Morgunblaðið - 15.02.1996, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996 7
FRETTIR
Erró ekki fengið neinar fregnir af tillögum um nýtingu á Hafnarhúsinu
Líst ágætlega
á húsið
Borgarráð Reykja-
víkur um uppsagnir
heilsugæslulækna
Samráð verði
haft við borg-
ar yfirvöld við
lausn málsins
BORGARRÁÐ Reykjavíkur hefur
samþykkt í tilefni af uppsögnum
heilsugæslulækna í landinu, þar á
meðal nánast allra heilsugæslu-
lækna í Reykjavík, að beina þeim
tilmælum til heilbrigðisráðherra að
við lausn málsins verði haft fullt
samráð við borgaryfirvöld.
„Heilsugæslu- og heimilislæknar
hafa mikilvægu hlutverki að gegna
við að annast og byggja upp frum-
heilsugæslu og efling hennar er eitt
mikilvægasta verkefnið á sviði heil-
brigðisþjónustu í landinu. Eðlilegt
er að borgaryfirvöld taki þátt í um-
fjöllun um frekari uppbyggingu og
skipulag heilsugæsluþjónustu í borg-
inni. Borgarráð hvetur heilbrigðis-
ráðherra og fulltrúa heilsugæslu-
lækna til að leita nú þegar sam-
komulags til að koma í veg fyrir að
uppsagnir taki gildi. Einnig er brýnt
að vaktþjónusta á svæðinu falli ekki
niður en í það stefnir 1. mars nk.
verði ekkert aðhafst. Ef ekki tekst
að leysa þessi mál fljótt og með við-
unandi hætti er hætta á að óvissu-
og upplausnarástand skapist í þjón-
ustu heilsugæslunnar við íbúa
Reykjavíkur og annarra byggðar-
laga,“ segir í samþykkt borgarráðs.
Læknar vilja fund
með borgarfulltrúum
Heilsugæslulæknar hafa óskað eft-
ir því við borgarstjórann í Reykjavík,
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, að
fá að hitta fulltrúa borgaryfirvalda,
bæði meiri- og minnihluta, sem fyrst
til að gera grein fyrir og svara spurn-
ingum um ástæður þess að níu af
hveijum tíu heilsugæslulæknum á
landinu sögðu upp störfum um síð-
ustu mánaðamót. „Við teljum mikil-
vægt að borgarfulltrúar geti aflað
sér upplýsinga um málið milliliða-
laust og gerum ráð fyrir að tveir eða
þrír mæti fyrir okkar hönd, sjái ráða-
menn Reykjavíkur sér fært að verða
við erindinu," segir Katrín Fjeldsted,
formaður Félags íslenskra heimilis-
lækna, í bréfi til borgarstjóra.
-----» ♦ ♦----
Ráðuneytisstjórinn í
dómsmálaráðuneytinu
Víðtækari
lagaheimildir
ræddar
ENGINN umræða hefur farið fram
innan dómsmálaráðuneytisins um
hvort rétt sé að rýmka lagaheimildir
um hleranir hér á landi, en Þorsteinn
Geirsson ráðuneytisstjóri segir að
það verði gert í framhaldi af þeim
orðum lögreglustjórans í Reykjavík
að lagaheimildirnar séu of þröngar.
Samkvæmt lögum um meðferð
opinberra mála er lögreglu, að und-
angengnum úrskurði dómara, heim-
ilt að beita símahlerunum við rann-
sókn sakamála ef grunur ieikur á
að refsingin varði a.m.k. átta ára
fangelsi. Þessar heimildir hafa verið
notaðar 29 sinnum síðan 1. júlí 1992
til ársloka 1995. Lögreglunni er
einnig heimilt að hlera samtöl sem
eiga sér stað á almannafæri. Ekki
er hins vegar heimilt að hlera sam-
töl sem eiga sér stað innan veggja
heimilis manna. Böðvar Bragason,
lögreglustjóri í Reykjavík, telur rétt
að skoða hvort að heimild til slíkra
hlerana eigi ekki að vera í lögum.
Böðvar segir að símahleranir hafi
komið að miklu gagni sem rannsókn-
arúrræði í fíkniefnamálum. Fái lög-
reglan heimild til að hlera samtöl
manna heima hjá grunuðum ein-
staklingum sé hægt að ná enn meiri
árangri.
ERRÓ kveðst ekki hafa fengið
neinar fregnir af tillögum sam-
starfsnefndar um nýtingu Hafnar-
hússins, sem gera m.a. ráð fyrir
að hinni umfangsmiklu gjöf lista-
mannsins verði fengið þar varan-
legt aðsetur á tæplega 800 fer-
metra svæði. Hann hafi lítið um
þessar tillögur að segja, enda önn-
um kafinn við undirbúning sýn-
inga. „Eg gaf þessi verk og það
er búið, núna vinn ég við aðrar
hugmyndir," segir hann.
