Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurjanúar 1996næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    31123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    28293031123
    45678910

Morgunblaðið - 20.01.1996, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.01.1996, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. BATNANDISTAÐA BORGARSJÓÐS INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri hefur fylgt úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 1996. Það tíundar 17,3 milljarða króna tekjur, þar af 11,2 milljarða skatttekjur, sem er um 400 m.kr. hækkun frá áætlaðri útkomu liðins árs. Borgarstjóri undirstrikaði í máli sínu að áætluð rekstrargjöld borgarinnar á nýbyrjuðu ári, 9,8 milljarðar króna, hafi lækkað sem hlutfall af skatttekjum, úr 93% 1994 í 79% 1996. Sem og að áætluð aukning skulda á árinu 1996, 500 m.kr., sé minnsti halli borgarsjóðs síðan 1990, gangi hann eftir. í bókun borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins segir á hinn bóginn að R-listinn hyggist auka enn skuldir borgarinnar um hálfan milljarð króna 1996, þrátt fyrir hækkun þjónustugjalda og 1,5 milljarða króna greiðslu fyrirtækja borgarinnar í borg- arsjóð. Eftir sérstakt átak Reykjavíkurborgar 1992-1994 til að mæta stórauknu atvinnuleysi, beri að nýta uppsveiflu í efnahagslífinu til hagræðingar og s'parnaðar í borgarrekstrin- um, niðurgreiðslu skulda og lækkunar skatta. Heildarskuldir borgarinnar eru nú rúmir 13 milljarðar króna. Ekki fer á milli mála að aukin umsvif og efnahagsbati í þjóðarbúskapnum á liðnu ári hafa sagt til sín í verulega aukn- um tekjum ríkissjóðs og sveitarfélaga. Efnahagsbatinn er meginskýring á minnkandi halla ríkissjóðs, Reykjavíkurborgar og sveitarfélaganna í heild. Aukið aðhald, hagræðing og sparn- aður hafa einnig komið til sögunnar, en betur má ef duga skal. Minni halli hins opinbera er fagnaðarefni. Fyrst og fremst í ljósi þess að útgjöld ríkis og sveitarfélaga uxu úr 33% í 40% af vergri landsframleiðslu og hreinar skuldir sömu aðila úr 3% í 33% af þjóðarframleiðslu á árabilinu 1980 til 1994. Mikil- vægt er að nýta aukin umsvif og efnahagsbata til að snúa þessari skuldaþróun við. SAMDRÁTTUR í ÞÝSKALANDI FREGNIR af versnandi efnahagsástandi í Þýskalandi eru áhyggjuefni fyrir umheiminn. Á undanförnum misserum hefur einnig dregið úr hagvexti í Bandaríkjunum og Japan en þróun efnahagsmála í þessum þremur ríkjum hefur hvað mest áhrif á almenna hagsæld í heiminum. Hagvöxtur í Þýskalandi var nær enginn og jafnvel neikvæð- ur á síðari helmingi ársins 1995. Bjartsýnar efnahagsspár benda til að hann verði einungis á bilinu 1-2% á þessu ári. Þeir eru þó til sem spá því að samdrátturinn verði ekki langvar- andi og að í lok ársins verði efnahagslíf Þýskalands komið á skrið á ný. Nýjar hagtölur frá Bandaríkjunum í gær ýta einn- ig undir bjartsýni. Samdráttur í helstu iðnríkjum heims getur haft töluverð áhrif á íslenskt efnahagslíf. Þessi ríki eru jafnframt helstu viðskiptaríki íslendinga og því hætta á minni eftirspurn og verðlækkunum á fiskmörkuðum. Reynsla síðustu ára sýnir að samdráttur í efnahagslífi