Morgunblaðið - 20.01.1996, Blaðsíða 1
I
72 SÍÐUR LESBÓK/C/D
16. TBL. 84. ÁRG.
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
ARABÍSKAR konur krefjast þess að palestínsk yfirvöld sleppi
þremur Palestínumönnum sem voru handteknir í fyrrakvöld fyr-
ir að hvetja fólk til að sniðganga kosningarnar.
Þrír Hamas-liðar
drepmr í Jenín
Jerúsalem, Jenín. Reuter.
ISRAELSKIR hermenn skutu í gær
þijá Palestínumenn til bana í bænum
Jenín á Vesturbakkanum og herinn
stöðvaði alla umferð milli sjálfstjórn-
arsvæða Palestínumanna og ísraels
til að hindra hermdarverk vegna
palestínsku kosninganna sem fram
fara í dag.
Taismaður ísraelshers sagði að
hermennirnir- hefðu hafið skothríð
eftir að farþegar í bíl hefðu sært
hermann við vegatálma í útjaðri Jen-
ín. Sjónarvottur sagðist hafa séð
einn mannanna skjóta á hermann-
inn.
Palestínumennirnir voru félagar í
Hamas, hreyfingu herskárra músl-
ima, sem berst gegn friðarsamning-
unum við ísraela. Hreyfingin hefur
lýst því yfir að hún sniðgangi kosn-
ingarnar þótt nokkrir af forystu-
mönnum hennar bjóði sig fram sem
óháðir.
Meira en 2.000 Palestínumenn
söfnuðust saman í Jenín eftir að
mennirnir voru drepnir og rifu niður
veggspjöld frambjóðenda. Þeir hróp-
uðu vígorð gegn kosningunum og
palestínskum ráðamönnum.
Mikill öryggis-
viðbúnaður
ísraelska lögreglan kvaðst hafa
öryggisviðbúnað vegna hættu á
árásum palestínskra og ísraelskra
andstæðinga friðarsamninganna.
Leiðtogar gyðinga, sem eru búsettir
á sjálfstjórnarsvæðunum, lofuðu að
reyna ekki að hindra kosningarnar.
Þeir sögðu þó að efnt yrði til bæna-
fundar í Jerúsalem og mótmæla-
fundar í Hebron á Vesturbakkanum.
Búist er við að Yasser Arafat,
leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu-
manna, vinni stórsigur í forsetakosn-
ingunum og að margir af stuðnings-
mönnum hans verði kosnir í löggjaf-
arráð Palestínu. 88 fulltrúar verða
kjörnir í ráðið.
■ Milljón Palestínumanna/27
Meiri
hagvöxt-
ur en
talið var
Washington. Reuter.
NÝJAR hagtölur, sem birtar
voru í gær, benda til að banda-
rískt efnahagsiíf sé í betra
ástandi en spáð hafði verið og
hefur það vakið upp vangavelt-
ur um hvort bandaríski seðla-
bankinn muni lækka vexti á
ný í lok mánaðarins.
Bandaríska vinnumálaráðu-
neytið greindi frá því að at-
vinnuleysi hefði verið óbreytt
eða 5,6% í desember og að at-
vinnutækifærum hefði haldið
áfram að fjölga. 151 þúsund
ný störf urðu til í desember og
166 þúsund í nóvember.
Þá greindi viðskiptaráðu-
neytið frá því að hagvöxtur
hefði mælst 3,2% á þriðja fjórð-
ungi síðasta árs, sem er nokkru
meira en búist hafði verið við.
Hagvöxtur á öðrum ársfjórð-
ungi var 0,5%. „Menn voru
farnir að hafa miklar áhyggjur
af því hversu slæmt ástandið í
efnahagslífinu kynni að vera.
Það er hins vegar ekkert í
skýrslunni sem gefur ástæðu
til svartsýni," sagði yfirhag-
fræðingur fjármálafyrirtækis-
ins Nicco Securities.
Horfur góðar
Joseph Stiglitz, einn helsti
efnahagsráðgjafi Bandaríkja-
forseta, tók í sama streng og
sagði horfurnar fyrir árið 1996
vera góðar.
Ekki voru þó allir jafnbjart-
sýnir og sögðu sumir hagfræð-
ingar ástæðu til að ætla að
hagvöxtur á árinu 1995 í heild
yrði í kringum 2% sem væri
undir afkastagetu efnahags-
lífsins. Aðrir bentu á að um
40 þúsund störf hefðu bæst við
í iðnaði er verkfalli hjá Boeing-
flugvélaverksmiðjunum lauk og
væri sú aukning ekki tákn um
uppsveiflu í efnahagslífinu.