Erró kveðst hins vegar hafa
skoðað húsið á sínum tíma ásamt
borgarstjóra og verkfræðingi og
fundist staðsetning þess við höfn-
ina skemmtileg.
„Það stendur svo vel, þetta hús,
og skemmtilega við gömlu höfnina.
Hvernig til tekst hlýtur að velta
mikið á þeim sem teikna á húsið
að innan, en mér skilst þó að lítið
þurfi að gera við það, því það er
eins og salirnir séu þegar til. Á
Korpúlfsstöðum hefði þurft að gera
miklu meira til lagfæringa," segir
hann.
Stórsýning í undirbúningi
Erró er önnum kafinn um þessar
mundir við að undirbúa stóra sýn-
ingu í Vínarborg í júní og stóra
pólitíska sýningu sem sett verður
upp í Þýskalandi og fara milli safna
næstu tvö ár. Búið er að ganga
frá lista yfir verk sem lánuð verða
frá Listasafni Reykjavíkur, en alls
verða yfir 100 stór málverk á sýn-
ingunni í Vín sem hefst 13. júní
nk. og stendur í þrjá mánuði.
Mikið er í sýninguna lagt, m.a.
gefin út 200 síðna sýningarskrá.
„Þetta hefur mikið að segja fyrir
mig, því að stór nöfn hafa sýnt
þarna undanfarin ár,“ segir Erró.
Hann er um þessar mundir að
vinna að nýjum verkum sem verða
á sýningunni, en einnig verður yfir-
lit yfir feril listamannsins frá 1965
og fram til samtímans.
„Það er búið að negla hvetja
mynd niður. Við Gunnar Kvaran
fórum yfir málin fyrir hér um bil
ári ásamt safnvörðunum í Vín og
þá var ákveðið hvaða syrpa yrði í
hveijum sal,“ segir hann.
Bókaðu þig á fjármálanámskeið
Búnaðarbankans!
Það er hægt að ná miklum árangri í að lækka útgjöldin
án þess að neita sér um alla ánægjulega hluti, ef fólk lætur
skynsemina ráða í fjármálunum.
Búnaðarbankinn mun standa fyrir röð af námskeiðum um
fjármál fyrir alla aldurshópa. Þátttakendur fá vandaðar fjár-
málahandbækur sem hafa verið samdar sérstaklega fyrir
hvern aldurshóp.
Athugið
að panta
tím
því
;eið
verið
fullbókuð!
iikimii.isi.Inan
Fjdrmál heimilisins
i
FJARMÁLAHA SDBÖK
ÖftmíNADAIíBANKlNN
Fjármál heimilisins
Þar er fjallað um ýmis atriði sem tengj-
ast heimilisrekstri. Hvernig spara má í
útgjöldum, lánamöguleika, ávöxtunarleiö-
ir, heimilisbókhald, áætlanagerö, skatta-
mál, húsnæðislán, kaup á íbúö o.fl.
Verð 2000 kr. (3000 kr. fyrir hjón).
Innifalin er vegleg fjármálahandbók og
veitingar.
Fjármál ungafólksins
Nýtt námskeið sem er sérstaklega
ætlað fólki á aldrinum 16 - 26 ára.
Tekið er á flestum þáttum fjármála
sem geta komiö upp hjá ungu fólki í
námi og starfi.
Verð 1000 kr. Innifalin er
Fjármálahandbók fyrir ungt fólk og
veitingar.
Fjármál unglinga
Fjármálanámskeiöið er fyrir unglinga á
aldrinum 12 -15 ára. Þar er leiðbeint
um hvernig hægt er að láta peningana
endast betur, hvaö hlutirnir kosta og
ýmislegt varöandi fjármál sem ungling-
ar hafa áhuga á aö vita. Þátttakendur
fá vandaöa fjármálahandbók.
Ath! Ekkert þátttökugjald. Veitingar.
Næstu námskeið:
Fimmtudag 15. febrúar
Þriðjudag 20. febrúar
Mánudag 26. febrúar
Þriðjudag 27. febrúar
Miövikudag 28. febrúar
Fimmtudag 29. febrúar
Ath! Búnaðarbankinn í Hafnarfirði:
Fimmtudag 14. mars Fjármál heimilisins kl. 18 - 22
Nánari upplýsingar um námskeiöin og skráning eru í síma 525 6343.
Fjármál heimilisins kl. 18 - 22 Fullbókað
Fjármál unga fólksins kl. 18 - 22 Fullbókaö
Fjármál unglinga kl. 15 -18
Fjármál heimilisins kl. 18 - 22 Fullbókaö
Fjármál unga fólksins kl. 18 - 22
Fjármál heimilisins kl. 18 - 22
BUNAÐARBANKINN
-traustur banki!