heimsins hefur bein áhrif á okkar hag, þó svo að áhrifin skili sér ekki alltaf strax. Þessar nýju hagtölur vekja upp spurningar um áformin um sameiginlegan gjaldmiðil Evrópusambandsríkjanna. Þjóðveijar hafa haft forystu um að sett verði ströng skilyrði um fjárlaga- halla, verðbólgu og opinberar skuldir. Nú er komið í ljós, að þeir uppfylltu ekki sjálfir öll skilyrðin á síðasta ári. Efasemda er farið að gæta um það, hvort þeim takist að halda sig innan settra marka á næsta ári, en það verður haft til viðmiðunar þegar metið verður hvaða ríki fá aðild að sameiginlega gjald- miðlinum í fyrstu lotu árið 1999. Ljóst hefur verið um nokk- urt skeið að Frakkar munu eiga mjög erfitt með að uppfylla skilyrðin og í gær greindi ríkisstjórn landsins frá því að erfitt yrði að halda útgjöldum til velferðarmála í skefjum 1997. Aðild þessara tveggja forysturíkja ESB er efnahagsleg og pólitísk forsenda sameiginlegs gjaldmiðils. Án þeirra verður ekkert úr efnahagslegum og peningalegum samruna Evrópu- ríkja. Það er ekki að ósekju að þróun þessi veldur áhyggjum. Áformin um sameiginlegan gjaldmiðil hafa vissulega verið umdeild. Það er hins vegar óumdeilt að hin ströngu skilyrði hafa verið svipa á rikisstjórnir í Evrópu og hvati til að ná tökum á ríkisfjármálum og draga úr skuldsetningu. Sé þessi hvati ekki til staðar er hætta á að víða verði slakað á efnahags- stjórninni. • Ein helsta orsök efnahagsvanda flestra Evrópuríkja er að um langt skeið hafa opinber útgjöld verið umfram þau mörk sem efnahagslífið stendur undir. Maastricht-skilyrðin hafa neytt ríkisstjórnir til að taka á þeim vanda þótt sársaukafullt sé. Ætli Evrópuríki að verða samkeppnishæf í framtíðinni verður að halda áfram á þeirri braut. Óvissa ríkir á bílaleigumarkaði EINS og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu hefur Hasso flutt til landsins sam- tals 10 bfla og býður hann fólksbfla í ódýrasta flokki á 2.500 kr. á sólarhringinn án kflómetragjalds. Hjá hinum bílaleigunum er verðið á bflum í þessum flokki á bilinu 2.900- 3.900 kr. á sólarhring og þá oftast miðað við 100 km akstur, en afsláttur er siðan yflrleitt veittur ef um leigu í lengri tíma er að ræða. Algengt Verð yfir sumarmánuðina er svo í kringum 4.000 kr. á sólarhring. Áætlað er að á bilinu 1.000 til 1.100 bíla- leigubflar séu í rekstri hér á landi á háannatím- anum yfír sumarmánuð- ina, en um helmingi færri á vetuma. Þetta stafar af því að helm- ingur flotans er seidur á haustin en síðan end- umýjaður aftur að vori. Talið er að fimm stærstu bílaleigumar eigi að minnsta kosti um 80% bflanna, en það em Höldur hf., Bflaleiga Flugleiða, Bílaleigan Geysir, Bflaleiga AVIS og Bílaleiga ALP. For- svarsmenn bílaleiganna segja að þær séu í raun og vera reknar með tapi yfír vetrarmánuðina en háannatíminn skili svo inn þeim tekjum sem þarf til að reksturinn standi undir sér, enda sé eftirspumin þá mun meiri en framboðið. Benda þeir á að yfír vetrarmánuðina séu bflaleigubílar á íslandi með þeim ódýrastu í Evrópu. Samkeppnin þarf að vera á jafnréttisgrundvelli Garðar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Bflaleigunnar Geysis, segist