Borís Jeltsín boðar aðgerðir gegn tsjetsjenskum aðskilnaðarsinnum
Reuter
TYRKNESKIR stuðningsmenn tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna
veifuðu tsjetsjenskum fána og gerðu sigurmerki er Svartahafsferj-
an Avrasía sigldi að landi í Istanbul í gær.
Gíslum á
Svartahafs-
ferju sleppt
Moskvu, Istanbul. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
varði í gær þá ákvörðun að beita
valdi til að frelsa gísla í þorpinu
Pervomaískoje fyrr í vikunni og hót-
aði því að stöðvar skæruliða í
Tsjetsjníju yrðu þurrkaðar út. Vopn-
aðir menn er tóku um 200 manns í
gíslingu á Svartahafsfeijunni Avras-
íu á þriðjudag, til stuðnings Tsjetsj-
enum, slepptu gíslunum í gær.
Mennirnir yfirgáfu feijuna síð-
degis í gær í gúmmíbátum og voru
færðir á lögreglustöð í Istanbul.
Höfðu þeir hent vopnum sínum í
sjóinn áður en þeir gáfust upp. Anu-
íoúan-fréttastofan sagði að þeir yrðu
yfirheyrðir af deild innan lögregl-
unnar er sérhæfði sig í „íslömskum
hryðjuverkum". Að sögn embættis-
manna voru byssumennirnir fimm
og tyrkneskir ríkisborgarar.
Þorpjafnað viðjörðu
Þúsundir heittrúaðra Tyrkja
gengu um götur Istanbul í gær að
loknu hádegisbænahaldi og hrópuðu
slagorð gegn Rússum og til stuðn-
ings Tsjetsjenum.
Nú er ljóst að um helmingi tsjetsj-
ensku skæruliðanna er höfðu gísla
í haldi í Pervomaískoje í Dagestan
þar til á fimmtudag tókst að flýja
áður en Rússar hertóku þorpið. Nær
allar byggingar í þorpinu, um 300
talsins, hafa verið jafnaðar við jörðu
en Jeltsín sagði á blaðamannafundi
í gær að valdbeitingin hefði verið
réttlætanleg. Gaf hann sterklega í
skyn að gripið yrði til frekari hern-
aðaraðgerða.
Fréttaskýrendur í Moskvu töldu
líklegt að forsetinn vildi með harð-
orðum yfirlýsingum byggja upp
ímynd hins sterka leiðtoga fyrir for-
setakosningarnar á næsta ári. Jelts-
ín hefur þó ekki enn lýst því yfir
hvort hann hyggur á framboð að
nýju.
■ Helmingur liðs/18
Skilyrðum friðarsamninga mætt
Sar^jevo. Reuter
STRlÐANDI fylkingar í Bosníu hafa að mestu
virt þau tímamörk sem þeim voru sett i friðarsam-
komulaginu sem undirritað var í París í desember
og hafa flutt vopn og hermenn frá víglínunni.
Var brottflutningurinn eitt aðalskilyrða sam-
komulagsins. Það kvað á um að herir Bosníu-
Serba, múslima og Króta flyttu sig að minnsta
kosti tvo kilómetra frá víglínunni fyrir miðnætti
aðfaranótt 19. janúar.
Eftirlitsmenn Atlantshafsbandalagsins könn-
uðu í gærdag ástandið við víglínuna sem er um
1.000 km löng og reyndust hermenn og mestur
hluti stríðstólanna á bak og burt. Kváðust þeir
telja að sú hefði einnig verið raunin annars stað-
ar en það fengist ekki að fullu staðfest fyrr en
að einum til tveimur dögum liðnum.
Koma í veg fyrir rannsókn
Þá hófu Króatar, Bosníu-Serbar og múslimar
fangaskipti í gær en þá rann út fresturinn sem
gefinn var í friðarsamkomulaginu. Fulltrúar
Rauða krossins, sem fylgdust með fangaskiptun-
um, sögðu að 68 múslimar hefðu verið látnir laus-
ir og Bosníu-Serbar tilkynntu að 92 Serbar hefðu
fengið frelsi.
Akvæðum friðarsamkomulagsins um fanga-
skipti hefur þó ekki enn verið fullnægt en um
900 stríðsfangar eru á skrá Rauða krossins.
Rannsókn á ásökunum um fjöldamorð í Bosníu
miðar hægt. Vestrænir blaðamenn, sem rannsak-
að hafa málið, segja að vopnaðar sveitir Serba
hafi komið í veg fyrir hana. Þá hafa bandarískir
hermenn, sem annast m.a. eftirlit á svæðinu
umhverfis Srebrenica, verið tregir til að rannsaka
meint fjöldamorð Bosníu-Serba síðasta sumar.
Hins vegar hafa embættismenn NATO ekki úti-
lokað að hermenn þeirra fylgi eftirlitsmönnum
SÞ til þeirra svæða þar sem grunur leikur á um
að fjöldamorð hafi verið framin.