þeir höfðu fengið í gegnum góð kynni. Berlusconi brást Berlusconi var um tíma von margra um hinn sterka leiðtoga nýrra tíma, þegar hann kom fram í kjölfar umbylt- inga gömlu flokkanna. Líklega hefur trú kjósenda á leiðtogahæfíleika hans fremur stafað af viðskiptavelgengni hans en trú á að hann væri fulltrúi nýrra tíma. Ekki þarf mikla djúphygli til að sjá að hann stofnsetti veldi sitt á tíma gömlu flokkanna og hefði ekki verið neitt án stuðnings þaðan. En Berlusconi hefur ekki staðist prófíð sem stjórnmálaleiðtogi. Honum lætur betur að skipa fyrir eins og forstjóra er siður, heldur en rökræða að hætti stjórnmálamanna. Líklega er Ítalía eina Evrópulandið, þar sem kommúnistagrýluna hefur ekki dagað uppi. Berlusconi lætur ekkert tækifæri ónotað til að ala á henni. Hann segir óhikað að kommún- istar gætu náð völdum á Ítalíu, rétt eins og sé að gerast í Austur-Evrópu. „Það er sama hættan, því þarna eru á ferðinni sömu mennirnir með sömu hugmyndafræðina og sömu and- styggðina." Þó andstæðingar hans segi að hann sé eins og japönsku her- mennirnir, sem öðru hveiju koma í leitirnar í skógum Japans og halda að stríðið sé enn ekki búið, veit Berl- usconi að margir ítalir trúa enn sem fastast á kommúnistagrýluna. Undanfarnar vikur hefur Gian- franco Fini Ieiðtogi Þjóðfylkingarinn- ar, endurbættrar útgáfu gamla fasistaflokksins, lagt sig fram um að bæta ímynd sína og flokksins, bæði heima og heiman. Hann hafnar fasistahugmynda- fræðinni, en reynir af alefli að treysta flokkinn í sessi sem hægriflokk. Verður Dini sá sterki? Séð með norrænum augum er einn- ig undarlegt að sjá að markaðshyggja og Evrópuhugsjónir eru sterkari á vinstri- en hægrivængnum. Romano Prodi talar nánast eins og hægrimað- urinn Helmut Kohl Þýskalandskansl- ari, en slíkur málflutningur heyrist varla á hægrivængnum. Prodi á að vera sameiningarafl vinstrivængsins og miðjunnar að nýrri breiðfylkingu vinstri- og miðflokkanna. En einnig það gengur hægt. Eftir því sem það dregst á langinn veikist staða Prodis, sem á fortíð tengda Sósíalistaflokkn- um, en er annars utan flokka. Ef hægt er að segja að einhver einn stjómmálamaður styrki stöðu sína í sífellu þessa dagana þá er það utan- flokkamaðurinn Lamberto Dini for- sætisráðherra og fyrrum seðlabanka- stjóri. Þessi lágvaxni og veiklulegi maður hefur sýnt að það em pólitísk- ar töggur í honum. Formlega séð var verkefni hans að koma saman fjárlög- um næsta árs. Þrátt fyrir sífelldar hótanir um vantraust þykir sennilegt að fjárlögin komist í gegn. Um leið dregur úr þrýstingi á að stjóm Dinis segi af sér, heldur sitji áfram meðan ítalir gegna ESB-formennskunni. Að frágengnum fjárlögum stendur Dini styrkari en aðrir. Stöðugt em uppi vangaveltur um að hann muni ganga til samstarfs við einhvem stjómmálaflokk og þá helst ef tækist að stofna styrkan miðflokk. En at- hygli ítala beinist mjög að öðmm hugsanlegum stjórnmálaframbjóð- anda, nefnilega Tona litla. Antonio Di Pietro fyrrum dómari og tákn bar- áttunnar gegn hinu spillta pólitíska kerfi er nú lagaprófessor í Bologna. Hann gengur undir gælunafni eins og svo algengt er með Itali, kallast Ton- ino, sem þýðir Toni iitli. Afsögn hans kom á óvart og hefur aldrei verið skýrð til fullnustu. Sumir segja að hann hafí verið kúgaður til afsagnar. Nú er embættisfærsla hans til rann- sóknar. Á honum má skilja að hann hefði hug á stjórnmálaafskiptum og af því em stöðugar fréttir. Ef hann gerði alvöru úr stjórnmálaafskiptum væri hann vafalaust sterkur keppi- nautur um stöðuna sem sterki maður- inn í ítölskum stjórnmálum. Meðan hann hugsar sig um er Dini tvímæla- laust öflugasti stjórnmálamaðurinn. Stöðugleikinn horfinn Kannanir sýna að ítalir vantreysta stjórnmálakerfinu. En það vantraust er ekki einstakt, því í flestum vestræn- um lýðræðisríkjum minnkar tiltrúin á það. ítalir hafa þó kannski sérstaka ástæðu til vantrúar. Á þeirri hálfri öld, sem liðin er frá stríðslokum hefur meðal- valdatími ítalskra stjóma verið tiu mánuðir. ítalir hafa því lifað góðu lífi án öflugra eða stöðugra stjóma. Stöðugleikinn fólst hins vegar í flokkskerfinu, sem var samtvinnað ítalska skjólstæðinga- kerfínu. Þar áttu ótrúiega margir ítal- ir traúst sitt allt, bæði vinnu og hús- næði. Eftir kollsteypu flokkakerfisins er óreiðan mikil, líkt og eftir umbylt- ingamar í Austur-Evrópu. Meðan flokkamir leita nýs farvegar er niður- staðan óljós, þó framtíðin virðist frem- ur brosa við Dini en Berlusconi. Sá stóri hópur ítala sem vantar gömlu kjölfestuna hefur því vísast ráð gamla greifans, Hlébarðans að leiðarljósi urn að breyta, án þess að breyta í raun neinu . . . ...án þess að breyta í raun neinu Leitin að hin- um sterka leiðtoga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.