ekki vera hrædd- ur við samkeppni af því tagi sem Hasso-ísland Iw. Þetta sé hlutur sem alveg megi bú- ast við jafnvel í meira mæli í framtíð- inni og þá frá stærri erlendum aðilum en Hasso sem sé örsmár á alþjóða- mælikvarða. Slíkum aðilum sé ekki hægt að setja stólinn fyrir dymar og aðalatriðið sé að samkeppnin sé á jafnréttisgrundvelli. „Það sem við hljótum að horfa aðallega í er á hvaða forsendum þeir eru að fljdja inn þessa bíla, t.d. hvaða tolla þeir þurfa að greiða. Þeir flytja inn notaða bíla og treysta sér ekki til að bjóða upp á nýja bíla eins og stærstu leigurnar gera, og kannski verður það þróunin að bjóða upp á eldri eða ódýrari bíla til að keppa við svona menn,“ segir Garðar. Hann segir að það sé hins vegar alveg deginum ljósara að það lifi enginn af því að leigja út bíl á 2.500 kr. á dag. Miðað við árleg afföll af nýjum einnar milljón króna bíl, sem séu um 200 þúsund kr., ____________ þá þýði þetta að 80 leigu- dagar fari eingöngu í að standa undir afföllunum. Þetta sé því reikningsdæmi sem gangi ekki upp. ^"""""" Óeðlilegir viðskiptahættir „Ég hef aldrei vitað til þess í við- skiptum að nokkur maður hafí grætt eitthvað á því að vera að gefa hlut- ina. Allavega í mínum bókum er þetta fílósófía sem ekki gengur upp,“ segir Garðar. Grétar Kristjánsson, fram- Koma þýska auðkýfíngsins Hassos Schutzen- dorfers inn á bílaleigumarkaðinn hér á landi * með stofnun Hasso-Island ehf. veldur nokkr- um titringi meðal forsvarsmanna þeirra bíla- leiga sem fyrir eru á markaðnum, en þeir telja þó of snemmt að segja til um hvað undir- boð Hassos hafi í för með sér. í einn dag með 100 km akstri Innifalinn Bílaleiga Dagjald akstur umfram þaO SAMTALS: Á.G. 3.250 kr. 50 km 32,5 kr/km 4.875 kr. Höldur* 3.900 kr. 100 km 39 kr/km 3.900 kr. Flugleiðir 2.900 kr. enginn 29 kr/km K5.800 kr. Gullfoss 2.900 kr. 100 km 29 kr/km 2.900 kr. Geysir 3.900 kr. 100 km 39 kr/km 13.900 kr. AVIS 2.900 kr. 100 km 29 kr/km 2.900 kr. ALP 2.900 kr. 100 km 29 kr/km 12.900 kr. SH 2.900 kr. 100 km 29 kr/km 2.900 kr. Hasso 2.500 kr. ÓTAKM. EKKERT i r 2.500 kr. * Kaskótrygging innifalin Og viO þetta bætist bensínkostnaður Fullreynt að verðið fari ekki neðar kvæmdastjóri Bílaleigu Flugleiða, segist ekki hafa trú á þvi verði sem -------- Hasso-ísland hafi boðað. Hann segir að verðstríð sé fyrir á bflaleigumarkaði hér á landi yfir vetrarmánuðina og 10 mánuði ársins sé verðið lágt alveg sama við hvaða lönd sé miðað. Grétar segist ekki vita hvaða áhrif tilkoma Hasso-ísland á markaðinn hér hafi, en það fari nokkuð eftir þeim fjölda bíla sem bílaleigan verði með í notkun. „Við fylgjumst með þessu og ég reikna með því að við mætum hans verði,“ segir Grétar, en segir þó í raun ekki svigrúm til þess þar sem tap sé á rekstrinum yfir vetrarmánuðina. Hann segist ekki fá skilið hvemig sé hægt að ------------ gefa þjónustu af þessu tagi og á bakvið slíkt hljóti að vera einhverjir óeðlilegir viðskiptahættir. „Við eram fyrst að vita núna verðið sem hann er að boða og við vitum heldur ekki á hvaða gjöldum hann fær þessa bfla og hvort hann er að borga tryggingar erlendis. Það er því lítið hægt að segja um þetta í bilþ" segir Grétar. ÁG bílaleigan er með 30 bíla og því ekki meðal þeirra stærstu. Þor- valdur Hauksson, stjórnandi bílaleig- Ekkert annað en gróðasjón- armið að baki unnar, segir það einkennilega fram- setningu hjá Hasso-ísland að ætla að vera með lægsta verðið og jafnvel ókeypis og líta verði á þetta sem ein- hvers konar hótun og tilgangurinn sé að kýla niður starfsemina á Ís- landi. Hann segir að það séu það margar bíialeigur hér á landi að það sé alveg fullreynt að verðið fari ekk- ert neðar miðað við að reksturinn standi undir sér. ‘,,Ég veit ekki hvort þetta varðar samkeppnislög eða eitthvað slíkt og það verður bara að reyna á það, en við höfum engar sér- stakar áhyggjur af þessu í bili. En ef mað- urinn ætlar að fara að flytja hér inn kannski 1.000 bíla þá gæti dæmið breyst,“ sagði Þorvaldur. Óheilbrigð þróun Hafsteinn J. Reykja- lín, eigandi Bílaleigu AVIS, segir að bílaleig- ur á íslandi búi við mjög óhagstæð skilyrði miðað við bílaleigur er- lendis sem kaupi bíla jafnvel undir kostn- aðarverði og þurfi að borga mun minni tolla af þeim en hér, en geti síðan eftir ákveðinn tíma selt bílinn á al- mennum markaði og þá með hagnaði. Þetta segir Hann að sé aðal- starfsemi Hasso á Mallorka og á þessu græði hann en ekki á því að reka bílaleiguna sem slíka. „Hann kemur með þessa bíla til landsins og gerir sjálfur reikn- inginn og maður veit ekkert á hvaða verði hann selur þá þessu fyr- irtæki sínu hérna. Ríkið sjálft er að tapa, því ekki kemur virðisauka- skattur af þessum tekj- um sem þetta á að gefa því ekki getur þetta fyr- írtæKi stadið undir sér á þessu verði,“ segir Hafsteinn, sem segir að þjóð- hagslega hljóti þetta að koma þannig út að allir tapi þegar upp sé staðið. „Þetta er komið undir kostnaðar- verð sem bílaleigurnar hér eru að reka þetta á á veturna. Það er út af því sem 2-3 bílaleigur eru að leggja upp laupana á hverju ári og ríkið þar af leiðandi að tapa stórfé svo og margir aðrir. Þetta er því ekki heilbrigð þróun sem þarna er verið að fara inn á,“ segir Haf- steinn, sem telur fulla ástæðu til þess fyrir stjórnvöld að kanna með hvaða hætti Hasso kemur inn á bíla- Ieigumarkaðinn hér. „Eftir því sem hann hefur sagt má búast við því að hann komi með miklu meira af bílum. í því um- hverfi sem hann er hefur hann að- gang að því að kaupa bíla á meira en helmingi lægra verði en við þurf- um að kaupa þá hér í gegnum um- -------- boð. Maður væri ekki mik- ið hugsandi ef maður hefði ekki áhyggjur af þessu. Þetta er það sama og með ________ aðra útlendinga sem kæmu með einhvern ánnan rekst- ur og yfírtækju áðra, en það er reyndar það sem rútufyrirtæki og fleiri í þessum rekstri hafa óttast. Það er auðfenginn peningur hér í tvo mánuði en síðan gætu menn farið með sitt úr landi og hirt allt saman. Það er ekkert annað en gróðasjón- armið sem er á bakvið þegar upp er staðið,“ segir Hafsteinn. LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996 27 Fyrstu palestínsku kosningamar i i i PALESTÍNUMENN bera kassa með kjörgögnum í flutningabíl úr geymslu í Jerúsalem. Fyrstu kosningar Palestínumanna fara fram á 1689 kjörstöðum í dag. Reuter Milljón Palestinumanna gengnr að kjörborði 1 Palestínumenn ganga að kjörborði í dag og kjörstjórnin lýsir kosningunum sem „upphafi nýs lýðræðislegs kafla í sögu Palestínu“. And- stæðingar Yassers Arafats, leiðtoga Frels- issamtaka Palestínumanna, segja hins vegar að kosningunum sé ætlað að staðfesta ein- ræði hans í skugga hemáms ísraela. KOSNINGARNAR á sjálf- stjómarsvæðum Palest- ínumanna í dag marka þáttaskil í sögu friðaram- ieitana Frelsissamtaka Palestínu- manna (PLO) og ísraela. Rúm milljón Palestínumanna gengur þá að kjör- borði í fyrsta sinn til að kjósa 88 manna löggjafarráð og forseta. 600 eftirlitsmenn frá 16 löndum eiga að ganga úr skugga um að kosningamar verði frjálsar og lýðræðislegar. ísraelsstjórn hefúr ákveðið að banna umferð milli sjálfstjórnar- svæðanna og ísraels þar til á sunnu- dagsmorgun og það er liður í viða- miklum öryggisráðstöfunum til að hindra hermdarverk af hálfu hreyf- inga sem leggjast gegn friðarsamn- ingunum. Þúsundir ísraelskra lög- reglumanna verða einnig í Austur- Jerúsalem vegna hættu á að hægri- sinnaðir gyðingar reyni að hindra kosningamar. Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er á meðal erlendu eftirlitsmannanna og kvaðst búast við „heiðarlegum kosningum" þótt hann kvartaði yfír því að nokkram óháðum frambjóðendum hefði verið meinað að kynna sjónarmið sín í útvarpi og sjónvarpi. „Ennfremur hafa komið fram dæmi um ógnanir," sagði Carter á blaðamannafundi í Austur-Jerúsalem á fimmtudag. „Nokkrir af atkvæðamestu baráttu- mönnunum fyrir mannréttindum meðal Palestínumanna og virtir blaðamenn hafa verið handteknir. Þessar þving- anir hafa ekki hjálpað." 88 fulltrúar kjörnir Palestínsk yfírvöld segja að 1.028.280 Palestínumenn séu á kjörskrá. Kjörnir verða 88 full- trúar í löggjafarráð og um 20 þeirra fá sæti í framkvæmdastjórn innan ráðsins. Ennfremur verður kosinn forseti, sem á að fara fyrir fram- kvæmdastjórninni. Forsetinn velur síðan fimm fulltrúa í löggjarráðið en þeir hafa ekki atkvæðisrétt. Ijóð- kjörnu fulltrúarnir kjósa formann ráðsins. Frambjóðendurnir í forsetakosn- ingunum eru aðeins tveir, Yasser Arafat og lítt þekkt kona, Samiha Khalil, sem er 72 ára að aldri og hefur lagst gegn friðarsamningunum við ísraela. ‘672 eru í framboði til löggjafar- ráðsins og að jafnaði eru sjö um hvert sæti. Sjálfstjórnarsvæðunum er skipt í sextán kjördæmi, sem hef- ur verið úthlutað mismörgum sæt- um. Miðað var við íbúafjölda kjördæ- manna við úthlutunina en þó ekki að fullu. Til að mynda eru íbúar Hebron, kjördæmis 133.000 kjós- enda, óánægðir með að þeir skuli fá færri fulltrúa en Gaza-borg, sem er með 123.000 kjósendur. 36% kjós- endanna eru í Gazaborg, sem fær 42% sætanna. Gazaborg fær 12 fulltrúa og Hebr- on 10. Nablus og Khan Yunis fá 8 fulltrúa hvor og Norður-Gazasvæðið, Ra- mallah og Jerúsalem sjö. Ellefu stjórnmálahreyf- ingar taka þátt í kosning- unum en 506 frambjóðendanna eru óháðir. 76 bjóða sig fram undir merkjum Fatah, hreyfingar Arafats, og hún nýtur einnig stuðnings margra óháðu frambjóðendanna. 21 er í framboði fyrir íjóðarflokkinn, sem aðhylltist áður kommúnisma, og aðrir flokkar eru með færri fram- bjóðendur. Kjörstöðum verður lokað klukkan 17 að íslenskum tíma og talning atkvæða hefst þar tveimur tímum síðar. Kjörseðlarnir verða fluttir til höfuðstöðva eftirlitsmannanna og kjörstjórnarinnar í Ramallah og Gaza-borgar í fylgd lögreglu. Búist er við að úrslit forsetakosninganna verði kunngerð seint í kvöld en fyrstu tölur í kosningunum til löggjafar- ráðsins komi snemma á sunnudag. Lokatölurnar verða kynntar á sunnu- dagskvöld. Dýr barátta Hagfræðingar áætla að frambjóð- endurnir 672 hafí eytt sem svarar tæpum tveimur milljörðum króna í kosningabaráttunni, meðal annars í þúsundir veggspjalda, síma og aug- lýsingar í dagblöðum. „Þetta eru miklar fjárhæðir, ekki síst vegna þess að við höfum krafist aðstoðar erlendra ríkja til að byggja upp efnahaginn," sagði Samir Hazboun, forstöðu- maður hagfræðistofnunar í Betlehem. Flokkarnir fjármagna kosningabaráttu frambjóðendanna að hluta. Fatah hefur úthlutað hverj- um frambjóðenda sinna jafnvirði milljónar króna en að öðru leyti þurfa þeir sjálfír að afla fjár til að standa straum af kostnaðinum. Smáflokk- arnir segjast varla hafa nægilegt fjármagn til að prenta stefnuskrá frambjóðendanna. Arafat sakaður um linkind \ Kosningabaráttan stóð í þijár vikur og ekki varð vart mikils eldmóðs meðal kjósenda. Róttækir andstæð- ingar Arafats höfðu fremur hægt um sig þótt þeir hefðu sagt að þeir myndu beijast af hörku gegn kosningunum. Hamas, hreyfíng herskárra múslima, hefur lýst því yfír að hún sniðgangi kosningamar þótt nokkrir af forystu- mönnum hennar séu í framboði. Kosningabaráttan á Gaza-svæðinu hefur einkum snúist um galla sjálf- stjómarsamninganna við Israela og frammistöðu Arafats og samstarfs- manna hans. Frambjóðendunum var einnig tíðrætt um hvemig tryggja 5 ætti atvinnu fyrir tugþúsundir Palest- ’| ínumanna sem fá ekki vinnu í ísrael. Haider Abdel-Shafí, fyrrverandi ú samningamaður PLO, kemst næst ■: því að geta talist leiðtogi andstæð- | inga Arafats á Gaza. Hann segir J stefnu sína byggja á virðingu fyrir L lýðræðislegum gildum og harðari | afstöðu til friðarviðræðna við ísra- ' ela. Hann sakar Arafat um linkind .5 gagnvart ísraelum og segir að hon- > um hafí orðið á mistök með því láta hjá líða að mótmæla brotum L ísraela á friðarsamningunum. Arafat spáð stórsigri Þrátt fyrir þessa gagnrýni er lík- legt að Arafat vinni stórsigur í kosn- ingunum. Ef marka má könnun, sem birt var á miðvikudag, nýtur hann stuðnings 80% kjósenda og Samiha Khalil 7,2%. Hinii sögðust ætla að skila auðu eða höfðu ekki gert upp hug ; sinn. Arafat verður því að ölfe um líkindum fyrsti þjóðkjörni leiðtogi á Palestínumanna í dag. í augum hans rj eru kosningarnar annar áfangi að stofnun palestínsks ríkis. „Þetta er $ sögulegur atburður vegna þess af B kosningarnar era góðs viti fyrii stofnun Palestínuríkis með hint " helgu Jerúsalem sem höfuðborg,1, sagði hann í gær. Yasser Arafat spáð 80% kjörfylgi Þáttaskil í sögu friAar- umleitana

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 16. tölublað (20.01.1996)
https://timarit.is/issue/128122

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

16. tölublað (20.01.1996)

Aðgerðir: